Morgunblaðið - 26.06.1982, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
Kosið til hrepps-
nefnda í dag
KOSIÐ verður til hreppsnefnda í dag,
í 156 hreppum víðs vegar um land. í
21 af þeim verður kosið Um fleiri en
einn lista. Mbl. hafði samband við
fimm af þeim stærstu, og aflaði sér
upplýsinga um kosningarnar.
Rangárvallahreppur
I Rangárvallahreppi verður kosið
í Hellubíói og verður kjörstaður
opinn frá klukkan 10 um morgun-
inn til klukkan 23.00 um kvöldið.
Tveir listar eru í kjöri, E-listi
sjálfstæðismanna og óháðra og
I-listi. Talning fer fram strax eftir
að kjörstað verður lokað. I fráfar-
andi hreppsnefnd eiga sæti: Páll
Björnsson, oddviti, Jón Thoraren-
sen, Gunnar Magnússon, Arni
Hannesson og Bjarni Jónsson.
Vopnafjörður
Kjörstaður á Vopnafirði er í Fé-
lagsheimilinu Miklagarði, og verð-
ur hann opnaður kl. 10.00 og er
opinn til kl. 23.00. Þrír listar eru í
kjöri, B-listi Framsóknarflokks,
D-listi Sjálfstæðisflokks og G-listi
Alþýðubandalags. Sjö manna
hreppsnefnd er á Vopnafirði, sem
skiptist þannig milli flokkanna, að
Framsóknarflokkurinn á 3 menn,
Sjálfstæðisflokkurinn 2 menn, Al-
þýðubandalagið 1 mann og einn er
óháður. í fráfarandi hreppsnefnd
eiga sæti: Af B-lista Hreinn
Sveinsson, Helgi Þórðarson og
Ásgeir Sigurðsson, af D-lista Alex-
ander Árnason og Hilmar Jósefs-
son, sem kom inn sem varamaður
Þengils Oddssonar, af G-lista. Dav-
íð Vigfússon og óháður er Una Ein-
arsdóttir. Á kjörskrá eru 583 og
talið verður strax að kjörfundi
loknum.
INNLENT
h D s Á
Skútustaöahreppur
Á kjörskrá í Skútustaðahreppi
eru 355. Kosið verður á tveimur
stöðum, Félagsheimilinu Skjól-
brekku, þar sem kjörstaður verður
opinn frá 12.00 til 23.00, og í Barna-
skólanum í Reykjahlíð, þar sem
kjörstaður verður opinn frá kl.
9.00—23.00. í kjöri eru tveir listar
K-listi og L-listi, sem skiptast ekki
eftir flokkspólitískum línum. í
fráfarandi hreppsnefnd eiga sæti
Kristján Ingvason, oddviti, Jón 111-
ugason, Sigurður Þórisson, Her-
mann Kristjánsson og Hallgrímur
Pálsson.
Búðardalur
(Laxárdalshreppur)
í Búðardal er kosið í Félagsheim-
ilinu Dalabúð, og verður kjörstaður
opinn frá kl. 10.00. Þrír listar eru í
kjöri, B-listi Framsóknar og ann-
arra vinstri manna, D-listi Sjálf-
stæðisflokks og óháðra kjósenda og
G-listi Alþýðubandalags. í fráfar-
andi hreppsnefnd eiga sæti: Af
B-lista Kristinn Jónsson, sem er
oddviti, og Svavar Jensson, af
D-lista Sigurður Rúnar Friðjóns-
son og Jóhannes Benediktsson og
af G-lista Gísli Gunnlaugsson. All-
ir þessir menn eru aftur í kjöri, í
sömu sætum. Á kjörskrá í Laxár-
dalshreppi eru 257.
Kjalarneshreppur
Kjörstaðurinn í Kjalarneshreppi
er í Félagsheimilinu Fólkvangi og
verður hann opinn frá 10.00 um
morguninn til 23.00 um kvöldið. í
kjöri eru fjórir listar, D-listi
Sjálfstæðisflokks og stuðnings-
manna, H-listi óháðra borgara,
I-listi frjálslyndra kjósenda og
S-listi Samstöðu, samtaka áhuga-
fólks um sveitarstjórnarmál. í
fráfarandi sveitarstjórn sitja:
Bjarni Þorvarðsson, Jón Ólafsson,
Árni Snorrason, Sigurður Þórðar-
son og Bergþóra Einarsdóttir, en
tvö þau síðastnefndu hafa ekki set-
ið í sveitarstjórn undanfarin ár. Á
kjörskrá eru 173 og talið verður
strax að kjörfundi loknum.
263 kandídatar braut-
skráðir frá HÍ í dag
Háskólahátíö verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 26. júní 1982 kl. 2
síödegis, og fer þar fram brautskráning kandídata. Athöfnin hefst með því að
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur við undirleik Reynis Axelsson-
ar. Háskólarektor, prófessor Guðmundur Magnússon, flytur ræðu og síðan
afhcnda deildarforsetar prófskírteini.
undir stjórn Hjálmars Ragnarssonar.
