Morgunblaðið - 08.07.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982
11
Ferðaskrífstofa ríkisins:
Tveggja milljón króna
hagnaður á rekstri ’81
„HAGNAÐUR af Feröaskrifstofu
ríkisins var rúmlega 2 milljónir
króna á siöastliðnu ári þrátt fyrir
erfiöa stööu aö mörgu leyti og þá
einkum er varðar gengismál. Þar af
var hagnaður af rekstri Eddu-hótela
rúmar 1,3 milljónir króna," sagði
Kjartan Lárusson, forstjóri Feröa-
skrifstofu ríkisins á fundi meö
blaðamönnum er hann kynnti starf-
semi Feröaskrifstofu ríkisins.
í sumar verða 15 Eddu-hótel
rekin víðs vegar um landið. Þau
eru tvö hótel á Laugarvatni, í
Reykholti í Borgarfirði, Reykjum í
Hrútafirði, Húnavöllum í
A-Húnavatnssýslu, á Akureyri,
Stóru-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði, Hallormsstað á Fljótsdals-
héraði, Eiðum í S-Múlasýslu,
Staðarborg í Breiðdal, Nesjaskóla
í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri
í Skaftafellssýslu, Skógum undir
Eyjafjöllum, Flókalundi við
Vatnsfjörð og Bjarkalundi í
Barðastrandarsýslu.
Nýtt gistihúsnæði með 12
tveggja manna herbergjum með
baði var opnað á vegum Hótel
Eddu á Kirkjubæjarklaustri í
byrjun mánaðarins. „Þetta er
viðbót því búið er að taka í notkun
tíu 2 manna herbergi með baði.
Við höfum lagt fram fjármagn í
formi fyrirframleigu, en húsnæðið
er i eigu heimamanna. Fyrir-
myndin er komin frá Flúðum og
þetta gæti víðar verið góð lausn í
uppbyggingu gistiaðstöðu," sagði
Kjartan Lárusson.
Ferðaskrifstofan rekur almenna
upplýsinga- og sölustarfsemi alla
daga vikunnar fyrir innlenda sem
erlenda ferðamenn á tveimur
stöðum í Reykjavík, í söluturn-
inum við Lækjartorg og á aðal-
skrifstofunni að Reykjanesbraut
6. Því er hægt að kaupa og panta
gistingu á hótelum alía daga vik-
unnar, svo og farseðla með flug-
vélum, ferjum og langferðabifreið-
um. í vaxandi mæli hefur borið á
því, að Reykvíkingar notfæri sér
þessa þjónustu. „Við bjóðum upp á
alla þjónustu hvað varðar farseðla
og hótelfyrirgreiðslu fyrir þá, sem
ferðast til annarra landa og höf-
um fengið tölvuskerma tengda
farskrártölvu Flugleiða," sagði
Kjartan.
„En við leggjum í vaxandi mæli
áherzlu á ferðir fyrir íslendinga.
Við bjóðum 10 daga hringferð um
landið og 9 daga Vestfjarðaferð og
er í boði sérstakur afsláttur fyrir
aldraða á þessum ferðum i ágúst,“
sagði Kjartan.
„Eftir sem áður byggir Ferða-
skrifstofa ríkisins afkomu sína að
langmestu leyti á komu erlendra
ferðamanna og þjónustu við þá.
Við viljum reyna að færa út kví-
arnar að þessu leyti og höfum haf-
ið kynningu á skíðaferðum til ís-
lands með útgáfu kynningarbækl-
ings. Með þessu viljum við reyna
að lengja ferðamannatímann og
gefa útlendingum kost á skipu-
lögðum ferðum hingað til lands
yfir vetrarmánuðina," sagði
Kjartan Lárusson.
Kjartan Lárusson, forstjóri Feröaskrifstofu rfkisins og Diljá Gunnarsdóttir,
sölustjóri í feröum innanlands. Mynd Mbi. t;u«jón.
Hjólreiðamennirnir:
Koma til Reykja-
víkur á sunnudag
Hjólreiðamennirnir sem nú hjóla
hringinn í kringum landiö komu í
llvítanes í fyrrakvöld, klukkustund
á undan áætlun. Þar var ágætis
þátttaka, félagar úr Djúpverja sem
eru á Snæfjallaströnd og í Æðey,
þurftu aö koma meö bát til móts við
þá svo þeir gætu hjólað áfram.
í gærmorgun var farið frá
Hvítanesi og hjólað til Þingeyrar í
gærkvöldi. Vestfirðingar hjóluðu
um allar heiðar án þess að blása
úr nös. Þeir eru nú staddir í Bíldu-
dal og leggja af stað klukkan 17 í
dag áleiðis til Patreksfjarðar.
Siðan verður hjólað til Flóka-
lundar og er koma þangað áform-
uð klukkan 2. Ferðin hefur gengið
vel og hjólin reynst mjög vel. 2.500
km hafa verið hjólaðir og alls hafa
hjólað um 2.350 manns. Þess má
geta að yngsti þátttakandinn var
fjögurra ára. Komið verður til
Reykjavíkur á sunnudag og hjól-
reiðamenn verða á Lækjartorgi
klukkan 14. Þar mun standa yfir
skemmtidagskrá sem hefst kl.
13.15.
— Guðlaug
Auðvitað
fær Stína dúkka
fiítttilKqben
en krakkamir bonsa
995.-lapmir!
í helgarferðunum okkar til Kaupmannahafnar í
sumar hugsum við sérstaklega um börnin. Tívolí,
dýragarðurinn og Bakkinn eru draumastaðir allra
krakka og fullorðinna raunar líka. Við bjóðum
þægilegt flug á föstudegi, gistingu á úrvals hótel-
um ( herbergi með baði, ásamt morgunverði og
heimflug á mánudegi. Verðið er frá 3.980.00 kr.
fyrir fullorðna en frá 995.00 kr. fyrir börn 11 ára
og yngri í herbergi með foreldrum sínum og það
kostar ekkert að láta Stínu dúkku fljóta með.
(
Smellið þið nú krökkunum í strigaskóna og sjálf-
um ykkur í stellingar og drífið í að kaupa miða
strax því sætafjöldi er takmarkaður og ferðirnar
fyllast óðum.
Leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum Flug-
leiða, umboðsmönnum eða ferðaskrifstofun-
um. Farpantanir eru einnig teknar í síma
25100.
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
Háð samþykki viðkomandi stjómvalda