Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK 0 Þl’ Al'GLYSIR L'M ALLT LA.ND ÞEGAR Þl AL'G- LYSIR I MORGI NRLADIM Jóhann Óli Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Securitas sf.: „Opið bréf ‘ til Þor- björns Broddasonar Opið bréf til Dorbjörns Brodda- sonar v/ ummæla hans á fundi borg- arstjórnar þ. 1. júlí sl. og birt í Morg- unblaöinu 4. júlí sl. Þorbjörn, það ætti engan að skaða þó hann eigi ekki alltaf skoðanir með öðrum. Það eru þó takmörk sett fyrir því hve lágt menn leggjast í viðleitni sinni til að gefa orðum sínum og skoðunum gildi. Orðbragð þitt og staðlausar athugasemdir eru jafnvel ekki þér sæmandi. Það er ljóst að andúð þín á Securitas er í engu sprottin af fag- legum og málefnalegum grunni. Heldur af hugmyndafræðilegum kreddum sem eiga misvei við í vafstri hins daglega lífs. Það er þyrnir í augum þínum að fyrir- tæki á borð við Securitas vaxi og dafni, ekki út frá samfélagslegum forsendum sem væri skiljanlegt, heldur rekstrarlegum. En hvað veldur því að fyrirtækið dafnar? Það skildi þó aldrei vera þörfin? Hér hefur þú gert afleiðingu að orsök, í stað öfugt. Securitas er afleiðing aukinna glæpa en ekki orsök. Það læknar því lítið að ráð- ast á Securitas, þegar þú vilt fækka afbrotum. Þau eiga sér aðr- ar og flóknari ástæður sem liggja nærri þínu sérsviði en svo að skýra, að þú þurfir að haga þér eins og ráðaleysiskjáni. Af hverju hafið þið sérmenntuðu þjóðfélags- fræðingar ekki lausnir tiltækar þegar þið mótmælið öðrum? Er það kannski svo að þú vitir bara hverju skal mótmæla en ekki hvað skal gera til úrbóta. Allir menn hljóta að vilja búa í friði og ró, óhræddir um sjálfa sig, sína og sitt. Það þýðir þó engan veginn að menn skuii loka augun- um fyrir staðreyndum þessa þjóð- félags sem á flestum sviðum tekur á sig mynd stórborgarbrags með kostum hans og göllum. Við getum ekki bæði sleppt og haldið. Afleið- ing þjóðfélagsþróunar síðustu ára bæði hérlendis og erlendis hefur leitt til aukinna og grófari glæpa á öllum sviðum. Slíkt kallar á við- brögð. Bæði samfélagsleg viðbrögð og viðbrögð einstaklingsins sem telur sig þurfa að bregðast við sjálfstætt. Það er deilt um söku- dólginn, orsakavaldinn fyrir glæp- unum og verða menn sjálfsagt aldrei sammála um hann frekar en allar þær leiðir til úrbóta sem til boða standa og hafa þó flestar verið reyndar. Securitas er einn þessara valkosta. Síðan ræðst af þeim sem þörfina hafa hvaða leið er farin. Ég fullvissa þig og aðra þá sem eru þér sama sinnis, að í hvívetna er þess gætt að rekstur og starfs- aðferðir Securitas eru eins vand- aðar og frekast er unnt. Dóms- málaráðuneyti hefur gefið út skjal sem staðfestir þessi orð, enda fyrirtækið m.a. grundvallað á kröfum sem ráðuneytið, trygg- ingarfélög o.fl. gera til þessa rekstrarsviðs. Ég hef lagt á það áherslu, að samin verði reglugerð um rekstur sem þennan svo ekki spretti upp ævintýramenn sem með óvönduðum vinnubrögðum spilli vandaðri öryggisgæslu í nú- tíð og framtíð. Fyrirtæki eins og Securitas eiga að vera háð leyfis- veitingum þess opinbera. Því mið- ur hafa viðbrögð ekki orðið eins hröð eins og þau eru brýn. Ég get einnig fullvissað þig og aðra um það að hundaeign Secur- itas er einn hvolpur sem aldrei hefur orðið það stálpaður að geta verið varðhundur. Hann hefur verið stóran hluta líftíma síns á býli utan borgarmarkanna. Þessi hvolpur hefur verið í almennri hundaþjálfun síðustu mánuði. Þegar hvolpurinn hefur verið á svæðum Hafskips hefur það að- eins verið til þjálfunar en aldrei við gæslustörf. Að lokum vil ég segja það eitt, að ég tel mig engu hafa að bæta við karp kynslóðanna um einka- rekstur eða ríkisrekstur, það er karp sem ég leiði algerlega hjá mér. Lífið snýst ekki um kreddur eða óskhyggjur heldur blákaldar staðreyndir. Og mundu að ekki eru allir djöflar þó þeir séu málaðir á vegg- inn. Með kveðju, Jóhann Oli Guömundsson. „Sumargleöin '82“ — nýtt skemmtirit NÝLEGA kom á markaðinn 1. tbl. nýs skemmtirits, sem heitir „Sumar- gíeðin ’82“. í þessu 1. tbl. spjallar Jens Kr. Guð m.a. við liðsmenn rokkhljóm- sveitarinnar Bodies. Þar eru rifjuð upp atvik frá upphafsárum ís- lensku nýbylgjunnar og staða poppsins er reifuð. Þá eru í blaðinu margvíslegar þrautir: Krossgátur, heilabrot og leikir, auk brandara, smásögu o.m.fl. „Sumargleðin ’82“ fæst á flest- um blaðsölustöðum. Útgefandi er Ó.P.-útgáfan. adglYsingasíminn er,- 22480 JknvmbliM) Rúmiö þitt r\ri i r*ti iHir t/ri imi Rúmið þitt, sængin og koddinn eru illflytjanleg á ferðalögum. Samt getur farið bráðvel um þig. Keyptu þér Gefjunar svefnpoka, með eða án kodda. Innra byrðið er bómull svipuð og í sængurverinu þínu heima. Ytra byrðið er sterkt polyesterefni. Fylling er DACRON HOLLOFIL Hollofil þræðirnir eru stuttir, krumpaðir, holir og fisléttir. Milli ytra og innra byrðis er því mestmegnis loft, það ágæta einangrunarefni. Hollofil er lyktarlaust, ofnæmisprófað og auðhreinsað. Þér líður vel ( Gefjunar svefnpoka, næstum eins og heima í rúmi. Það eina sem gæti vantað er bangsinn. TÓMSTUNDAHÚSIÐ Laugavegi STÓRMARKAÐURINN GEFJUNAR (hollofil) SVEFNPOKAR: jG.efjunar SVEFNPOKl SPORT Laugavegi SPORTVAL Laugavegi ÚTILÍF Glæsibæ TORGIÐ Austurstræti DÓMUS Laugavegi Skemmuvegi og Kaupfélögin um land allt Y 11 Oo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.