Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 „Stund sannleikans“ runnin upp í frönsku efnahagslífi Lækkandi gengi franska frankans Eitt af því, sem ríkisstjóm Mitterrands Frakklandsforseta hefur lagt meiri áherzlu á en flest annað, var aó viðhalda gengi franska frankans. Nú, þegar liðið er ár, frá því að Mitterrand komst til valda, blasir sú staðreynd við, að þessi viðleitni hefur orðið til cinskis. Frankinn hefur stóðugt lckkað í gengi gagnvart öðrum gjaldmiðium svo sem bandariskum dollar. enska pundinu og vestur-þýzka markinu. Traustiö á franska gjaldmiðlinum er farið fyrir lítiö. Mitterrand forseti (til hcgri) ásamt Mauroy forsætisráðherra. — Þetta er ekki rétti tíminn til þess að tína kirsuber, viðurkenndi Jacques Delors efnahagsmálaráð- herra nýlega í þætti í franska sjónvarpinu, sem ber heitið „Stund sannleikans" — Við getum ekki vænzt þess, að fundinn verði upp töfradrykkur, sem eigi eftir að leysa öll efnahagsvandamál okkar. Fullir af hugsjónum og hæfi- legum skammti af hugmynda- fræði höfðu franskir jafnaðar- menn — strax eftir að þeir komu til valda fyrir rúmu ári — byrjað baráttu sína gegn atvinnuleysinu og skyldi sú viðleitni hafa algjör- an forgang. Með stórauknum ríkisútgjöldum og þá einkum á sviði félagsmála og með hækkun láglauna, skyldi eftirspurn eftir vörum og þjónustu aukin. Kenn- ingin var sú, að með ört vaxandi kaupgetu neytenda, yrðu atvinnu- rekendur hvattir til þess að fjár- festa í nýjum vélum og verksmiðj- um og með því myndi skapast ný og áður óþekkt eftirspurn eftir vinnuafli. Þegar einu sinni var bú- ið að blása virkilega í glæður efna- hagslífsins, þá myndi hagvöxtur- inn aukast af sjálfu sér. Síðan skyldi baráttan við verðbólguna hefjast fyrir alvöru. Skylt er að tíunda það, að varla nokkurt loforð stjórnarinnar á sviði efnahagsmála hefur verið haldið. Atvinnuleysi hefur aukizt en ekki minnkað. Þá hefur ekki tekizt að halda verðbólgunni í skefjum, því að hún fer vaxandi. En framleiðslan hefur dregizt saman og samkeppnisgetu fransks iðnaðar hefur hrakaö. Fjórum sinnum meiri halli á fjárlögum Örar en búast mátti við, lenti hið franska fyrirmyndarkerfi í ógöngum. Hallinn á fjárlögum þessa árs mun sennilega nema 120 milljörðum franka og það er fjór- um sinnum meiri halli en á síð- ustu fjárlögum Valéry d’Estaing, forvera Mitterrands í forsetaemb- ætti. A næsta ári má búast við, að þessi halli verði um 200 milljarðar franka, ef stjórnin dregur ekki úr þeim útgjöldum, sem þegar hafa verið fyrirhuguð. Meira en helmingi af fjárlaga- hallanum hefur einfaldlega verið mætt með aukinni seðlaútgáfu. Vaxandi verðbólga er auðvitað óhjákvæmileg afleiðing þessa og nú er verðbólguhraðinn orðinn um 6,2% meiri hjá Frókkum en helztu viðskiptalöndum þeirra. Fyrir ári var hann aðeins 2,9%. Hækkandi verðlag bitnar ekki bara á ferðamönnum, sem fara til Erakklands í sumarleyfi. Franskt atvinnulíf er farið að finna fyrir því á marga vegu. Framleiðslu- kostnaður er orðinn mun hærri þar í landi en t.d. í Vestur-Þýzka- landi, svo að franskar vörur eins og bílar, sjónvörp og hljómtæki eru ekki lengur samkeppnisfærar við erlenda framleiðslu. I apríl sl. var innflutningur Frakka 10 millj- örðum franka meiri en útflutning- ur þeirra. — Hræðilegt, voru um- mæli Michel Joberts, ráðherra utanríkisviðskipta í Frakklandi. Sú stjórn jafnaðarmanna og kommúnista, sem nú