Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 38 Ragnheiður Ara- dóttir — Minning Fædd 23. september 1933 Dáin l.júlí 1982 Komið er að kveðjustund. Hníp- in stöndum við, smá og lítils megnug. Minningarnar hrannast upp frá góðum stundum, er ég átti með Ragnheiði. Ragnheiður Aradóttir var fædd að Brekku í Fljótsdal hinn 23. september 1933, dóttir hjónanna Sigríðar Soffíu Þórarinsdóttur og Ara Jónssonar læknis. Hún ólst upp ásamt einkasystur sinni, Ernu, á Héraði í fögru og tignar- legu umhverfi við mikið ástríki foreldra sinna. Að loknu stúdentsprófi og námi í París, giftist Ragnheiður eftirlif- andi manni sínum, Sigurði Þ. Guð- mundssyni lækni. Þau hófu bú- skap sinn vestanhafs, þar sem hann stundaði framhaldsnám. Meðan á námi hans stóð, veiktist hann og sýndi þá Ragnheiður mik- inn styrk, sem hann ætíð mat mik- ils. Ragnheiður starfaði um árabil hjá Loftleiðum, bæði vestanhafs og hér heima. Ragnheiður og Sig- urður reistu sér nokkru eftir heimkomu sína, fagurt heimili að Barðaströnd 1 á Seltjarnarnesi. Oft er erfitt að halda lífsins ljósi skæru og tindrandi á storma- samri jörð. En er veraldarfjötrar bresta og sálin svífur laus allra þjáninga mót eilífðarljósi til Hans, sem öllu ræður, er það huggun harmi gegn að vita Ragnheiði ganga léttstíga og glaða hinn bjarta veg. Ég votta Sigurði, Ernu og öðr- um ættingjum innilega samúð mína. Asa Hanna Hjartardóttir „Hlessi big blómjörð, blessi þig úLsx*r, blt-ssi þig heiður himinn. Klski þig alheimur eilifð þig geymi. Signi þig sjálfur («uð.“ (Jóhannes úr Kötlum) Þegar brimaldan hnígur og öldurótið lægir, felllur kyrrðin á. Að þessu sinni er hún djúp og höfg — nístandi. Að nýju gárast haf- flöturinn og skolar þá að landi bárum minninganna um látna æskuvinkonu, sem eru á þann veg, að þær „leiða í hug minn fagurt endurskin". Ragnheiður Aradóttir var fædd 23. september árið 1933 að Brekku í Fljótsdal, dóttir hjónanna Sig- ríðar Þórarinsdóttur frá Valþjófs- stað og Ara Jónssonar frá Húsa- vík, héraðslæknis á Fljóts- dalshéraði. Þau hjón voru um margt ólík, en sterkustu eðlis- þættir þeirra beggja nutu sín vel hlið við hlið og mótuðu það fjöl- breytta og skemmtilega menning- arheimili, sem læknisheimilið var — einn af þeim burðarásum, sem íslenzk menning hefur hvílt á um aldaraðir. Við þennan trausta bakhjarl ólust upp dæturnar tvær, Ragn- heiður og Erna, umvafðar ást og umhyggju foreldranna. Bjarmi frá heimi uppvaxtarár- anna birtist oft hjá Ragnheiði, sem ívaf í frásögn eða málefni líð- andi stundar. Það fór ekki hjá því, að æskuheimilið mótaði hana. Þar fékk hún gott veganesti. Allt frá barnaskólaárum höfum við Ragnheiður átt ótaldar sam- verustundir og verið tengdar órofa tryggðaböndum. Æskuárin milli fermingar og tvítugs eru oft frjórri en önnur og verða vart skýrð með orðum. Við nutum í ríkum mæli þessara viðburðaríku og áhyggjulausu ára, sem voru fyrir okkur eins konar óður til gleðinnar og lífsins. Að loknu stúdentsprófi stundaði Ragnheiður nám í París. Nokkru eftir heimkomuna, þann 14. janú- ar 1959 giftist hún Sigurði Þ. Guð- mundssyni lækni, og fluttust þau þá til Bandaríkjanna, þar sem hann stundaði framhaldsnám. Heim sneru þau aftur árið 1964. Heimili þeirra hjóna er glæsilega prýtt listaverkum og fáséðum munum hvaðanæva að úr heimin- um. Þar voru ræktuð vináttu- og skyldleikabönd. Þar sat gestrisni þeirra og glaðværð í öndvegi. Þangað var gott að koma og gam- an að vera. Þau Ragnheiður og Sigurður ferðuðust mikið og höfðu yndi af. Dvaldi Ragnheiður að auki oft ytra. Það sannaðist á henni, að „það tekur tryggðinni í skóvarp, sem tröllum er ekki vætt“. Hvar sem hún var stödd í heiminum þá bárust mér alltaf frá henni kort og stundum löng og ítarleg bréf, gædd