Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 Jón Sveinsson, útgerðarmaður Höfn: Hringnótin drepur hvern stofninn á eftir öðrum „ÉG ER algjörlega á móti því að öll aukning á heildarsíldveiðikvótan- um skuli koma í hlut hringnótar- báta og kvóti reknetabáta jafn- framt lækkaður um 4.000 lestir. Ég tel síldveiðar í nót stórhættulegt fyrirtæki, nótin drepur jafnt stóra síld sem smáa og er stórhættuleg fyrir stofninn," sagði Jón Sveins- son, útgerðarmaður á Höfn, er Morgunblaðið innti hann álits á fyrirkomulagi síldveiða í haust. Jón sagði ennfremur, að það væri ljóst að miklum hluta þess, sem kæmi í hringnótina, væri hent. Það væri tekið sýni af því, sem í henni væri þegar búið væri að þurrka af aflanum og væru menn óánægðir með stærðar- flokkun, væri aflanum einfald- lega hent. HJutur síldar undir 27 sentimetrum mætti ekki vera meiri en 10%. Það hefði sýnt sig í Berufirðinum í fyrra, að hann hefði verið fullur af dauðri síld eftir að hringnótarbátarnir hefðu verið búnir að vera þar í nokkra daga. Vegna þessa væru Horn- firðingar ekki sáttir við afla- skiptin. Fiskifræðingar hefðu lýst því yfir að reknet hefðu aldrei drepið neinn stofn, það væri al- veg öruggt mál, en nótaskipin hefðu hins vegar drepið marga. Það væri hins vegar annað mál að líklega yrði aldrei komið í veg fyrir að eitthvað yrði veitt í nót. Þá sagði Jón, að það væri vandamái með hvað gera ætti við öll þessi hringnótarskip eftir að þau væru búin að drepa alla loðn- una, en það væri líka vandamál hvort ætti að leyfa þeim að drepa hvern stofninn á eftir öðrum. „Við erum ekkert hressir með að það skuli gerast." Hann gæti ekki séð það að 450 lestir annað hvert ár hjálpuðu nokkuð upp á vanda nótabátanna. Þá væri það ekki t-ryg&t að reknetabátar fengju 450 lestir eins og leyfilegt hámark væri. Færu 60 bátar á reknet eins og búast mætti við, kæmu ekki nema um 230 lestir í hlut hvers. „Eg veit ekki hvaðan þessi hugmynd er kom:n. Ég sat fund með þessum hagsmunaðilum sjávarútvegsins í vor og þar vildu reknetamenn ekki skipta þessu niður á annað hvert ár og þeir vildu ekki láta breyta þessu frá því sem verið hefði og setja þak á aflann. Einu breytingarnar, sem menn vildu gera á þessu, var að byrja seinna og það verður líka gert, eða þann 15. september," sagði Jón. Það væri því ekki til bóta að vera að hafa þetta þak og grunn- tónninn í þessum breytingum hefði verið sá aó lækka mætti síldarverðið með því. Hann gæti ekki séð, að sá grunntónn hefði náðst fram með þessum aðgerð- um. Yrði þessu skipt jafnt kæmu aðeins 230 lestir í hlut hvers og það væri vafasamt að það borgaði sig að fara af stað á það, það væri ekki neitt. Það lækkaði að minnsta kosti ekki verðið á síld- inni. Þessar breytingar kæmu því að hans mati engum til góða. Hann hefði viljað hafa sömu afla- skiptingu milli reknetabáta og nótabáta og hafa veiðina í rek- netin frjálsa. Hins vegar væri kvóti á nótaveiðarnar nauðsyn- legur vegna þess hve stórtækt veiðarfæri nótin væri. Ársæll Guðjónsson: Hringnótin drepur meira en kemur á land „ÞAÐ er ekki hægt að neita því, að mjög mikil óánægja er meðal Hornfirðinga vegna fyrirkomu- lagsins, sem verður á síldveiðun- um í haust. Menn eru óánægðir með það hve mikið kemur í hlut hringnótaveiðiskipa, því það er nokkuð Ijóst að hringnótin drepur meira en kemur á land,“ sagði Arsæll Guðjónsson, stjórnarfor- maður söltunarstöðvar Fiski- mjölsverksmiðju Hornarfjarðar hf„ í samtali við Morgunblaðið. Ársæll sagði ennfremur, að allt öðru máli gegndi um rek- netin, því smásíldin slyppi í gegnum þau. Nótin dræpi hins vegar allt sem í hana kæmi og stofninn þyldi það hreinlega ekki. Ef menn væru ekki ánægðir með það, sem í hring- nótina kæmi, væri því bara sleppt meira og minna dauðu. Því væru menn óhressir með að kvóti hringnótabáta hefði verið aukinn á kostnað reknetabáta. Menn sæju ekki réttlæti þess, að nú fengju reknetabátarnir aðeins 