Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 + Móöir min, KRISTÍN PÁLMADÓTTIR, sem andaöist í Landspítalanum föstudaginn 2. júlí, veröur jarö- f' sungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 9. júlí kl. 13.30. \ Fyrir hönd ættingja og vina, Guömundur Jónsson. MAGNÚS Á. GUDJÓNSSON, vélgssslumaöur, fyrrverandi sjómaöur, Skaggjagötu 3, Reykjavík, lést miövikudaginn 7. júli. Klara Siguröardóttir, Klara M. Stephensen, Steinar Magnússon. Í Móöir mín og dóttir, ALDÍS JÓNSDÓTTIR, tónmenntakennari, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. júlí kl. 15.00. Glsli Jón Þórðarsson, Marla Sólveig Majasdóttir. + Utför eiginkonu minnar, ÞÓRDÍSAR ÓLAFSDÓTTUR, Kirkjubraut 37, Akranesi, fer fram frá Akranesklrkju kl. 13.00 föstudaginn 9. júli 1982. Jarö- sett veröur í Fossvogskirkjugaröl. Hermann Guömundsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Faöir okkar, SKÚLI VIGFÚSSON, Faxabraut 12, Keflavlk, veröur jarðsunginn föstudaginn 9. júlí frá Keflavikurkirkju kl. 14.00. Börnín. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÚLÍUS KRISTJÁNSSON, fisksali, Miklubraut 60, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. júli, kl. 13-30 Svana Júllusdóttir, Jón Björnsson, Katrín Júlíusdóttir, Kristján Axelsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar. tengdamóöur, ömmu og systur, SIGURLAUGAR SIGURDARDÓTTUR, Litla Kambi, Breiöuvfkurhreppi. Sérstakar þakkir til systra, lækna og starfsfólks St. Fransiskus- spítalans, Stykkishólmi, fyrir alla alúö og umönnun. Guö blessi ykkur öll. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Guöfinna Siguröardóttir og aörir aettingjar. + Viö þökkum samúð og vinarhug vegna fráfalls fööur okkar, tengdafööur og afa, FINNS SIGMUNDSSONAR, fyrrverandi landsbókavaröar. Erna Finnsdóttir, Geir Hallgrímsson, Birgir Finnsson, Hildur Knútsdóttir og barnabörn. + Þakka innilega vinum og vandamönnum sem auösýndu mér hlý- hug og vinsemd við fráfall fóstursonar míns, HANS E. JOHANSEN, sem lést 25. júní 1982. Einnig þakka ég fóstursyni mínum, Gunnari Johansen, fyrir auö- sýnda samúö og kærleik. Drottinn Jesús sé ykkur huggun og skjól á sérhverri stund. Guöný S. Guöjónsdóttir. Guðbjörg Brynjólfs- dóttir — Minning Fædd 12. nóvember 1898 Dáin 3. júlí 1982 Aldamótakynslóðin er nú smá saman að kveðja. Sól þeirrar kynslóðar gengur senn alveg til viðar, þess fólks sem með miklum dugnaði og bjartsýni ruddi braut- ina til betra lífs fyrir okkur eftir- komendurna. Þetta var fólkið sem átti lifandi hugsjónir og barðist fyrir þeim án hugsunar um endurgjald og eigin hag. Merkiskona úr þessum hópi, Guðbjörg Brynjólfsdóttir, er nú fallin í valinn. Hún lést á Land- spítalanum laugardaginn 3. þ.m. 83 ára gömul. Guðbjörg fæddist þann 12. nóv- ember 1898 að Ytri-Ey á Skaga- strönd. Hún var dóttir hjónanna Brynjólfs Lýðssonar hreppstjóra frá Skriðnesenni í Strandasýslu og konu hans Kristínar Indriðadótt- ur frá Ytri-Ey á Skagaströnd. Guðbjörg var næstelst sjö systk- ina sem upp komust. Hún ólst upp í föðurgarði fram til tvítugs en fór þá til Reykjavíkur. Stundaði um tíma nám í Kvennaskólanum en gekk síðan að allri almennri vinnu. Hún var hörkudugleg, þrekmikil og svo handfljót að af bar. Árið 1931 giftist Guðbjörg Hannesi Einarssyni sjómanni. Hann lést langt fyrir aldur fram í október 1940 aðeins 44 ára gamall. Eignuðust þau eina dóttur barna, Selmu, gift