þeirri hlýju og elskusemi, sem ætíð var hennar aðall. Ragnheiður var meðalmann- eskja á hæð, ákaflega fínleg, fríð og gædd kvenlegum yndisþokka. Fáguð framkoma var henni eigin- / leg og persónutöfra hafði hún í ríkum mæli. Hún var því skraut- jurt á akri samfélagsins. A síðari árum tók veikleiki að sækja að þessari fíngerðu jurt, sem olli því, að oft drúpti hún höfði. Með undraverðu þreki reisti hún sig sífellt við. Naut hún þá sem endranær ómældrar um- hyggju og fórnfýsi eiginmanns síns, svo og systur sinnar og mágs. Hún átti og stóran frændgarð og vinahóp, sem stóð þétt um hana og studdi að megni. En hinn 1. júlí sl. var lífsbikarinn tæmdur og hún hné að fullu til foldar. Vegir skiljast um stund. Ég bið góðan Guð að varðveita Ragnheiði í nýjum heimkynnum, sem hún hafði bjargfasta trú á að biðu okkar allra. Ég kveð hana nú í þeirri vissu að við hittumst á landi hinnar ei- lífu æsku og njótum þar lífsins, eins og við gerðum forðum í faðmi fegurðar Fljótsdalshéraðs. Birna Stefánsdóttir Kveðja frá Kvenfélagi Karlakórs Reykjavíkur Með nokkrum orðum langar okkur að minnast elskulegrar fé- lagssystur okkar, Ragnheiðar Aradóttur, er lést að heimili sínu 1. júlí. Er góðir vinir falla frá, líða minningarnar hjá hver af annarri. Við minnumst hennar með gleði í starfi og ferðalögum hér heima og erlendis. En hæst ber þó minninguna um ferðalag er við fórum til Kína árið 1979. í þeirri ferð var Ragnheiður fararstjóri. Þá naut hún sín vel, þessi gáfaða og vel menntaða kona, geislandi af gleði og fróð- leik, og miðlaði okkur hinum. Ég, sem þessar línur rita, var svo lánsöm að vera herbergisfé- lagi Ragnheiðar í þeirri ferð. Verða það ógleymanlegar stundir, sem mér ber að þakka. Eiginmanni hennar, Sigurði Þ. Guðmundssyni lækni, og aðstand- endum sendum við samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Ragnheiðar Aradóttur. F.h. kvenfélagsins Guðrún Pétursdóttir „Partir c’est mourir un peu“. Það var birta og gleði yfir stúd- entahópnum sem kvaddi Mennta- skólann á Akureyri á fögrum júní- degi 1955 eftir nokkur sameiginleg ár við nám og leik. Náin persónu- leg kynni myndast við það að fylgjast að í skóla þar sem nem- endur öðlast sameiginlegan þroska og tengjast ósjálfrátt sterkum böndum — jafnvel vin- áttuböndum sem vara allt lífið. Dvöl í heimavist og stöðugur sam- gangur heimamanna við þá sem þar búa skapa sérstök tengsl og vináttu. Eftir á að hyggja er manni Ijósara hve dýrmæt þau kynni eru sem skapast við sameig- inlega skólavist og hversu stór þáttur þau eru í lífi hvers og eins, ekki síst í hópi þar sem þessi kynni eru síendurnýjuð á gleði- stundum. Á þessum vordegi fyrir 27 árum var lífið framundan. Skaphöfn hvers og eins átti enn eftir að þroskast og mótast og hver og einn átti eftir að mæta sínum skapanornum. Ein úr þessum hópi var Ragn- heiður Aradóttir, austfirsk blóma- rós frá Egilsstöðum sem bættist í hópinn í 3. bekk. Hún var fædd og uppalin á Héraði þar sem stóð heimili foreldra hennar Ara Jónssonar, héraðslæknis og Sig- ríðar Soffíu Þórarinsdóttur. Árið 1959 giftist Ragnheiður eftirlif- andi manni sínum, Sigurði Þ. Guð- mundssyni, lækni. Þeim varð ekki barna auðið. Ragnheiður lést á heimili þeirra hjóna á Seltjarn- arnesi 1. júlí og verður jarðsett í dag í Reykjavík. Ragnheiður varð eftirminnileg þegar við fyrstu kynni og bar þar margt til. Hún var glæsileg, gædd miklum þokka og persónuleika. Hún var skemmtilega greind, fé- lagslynd og bjó í senn yfir skop- skyni og persónutöfrum sem óhjákvæmilega leiddu til þess að hún var stolt og prýði bekkjarins jafnt á skólaárunum sem árum þeim sem á eftir komu. Hún var aðeins eldri en flest okkar hinna og kom þroskuð til náms og hins margþætta félagslífs sem stunduð var í