Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 4 7
vörnum við. Eins
islenskra króna,
• Paolo Rossi skorar þriðja mark sitt gegn Brasilíu, og tryggir ltalíu áframhald í HMkeppninni. Peres, markvörður Brasilíu, kemur engum
og frægt er orðið lenti Rossi i mútuhneyksli á Ítalíu og lék ekki knattspyrnu í tvö ár. Þrátt fyrir það var hann keyptur af Juventus á 21 milljón
án þess að hann léki nokkuð með liðinu. Nú er það mál manna að hann hafi hekkað í verði um 15 milljónir isl. króna.
Rossi sýndi sitt rétta andlit
ftalinn Paulo Rossi hefur þurft að
ganga í gegnum margt á síðastliðn-
um fjórum árum. Hann var aðeins
21 árs að aldri er hann lék með
Sjá íþróttir á bls. 30—31
landsliðinu i Argentínu fyrir fjórum
árum og þótti þá leika frábærlega
vel. Eftir þá keppni var hann hæst-
launaðasti leikmaður á Ítalíu, varð
sér siðan til skammar í mútu-
hneykslinu fræga og nú skín frægð-
Enzo Bearzot, þjálfari Itala:
„Eg verð einn eftir um
borð ef báturinn sekkur"
ENZO Bearzot, þjálfari ítalska
landsliðsins, tók við því 1977 og hef-
ur síðan unnið hörðum höndum að
þvi að breyta leik liðsins. Liðið hefur
alltaf leikið mjög neikvæðan fót-
bolta, eins og leikmenn venjast hjá
félagsliðum sínum.
Hjá liðum sínum læra þeir, að
eins marks forysta sé nokkuð sem
eigi að varðveita með því að leggj-
ast í vörn, og eru ítölsk lið löngum
þekkt fyrir slíka knattspyrnu.
Hvort sem liðið fer eftir skipunum
Bearzot eða ekki tekur hann fulla
ábyrgð á úrslitum leikja.
„Ef báturinn sekkur verð ég sá
eini sem verð eftir um borð,“ sagði
Bearzot er ítalirnir léku í forriðl-
unum á Spáni og þóttu standa sig
illa. „Ég trúi á það sem ég er að
gera og hér er það ég sem ræð. Þið
getið kennt mér um mistökin, ef
okkur gengur illa í keppninni,"
sagði hann.
Bearzot hefur stýrt liðinu í
þremur stórmótum síðan hann tók
við því. HM-keppninni nú og 1978
og Evrópukeppninni 1980, og hef-
ur liðið alltaf verið eitt af fjórum
efstu. Hann segist þó eiga einn
mjög slæman óvin í sambandi við
þjálfun landsliðsins, ítölsku 1.
deildina. „Allt verður að lúta í
lægra haldi fyrir henni, jafnvel
heimsmeistarakeppnin," segir
hann. „Ég næ leikmönnum ekki
saman fyrr en á síðustu stundu,
oftast örþreyttum eftir hina hörðu
1. deildar keppni."
Bearzot vill ekki blanda saman
knattspyrnunni og einkalífinu, og
koma eiginkona hans og börn
aldrei fram opinberlega. Hann
ætur sömu reglur fyrir leikmenn
Pólski þjplfarinn
hræðist Italina
Antoni Piechniczed, þjálfari
Pólverja, og hans menn voru mjög
óánægðir með það að ftalir skyldu
vinna Brasilíu og komast áfram.
„Okkur hcntar mun betur að leika
gegn liði eins og Brasilíu," segir
Antoni. „Þeir hefðu leyft okkur að
spila aftarlega og beita skyndi-
sóknum, alveg eins og ftalirnir
gerðu. Ég er verulega hræddur vjð
ftalina. Leikskipulag þeirra er
mjög gott og nýta þeir sér það
frábærlega vel með sterkri vörn,
öruggri miðju og stórhættulegum
sóknarlotum."
