Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 13 Belglski sendiherrann á íslandi: „Viðskiptin milli Belgíu og Islands eðlileg en takmörkuð“ Belgíski sendiherrann á íslandi, sem hefur aðsetur í Nor- egi var hér á ferð nýlega, á árlegri ferð sinni til landsins. Mbl. notaöi tækifærið og talaði stuttlega við hann. „Þetta er þriðja heimsókn mín til Reykjavíkur. Fyrst kom ég í nvember 1980 og afhenti forseta ykkar trúnaðarbréf mitt. Næsta heimsókn mín var í janúar 1981, þegar þurfti að ræða endurnýjun fiskveiðisáttmála, sem er í gildi milli landanna og leyfir 6 belgísk- um togurum að veiða á Islands- miðum ákveðið magn af þorski. Og þetta er í þriðja skipti sem ég er hérna núna, á minni árlegu ferð hingað til lands. Ég er búinn að hitta forseta ykkar og tala við ýmsa ráðherra. Þá hef ég talað við kollega mína úr Efnahagsbanda- laginu. Þetta samkomulag er nú orðið 8—9 ára,“ sagði hann, þegar hann var nánar inntur eftir fiskveiði- samkomulagi miili íslendinga og Belga, „og Belgía er eina landið innan Efnahagsbandalags Evrópu, sem má veiða innan íslensku land- helginnar. Það kemur til af því að það var komin allmikil hefð á veiðar okkar hér, og þegar fisk- veiðideilan við Breta hófst, sömd- um við fljótlega við íslendinga og nutum þess þá, að hafa hjálpað til við að koma á almennum við- skiptasamningi milli íslands og Efnahagsbandalags Evrópu, þrátt fyrir fiskveiðideiluna við Breta." „Það eru eðlileg en takmörkuð viðskipti milli íslands og Belgíu," sagði hann þegar hann var spurð- ur um viðskiptin milli landanna. „Það er alltaf fyrir hendi sá mögu- leiki að auka viðskiptin en það hlýtur að byggjast á ríkjandi efnahagsástandi í löndunum. Núna gengur Island í gegnum erfiðan tíma, vegna minnkandi huga að aðstöðu fyrir unglingana og haldið verður áfram fram- kvæmdum við sundlaugina. Skipulags- og umhverfismál eru ofarlega á baugi. Það er mikið bú- ið að vinna að skipulagsmálum á undanförnum árum og stefnt er að því að sjá fyrir endann á þeim. Hér er mikið fuglalíf og náttúru- sérkenni sem taka þarf tillit til, jafnframt því að aðlaga nýtt skipulag þeirri byggð sem fyrir er. í náinni framtíð þarf að huga að atvinnumálum. Æskilegt er að koma hér upp léttum iðnaði. Fé- lagsleg þjónusta er nokkuð sem við stöndum frammi fyrir í aukn- um mæli, eftir því sem byggðin vex og eru þau mál í athugun. Hafa ber í huga að tekjur sveit- arfélagsins ráða framkvæmdum. Velferð sveitarfélagsins er áhuga- mál allra íbúanna, e.t.v. greinir okkur á um aðferðir og forgang mála, en viljum öll sveitinni okkar vel.“ — Vigdís Finnbogadóttir er búsett í þessum hreppi. Heldur þú að það sé fyrir áhrif þess að þú ert ráðin sveitarstjóri? „Nei, það er af og frá. Ég get ekki séð hvaða áhrif forsetaemb- ættið gæti haft á þessa ráðningu. Ég er sveitarstjóri í fámennri byggð og geng til þess starfs sem ábyrgur einstaklingur en ekki ein- göngu af því að ég er kona, en Vigdís er fulltrúi allra lands- manna. Hins vegar hefur Vigdís ekki skemmt fyrir okkur konun- um, hún er glæsilegur fulltrúi þjóðarinnar." — Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? „Mér þykir vænt um þessa sveit og vil gera mitt besta í þessu starfi." þorsk- og loðnuafla, og þess vegna er minna af erlendum gjaldeyri á lausu til að auka með viðskiptin.“ — Hvað um samskiptin á menningarsviðinu? „Belgía og ísland hafa ekki gert með sér neinn menningarsátt- mála, og vegna erfiðleika í Belgíu höfum við orðið að takmarka menningarsamskiptin við lönd, sem við höfum menningarsátt- mála við. Ég held að fyrir þrem árum hafi fyrrverandi forseti Is- lands, herra Kristján Eldjárn, far- ið í opinbera heimsókn til Brússel. Það var fyrsta opinbera heim- sóknin og var til merkis um góð tengsl sem eru ríkjandi milli þjóð- anna. Ég minni á, að það var löng hefð á samskiptum milli þjóðanna vegna sjávarins og belgískra sjó- manna sem hafa sótt á miðin hingað. í því sambandi má minn- ast á að einn aðaltilgangur farar minnar hingað núna, er að heiðra Vestmannaeyingana sem björguðu áhöfninni af belgíska togaranum Pelagusi í vetur og var ég beðinn af mínum stjórnvöldum, að láta í Ijósi þakklæti þeirra fyrir það sem björgunarmennirnir í Vestmanna- eyjum gerðu," sagði Jacques Vermer að lokum. Jacques Vermer, sendiherra Belgíu á f slandi með aðsetur í Noregi. AMSTERDAM 0G ÖLL EVRÓPA MEÐ Brottför alla föstudaga Flug og gisting: 7 dagar, Hótel Sonnesta, kr. 5.860,- (tvíbýli) — kr. 7.000,- (einbýli). Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, kynningarskál, forð um síkin, flaska af víni hússins með kvöldverði í matstofu hótelsins, auk annars. Flug og bfll Ótakmarkaður akstur 1 vika - Verð frá kr. 2.870,- VW Polo 4 í bíl 3 í bíl 2 í bíl 1 vika 2.870,- 2.990,- 3.225,- 2 vikur 3.225,- 3.460,- 3.935,- Opel Kadett 1 vika 2.935,- 3.075,- 3.355,- 2 vikur 3.355,- 3.635,- 4.195,- Innifalið: Flug, bíll að eigin vali, ótakmarkaður akstur, lágmarkstrygging. Afsláttur fyrir 2—12 ára, kr. 1.260,- URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI: 26900 i Feröaskrifstofan ÚTSÝN/ Austurstræti 17, sími 26611.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.