Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 25

Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 25 fHwgtsitÞiittfife Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltruar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8 kr. eintakiö. Ósæmilegur þrýstingur - alvarleg stefnubreyting • • . Oll viðskipti, sem fram fara milli Islands og Sovétríkj- anna, nú og í næstu framtíð, eru innan viðskipta- samninga milli ríkjanna, sem verið hafa í gildi um árabil. Flfnahagssamningur sá, sem nú hefur verið gerður undir ósæmilegum utanaðkomandi þrýstingi, var því með öllu óþarfur, með hliðsjón af íslenzkum viðskiptahagsmunum, og felur ekki í sér krónuaukningu á sölu íslenzkrar fram- leiðslu. Hins vegar felur hann í sér ýmsar kvaðir gagnvart Sovétríkjunum, sem þýða alvarlega stefnubreytingu. Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur lýst yfir andstöðu við þennan samning í ályktun, sem birt var á baksíðu Mbl. í gær. I fyrsta lagi er því mótmælt að í samningnum er lýst yfir, að sovézka ríkisstjórnin hafi Helsinki-sáttmálann að ieiðarljósi. I þessari pólitísku viðurkenningu, sem ekkert á skylt við verzlunarviðskipti, er gengið þvert á stað- reyndir mála, bæði varðandi takmarkaðan einstaklings- bundinn þegnrétt í Sovétríkjunum sjálfum og sovézka útþenslustefnu, eins og hún birtist m.a. í Afganistan og Póllandi. Hér er ekki einungis blandað saman viðskiptum og pólitík, heldur gengið á skjön við 6 mánaða samhljóða samþykkt Alþingis, þar sem kúgun pólsku þjóðarinnar, í skjóli erlends hervalds, er mótmælt. I annan stað er áréttað, að sjálfgefið sé að eiga eðlileg verzlunarviðskipti við Sovétríkin, en þau geti, hér eftir sem hingað til, farið fram innan þeirra viðskiptasamn- inga, sem í gildi vóru og eru milli ríkjanna. — Þessi nýi efnahagssamningur breyti í engu umfangi þeirra við- skipta. I þriðja lagi er því harðlega mótmælt, að gera slíkan samning undir ósæmilegum þrýstingi, sem feli í sér al- varlega stefnubreytingu. Þá sé í fjórða lagi talið vítavert, að fara á bak við alþingismenn við þessa samningsgerð, en í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis um utanrík- ismál, síðla liðins þings, er ekki starfskrókur um aðdrag- andann að þessum umdeilda efnahagssamningi. Akureyri Höfuðstaður Norðurlands, Akureyri, er einn fegursti og snyrtilegasti bær á landinu. Það er ýmist talað um skólabæinn Akureyri eða iðnaðarbæinn Akureyri — og hvort tveggja er réttnefni. Akureyri hefur verið nokkurs konar menntunarmiðstöð Norðlendinga og þá ekki sízt átt við Menntaskólann á Akureyri. Þar hefur og þróast óvenju fjölbreyttur iðnaður, þ.á. m. útflutningsiðnaður, og þar er stór skipasmíðastöð. Hér við bætist að Akureyri er mikilvægur útgerðarstaður, með myndarlegan útveg og fiskiðnað, auk þess að vera verzlunar- og þjónustumiðstöð fyrir blómleg landbúnaðarhéruð Eyjafjarðar. Breiddin í atvinnuuppbyggingu Akureyrar, sem er óvenju mikil, skapar traustleika, en engu að síður ríkir óvissa í atvinnulífinu. Sjávarútvegur og útflutnings- iðnaður eiga undir högg að sækja, rekstarlega, eins og annarsstaðar í þjóðarbúskapnum, en rekstraröryggi þess- ara framleiðslugreina er hin hliðin á atvinnuöryggi stórs hluta íbúanna. Þessu veldur fyrst og fremst innlend kostnaðarþróun, umfram söluverð erlendis, og stefna stjórnvalda í skattamálum, verðlagsmálum og gengisstýr- ingu. Og afleiðingarnar bitna jafnt á fyrirtækjum í sam- vinnu- og einkarekstri. Mergurinn málsins í íslenzkum þjóðarbúskap hlýtur að vera sá, að styrkja rekstrarstöðu atvinnuvega, efla vaxt- armöguleika og framleiðni þeirra, enda byggjast lífskjör í landinu og getan til