Að þessu sinni verða braut-
skráðir 263 kandídatar og skiptast
þeir þannig: Embættispróf í guð-
fræði 6, embættispróf í læknis-
fræði 39, aðstoðarlyfjafræðings-
próf 1, B.S.-próf í hjúkrunarfræði
20, BS-próf í sjúkraþjálfun 12,
embættispróf í lögfræði 25,
kandídatspróf í íslenskri málfræði
1, kandídatspróf í sagnfræði 1,
Háskólakórinn syngur nokkur lög
BA-próf í heimspekideild 33, próf í
íslensku fyrir erlenda stúdenta 2,
lokapróf í byggingarverkfræði 12,
lokapróf í vélaverkfræði 13, loka-
próf í rafmagnsverkfræði 10, BS-
próf í raungreinum 28, kandídats-
próf í viðskiptafræðum 38, kandí-
datspróf í tannlækningum 6, BA-
próf í félagsvísindadeild 16.
„Sergent Blue“ í Hafnarbíói
HAFNARBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á kvikmyndinni „Sergent
Blue“ en í myndinni leika m.a.
John Wayne yngri, Woody Strode
og Guy §t*«ltwell(.Mtf|adia.er vestri
og fjallar um baráttu landnema
við Apache-indiána.
I umsögn kvikmyndahússins
segir að myndin sé „æsispennandi
og viðburðarík ný Cinemascope-
mynd . cjhcjuiji imo.uMu-.i i m t».
Helgi Ibsen, framkvæmdastjóri Skallagríms, og Þorvaldur Guðmundsson,
skipstjóri, í brúnni á nýju Akraborginni.
Nýja Akraborgin hefur
áætlunarsiglingar í dag
Nýja Akraborgin hefur áætlunarferðir milli Akraness og Reykjavíkur í
dag. Hún er smíðuð i Noregi 1974. Mesta lengd hennar er 68 metrar, breidd
11 metrar og djúprista 3,10 metrar. Hún er 900 tonn og getur tekið 400
farþega og 70—75 bíla í einni ferð. Aðalvélar eru tvær, 1155 hestöfl hvor um
sig. Auk þess er hún búin þrem hjálparvélum af Mercedes Bens gerð. Gert er
ráð fyrir að olíueyðsla sé 8,6 tonn á sólarhring, miðað við fuila keyrslu. Þá er
hún útbúin með vökvaknúinni bógskrúfu, og til nýjunga heyra sérstakir
stöðugleikauggar, sem koma í veg fyrir hliðarvelting. Mun hún vera eina
skipið hér á landi sem hefur þannig útbúnað.
Flutningsgeta nýju Akraborg-
arinnar er 330—350 þúsund far-
þegar og 90—100 þús. bílar á ári, á
móti 220 þús. farþegum og 60 þús.
bílum sem gamla Akraborgin gat
flutt á hverju ári.
Verð skipsins er 2,9 milljónir
Bandaríkjadala og þurfa flutn-
ingar að aukast um 58% til að
nýja skipið standi undir sér, að
sögn Helga Ibsen, framkvæmda-
stjóra Skallagríms, sem gerir út
Akraborgina.
Helgi sagði einnig, að til viðbót-
ar við hina auknu flutningsgetu
hinnar nýju Akraborgar, þá mun-
aði miklu að geta nú verið með
veitingar á tveim stöðum í stað
eins áður, og að stöðugleika-
uggarnir væru til mikilla þæg-
indaauka fyrir farþega.
Hvað hina gömlu Akraborg
snertir, þá er hún nú komin á sölu-
skrá. Eitthvað hefur verið spurt
um hana, en ekkert enn verið
ákveðið í því sambandi. Gera má
ráð fyrir að hún verði fyrst til að
byrja með sett í slipp, og síðan séð
til hvað verður.
Skipstjóri nýju Akraborgarinn-
ar er Þorvaldur Guðmundsson og
1. vélstjóri Hreggviður Hendriks-
son.
Nýja Akraborgin að innanverðu.
Geysir lát-
inn gjósa á
sunnudögum
GEYSISNEFND hefur ákveðið á
fundi sínum að sápa verði sett í
Geysi, óski feróahópar eða ferða-
skrifstofur þess, einu sinni í
viku, til þess að reyna að fá gos,
kemur þetta fram í fréttatilkynn-
ingu frá Geysisnefnd. Ennfremur
segir, að fyrirhugaö sé að sápa sé
sett í hverinn að jafnaði um kl.
16.00 á sunnudögum, þó ekki
sunnudaginn 4. júlí næstkom-
andi, en sápa verður sett í Geysi
sunnudaginn 27. júní.
Þeir aðilar, sem áhuga
kynnu að hafa á því að sápa
verði sett í hverinn í fram-
greindu skyni, eru beðnir að
snúa sér til Þóris Sigurðssonar
í Haukadal, sem veita mun
nánari uppiýsingar.