Ríkarði Pálssyni tannlækni. Þau eiga tvo syni Hannes og Smára. Síðari eiginmaður Guðbjargar var faðir minn, Lárus Hansson. Hann lést árið 1958 eftir ellefu ára farsæla sambúð þeirra hjóna. Eg veit að faðir minn virti Guðbjörgu og mat mjög mikils. Þar hafði hann eignast traustan og góðan lífsförunaut. Síðan eru liðin 24 ár, en heimili Guðbjargar var nær alla tíð að Meðalholti 6 hér í borg. Guðbjörg var mikil félagsmála- kona. Vann hún alla tíð mjög mik- ið að félagsmálum og var í stjórn- um sumra félaga um árabil. Má þar til nefna Verkakvennafélagið Framsókn, Kvenfélag Háteigs- kirkju og Slysavarnafélag íslands. Kunna aðrir en ég betri skil á öllu því óeigingjarna starfi sem Guð- björg innti þar af hendi. Læt ég því öðrum eftir að segja frá því. Hitt veit ég að það munaði um handtak Guðbjargar að hverju sem hún gekk, öllum vildi hún gott gera og ávallt var hún tilbúin að leggja góðu málefni lið. Guðbjörg var í eðli sínu stórlát kona. Hún hafði ákveðnar skoðan- ir á málum, var föst fyrir og fylgin sér. En umfram allt var hún ein- staklega trygglynd og ábyggileg bæði til orðs og æðis. Hún ávann sér því traust og virðingu allra sem kynntust henni. Gestrisni hennar og myndarskap var við- brugðið. Heimilið stóð ávallt frændfólkinu utan af landi opið. Hjá henni gisti það oftast þegar það átti erindi til borgarinnar. Allt var það sjáifsagt og velkomið. Ótaldar eru svo allar ánægju- stundirnar er við áttum saman með Guðbjörgu á heimili hennar og okkar systkinanna. Nú hefur Guðbjörg lokið göngu sinni hér á jörð. Miklu og löngu dagsverki er lokið. Hún lauk því með sóma. Eftir lifa endurminn- ingarnar. Þær eru bjartar og ylja um hjartarætur. Með þessum fátæklegu orðum þakka ég Guðbjörgu samfylgdina. Ég bið þann er sólina skóp að lýsa henni og leiða inn í framtíðarland- ið. Farðu svo í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gunnlaugur Lárusson Guðbjörg var fædd að Skriðnes- enni í Strandasýslu. Foreldrar hennar voru Kristín Indriðadóttir. frá Ey A-Húnavatnssýslu og Brynjólfur Lýðsson frá Skriðnes- enni. Þegar Guðbjörg var þriggja ára fluttu foreldrar hennar að Éy í A-Húnavatnssýslu og bjuggu þar síðan. Guðbjörg var fljótt dugmik- il og fór að hjálpa til, enda var hún sterkbyggð, ósérhlífin og viljasterk. Ung að árum fór hún til Reykjavíkur og stundaði hvaða vinnu sem til féll. Hún vann í fisk- vinnu og varð fljótlega virkur fé- lagi í V.K.F. Framsókn og var þar heiðursfélagi. Einnig gekk hún í Alþýðuflokkinn. Jafnaðarstefnan var hennar hjartans mál. Svo var hún einnig heiðursfélagi í Kvennadeild Slysavarnafélagsins. Hún vann ómælda vinnu fyrir þessi félög. Guðbjörg vann mikið fyrir barnaheimilið Vorboðann, sem var í fjölda ára starfræktur af Verkakvennafélaginu Fram- sókn, Þvottakvennafélaginu Freyju og Mæðrafélaginu. Það starfaði síðustu árin í Rauðhólum. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna gaf þessum félögum húsið, svo þau gætu haft samastað með starf- semina, og var kosin nefnd sem átti að koma þessu af stað. Og með dugnaði og samheldni kvennanna gekk þetta allt. Þær héldu basara, hlutaveltur gengu út um bæinn og fyrir forstjóra og alla sem hugs- anlegt var og margir tóku þeim vel, og allt gekk þetta. Mörg fátæk börn nutu starfsemi og umhyggju þessara góðu kvenna 2 mánuði á sumri og eiga góðar minningar úr Rauðhólum. Það var aldrei í þá daga spurt hvað fæ ég fyrir þetta. Nei, það