samfélagslegrar þjónustu á því, sem úr er að spila, þjóðartekjunum. Þess vegna áyVkureyri það fjöregg sameiginlegt með öðrum byggðarlögum í landinu, sem spannar atvinnulífið og verðmætasköpunina í þjóð- arbúskapnum. Það verður ekki lifað á erlendum lánum til langframa. Og taprekstur undirstöðuatvinnugreina leiðir ekki til bættra lífskjara. Framleiðsluplássin í landinu eiga mikið undir því komið að það verði stefnubreyting í stjórnarráöinu við Arnarhvál. Hverjir verða heims- meistarar? Fátt gagntekur hugi manna meira um þessar mundir en heimsmeistarakeppnin í knatt- spyrnu sem nú er í hámarki suður á Spáni. í dag verða leiknir tveir síðustu leikirnir fyrir sjálfan úr- slitaleikinn sem fram fer á sunnu- dag 11. júlí næstkomandi. Annars vegar eru það Pólverjar og ítalir sem keppa og hins vegar Frakkar og Vestur-Þjóðverjar. Sigurvegar- arnir í þessum leikjum munu síð- an keppa til úrslita á sunnudag- inn. Áætlað er að um tveir millj- arðar, eða tæplega helmingur alls mannkyns, muni fylgjast með þeim leik í beinni sjónvarpsút- sendingu, þar á meðal íslend- ingar. Morgunblaðið leitaði til þeirra tveggja Islendinga sem náð hafa hvað bestum árangri í knatt- spyrnuíþróttinni út í hinum stóra heimi, þeirra Alberts Guðmunds- sonar og Ásgeirs Sigurvinssonar, og bað þá skýra hug sinn til stöð- unnar á Spáni í dag. Þegar ítalir slógu Brasilíu- menn út, liðið sem flestir höfðu spáð sigri, skoraði Paolo Rossi þrjú mörk eða öll mörk Ítalíu. Hér sést hann ásamt félaga sínum fagna einu þessara marka. Efast um að nokkur geti stöðvað Þjððyerja „ÞESSI keppni er nú ekki nema á fjögurra ára fresti, þannig að maður reynir að fylgjast eins vel með og framast er kostur,“ sagði Ásgeir Sig- urvinsson knattspyrnumaöur, en hann hefur um nokkurt skeið æft og leikið við hlið V-þýsku landsliðs- meistaranna Dremlers, Rumenigge og Breitners. „Ég verð að segja það, að miðað við þá leiki sem ég hef séð vcru Brasilíumenn með langbesta liðið og léku langbestu knattspyrnuna. Mér sárnaði það mjög að þeir skildu tapa leiknum við ítali. Ég var fyrir þó nokkru síðan búinn að spá þeim sigri í þessari heims- meistarakeppni. Þá ályktun dró ég eftir að þeir komu til Evrópu í fyrra og ég sá þá sigra bæði Vestur-Þjóð- verja og Englendinga af öryggi. Það leyndi sér ekki að þeir voru með geysisterkt lið. Satt að segja hefur mér ekki fundist neitt lið komast í hálfkvisti við Brassana." — Hvaða lið leika til úrslita? „Á þessari stundu myndi ég álíta að það verði ítalir og Vestur-Þjóð- verjar sem leika til úrslita. Mér finnst þessi lið líklegust, þótt segja megi að Þjóðverjarnir hafi ekki sýnt neitt sérstakt til þessa. Ég hef nú samt þá trú að þegar komið er svona í undanúrslit fari þeir að sýna sitt rétta andlit. Nú ítalir hafa sýnt það með sigrum sínum gegn Árgentínumönnum og Brasi- líumönnum, að þeir ætla að selja — segir Ásgeir Sigurvinsson sig dýrt í þessari keppni. Þeir eru mjög leikreynt lið og ef ég þekki þá rétt munu þeir standa sig.“ — Hver er helsti munurinn á leik liðanna? „Ef við tökum ítalina fyrst þá eru þeir mjög þekktir fyrir sinn varnarleik. Nú eru þeir komnir aft- ur í gang með sína skæðu stjörnu, Paolo Rossi, eftir langa fjarveru, en tilkoma hans er þeim ómetanlegur styrkur. Liðið byggir aðallega á sterkum varnarleik og skyndisókn- um, sem hefur verið þeirra leik- aðferð á undanförnum árum. Hún hefur reynst vel þó yfirleitt hafi þeir ekki skorað mikið af mörkum. Þjóðverjarnir spila aftur á móti opnari knattspyrnu og leggja meira upp úr því að skora mörk en Ital- irnir. Lendi þessar þjóðir saman í úrslitaleik, eins og ég á frekar von á, þá ætti það að geta orðið skemmtilegur og