Morgunblaðið - 26.06.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
29
Tæknibúnaður hf.:
Tveir nýir olíunýtni-
mælar og rennslis-
nemar á markaðnum
FYRIRTÆKIÐ Tæknibúnaður hef-
ur nú hafið framieiðslu á tveimur
nýjum tækjum, sem ætluð eru fyrir
skip af öllum stærðum. Eru þetta
olíunýtnimælir og rennslisnemar
fyrir skipavélar. Tækin eru að öllu
leyti unnin hér innanlands af starfs-
mönnum Tæknibúnaðar. Nú þegar
hafa tækin fengið viðurkenningu er-
lendra rannsóknastofnana, sem
vinna við rannsóknir á tækjabúnaði
fyrir skip.
Olíunýtnimælirinn hefur nú
þegar verið settur í 9 íslenzk skip
og ennfremur í nokkur erlend
skip. Að sögn forráðamanna
Tæknibúnaðar, þá fullyrða skip-
stjórar þeirra skipa, sem fengið
hafa slíka mæla, að með þeim hafi
verið unnt að draga verulega úr
olíunotkun skipanna, eða frá 10 til
40% eftir aðstæðum og án mikill-
ar lengingar siglingartímans.
Forráðamenn Tæknibúnaðar
sögðu á blaðamannafundi, sem
haldinn var fyrir nokkru, að at-
huganir Tæknideildar Fiskifélags
íslands hefðu leitt í ljós, að unnt
væri að spara verulegar fjárhæðir
með því að draga úr olíunotkun,
án þess að það komi niður á heild-
arafla fiskiskipa.
Aætluð olíunotkun íslenzka
fiskiskipaflotans áriö 1980 var um
60 milljónir lítra af svartolíu og
um 140 milljónir lítra af gasolíu.
Aætlað er að heildarnotkunin
verði svipuð á þessu ári og inn-
SÍF gefur út veggspjöld
í tilefni afmælisins
í tilefni 50 ára afmælisins hefur SÍF gefið út fjögur veggspjöld, og sýnir hvert
þeirra saltfiskverkun á íslandi fyrr á árum. Myndir af tveimur þessara
veggspjalda sjást hér á síöunni, en þar er sýnd saltfiskverkun á íslandi á
fyrstu áratugum þessarar aldar.
kaupsverð á 200 milljónum lítra
verði um 650 milljónir króna, mið-
að við verð á olíu um þessar mund-
ir. Sögðu forráðamenn Tæknibún-
aðar að ef gengið væri útfrá að
meðalsparnaðurinn yrði um 20%
með notkun olíunýtnimælis, þá
mætti álykta að útgerðarmenn
gætu sparað um 130 milljónir
króna á ári með mjög lítilli fyrir-
höfn.
Skipstjórar á íslenzkum og er-
lendum kaupskipum og ferjum
hafa áætlað möguleika á 5 til 10%
sparnaði með hagkvæmari sigl-
ingu með notkun olíunýtnimæla.
Olíunýtnimælir frá Tæknibúnaði
er um borð í ferjunni Prinsess
Margrethe, sem siglir á milli
Óslóar og Kílar og fullyrða
skipstjórnarmenn þar, að olíu-
notkun skipsins hafi minnkað um
4% eftir að mælirinn var tekinn í
notkun og segjast þeir spara 1
millj. norskra króna á ári með því
að hafa mælinn um borð.
Tæknibúnaður hefur að undan-
förnu kynnt hin nýju tæki á er-
lendum vettvangi. Fyrir rúmu ári
gerði fyrirtækið samning við Sim-
rad-fyrirtækið í Noregi um að það
tæki að sér sölu á olíunýtnimæl-
unum undir sínu vörumerki. Þess-
um samningi hefur nú verið breytt
að ósk Simrad, þannig að Simrad
mun aðstoða Tæknibúnað við sölu
á mælunum undir Ecomatic-vöru-
merkinu, merki Tæknibúnaðar.
Munu umboðsmenn Simrad um
allan heim taka við mælunum, það
er á þeim stöðum, þar sem Tækni-
búnaður hafði ekki umboðsmenn
fyrir.
Þá sögðu stjórnendur Tækni-
búnaðar, að fyrirtækinu hefðu
þegar borizt fyrirspurnir frá
stjórnvöldum fiskveiðiþjóða um
mæla þessa og óskað hefði verið
samstarfs við fyrirtækið á þessu
sviði.
Nú munu um 20% islenzka
fiskiskipaflotans vera búin olíu-
nýtnimælum.
Annar hinna nýju olíunýtnimæla frá Tæknibúnaði nefnist FC-10. Stærri
myndin sýnir hvar olíunýtnimælir er tengdur við Scania-vél í danskri ran-
nsóknarstofu.