Liðin eigast við í dag kl. 15.15 í
undanúrslitunum. Besti maður
Pólverjanna, Boniek, er í leik-
banni í leiknum í dag, og einnig
Gentile hjá ftalíu.
Belgar hættir að gefa blóð
HM-keppnin í knattspyrnu hefur
víða áhrif, ekki aðeins á Spáni. f
Belgíu kvartar Rauði Krossinn yfir
þvi að vegna HM-keppninnar séu
Belgar hættir að gefa blóðbankanum
þar í landi vökva sinn. Segja
starfsmenn Rauða Krossins, að
Belgar fari frekar heim að horfa á
sjónvarpið þcssa daganna að vinnu
lokinni heldur en að lita við með
blóðgjafir. Talsmaður RK sagði:
„Venjulega erum við í engum vand-
r»‘ðum að safna bióði allan júní. Þá
verður venjulega samdráttur vegna
sumarleyfa. Þessi samdráttur byrj-
aði að þessu sinni um leið og
HM-keppnin hófst."
sína, skammar þá aldrei né Iofar
opinberlega. „Allir hafa rétt á að
lifa lífinu eins og þeir vilja, nema
það komi niður á liðinu," segir
hann um leikmenn sína, og krefst
hann þess að aðrir þjálfarar beri
sömu virðingu fyrir leikmönnum
„Ég þakka Santana, þjálfara
Brasilíu, fyrir það hve góðum orð-
um hann fór um lið mitt. Ég get
því miður ekki sagt það sama um
Menotti, þjálfara Argentínu,"
sagði Bearzot, en Menotti deildi
mjög harkalega á hann eftir leik
liða þeirra.
arsól hans bjartar en nokkru sinni
áður, eftir leikinn við Brasilíu, er
hann skoraði þrjú mörk og tryggði
ítölum sæti í undanúrslitum.
Fyrir keppnina á Spáni sögðu
talsmenn ítalska knattspyrnu-
sambandsins Rossi ekki vera í
fullri æfingu. „Mér líður mjög vel
andlega, en enginn getur verið í
fullri æfingu eftir aðeins fimm
leiki, eftir tveggja ára hvíld. í
þessu ástandi getur enginn ætlast
til þess að ég leysi öll vandamál
ítalska landsliðsins."
Hann kom lítið við sögu í fyrstu
fjórum leikjum Ítalíu í keppninni,
skoraði ekkert og var tekinn út af
í leiknum við Perú. Þá var hann
tekinn út af 20 mín. fyrir leikslok
gegn Argentínu. En á mánudaginn
komst hann í sitt gamla, góða
form og nýtti sér til fullnustu mis-
tökin í vörn Brasilíu.
Rossi var seldur til Vicenza,
fyrir 6 miljónir dollara, ári eftir
HM-keppnina í Argentínu. „Þetta
er nú ein af vitleysunum sem ég
hef lent í,“ segir hann. „Hvernig
getur nokkur leikmaður verið svo
mikils virði? Ekki er hægt að
meta líf mannsins til fjár, en ég
held að enginn geti verið svona
dýrmætur."
Hidalgo hræðist
Hrubesch mest
Franski þjálfarinn Hidalgo, sagði
í gær að hann væri hræddur við að
leikmenn sínir yrðu ekki nógu
ákveðnir til að vinna Þjóðverjana.
Hann sagði að þeir væru svo ánægð-
ir með hvað þeir hefðu náð langt nú
þegar.
„Við erum mjög ánægðir, en við
verðum að vinna," sagði hann.
„Mikilvægast er að halda leikgleð-
inni sem einkennt hefur leik okkar
undanfarið," sagði Hidalgo. Hann
bætti síðan við: „Við verðum að
hugsa meira um gæði Ieiksins en
úrslitin. Ég er ábyrgur fyrir úr-
slitunum, sérstaklega ef þau eru
slæm, en leikmennirnir eru ábyrg-
ir fyrir gæðum leiksins.“
Hidalgo sagðist vera hræddast-
ur við Hrubesch af Þjóðverjunum,
vegna þess hve geysilega sterkur
hann væri í skallaeinvígjum.