góður leikur. Þjóðverjarnir sækja stíft og Ital- arnir verjast vel, þó maður voni nú að þeir fari ekki útí algeran varn- arleik." — Hefur eitthvað komið þér sér- staklega á óvart í þessari keppni? „Já, það hefur komið mér mjög á óvart hvað Afríkumenn hafa staðið sig vel. Það er undarlegt til þess að hugsa að lið eins og Alsír, og mig minnir Kamerún líka, skuli einung- is falla út á lélegra markahlutfalli en t.d. lið Austurríkis og Vestur- Þjóðverja. Ef ég segi eins og er þá vissi ég varla hvaðan þessi lið komu. Ég átti fremur von á Spán- verjum og Argentínumönnum í undanúrslit, heldur en Frökkum og Pólverjum." — Og hverjir munu svo standa uppi sem sigurvegarar á sunnu- dagskvöld? „Ég hef heyrt að þessa dagana sé Rumenigge á annarri löppinni, eins og við köllum það. En ef hann og aðrir helstu máttarstólpar þýska liðsins verða með og ganga heilir til skógar, þá efast ég um að nokkur þjóð megni að stöðva þá.“ — g.sv. Við skulum segja að það verði Frakkar „ÉG HEF fylgst með þessum leikjum eftir því sem ég hef getað og íslenska ríkisútvarpið/ sjónvarpið hefur leyft,“ sagði Albert Guðmundsson, alþingis- maður, er Mbl. ræddi við hann í gær. Albert, sem sjálfur var um árabil i hópi bestu knattspyrnumanna heims, kvaðst vera svo spenntur að hann hefði oftsinnis hringt til útlanda í þeim er- indagjörðum að fá upplýsingar um leiki heimsmeistarakeppninnar, „því frétta- þjónustan hjá þessum einokunarhring hérna hefur ekki starfað eins og frétta- þjónustur almennt gera.“ Um knattspyrnuna í heimsmeist- arakeppninni sagði Albert, að sér þætti hún yfirleitt góð. „Mér finnst knattspyrnan vera að komast aftur í það horf sem hún var hér áður. Leikfléttur og boltameðferð eru að taka við af þeirri stöðnuðu varnar- knattspyrnu sém gerði íþróttina leið- inlega á árunum eftir 1965 og fram til þessa dags. Á þessum árum hafa knattspyrnulið almennt spilað uppá það að fá ekki mark á sig, þannig að — segir Albert Guðmundsson leikir enduðu oftar með jafntefli. Nú virðast hins vegar leikaðferðir og léikfléttur vera að koma aftur. Liðin eru farin að spila uppá það að sigra með því að skora fleiri mörk en and- stæðingurinn. Með þessum hugsun- arhætti verður úr spennandi knattspyrnukeppni sem fólkið vill sjá.“ — Hvað hefur komið þér mest á óvart í þessari heimsmeistara- keppni? „Tvímælalaust sú meðferð sem argentínski knattspyrnusnillingur- inn Maradona hefur fengið. Það hef- ur verið gengið þannig í skrokk á manninum að þetta heimsmeistara- mót, sem hefði getað verið mjög glæsilegt fyrir hann, er orðið hans martröð. Ég hef fylgst lengi með Maradona, bæði séð hann spila og lesið um hann greinar eftir erlenda blaðamenn sem ég þekki persónulega og veit hvernig horfa á knattspyrnu. Maradona er miklu hæfari og betri knattspyrnumaður en við höfum fengið að kynnast í þessari keppni. Við höfum ekki fengið að sjá hann við eðlilegar kringumstæður. And- stæðingarnir hafa óttast hann mest af öllu og sparkað í fætur hans með þeim afleiðingum að hann var oftar liggjandi á vellinum en standandi í fæturna." — Er eitthvað lið sem að þínum dómi hefur sýnt betri leik en önnur? „Það fer ekkert á milli mála að Brasilía er með langbesta liðið, þrátt fyrir tapið gegn Ítalíu. Svo lengi sem ég hef fylgst með knattspyrnu hefur Brasilía alltaf verið sú þjóð sem komist hefur næst því að leika knatt- spyrnu af fullkomnun." — Hvernig skýrir þú sigur ítala? „Hraðinn og viljinn til að koma í veg fyrir stórtap hefur dugað þeim. Þetta setti Brasilíumenn úr jafn- vægi. ítalir sigruðu fyrst og fremst á vilja sínum og ákafa. Það er nú einu sinni svo að lið sem talið er lakara, fyllist gjarnan miklum keppnisanda