Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
148. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Járnbrautarverkfallið í Bretlandi:
11 kílómetra
Bretland:
Metgengi
á dollara
London, 7. júlí. AP.
Kandaríkjadollari hcfur stórh-
ækkað í verði á alþjóólegum
gjaldeyrismörkuðum undanfarið
og í dag var gengi dollarans
ha rra en nokkru sinni fyrr gagn-
vart franska frankanum, itölsku
lírunni og nokkrum norrænum
gjaldmiðlum.
Hækkandi vextir í Banda-
ríkjunum eru taldir helzta
orsök þessarar þróunar, en
einnig er talið að ástandið í
Miðausturlöndum hafi komið
nokkuð við sögu.
Doliarinn var í dag jafnvirði
rétt tæplega 7 franskra
franka, 1409,50 ítalskra ltra og
6,416 norskra króna. Gagnvart
sterlingspundi náði dollarinn
sínu sterkasta í fimm ár og
voru í dag 1,7075 dollarar í
pundinu. Gengi þýzka marks-
ins gagnvart dollara var 2,52
og hefur markið ekki verið
veikara gagnvart dollara frá
því i ágúst sl.
(Simamynd AP)
NÝR FORSETTI ARGENTÍNU — Hinu nýi forseti Argentínu, Reynaldo
Bignone fyrrum hershöfðingi, kom á fund fréttamanna í dag og er
myndin tekin við það tækifæri. Forsetinn sagði m.a. að stjórn landsins
hefði enn ofarlega á stefnuskrá sinni að koma á fullum yfirráðum
Argentínu yfir Falklandseyjum. Hann sagðist vonast til þess, að land-
her, flugher og floti Argentínu myndu sameinast að baki sér við stjórn
landsins.
Jenkins boðar breyt-
ingar á stjórnarfari
London, 7. júlí. AP.
ROY Jenkins, sem nýlega var kjörinn formaður hins nýja Jafnaðarmanna-
flokks í Bretlandi, kunngerði í dag tillögur flokksins um ýmsar stjórnarfars-
legar breytingar í landinu. Ber þar hæst tillögur um gerbreytingu á starfs-
háttum lávarðadeildar brezka þingsins svo og tillögur um dreifingu valds frá
ríkisstjórninni í London til staðhundinna stjórnvalda í Skotlandi og Wales.
Að auki er lagt til að stofnað verði til 10—12 héraðsstjórna víðs vegar í
Englandi.
Samkvæmt tillögum Jenkins
verður lávarðadeildinni breytt á
þann veg, að þingsæti þar erfist
ekki og lávarðar, sem hafa þá tign
til æviloka, tapa atkvæðisrétti sín-
um í deildinni. Nú eiga 1.175
aðalsmenn seturétt í lávarðadeild-
inni en í tillögum Jenkins er gert
ráð fyrir að þeim verði fækkað í
250 og verði þeir allir kjörnir sér-
staklega til setu í deildinni. Jafn-
framt fái deildin aukna möguleika
á að tefja fyrir málum, sem hlotið
hafa afgreiðslu í neðri málstof-
unni.
Fulltrúar í hinni nýju lávarða-
deild yrðu kjörnir á hinum sér-
stöku héraðsþingum, sem greint
er frá að ofan. í tillögunum er gert
ráð fyrir því að sérstök stjórn
verði í hverju héraði og sérstakur
„forsætisráðherra". Hafi þessir
aðilar völd yfir húsnæðismálum á
sínu svæði, menntunarmálum,
samgöngum og atvinnumálum.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi
stjórnvöld hefðu aðstöðu til að
afla tekna með sérstökum tekju-
skatti sem numið gæti 8—12% af
tekjum skattgreiðenda.
Tillögur Jenkins verða til um-
ræðu á landsþingi Jafnað-
armannaflokksins og hljóti þær
endanlegt samþykki þar má búast
við að þær verði lagðar fram í
brezka þinginu.
Líbanon:
ísraelsmenn neita að fallast á
að PLO verði heimilað að skilja
eftir átta manna starfslið til að
halda uppi pólitískri skrifstofu í
Beirut. Einnig hafa ísraelsmenn
hafnað þeirri kröfu PLO að 500
manna lið úr herstyrk þeirra fái
að verða eftir og sameinast líb-
anska hernum. Ráðuneytisstjór-
inn í utanríkisráðuneytinu í Jerú-
salem hélt í dag til Beirut til að
ræða við Habib um samningsdrög
hans og athugasemdir ísraels-
manna við þau.
Að sögn ísraelska útvarpsins
getur brottflutningur Palestínu-
mannanna, sem lúta stjórn Yass-
irs Arafats, hafist á föstudag, ná-
ist samkomulag í kvöld. Búizt er
við því að þeir verði fluttir sjó-
leiðis til borgarinnar Latakia í
Sýrlandi og þaðan til ýmissa staða
í arabaheiminum.
Að sögn ísraelsks ráðherra létu
1.500 arabar lífið í innrás ísra-
elsmanna í Líbanon. Ekki væri
hins vegar vitað með vissu hve
margir þessara manna hefðu verið
PLO-menn.
Bcirut, 7. júli. AP.
BANDARÍSKIR og líbanskir milli-
göngumenn unnu í kvöld að því að
ganga frá samkomulagi milli ísra-
elsmanna og skæruliða PLO um
brottflutning Palestinumanna frá
Vestur-Beirút, sem Israelsmenn
hafa einangrað. ísraelsmenn héldu
uppi skotárásum i tvo klukkutíma i
dag á vígi Palestinumanna í borg-
inni.
Að sögn heimildarmanna í Beir-
ut má búast við því að samkomu-
lag um brottflutning PLO-manna
sé á næstu grösum. Hins vegar
hafa Israelsmenn algerlega neitað
að fallast á tvö atriði í tillögum
þeim, sem Habib, sérlegur sendi-
maður Bandaríkjastjórnar, hefur
lagt fram og eru grundvöllur við-
ræðnanna nú.
„Stríð í þágu friðar“ stendur letrað á ensku, hebresku og arabísku á |
á leið inn i Beirut, þegar myndin var tekin.
i bryndreka (sraelsmanna, sem var
(Símamynd AP)
Brottflutningur skæruliða
PLO gæti hafíst á morgun
löng bílalest
liondon, 7. júlí. AP.
FLEIRI lestarstjórar gerðu í dag uppreisn gegn forystumönnum sínum í
verkalýðshreyfingunni og mættu til vinnu og voru því fleiri lestir á ferðinni
en áður i verkfalli járnbrautarstjóra, sem nú hefur staðið í fjóra daga.
Engu að síður var gífurlegt um-
ferðaröngþveiti víða í London og
nágrenni, þar sem fólk, sem vana-
Iega ferðast með lestum, fór í bíl-
um sínum til vinnu. Voru dæmi
þess, að bílalestirnar hafi orðið
allt að 11 kílómetra langar.
Búizt er við því að fleiri lestar-
stjórar mæti til vinnu á morgun,
en engu að síður verður aðeins lít-
ill hluti allra lesta í Bretlandi á
ferðinni. Talsmaður brezku ríkis-
járnbrautanna sagði í dag að
hætta væri á því að fyrirtækið
yrði að leggja niður allar ferðir ef
verkfallið drægist á langinn.
Átján ára gömul stúlka beið
bana, þegar hún fékk rafmagns-
lost er hún snerti járnbrautar-
teina skammt frá Liverpool.
Stúlkan var úti að hlaupa með
hundinn sinn og er talið að hún
hafi haldið að rafmagnið hefði
verið tekið af teinunum.