Morgunblaðið - 08.07.1982, Page 23

Morgunblaðið - 08.07.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 23 Innrás Eþíópíu- manna í Sómalíu Nairobi, 7. juli. Al'. ÍJTVARPIÐ í Mogadishu skýrði frá því í dag, aö eþíópískar hersveitir heföu gert innrás i Sómalíu, og aö 200 Eþíópíuhermenn heföu falliö í höröum átökum í dag. Utvarpið sagði Eþíópíuher hafa ráðist inn í Sómalíu á mánudag og gert árás á þorpið Balambal í Galgaduud-héraðinu. Bardagar hefðu legið niðri yfir nóttina, en hafist að nýju í birtingu. Hefðu fjórir skriðdrekar og sex bryn- vagnar verið eyðilagðir í átökum á þriðjudag. Eþíópía og Sómalía háðu stríð í Ogaden-eyðimörkinni 1977, eftir að Sómalíumenn sendu þangað hersveitir. Eyðimörkin er innan landamæra Eþíópíu, en flestir íbú- anna eru af sómölsku bergi brotn- ir. Eþíópíumönnum tókst, með hjálp kúbanskra hermanna og dyggri hergagnaaðstoð Rússa, að hrekja her Sómalíu úr eyðimörk- inni í marz 1978. Skæruliðasveitir frelsisafla í vesturhluta Sómalíu eru virkar í Ogaden, en Sómalíu- menn segja enga stjórnarhermenn taka þátt í skæruhernaði þar. í framhaldi af Ogaden-stríðinu hafa Sómalir dregið úr stjórn- málasambandi við Moskvu, og leitað í auknum mæli eftir hernað- ar- og efnahagsaðstoð frá Vestur- löndum. Dóminikanska lýðveldið: Forsetinn fellur fyrir voðaskoti Santo Domingo, Dóminikanska Ivðvt ldinu, 5. júlí, AP. ANTONIO Guzman, forseti Dóminikanska lýöveldisins, sem átti aö láta af embætti í næsta mánuöi, lést í gær, sunnudag, eftir að skot haföi hlaupiö fyrir slysni úr byssu hans. Svo segir í tilkynningu stjórnvalda en hins vegar er haft eftir embættismanni í handaríska utanríkisráöuneytinu, að Guzman, sem 71 árs aö aldri, hafi augljóslega stytt sér aldur. Varaforseti landsins, Jacobo Majluta, sór embættiseið sinn sem forseti nokkrum stundum eftir lát Guzmans og í útvarpsávarpi til þjóðarinnar sagði hann, að herinn styddi „án nokkurra skilyrða áframhaldandi lög og reglu í land- inu“. Að sögn Majluta var Guz- man á skrifstofu sinni, ásamt tengdasyni sínum, nokkru fyrir miðnætti aðfaranótt sunnudags en skömmu eftir að hann hafði brugðið sér á salernið heyrðist þaðan skothvellur. Þegar að var komið lá Guzman í blóði sínu á gólfinu og er skýringin sögð sú, að hann hafi misst byssuna, sem hann bar alltaf á sér, í gólfið og þá hlaupið úr henni skot, sem lenti í höfði hans. Var strax farið með hann á spítala en hann lést í gærmorgun. Nýr forseti mun taka við völd- um í Dóminikanska lýðveldinu 16. ágúst nk., Jorge Blanco, en hann sigraði í forsetakosningunum í maí sl. Hann var frambjóðandi Byltingarflokksins, flokks Guz- mans, og bar sigurorð af Joaquin Balaguer, fyrrverandi forseta. í kosningabaráttunni hét Blanco því, að styrkja tengslin við Banda- ríkin og sagði ekki koma til mála að endurnýja sambandið við Kúbu. Ef Guzman hefði lifað valda- skiptin í næsta mánuði hefði hann orðið fyrsti forseti Dóminikanska lýðveldisins til að láta af völdum að eigin ósk. Embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneytinu sagði, að augljóst væri, að Guz- man hefði sjálfur bundið enda á líf sitt, en þegar hann var inntur nánar eftir því, sagði hann: „Það þykir ekki tilhlýðilegt að tala um sjálfsmorð forseta." V estur-Þýzkaland: Fylgi sósíaldemókrata fer stöðugt minnkandi Bonn, 7. júlí. AP. Samkvæmt skoöanakönnun, sem birt var í V-Þýzkalandi í dag, minnk- uöu vinsældir flokks Helmuts Schmidt kanzlara í júnímánuöi, en á sama tíma unnu umhverfisvernd- armenn, „grænistar“ á og hafa þeir aldrei notiö jafn mikils fylgis. Samkvæmt könnuninni njóta sósíaldemókratar 31,1% fylgis, miðað við 34,3% fylgi í maí. Um- hverfisverndarmenn njóta nú fylgis 7,7% kjósenda, miðað við 7,1% í maí og 5,8% í fyrra. Þá hafa Kristilegir demókratar, sem eru í stjórnarandstöðu, aukið fylgi sitt úr 49,9% í maí í 53,3%. Frjálsir demókratar, sem mynda stjórn með sósíaldemó- krötum, njóta minna fylgis en „grænistar", samkvæmt könnun- inni. Fylgi þeirra í júnílok var 6,8% og hafði fallið úr 8,1% frá því í maí. Skoðanakannanir undanfarna ERLENT, mánuði hafa sýnt fram á þverr- andi fylgi sósíaldemókrata. Af þessum sökum hafa Kristilegir demókratar hvatt til þess með aukinni áherzlu, að efnt verði hið fyrsta til þingkosninga. Frjálsir demókratar hafa vísað kröfum um brotthlaup úr stjórninni á bug, en samtals hafa stjórnarflokkarnir 42 sæta meirihluta í þinginu. Að öllu óbreyttu verða næstu þing- kosningar 1984. Dregið af þingmönnum Strassbourg, 7. júlí. AP. Stjórnunarskrifstofa Evrópu- þingsins í Strassbourg ákvaö í dag að byrja aö draga af laun- um og risnufé þingmanna, sem ekki eru á þinginu helming þingtímans eða meira, í hverj- um mánuði. Verður dregið af þing- mönnum sem svarar helm- ingi launa. Þingmenn á Evrópuþinginu fá nú um 900 dollara á mánuði fyrir fundi sem venjulega standa í viku- tíma. Auk þess fá þeir 345 dollara í ferðakostnað. Flugræninginn Sepala Okanayako, ásamt konu sinni og syni fyrir utan skrifstofur rannsóknarlögreglunnar í Colombo á Sri Lanka. Myndin er tekin áöur en dómarar kröföust varöhalds yfir ræningjanum til 16. júlí. Framsalskröfu ítalskra yftrvalda hefur veriö hafnaö. Þessi v-þýzku KNAUS-hús komu ( stasrA- um 12'A—13'h og 15’A fet, vönduð og vel búin. Óinnréttaö álhús fyrir basöi japanska og ameríska pallbíla. Fullinnréttaö bilhús. Svefnpláss fyrir 4. Fullkomiö eldhús. Klósett. Koma baaði fyrir ameríska og japanska pallbíla. Amerísk gróöurhús, basöi upp aö vegg og frístandandi. Húsin eru úr bronsuöu áli, plastí og gleri. Fólksbílakerrur meö Ijósum, varadekki, en án krossviös. Einnig fyrirliggjandí notaðar herjeppakerrur. Fullinnréttaö ibúöarhus á baaði japanska og ameríska pallbíla. Húsin eru lág á keyrslu, en vel mannhæð í notkun. Gisli Jónsson & Co. HF Sundaborg 41. Sími 86644. Traustir tjaldvagnar á mjög góöum undir- vagni meö 13 dekkjum. Eldhús. Svefnpláss fyrir 6—7 manns. Mjög stórt v-þýzkt hjólhýsi é 2 öxlum. Svefnpláss fyrir 6. Allur hugsanlegur búnaöur. Upplagt fyrir starfsmannafélög. Sól og sumar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.