og leikur síðan af fítonskrafti þegar á hólminn er komið. Þeir hafa engu að tapa en allt að vinna. Hinir sem taldir eru sjálfsagðir sigurvegarar, eins og Brasilíumenn í þessu tilfelli, leika undir svo mikilli pressu að ég held að ég reyni ekki einu sinni að útskýra það. Það skilur það enginn nema sá sem reynt hefur." — Hvað finnst þér um knatt- spyrnu þeirra fjögurra liða sem eftir eru? „Mér finnst franska liðið hafa leik- ið langskemmtilegustu knattspyrn- una til þessa og síðan Pólverjar. Ital- ir hafa hraðann og viljann til að sigra. Þeir láta aldrei nokkurn mann í friði á vellinum. Einkenni þýska liðsins eru aftur á móti skipulagið, harkan og festan. Pólverjar leika heilsteypta, rólega og yfirvegaða knattspyrnu, en Frakkarnir eru snöggir og léttir." — Þú kvaðst í upphafi sakna sjón- varpsins nokkuð um þessar mundir? „Já, þetta ástand hér sýnir best útkjálkahugsunarhátt íslenskra embættismanna. Þeir fylgjast ekkert með tímanum. Ætli það séu ekki um tveir milljarðar manna sem sjá keppnina í beinni útsendingu. Ég veit ekki um nein önnur lönd en Albaníu og ísland sem ekki fylgjast með keppninni. Nú upplýsa þessir menn, að þeir séu búnir að kaupa fyrir skattpeninga okkar réttinn til að sýna þessa leiki, en ætla hins veg- ar ekki að sýna þá fyrr en þeir verða orðnir verðlausir. Svona lagað gæti hvergi gerst nema á íslandi." — Að síðustu, Albert. Hverjir verða heimsmeistarar? „Þó að skynsemin segi að úrslita- leikurinn hljóti að verða milli ítala og Þjóðverja, þá er eitthvað sem hvíslar því að mér að hann verði milli Frakka og Pólverja. Mér sýnist Frakkar og Pólverjar leika þannig knattspyrnu. Þessar þjóðir eru komnar næst því að skilja það sem Brasilíumenn hafa skilið í áratugi, að knötturinn hefur meira úthald en leikmaðurinn. Og fyrst þú vilt vita hverjir verða meistarar, þá skulum við segja það verði Frakkar, — eftir framlengdan leik.“ — g.sv. Klemens Tryggvason: Fjögur velferðarfélög hafa aðgang að þjóðskrá Mbl. fór þess á leit við Klemens Tryggvason, hagstofustjóra, að hann skýrði frá reglum sem gilda um notkun þjóðskrár og ástæðum þess að hann fór þess á leit við Rannsóknarlögreglu ríkisins, að rannsókn færi fram með hvaöa hætti gíróseðlaskrá Samtaka áhuga- mann um áfengisvandamálið varö til. Svar hans fer hér á eftir: Meginhlutverk þjóðskrárinnar eru tvö: annars vegar að þjóna stjórnsýslu ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila, og hinsvegar að vera ein helsta undirstaða mann- fjöldaskýrslna Hagstofunnar. Byggist árlega skýrslugerð henn- ar um tölu mannfólksins í landinu að mestu á þjóðskránni. Þá gegnir og þjóðskráin mikilvægu hlut- verki við vélvinnsla aðalmanntals 1981, sem nú er verið að undirbúa. Hún lætur og í té grundvöllinn að starfrækslu nemendaskrár Hag- stofunnar, sem síðan 1966/67 hef- úr skráð námsferil hvers einstakl- ings, framan af frá og með næst- síðasta ári skyldunáms, en síð- ustu árin frá og með 8. bekk grunnskóla. Ýmsir aðrir opinberir aðilar njóta góðs af þjóðskránni til skýrslugerðar. Öll vélvinnsla þjóðskrár í þágu þessara meginverkefna hennar fer fram í Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem ann- ast vörslu þjóðskrár og ber — Ekki kom til greina að, veita SÁÁ aðgang að þjóðskrá ábyrgð á henni. Hvers konar ha- gnýting þjóðskrár í Skýrsluvélum er háð samþykki Hagstofunnar. Allar breytingar, er verða skulu í þjóðskrá, eru tölvuskráðar á Hagstofunni, og ganga þaðan til Skýrsluvéla til vélvinnslu. Engar aðrar véltækar skrár eru á Hag- stofunni — þær eru allar hjá Skýrsluvélum — enda hefur hún engin tæki til útskriftar eftir þjóðskrá. Opinberir aðilar fá svo að segja aldrei í