Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982
3
Ekkert til skipt-
anna úr ríkissjóði
— segir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
um hugmyndina um að ríkissjóður
ieysi vanda útgerðarinnar
„ÉG TEL aö góð afkoma ríkissjóös á
fyrri hluta ársins feli ekki í sér að
þaö sé eitthvað mikiö afgangs sem
hægt sé aö skipta,“ sagði Ragnar
Arnalds, fjármálaráðherra, er Mbl.
bar undir hann þá hugmynd, sem
m.a. hefur komið fram hjá nefnd,
sem falið var að gera úttekt á vanda
útgerðarinnar, og sjávarútvegsráð-
herra hefur tekið undir sem leið til
lausnar.
Hugmynd þessi er sú, að gengið
verði í ríkissjóð til að koma út-
gerðinni á réttan kjöl. Rætt hefur
verið um upphæðina 200—300
milljónir króna, en aðspurður um
hver raunverulega upphæðin væri
sem ætlunin væri að taka úr ríkis-
sjóði, ef sú leið yrði fyrir valinu,
sagði fjármálaráðherra hana vera
nær 300 milljónum króna.
Ríkisstjórnin ræddi efnahags-
vandann og vanda útgerðarinnar á
fundi sínum í fyrradag. Sjávarút-
vegsráðherra, Steingrímur Her-
mannsson, var fjarverandi. Að-
spurður sagði Ragnar, að fjallað
hefði verið almennt um málið, en
engar stórákvarðanir teknar, eins
og hann orðaði það.
Efnahagsnefnd ríkisstjórnar-
innar hefur ekki skilað af sér, en
hún hefur með höndum úttekt
efnahagsmálanna í heild og þar
með niðurstöður starfsnefndar-
innar um stöðu útgerðarinnar. Þá
er henni og falið að koma með til-
lögur til lausnar. Formaður nefnd-
arinnar er Þórður Friðjónsson.
Gerðahreppur:
Ellert Eiríksson ráð-
inn sveitarstjóri
(iardi, 7. júlí.
ELLERT Eiríksson, bæjar-
verkstjóri í Keflavík, var í dag
ráðinn sveitarstjóri í Gerðahreppi
næsta kjörtímabil.
Ellert er 44 ára gamall og
hefur starfað nær óslitið hjá
Keflavíkurbæ í 22 ár, en um
tíma var hann í námi í vega- og
gatnagerð í Bandaríkjunum.
Ellert er kvæntur Birnu Jó-
hannesdóttur og eiga þau þrjú
börn. Ellert mun hefja störf
hjá Gerðahreppi á næstunni.
—Arnór
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra:
BHM hlýtur að taka
mið af BSRB-samningum
„ÉG HEF ekkert um þetta að segja
að svo stöddu. Við erum byrjaðir á
undirbúningi kjarasamninga við
BSRB, og um málefni BHM er
heldur ekkert að segja á þessu stigi.
Niðurstaðan i sambandi við BHM
hlýtur að taka nokkurt mið af
BSRB-samningunum,“ sagði Ragn-
ar Arnalds, fjármálaráðherra, er
Mbl. spurði hann álits á kröfugerð
BSRB og ósk BHM um endurskoð-
un sinna samninga.
Um stöðu mála hvað varðar
BSRB sagði Ragnar: „Þegar
samningum var sagt upp frá 1.
maí þá buðum við að sett yrði
nefnd sem hefði tvo starfsmenn,
einn tilnefndan af hvorum aðila.
Þessi nefnd ásamt starfsmönnum
á að gera eins ítarlega saman-
burðarathugun og hægt er að
framkvæma áður en samningur-
inn rennur út 1. ágúst. Þessi
nefnd hefur verið skipuð og
starfsmenn ráðnir og það er nú
2 millj. kr. sala
Breka í Hull
verið að vinna að þessum málum
af kappi. Jafnframt höfum við
byrjað á viðræðum um sérkjara-
samninga, þó að þær viðræður
séu enn skammt á veg komnar.
Og ég hef ekkert frekar um þetta
að segja.
Um málefni BHM er heldur
ekkert að segja á þessu stigi
málsins því auðvitað hlýtur
niðurstaðan í sambandi við BHM
að taka nokkuð mið af því hvað
gerist í samningum BSRB, en við
höfum verið með þeirra mál í at-
hugun og viðræður hafa átt sér
stað bæði við fulltrúa úr launa-
málaráði BHM og við einstök að-
ildarfélög í nokkrum tilvikum.
Það er nákvæmlega ekkert af
þessu að frétta á þessu stigi."
Ragnar sagði í lokin, að ekki
hefðu farið fram neinir formlegir
samningafundir við fulltrúa
BSRB, en hann sagðist hafa rætt
óformlega við forystumenn
bandalagsins. Hvað varðaði BHM
væri ekkert komið í gang hvað
varðaði viðræður. Ráðherrann
vildi ekki tjá sig um framkomnar
kröfur.
SKUTTOGARINN Breki, frá
Vestmannaeyjum, seldi 203,5 tonn
af fiski í Hull í gærmorgun fyrir
1.946,200 þúsund krónur og var
meðalverð á kíló krónur 9,56.
Helmingur af afla Breka var
þorskur, þá var einnig mikið af
ýsu í aflanum. Sæmilegasta verð
fékkst fyrir þorskinn, en verð á
ýsunni var frekar lágt.
JNNLENTV
Stefán frá Möðrudal hefur skemmt gestum og gangandi i miðbæ Reykjavikur undanfarna daga með því að
þenja nikku sína með hnykk á hápunktum, en listamaðurinn kvaðst gera þetta til þess að ganga í lið með góða
veðrinu sem hefur vermt mannlífsstemmninguna. Stefán setur hvarvetna svip á þar sem hann fer um í lífsgleði
sinni Og einlægni. Ljosmynd Mbl. KmilU
og umboðsmenn um land allt
V v' ;y s N. m
z? cd
(’esar — Akureyri. Eplið — ísafiröi, Eyjabær —
Vestmannaeyjum. Fataval — Keflayík, Hwrnabær
— Hornafiröi, Álfhóll — Siglufírði, Óðinn — Akra-
nesi, Rara — Húsavtk, Bakhúsið — Hafnarfirði,
Austurbær — Reyðarfirói, Kaupfél. Rangæinga
Hvolsveili, Sparta — Sauóárkróki, Skógar — Eg-
ilsstöðum, Ístjjörnínn — Borgarnesi, Lea — Ólafs-
vík, Lindin — Selfossi, Falema — VopnaTirði, Patr-
óna — Patreksfirði, Báran — Grindavík, Bjóðsbær
— Seyðisfirði, l»órshamar — Stykkishólmi, Inga
Helltssandi.