Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 Sovét: Friðarsinni á í vök að verjast Mfwkvu, 7. juli. AIV FORSVARSMAÐUR einu óháðu friðarsamtakanna, sem starfað hafa í Moskvu, hefur fenijið aðvörum frá lögreglunni þess efnis, um hann gæti lent í fangclsi fyrir gjaldeyrisbrask ef hann gagnrýni ekki iðju sam- starfsmanna sinna í samtökunum, að því er eiginkona mannsins, sem heitir Sergeir Botovrin, sagði í Al* í dag. Hann hefur verið í stofufangelsi á hcimili sinu um hríð, eftir að samtökin voru formlega stofnuð og lýstu markmiðum sínum. Kona Batovrins sagði í dag, að þrír löfíreglumenn hefðu komið til heimilis þeirra og sagt að hann ætti yfir höfði sér ákæru fyrir gjaldeyrissvindl ef hann skrifaði ekki snarlega undiryfir- lýsingu, þar sem hann fordæmdi hópinn og segði sig formlega úr honum, og síðast en ekki sízt væri gert ráð fyrir að hann gagnrýndi utanríkisstefnu Bandaríkjamanna. Eiginkonan sagði það algerlega úr lausu lofti gripið, að saka Batovrin um gjaldeyrisbrask en bersýnilega ætti að reyna að þvinga eigin- mann hennar á þennan máta til að hætta starfi sínu í samtökun- um. Kona Batovrins var látin fara á brott úr íbúðinni og hún sagði að hugsanlegt væri að maður hennar færi í hungur- verkfall ef ekki linnti umsátri og hótunum lögreglu. Það þykir skjóta skökku við að Sovétríkin skuli berja á þessari friðarhreyfingu í Sovétríkjun- um, þar sem þeir hafa leynt og ljóst stutt friðarhreyfingar í öðrum löndum, bæði með fjár- framlögum og orðaflóði. Sotelo býðst enn til að hætta Madrid 7. júlí. Al\ ÝMIS teikn virtust á lofti í dag um að spánski Miðflokkurinn, sem fer með stjórn landsins, væri að molna því að óeining innan forystuliðs hans hefur færzt mjög í aukana. Sotelo, forsætisráðherra, bauðst til þess öðru sinni í dag að hætta sem formaður flokksins, en atkvæða- greiðsla um tilboð forsætis- ráðherrans mun að líkindum ekki fara fram fyrr en í næstu viku. Þessi ágreining- ur hefur varið vaxandi upp á síðkastið og gæti orðið til þess að boða yrði til kosn- inga og í kjölfar fylgdi ríkis- stjórn sósíalista. Það myndi hins vegar vekja mikla reiði innan hersins með ófyrirsjá- anlegum afleiðum. Rætt hefur verið um bráðabirgðastjórn og utan- þingsstjórn en hvorugur kosturinn þykir hagstæður. Sotelo bauðst til að segja af sér og stakk upp á að Landelino Lavilla tæki við af sér, eftir að mistókst að ná Setelo samkomulagi við Adolfo Suarez fyrrv. forsætisráð- herra. Mikil spenna hefur verið í stjórnmálalífi Spánar frá því Suarez sagði af sér skýr- ingarlaust 1981 og skömmu síðar reyndu hægri sinnaðir herforingjar að grípa til valdaráns vegna þess tóma- rúms sem þeir sögðu að væri að myndast í stjórnmálalífi Spánar. Peking: Utlendingar í mótmælagöngu milli sendiráða Peking, 7. júli. Al*. KIIMLKGA tuttugu útlendingar sem eru búsettir í l’eking fóru í mótmæla- göngu í l’eking í dag, héldu í lögreglu- fylgd til sovézka og handarísku sendi- ráóanna og afhentu bréf þar sem vígbúnaAi er mótmælt. Mikiil fjöldi Kínverja fylgdist meó göngumönnum. Ita rti sendiráóin lokuóu hliAum sínum fyrir göngumönnum, en í því banda- ríska fengu göngumenn þau svör aA bréfi þeirra yrAi komiA áfram til Washington og haft yrAi samband viA þá innan nokkura daga. ( sovéska sendiráAinu var bréfiA hrifsaA af fáUt- inu ag því sagt aA bíAa, en tuAan skellt í lás þeva hKAum sea ekki voru taiin nógu rammlega læst. Anna Johnston frá Englandi sem skipulagði þessa