situr við völd í Frakklandi, hefur greinilega ofmetið getu ríkisvaldsins til þess eitt sér að rétta við efnahagslíf landsins. Það sem á skortir er at- beini einkarekstursins í landinu. Hann hefur ekki fylgt ríkisvaldinu eftir. Þjóðnýting helztu fyrirtækja ög banka Frakklands ásamt auknum skattaálögum hefur dregið kjark úr atvinnurekendum. Sífelld verk- föll af og til hafa ekki orðið til þess að bæta úr skák. Á síðasta ári dróst fjárfesting í atvinnurekstri saman um 10% og á þessu ári virðast horfur litlu betri. í stað þess að ráða til sín nýtt vinnuafl, reyna atvinnurekendur að mæta hækkandi framleiðslukostnaði með meiri hagræðingu. KLÆÐIÐAF STEYPUSKEMMDIK MEÐ ÁLKLÆÐNINGU > Nýleg könnun Rannsóknarstofnunar byggingariðnaöarins á steypuskemmdum og sprungumyndunum í íslenskum húsum leiddi í Ijós að ein haldbesta vörnin er að klæða húsin áli. A/KLÆÐNING ásamt fylgihlutum uppfyllir allar óskir um gerðir, liti og lengdir. A/KLÆÐNING hefur allt sem til þarf, allt til síðasta nagla. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SlMI 22000 jNeltrjjloTkShneiS r Olga meðal afganskra kommúnista Babrak Karmal, forseti Afg- anistan, sem sneri heim úr tveggja mánaða ferð frá Austur-Þýskalandi og Sovét- ríkjunum í siðustu viku, mætir nú mikilli andstöðu frá meðlimum hins ríkjandi kommúnistaflokks sem eru reiðir vegna frétta um dráp á hundruöum ungra flokks- meölima í dal sem liggur norður af höfuðborginni Kabul, er haft eftir vestræn- um stjórnarerindrekum. Hqndruð ungra kommúnista eru sögð hafa verið drepin 14. júni í launsátri afganskra skæruliða nálægt Panjshir- dalnum um 110 kílómetra norð- ur af Kabul. Þeir höfðu farið til liðs við sameiginlegt herlið Afg- ana og Sovétmanna sem voru þar í sókn. Miklar deilur ríkja milli tveggja arma kommúnista- flokksins, þess sem lýtur Khalq og hins sem lýtur Parcham og hafa þeir oft barist á banaspjóti síðan Karmal tók við völdum eftir að Sovétmenn steyptu for- vera.hans í embætti, Hafizullah Amin, af stóli í desember 1979. Hins vegar er haft eftir stjórn- arerindrekum á staðnum að hin- ar hatrömmu deilur innan flokksins hafi átt að vera úr sög- unni eftir að Sovétstjórnin lýsti yfir stuðningi við Karmal og Parcham-hluta flokksins. Karmal var ekki í landinu þegar hersveitir Afgana og Sov- étmanna gerðu eitt sitt stærsta áhlaup á vígi skæruliða í Panjshir-dalnum í maí. Sam- kvæmt fréttum frá hinni sov- ésku fréttastofu, Tass, var hann í hvíldarferð í Sovétríkjunum, en hin afghanska fréttastofan sagði hann hafa gengist þar undir uppskurði og væri sjúkur. 4. * Babrak Karmal forseti Afghanistan. Stjórnarerindrekar hafa þá trú að hann hafi meðan á dvöl- inni í Sovétríkjunum stóð, rætt ítarlega um ástand mála í heimalandi sínu við sovéska ráðamenn og hafi minnst á Genfar-viðræðurnar um ástand mála í Afganistan sem komið var á fyrir tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna, en í þeim tóku þátt fulltrúar Pakistan, Afganistan og Iran. Vestrænir stjórnarerindrekar velta því nú fyrir sér hvað hafi í raun legið að baki fjarveru Karmal frá Kabul og haft er eft- ir einum þeirra að annað hvort sé Karmal svona öruggur með ástandið í málum þjóðar sinnar — en allir vita að svo er ekki — eða Sovétstjórnin er komin í það sterka stöðu í landinu, að ekki skiptir máli hvort Karmal er eða fer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.