var svo sjálfsagt að slíkt var aldrei nefnt. Þessi starfsemi hélt upp úr 1940 og fram til 1970. Ég tel nú ekki upp fleiri félags- störf Guðbjargar, það yrði svo langt mál. En mig langar að minn- ast þess að við unnum saman í félögum í 40—50 ár, og fyrir rétt- um 40 árum flutti ég í Meðalholt 9 beint á móti Guðbjörgu og Vigdísi Wage, svo við vorum oft búnar að hittast gegnum árin. Helga Kristjáns- dóttir - Kveöjuorð Okkur systkinin langar til að minnast ömmu okkar, Helgu Kristjánsdóttur, og þakka fyrir allar þær ánægjustundir sem við áttum með henni, fyrst á Túngöt- unni og síðan á Hagamelnum. Þar var alltaf nóg hjartarúm og þang- að gátum við komið með gleði okkar og sorgir, og hún gaf sér alltaf tíma til að hlusta á okkur og gefa okkur góð ráð. Við minnumst hennar líka úr afmælum okkar þar sein hún lék sér með okkur og mátti ekki á milli sjá hver skemmti sér best, amma, við, eða litlu afmælisgestirnir. Við vitum núna að hún er komin í góðar hendur Hans sem læknar öll mein. Við óskum henni góðrar ferðar yf- ir móðuna miklu þar sem afi bíður hennar. Litla sólargeislanum sem fædd- ist sama dag og hún kvaddi, mun er fram líða stundir verða sagt frá ömmu Helgu og hversu góð hún var. Blessuð sé minning hennar. Heiga, Þorgrímur, Eiríka og Ragnheiður. Mig langar til gamans að geta þess að í síðustu kosningum, þá gat hún kosið á staðnum, en það var ekki við annað komandi en að fara upp í Sjómannaskóla að kjósa og hringja í vinkonu sína í V.K.F. Framsókn að sækja sig. Þetta er smálýsing á stefnufestu hennar. Guðbjörg var tvívkænt. Fyrri maður hennar var Hannes Éin- arsson, sjómaður. Eignuðust þau eina dóttur, Selmu, sem gift er Ríkharði Pálssyni, tannlækni, og eiga þau tvo uppkomna syni. Hannes andaðist eftir margra mánaða erfiða sjúkdómslegu. Þá var dóttirin 7 ára. Nú var að duga eða drepast. Lífið hélt áfram, nú var að koma Selmu til manns og það gerði hún með sóma. Guðbjörg var fjármálaritari V.K.F. Fram- sókn og fylgdi Selma mömmu sinni, þegar hún var ekki í skóla. Allt gekk þetta vel. Guðbjörg kom henni vel til manns, og er hún dugnaðarmanneskja. Seinni mað- ur Guðbjargar var Lárus Hans- son, innheimtumaður hjá Reykja- víkurborg. Hann var ekkjumaður og átti uppkomin börn, og var mjög náinn vinskapur með börn- um og barnabörnum Lárusar. Guðbjörg átti mjög góð ár með Lárusi, þau fóru mikið í ferðalög saman, sem hún hafði mjög gam- an af, einnig var Lárus félagslynd- ur, tók vel á móti gestum og gang- andi. Guðbjörg hafði pláss bæði fyrir matar- og gistirými, þó íbúð- in væri ekki stór. Guðbjörg er kvödd af öllum sín- um nánustu með þakklæti. Hún átti góða fjölskyldu, innileg vin- átta ríkti milli systkina hennar alla tíð. Selma og fjölskylda hennar voru hennar augasteinar. Þau voru öll reiðubúin að gera allt fyrir hana sem hægt var. Og kveðja þau hana með söknuði. En stundin var komin og ekki þýddi að deila við dómarann. Við vin- konurnar kveðjum Guðbjörgu og geymum minningarnar um allar ánægjustundirnar sem við áttum saman. Einnig flyt ég kveðju frá Ástu, dóttur Vigdísar Wage, vin- konu okkar. Við biðjum Guðbjarg- ar og fjölskyldu hennar allrar Guðs blessunar. „Far þú í fridi, friður (iuð.s þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, (»uð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoHN þú hljóta skalt.“ María, Lára, Sigríður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.