Frakkar eru ekki vanir háum
fyrirgjöfum að marki andstæð-
inganna í deildarleikjunum heima
fyrir, og hefur Ettori markvörður
t.d. átt í nokkrum erfiðleikum með
þá hlið markvörslunnar.
„Við vitum hve góður Hrubesch
er, og verðum að reyna að finna
ráð til að stöðva hann,“ segir
Hidalgo.
• Hidalgo þjálfari Frakka.
Þjóðverjar
taplausir
gegn Evrópu-
þjóð í 4 ár
Karl-Heinz Rummenigge,
Knattspyrnumaður Evrópu, er
ekki enn orðinn góður af
meiðslunum sem hafa hrjáð
hann undanfarið, og mjög litlar
líkur eru á því að hann leiki
með Þjóðverjum gegn Frökk-
um í dag.
Vestur-Þjóðverjar hafa verið
taplausir gegn Evrópuliðum í
fjögur ár og vilja að sjálf-
sögðu ógjarnan tapa í dag.
Nokkur vandræði eru í her-
búðum Evrópumeistaranna
vegna annarra meiðcla.
Sex leikmenn eru meiddir á
einhvern hátt, en enginn
þeirra eins alvarlega og
Rummenigge. Eru það Uwe
Reinders, Wolfgfang
Dremmler, Klaus Fischer,
Manny Kaltz, Hans Peter
Briegel og Uli Stielike. Búist
er viö að þeir leiki allir með.
Rummenigge lék aðeins
fyrri hálfleikinn í 2—1 sigr-
inum gegn Spáni og æfði
mjög lítið á þriðjudaginn. „Ef
þetta lagast ekki, verður
betra fyrir hann að bíða og
leika úrslitaleikinn, eða leik-
inn um þriðja sætið,“ sagði
Jupp Derwall, þjálfari Þjóð-
verjanna.
Auðvitað mun vanta mikið
í liðið, leiki Rummenigge ekki
með, en Þjóðverjar eru
þekktir fyrir allt annað en að
gefast upp, og enginn þarf að
búast við að þeir leggi árar í
bát þó besta mann þeirra
vanti. Frakkar munu örugg-
lega veita þeim harða keppni
í leiknum, en þeir hafa ein-
mitt leikið mjög vel undan-
farið. Bæði lið byrjuðu af-
skaplega illa í keppninni,
Þjóðverjarnir töpuðu fyrir
Alsirbúum, sem frægt er orð-
ið, og Englendingar sigruðu
Frakka. En þeir leikir eru nú
að baki og skipta ekki máli.
Nú er að duga eða drepast því
úrslitaleikur heimsmeistara-
keppninnar er í veði.
Þjóðverjarnir komu ekki til
Seville fyrr en í gærkveldi, en
leikurinn hefst þar kl. 19.00 í
kvöld. „Við ætluðum að koma
fyrr, en Frakkarnir höfðu
pantað hótelið sem við höfð-
um mestan áhuga á,“ sagði
Derwall. Þess vegna voru
Þjóðverjarnir svo lengi í
Madrid, og bundu þar enda-
hnútinn á undirbúning sinn
fyrir leikinn.
Golf hjá
Einherjum
Einherjakeppnin i golfi —
keppni þeirra kylfinga sem
hafa náð þvf takmarki að fara
„holu í höggi“ verður á Nes-
vellinum á laugardaginn kemur
og hefst hún kl. 10.00 f.h.
Skráning er í golfskálanum á
Nesinu, sími 17930.
Frá Knattspyrnu-
skóla Fram
Fjóröa nárnskeið skólans hefst 12. júlí og stendur til 22. júlí.
Eldri hópur kl. 9—12, yngri hópur kl. 13—ib.
5. námskeió frá 26. júlí — 6. ágúst.
6. námskeið frá 9. ágúst — 20. ágúst.
Allar nánari upplýsingar í FramheimiHnu í síma 34792.