MA þessi árin. Einhvern veginn var það svo að þó að þessi bekkur þætti engin sérstök fyrirmynd í samheldni í skólanum var engu líkara en kynnin efidust með hverju árinu sem leið og náðu e.t.v. hámarki er mikil hátíð var haldin hjá norðan- mönnum vorið 1980. Bekkurinn okkar frá 1955 var nú allt í einu kominn í hóp 25 ára júbílanta og gekk glaðbeittur fram er fagnað var aldarafmæli hins norðlenska skóla. Mikil tilhlökkun ríkti er nær dró afmælishaldinu og stór hátíð haldin þessa ógleymanlegu vordaga á Ákureyri. Það var okkur því mikið harmsefni að ein sú virkasta í hinum efldu kynnum og endurfundum „eftirskólaár- anna“ — skólasystir okkar Ragn- heiður — var á sjúkrahúsi í Reykjavík þessa eftirminnilegu daga, en við vissum hvar hugur hennar var bæði í þetta skipti og síðar. Ekki verður ævisaga Ragnheið- ar Aradóttur rakin í þessum fáu orðum. Fremur reikað aftur í tím- ann og minnst stunda sem aldrei koma aftur — en sem geyma líka minningar sem ekki verða frá okkur teknar. Flestar þeirra eru það persónulegs eðlis að ekki verða hér raktar en allar minn- ingar sem Ragnheiði tengjast minna á órjúfanleg tengsl hennar við skólafélaga og vini og þau tryggðabönd sem á þessum árum voru hnýtt við gamla skólann og allt sem honum fylgdi: kennara, nemendur og líf og umhverfi þeirrar Akureyrar er þá var. Ragnheiður var mikill vinur vina sinna og tryggðatröll öllum sem henni kynntust. Það segir sína sögu af frum- kvæði hennar og vináttu við skóla- félaga að þegar þau tímamót komu í sögu bekkjarins, að hann fagnaði 10 ára stúdentsafmæli, voru Ragnheiður og Sigurður fyrstu gestgjafar hópsins á heim- ili þeirra og segja má að þar hafi fyrstu skrefin verð stigin til þeirra mörgu endurfunda er eftir áttu að koma. Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast. Eftir stúdentspróf fór Ragnheiður ásamt fleiri skólasystrum suður til Parísar þar sem í senn var numið og notið lífsins í þeirri glöðu borg. Þar var gaman að vera gestur í þá tíð og lífið enn bjart framundan eins og vorið 1955. í janúar 1959 fylgdi Ragnheiður manni sínum Sigurði til Banda- ríkjanna þar sem hann stundaði framhaldsnám í allmörg ár. Eftir heimkomuna varð Sigurður fljót- lega eins og einn úr bekknum, samlagaðist fljótt þessum hóp norðanmanna sem aldrei þreytt- ust á að rifja upp skemmtisögur úr skóla. Sigfás Sigfússon málari — Minning Fæddur 24. október 1900 Dáinn 2. júlí 1982 Óðum er aldamótakynslóðin að hverfa héðan úr heimi og vonandi þá til betri heima. Eitt þeirra aldamótabarna sem hvatt er í dag hinztu kveðju er Sigfús Sigfússon málari, sem fæddur var aldamóta- árið. Þessi kynslóð hefur lifað meiri umbrota- og breytingatíma í okkar þjóðfélagi en nokkur fyrri genginna kynslóða, breytingar frá því að þurfa að berjast fyrir til- veru sinni frá degi til dags til alls- nægtar þjóðfélagsins sem við búum við í dag. Því ber okkur sem yngri erum að þakka og virða það sem aldamótakynslóðin hefur gert fyrir okkur, því allt okkar líf og öll okkar tilvera grundvallast fyrst og fremst af dugnaði og ósérhlífni þessarar kynslóðar. Sigfús var fæddur í Reykjavík 24. október aldamótaárið og bjó alla sína ævi í Reykjavík að und- anskildum námsárum sínum í Kaupmannahöfn. Hann var sonur Ástríðar Sigurðardóttur og Sig- fúsar Sveinbjörnssonar. Hann ólst upp við öll almenn störf sem ungl- ingum þeirra tíma stóðu til boða. Hann var meðal annars skipsmað- ur á togaranum Jóni forseta svo og á ms. Goðafossi þá unglingur að árum. Um tvítugt réðst Sigfús í það þeirra tíma þrekvirki að halda til Kaupmannahafnar til bakara- náms án nokkurar utanaðkomandi aðstoðar. Hann lauk þar námi í kökugerð (kondidori) og voru þessi námsár hans honum ávallt mjög minnisstæð. Sérstaklega mat hann mikils