Athygli er ennfremur vakin
á því að fara verður mjög var-
lega um Geysissvæðið, sér-
staklega við Geysi sjálfan, en
sett hefur verið upp girðing
umhverfis Geysi.
Jazz í Stúdenta-
kjallaranum
LEIKINN verður jazz í Stúdenta-
kjallaranum við Hringbraut á
sunnudagskvöld, frá klukkan 21 til
23.30. Það eru þeir Friðrik Karlsson,
gitar, Tómas R. Einarsson, kontra-
bassi og Alfreð Alfreðsson trommur,
sem sjá um sveifluna.
Norrænir lyfja-
fræðingar þinga
ÁRLEGUR fundur Sambands
norrænu lyfjafræðingafélaganna,
Nordisk Farmaceut Union, verður
haldinn að Hótel Bifröst í Borg-
arfirði dagana 28. og 29. júní.
Jafnframt verður haldinn sérstak-
ur fundur ritstjóra tímarita nor-
rænu lyfjafræðingafélaganna. Er
þetta í þriðja sinn sem þessir
fundir eru haldnir hér á landi. Á
fundunum verður meðal annars
fjallað um málefni er varða
menntun lyfjafræðinga, öryggi í
meðferð og geymslu lyfja, og þá
sérstaklega hvernig koma megi í
veg fyrir slys á börnum af völdum
þeirra. Tuttugu þátttakendur frá
öllum norrænu lyfjafræðingafé-
lögunum sitja fundinn. Núverandi
formaður Nordisk Faraceut Union
er Einar Magnússon, lyfjafræð-
ingur.
Skipalyftan vígd
SKIPALYFTAN í Vestmannaeyj-
um verður formlega tekin í notkun
á sunnudaginn. Skuttogarinn
Sindri verður þá tekinn upp í lyft-
unni en lyftan tekur alla minni
skuttogarana.
Áhrif skrefatalningarinnar:
r _
Utgjaldaaukning Reykjavíkurborg-
ar en tekjurýrnun Pósts og síma
UOST er að sú breyting sem varð á skrefatalningu símtala 1. nóvember sl.
hefur þýtt verulega tekjurýrnum hjá Pósti og síma, annars vegar, og útgjalda-
aukningu fyrir Reykjavíkurborg hins
Guðmundi Björnssyni, fjármálastjóra
borgarendurskoðanda.
Guðmundur Björnsson sagði að
skv. nýjustu tölum hefði um-
framskrefum innanlands fækkað
um 13%. Þetta hefði komið í ljós
við samanburð á þriggja mánaða
tímabili í ár og á sama tímabili í
fyrra. Á ársgrundvelli þýddi þetta
um a.m.k. 20 milljóna króna tekju-
rýrnun. Þegar skrefatalningin tók
gildi sl. haust voru langlínutaxtar
lækkaðir að meðaltali um 30%,
mest 33%. T.a.m. var hvert skref
frá Reykjavík til Akureyrar lengt
um 4 sekúndur, úr 8 sek. í 12. Að
sögn Guðmundar var stefnt að því
að >þessar ■breyti-ngar-teiddtr-ekki
til tekjuaukningar hjá Pósti og
ægar. Þetta fékkst í gær staðfest hjá
Pósts og síma, og Bergi Tómassyni,
síma, en með tekjurýrnuninni
væri ljóst að verð langlínusamtala
hefði lækkað full mikið.
Guðmundur vildi að fram kæmi
að það væri alltaf erfitt að meta
þessi mál og gera á þeim fúllnægj-
andi úttekt. Sem dæmi nefndi
hann hugsanlega breytta símnotk-
un fólks á hinum ýmsu svæðum.
Aðspurður kvaðst hann telja lík-
legast að þessu tekjutapi yrði
mætt með einhverri verðhækkun
við næstu gjaldskrárákvörðun.
Bergur Tómasson borgarend-
urskoðandi upplýsti að saman-
burður á símaútgjöldum Reykja-
víkurborgar á ákveðnu greiðslu-
tímabili í ár og sama tímabili í
fyrra, hefði leitt í ljós 31,3% með-
altalsaukningu. Ársfjórðungs-
aukning fyrir eitt svæði, en borg-
arsímum er skipt í þrjú svæði,
næmi tæpum 53 þúsund krónum.
Hér væri aðeins um að ræða eitt
tímabil og eitt svæði. Bergur sagði
að borgin beitti sér nú fyrir lokun
síma, sem fælist í því að ekki væri
lengur mögulegt að hringja úr
þeim til útlanda og út á land.
Þessar lokanir sagði hann að
miklu leyti framkvæmdar vegna
óska viðkomandi stofnana, sem
vildu firra sig allri ábyrgð á hugs-
anlegri misnotkun. Sjálfur kvaðst
Bergur telja að útgjaldaaukningin
stafaði einvörðungu vegna skrefa-
talningarinnar en ekki breyttrar
notkunar á símum borgarinnar.