aðgerð sagði AP- fréttastofunni, að slíkar göngur væru yfirleitt bannaðar í Kína. Þar sem göngumenn hefðu sannfært lögregluyfirvöld um, að þeir myndu ekki aðhafast neitt það sem kynni að koma kínversku stjórninni í vandræði, hefði verið fallizt á að leyfa gönguna milli sendiráðanna. Hún sagði að í hópnum hefðu verið nokkrir Bretar, Bandaríkjamenn, Vestur-Þjóðverjar, ítalir, Japanir, Kanadamenn, Ástralíumenn og Frakkar. Kandarísku forsetahjónin hylla geimfara geimferjunnar Kólumbíu er þeir stíga frá borði eftir velheppnaða geimferð og lendingu á venjulegri flugbraut á Edwards-flugstöðinni í Kaliforníu. Líbýumenn aðstoða skæruliða í Úganda Nairóbí, 7. júlí. AP. Ríkisútvarpið í Úganda sagAi í dag aé Líbýumenn hefðu stutt við bakið á skæruKðum, sem reynt hafa að koma stjórn Miltons Obote frá með bryðju- og ofbeldisverkum. Útvarpið sagði John Luwuliza Kirunda, innanríkisráðherra, hafa skýrt frá því í þinginu í Kampala í dag, að pottþéttar sönnur hefðu verið færðar fyrir því að skærulið- ar hefðu notast við líbýsk vopn er þeir gerðu árás á Lubiri-herstöð- ina í febrúar. Jafnframt hefði Kirunda skýrt frá því að yfirvöld hefðu undir höndum bréf, sem fyrrverandi ráðherra og núverandi skæruliða- foringi í Úganda hefði ritað sendi- herra Líbýu í Kenýa, þar sem hann þakkaði vopnasendingu og falaðist eftir frekari stuðningi. Að sögn Kirunda, hafa stjórn- völd í Kampala komið harðorðum mótmælum á framfæri við stjórn Khadafys Líbýuleiðtoga, þar sem stuðningi Líbýumanna við „stiga- mennsku" í Úganda var mótmælt. Stjórn Obotes hefir átt í úti- stöðum við skæruliðasveitir allt frá því hún komst til valda eftir kosningar í desember 1980. Skæruliðar hafa haldið því til streitu að úrslitum kosninganna hafi verið hagrætt. Líbýustjórn var helzti bakhjarl Idi Amins ein- ræðisherra í Úganda á árunum 1971—’79, og gerði líbýski stjórn- arherinn árangurslausa tilraun til að bjarga stjórn hans í apríl 1979, þegar Tanzaníuher réðst inn í Úganda og steypti Amin af stóli. Sihanouk til Kambódíu Sroch Srang, Kambódíu, 7. júlí. AP. NORODOM Sihanouk, leift- togi nýstofnaöra samtaka sem bcrjast skulu gegn stjórn landsins, hélt inn yfir landa- mæri Kambódíu í dag og hét því aft frelsa ættland sitt frá víctnömsku hernámi. Sihanouk kom síftast til Kambódíu fyrir hálfu fjórfta ári þegar hann flaug á braut frá Phnom Penh rétt fyrir innrás Víetnama. Sihanouk og kona hans fóru yfir landamærin frá Thailandi inn á svæði sem fylgismenn hans ráða. Æði stund fór í að kanna liðs- sveitir og menn létu óspart tilfinningar sínár í ljós og hver hét öðrum stuðningi og baráttu. Koma Sihanouks til Kam- bódíu er talin táknræn fyrir raunverulega baráttu sem sé nú að hefjast og sé mjög víð- tæk innan Kambódíu gegn stjórn Víetnama. Ekki var látið uppskátt hvar Sihanouk og stjórn hans myndu hafa aðsetur og ekki var dvalið ýkja lengi á kambódísku landi. Sihanouk sagði stuðn- ingsmönnum sínum, að hann myndi á næstunni fara víðar yfir landamærin og hvar- vetna safna liði og ekki linna fyrr en þjóð hans væri frels- uð undan áþján Víetnama. Að svo búnu ók Sihanouk og kona hans á brott inn í Thai- land aftur. Engu að síður þykir þetta tíðindum sæta, eins og fyrr segir, og sá hljómgrunnur sem Sihanouk hefur meðal landa sinna hefur aukizt með hverjum mánuði, eftir því sem grimmdarleg leppstjórn Víetnama hefur ráðið lögum og lofum í landinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.