hina dönsku stundvísi og áreiðanleika í peningamálum. Þessir tveir eðalkostir voru æ síð- an hans mottó í lífinu. Að loknu námi starfaði Sigfús í nokkur ár að bakaraiðninni en vegna atvinnusjúkdóms varð hann að hætta því. Hann hugsaði oft með söknuði til kökugerðarinnar. Hann sneri sér þá að málara- námi sem síðar varð hans æfi- starf. Starfaði hann hjá ýmsum málarameisturnum og verktaka- fyrirtækjum og gat sér hvarvetna hið besta orð sem vandvirkur og samviskusamur fagmaður. Sín síðustu starfsár vann Sigfús hjá Útfararstofnun Eyvindar Arna- sonar og rómaði hann mjög hús- bændur sína þar, sem nú í dag búa honum hina hinstu hvílu, en hann starfaði þar til sjötíu og sjö ára aldurs. Sigfús var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Kristrún Frans- dóttir. Þau áttu saman einn son, örn sem er vélstjóri hjá skipa- deild SÍS. örn er kvæntur Hildi Þórlindsdóttur og eiga þau saman tvo syni Rúnar og Guðna. Sigfús og Kristrún slitu samvistum. Önn- ur kona Sigfúsar var Hulda Guð- jónsdóttir. Þau áttu saman tvær dætur Erlu og Gýðu. Erla á fimm börn en þau eru: Margrét, Sigfús, Ástríður, Bára og Einar Páll. Gyða sem gift er undirrituðum á fjögur börn en þau eru Ingólfur, Hulda, Jóhannes Jökull og Sigrún. Sigfús og Hulda slitu einnig sam- vistum. Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er Sigrún Stefánsdóttir. Þau gengu í hjónaband á efri ár- um og hafa átt saman mörg góð ár. Sigrún er nú sjúklingur á Landakotsspítala og getur því ekki fylgt eiginmanni sínum til grafar. Sigfús gat verið hrjúfur í fram- komu en undir niðri sló þó stórt og viðkvæmt hjarta. Það má best sjá á því hvern hug hann bar til lát- innar móður sinnar, serr> hann unni mjög, að vikulega í áratugi vitjaði hann leiði hennar í kirkju- garðinum við Suðurgötu og dvaldi þar um stund. Þegar hann heilsu sinnar vegna treysti sér ekki til að fara sjálfur fékk hann aðra fyrir sig a.m.k. á stórhátíðum. Sigfús starfaði mikið að félags- málum, sat um árabil í stjórn Mál- arafélags Reykjavíkur og var oft fararstjóri í skemmtiferðum þess um landið. Hann var mjög fróður um öræfi og náttúru Islands enda mikill náttúruunnandi. Hann var einn af stofnendum Ferðafélags íslands og ferðaðist mikið um landið með því ágæta félagi gegn- um árin. Þá var hann alla tíð sannur sjálfstæðismaður og var virkur félagi í sjálfstæðisfélaginu Verði í áratugi. Þegar ég kynntist Sigfúsi fyrir þrjátíu árum komst ég fljótlega að því að einn hans bestu vina var heimsborgarinn og góðmennið Geir heitinn Aðils. Hafði þeirra vinskapur hafist á námsárum þeirra beggja í Kaupmannahöfn, en Geir nam þar arkitektúr. Faðir minn Ingólfur Matthíasson átti einnig Geir að sínum besta vini uppi á íslandi áður en Geir hélt til náms ytra. Þó þessir tveir menn faðir minn og tengdafaðir ættu þarna báðir sameiginlegan góðan vin, þá þekktust þeir ekki. Ég minnist á þetta þar sem mér fannst það ákaflega skemmtilegt, að faðir minn sem lést langt um aldur fram og tengdafaðir minn sem síðar varð skyldu báðir eiga einn og sama góðvininn án þess þó að þekkjast. Þannig eru vegir lífs- ins órannsakanlegir. Að lokum vil ég þakka Sigfúsi allt þar sem hann hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína á liðnum árum. Þau eru ófá pensilförin sem hann hefur skilið eftir sig hjá okkur, fyrst í Kópavoginum og síð- ar á Nesinu. Á meðan kraftar ent- ust var hann boðinn og búinn til að aðstoða okkur við hvað sem var, því að hans áliti var ekkert of gott fyrir börn hans og framtíð barnabarnanna. Ég sendi eiginkonu hans, börn- um, barnabörnum og barnabarna- börnum mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Minning um góðan mann mun geymast. Jóhannes Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.