AR ALDRADRA 1982 ÞÓRIR S. GUÐBERGSSON
Vernd — Virkni — Vellíðan
Almenn þjónusta
við aldraða
Víða um land hefur það tíðk-
ast að kvenfélög, söfnuðir,
styrktarfélög aldraðra, deildir
Rauða kross íslands o.fl. hafi
tekið að sér að sinna ýmsum
þáttum í þjónustu við aldraða.
Má þar t.d. nefna starf safnaða-
systra í Reykjavík, ýmis tóm-
stundastörf, félagsstörf, ferða-
þjónustu, heimsóknarþjónustu,
heimsendingu matar o.fl.
Hljóðbókasafn blindrafélags-
ins og Borgarbókasafns Reykja-
víkur hefur verið starfandi um
margra ára skeið. Margir aldr-
aðir eru sjónskertir og eiga erf-
itt með að lesa sér til fróðleiks
og skemmtunar. Útlánsbækur
Hljóðbókasafnsins eru á snæld-
um og hafa þegar margir aldrað-
ir nýtt sér þessa þjónustu og eru
reyndar flestir lánþegar bóka-
safnsins aldrað fólk. Allar nán-
ari upplýsingar er unnt að fá hjá
Hljóðbókasafninu eða Blindra-
félaginu að Hamrahlíð 17,
Reykjavík.
Kvennadeild Rauða kross ís-
lands hefur m.a. eftirtalin störf
á sinni könnu í Reykjavík:
a. sölubúðir og bókasafnsþjón-
ustu á sjúkrahúsum, b. heim-
sóknarþjónustu til aldraðra, c.
heimsendingu máltíða til aldr-
aðra, d. sjálfboðaliðsstörf við fé-
lagsstarf eldri borgara í Reykja-
vík.
Hjálpartækjabankinn er sjálfs-
eignarstofnun, að hálfu eign
Rauða kross íslands og að hálfu
Sjálfsbjargar. Bankinn selur og
leigir ýmis hjálpartæki sem að
gagni geta komið eftir veikindi,
slys og langvarandi rúmlegu af
ýmsum orsökum og er unnt að fá
allar nánari upplýsingar hjá
stofnuninni.
Sjúkrahótel Rauða kro.vsins hef-
ur starfað um nokkurra ára
skeið. Það hefur þó ekki verið
rekið með þarfir aldraðra ein-
göngu í huga heldur og fyrir alla
sem þurfa á sjúkrahúsvist að
halda í eftirtöldum tilvikum:
a. vegna meðferðar eða aðgerðar
á göngudeild sjúkrahúsa, b.
vegna rannsókna eða meðferðar
utan venjulegs sjúkrahúss.
Sjúkrahúsið veitir enga lækn-
ismeðferð og er sjúklingur þar á
Félagsleg samvera
er öllum naud-
synleg bæði ungum
og öldnum
ábyrgð þess sjúkrahúss sem vist-
ar hann.
Félagsstarf sveitarfélaga er
einn af veigamestu þáttum fyrir-
byKRjandi starfs þar sem fólk
getur notið góðrar samveru í fé-
lagsskap vina og kunningja. Þar
geta menn valið um verkefni sér
við hæfi, spilað, föndrað, prjón-
að, saumað, unnið við leirmuna-
gerð eða leðurvinnu, teiknað og
málað, tekið þátt í námskeiðum
og léttri leikfimi, ferðast innan-
lands og utan og þannig mætti
lengi telja. Margar sögur eru til
af fólki sem hefur kynnst í slíku
starfi og tengst vináttuböndum
sem varað hafa langa ævi.
Félagsleg samvera er öllum
nauðsynleg bæði ungum og öldn-
um. Með þátttöku í félagsstarfi
njótum við örvunar til hugar og
handa og stuðlum þannig bæði
að líkamsrækt og hugrækt. Við
þurfum að komast fram og til
baka í félagsstarfið, fáum holla
og góða hreyfingu sem er mikil-
vægur liður í þvi að koma í veg
fyrir óeðlilega stirðnun og í fé-
lagsstarfinu rofnar oft sú félags-
lega einangrun sem angrar
marga á efri árum.
Félagsmálastofnun Reykja-
vikurborgar hefur komið upp
öflugu og markvissu félagsstarfi
á undanförnum árum og má t.d.
nefna að í öllum húsum sem
hafa verið sérhönnuð fyrir aldr-
aða er gert ráð fyrir sérstöku fé-
lags- og tómstundastarfi. Sama
er að segja um nágranna-
sveitarfélögin sem einnig hafa
fjölbreytta félagsstarfsemi á
sinni könnu svo og styrktarfélög
og söfnuði.