14.000 lestir en hring- nótabátarnir um 35.000 lestir. Það virðist sem með þessu sé verið að reyna að bjarga hring- nótabátunum, en menn sæju ekki að 450 lestir annað hvert ár gerðu einhvern mun fyrir þá, þetta gerði ekki neitt. Þá væri einnig sama þak á afla reknetaveiðibáta, þeir mættu ekki veiða meira en 450 lestir, en ef 60 bátar stunduðu veiðarnar eins og var í fyrra kæmu aðeins rúmar 230 lestir í hlut hvers, ef jafnt yrði skipt á milli báta. Það væru menn mjög óánægðir með. Vegna þessa væri einnig hætta á því að menn kepptust við að ná sem mestu sem fyrst og væri síldin þá enn út af Áustfjörðum, kæmi lítið til vinnslu á Höfn. Menn væru þá mjög illa settir, því mjög mikið hefði verið lagt í uppbyggingu söltunarstöðvar- innar. Ekki hefði enn verið tal- að um að hafa móðurskip á mið- unum til að taka afla af bátum þar og flytja hann til Hafnar. Síldin væri viðkvæmt hráefni og vafasamt væri að skipa henni á milli skipa. Menn vissu auðvitað ekki hvar síldin héldi sig á hverjum tíma. Það hefði verið mikil síld á miðunum við Hornafjörð í vor og fram eftir sumri. Svo yrðu menn bara að bíða og vona og eitthvað yrðu skipin að gera við aflann hæpið væri að söltunarstöðvar á Aust- fjörðum gætu tekið við öllum aflanum. Friðrik Ólafsson um lausn Korchnoi-málsins: Anægjuefni að loks skuli séð fyrir endann á málinu „ÞAÐ ER mikið ánægjuefni að loks skuii séð fyrir endann á þessu máli,“ sagði Friðrik Ólafs- son, formaður FIDE, í samtali við Morgunblaðið, en hann var spurð- ur um lausn á máli Korchnoi-fjöl- skyldunnar, en Bella og Igor Korchnoi eru nýlega komin til Sviss frá Sovétríkjunum. Bifreiðin BIFREIÐIN, sem stolið var úr bíl- skúr sambyggðum verzluninni Hljómveri á Akureyri, fannst í sjón- um út af Sverrisbryggju austan á Oddeyrartanga í fyrrakvöld. Bifreið- inni var stolið aðfaranótt laugar- dagsins. Brotist var inn í Hljómver og hljómflutningstækjum stolið. „Þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart og þetta var sú niður- staða sem beðið var eftir. Maður getur aldrei verið viss um svona hluti, það eru vafaatriði í öllu samkomulagi, svo endanlega getur maður ekki sagt um hlut- ina fyrr en þeir hafa gerst. Því er ekki að leyna að þegar þetta fundin Þjófurinn halði þýfið á brott með sér í bifreiðinni, ók henni i gegnum bil- skúrshurðina og á brott. Þýfið var ekki í bifreiðinni og er þjófurinn ófundinn. Lögreglan á Ak- ureyri biður alla þá sem kunna að geta veitt upplýsingar um málið, að hafa samband við sig. Erum mjög ham- ingju söm yfir að vera saman á ný — sagði Bella Kortsnoj mál er úr sögunni þá er manni efst í huga að snúa sér af fullum krafti að þeim viðfangsefnum sem beðið hafa úrlausnar vegna þessa máls. í þetta hefur farið mikill tími og það hefur staðið starfseminni nokkuð fyrir þrif- um og eytt meiri krafti og orku en æskilegt var. En nú er bara að fara að fást við næstu vanda- mál sem upp korna," sagði Frið- rik Ólafsson. „ÉG ER mjög hamingjusöm og eiginmaður minn líka yfir þvi að við erum nú saman á ný,“ sagði Bella Korchnoi í samtali við Morg- unblaðið í gær, en hún og Igor sonur þeirra komu til Sviss frá Sovétríkjunum sl. sunnudag, en þar hafa þau beðið árum saman eftir brottfararleyfi frá Sovétríkj- unum, til að geta flust til Viktors Korchnoi, en hann býr nú í Sviss. Bella Korchnoi kvaðst ekki vilja ræða framtíðaráform fjöl- skyldunnar á þessu stigi máls- ins, það yrði að bíða. „Allir eru ánægðir og fjölskyldan býr hjá mér núna,“ sagði dr. Brobeck, lögfræðingur Viktors Korchnoi, í samtali við Morgunblaðið. Dr. Brobeck var spurður hvað fjölskyldan hygðist fyrir, hvort þau hefðu í hyggju að flytjast til Bandaríkjanna, eins og sagt hefði verið. Hann svaraði: „Þau eru nú að ræða framtíðaráform sín, en ég veit ekki hvað þau ætla að gera. Þau vita ekki enn hvað þau munu gera í þeim efn- um,“ sagði dr. Brobeck.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.