Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982
Lidin sem leika í undanúrslitunum í dag á Spáni
ítalía
Frakkland
Pólland
V-Þýskaland
Fjögur Evrópulið leika
til úrslita í HM-keppninni
í dag fara fram undanúrslitin í vclgengni í keppninni. I dag leika
heimsmcistarakeppninni i knatt- ítalir við Pólverja í Barceiona og
spyrnu. I>að eru fjórar Gvrópuþjóðir V-Þjóðverjar og Frakkar leika sam-
sem leika til úrslita. Eins og svo oft an i Sevilla.
þegar knattspyrna er annarsvegar Flestir áttu von á því að Bras-
hafa mörg óvænt úrslit séð dagsins ilíu myndi takast að komast í úr-
Ijós i HM-keppninni á Spáni. Og slitin en þeir höfðu frábæru liði á
þrjár af þeim fjórum þjóðum sem að skipa og margir vildu ekki trúa
komnar eru i undanúrslit voru ekki því er Ítalía hafði slegið þá út úr
álitnar sigurstranglegar. Það eru keppninni. Þá áttu margir von á
Frakkland, Ítalía og Pólland. Hins því að Englendingar myndu gera
vegar spáðu margir V-Þjóðverjum betur en raun varð á. En það sem
gerir nú knattspyrnuna einu sinni
svona spennandi og skemmtilega
eru hin óvæntu úrslit sem alltaf
eru að eiga sér stað. Lokastaðan í
milliriðlunum fjórum varð þessi:
A-riðill:
Pólland — Belgía 3—0
Belgía — Sovét 0—1
Pólland — Sovét 0—0
Pólland 2 110 3—0 3
Sovét 2 110 1—0 3
Betgía 2 0 0 2 0—4 0
B-riðill:
England — V-Þýskaland 0—0
Spénn — V-Þýskaland 1—2
Spénn — England 0—0
V-Þýskaland 2 110 2—1 3
England 2 0 2 0 0—0 2
Spénn 2 0 11 1—2 1
C-riöill
Argentína — Brasílía 1—3
Ítalía — Argentína 2— 1
Brasilía — italía
Ítalía
Brasilía
Argentína
2—3
2 2 0 0 5—3 4
2 10 1 5—4 2
2 0 0 2 2—5 0
0—1
D-riöill:
Austurríki — Frakkland
Austurríki — N-írland
Frakkland — N-írland
Frakkland 2 2 0 0 5—1 4
Austurríki 2 0 11 2—3 1
N-írland 2 0 11 3—6 1
I
Bearzot, þjálfari ítalíu:
„Við verðum að
ná saman í lið“
Þýsku þulirnir é leik Englands og Spénar
„Áfram strákar,
áfram strákar"
„Við verðum að geta komið sam-
an liði. Það er ekki iétt, því margir
af okkar bestu leikmönnum eiga við
meiðsli að stríða," sagði Enzo Bearz-
ot, þjálfari Ítalíu. Lið hans mætir
Pólverjum í undanúrslitunum í dag
og þrátt fyrir að Boniek hinn pólski
verði ekki með, varar Bearzot við of
mikilli bjartsýni.
„Boniek er mjög góður leikmað-
ur, en þrátt fyrir að hann leiki
ekki með eigum við sigurinn alls
ekki vísan. Það væri heimska að
halda það.“ ítalir eiga í miklum
vandræðum, vegna meiðsla. Óvíst
er hvort Tardelli og Collovati geti
leikið og Dino Zoff á einnig við
meiðsli að stríða. Reiknað er þó
með að hann leiki. Þá má ekki
gleyma því að varnarmaðurinn
sterki, Gentile, er í leikbanni.
Bearzot segir að pólska liðið sé
stórhættulegt. „Þeir hafa tvo
hættulega kantmenn og nokkra
mjög góða miðvallarleikmenn. Þá
hafa þeir einnig hvílt einum degi
lengur en við.“ Bearzot segir að
ekki borgi sig að spila opinn sókn-
arleik í leiknum. „Jafnvel Brasil
íumenn sigruðu Argentínu með
skyndisóknum. Öll lið vilja frekar
leika þetta kerfi, svo við munum
• Bearzot þjálfarí Ítalíu. Gamal-
reyndur refur þegar knattspyrna er
annars vegar.
reyna að draga Pólverja fram á
völlinn og sækja á þá eftir að hafa
náð völdum á miðjunni."
Eitt þýsku dagblaðanna kallaði
frammistöðu Þjóðverjanna í forriðl-
inum, en þar töpuðu þeir t.d. fyrir
Alsír, „hvernig hægt er að sigra án
þess að leika knattspyrnu". Nú eru
menn í Þýskalandi aftur á móti mjög
hrifnir, þar sem þeirra menn eru
komnir í undanúrslitin. Blöð í
Þýskalandi sögðu að Englendingar
hefðu verið „ótrúlega lélegir" í
leiknum við Spán. Eins og kunnugt
er urðu þeir að sigra í leiknum raeð
tveggja marka mun, en náðu aðeins
jafntefli.
Fámennt var á götum úti í
Þýskalandi meðan á beinni út-
sendingu frá leik Englands og
Spánar stóð, allir voru að horfa á
leikinn. Þýsku þulirnir héldu með
Spáni eins og gefur að skilja og
kom það greinilega fram í lýsingu
þeirra á leiknum. „Áfram strákar,
áfram,“ sögðu þeir er Spánverj-
arnir komust í sókn, og einnig
hrósuðu þeir spánsku vörninni
ætíð mjög mikið er hn stöðvaði
ensku sóknarloturnar. Þjóðverj-
arnir mæta Frökkum í dag í
undanúrslitunum.