hendur véltækar skrár með þjóðskrárefni frá Skýrsluvél- um, enda eru tölvuverkefni þeirra yfirleitt unnin þar, og þeir hafa ekki tæki til að hagnyta véltækar skrár. Á síðari árum hafa nokkrir að- ilar,. sem eru með sjálfstæða tölvustarfsemi, fengið véltækt af- rit af þjóðskrá til eigin nota, gegn því að hlutaðeigandi yfirmaður taki persónulega ábyrgð á því, að ströngum kröfum um vörslu og hagnýtingu þjóðskrárafritsins sé fullnægt. í skjali því, er hlutað- eigandi undirritar, segir meðal annars, að þjóðskrárafritið megi aðeins nota til verkefna, sem eru eðlilegur þáttur í starfsemi hlut- aðeiganda. Aldrei megi t.d. nota það til að ná til einstaklinga í fjáröflunartilgangi, svo sem til dreifingar happdrættismiða, né heldur til áritunar gíróseðla o.fl., þar sem fólk er hvatt til þátttöku í fjársöfnunum o.þ.h. Ekki megi heldur nota afritið til dreifingar á auglýsingum, nema um sé að ræða kynningu í þágu viðtakanda sjálfs, og þá að fengnu leyfi Hag- stofunnar hverju sinni. Venjulega er það afrit af svo nefndri NATAN-skrá, sem þessir aðilar fá, og þeir greiða fyrir það hóflegt gjald. Skrárheitið er skamm- stöfun fyrir nafnskrá til al- mennra nota, og á henni eru allir einstaklingar 12 ára og eldri, sem eru á skrá hér á landi, með nafni, heimilisfangi og öðrum upplýs; ingum skráðum í þjóðskrá. í NÁTAN eru einnig allir aðilar, sem hafa sérstakt auðkennisnúm- er í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar. Þeir, sem njóta þessarar fyrir- greiðslu í ár, eru Reiknistofnun Háskólans og Reiknistofa bank- anna, og auk þeirra skýrsluvéla- deild Sambands ísl. samvinnufé- laga, Lífeyrissjóður verslunarm- anna og tölvudeild Sparisjóðs Keflavíkur (vegna Iífeyrissjóða á Suðurnesjum). Það skal tekið fram, að ekki er vitað til þess, að nokkur aðili, sem hefur notið þessarar þjónustu, hafi brugðist því trausti, sem þeim hefur verið sýnt. Þjónusta þjóðskrár í þágu aðila utan ríkis og sveitarfélaga er all- víðtæk og af ýmsu tagi. Er hér aðallega um að ræða félaga- samtök, þar á meðal svo kölluð velferðarfélög. Krabbameinsfé- lagið, Geðverndarfélag íslands og Hjartavernd hafa um nokkurt árabil fengið skrifuð út á gíró- seðla nöfn og heimilisföng úr þjóðskrá til dreifingar happ- drættismiða í fjáröflunarskyni. Áður en þessi fyrirgreiðsla þjóð- skrár hófst höfðu tvö önnur vel- ferðarfélög fengið slíkan aðgang að opinberum tölvuskram í fjár- öflunarskyni, þ.e. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að símnot- endaskrá og Styrktarfélag van- gefinna að bifreiðaskrá ríkisins. Á árinu sem leið bættist síðar nefnt félag í hóp þeirra aðila, sem njóta þessarar sérstöku fyrir- greiðslu þjóðskrár, og var þá um leið tekið fyrir notkun bifreiða- skrár í þessu skyni. Skeði það á þann hátt, að Hagstofan tilkynnti Skýrsluvélum, sem varðveitir bifreiðaskrár, að framvegis væri óheimilt að nota heimilisföng í henni, sem flest eru fengin úr þjóðskrá með samtengingu skránna, til dreifingar á happ- drættismiðum. Hér var þannig ekki um að ræða neina útfærslu á þessari fyrirgreiðslu þegar á heildina er litið. Ljóst er, að notkun opinberra tölvuskráa til dreifingar happ- drættismiða í fjáröflunarskyni er umdeilanlega mál, og það eins þótt einvörðungu viðurkenndar velferðarstofnanir njóti þessarar þjónustu. I greinargerð, sem í apríl 1975 var lögð fyrir ráðherra Hagstofunnar — sem þá var Geir Hallgrímsson forsætisráðherra — var fjallað um þetta og skyld málefni og gerð tillaga um stefn- umörkun á þessu sviði. Var þar meðal annars lögð áhersla á, að gætt yrði hófs í sambandi við út- skrift nafna og heimilisfanga til dreifingar á happdrættismiðum. í samræmi við það hefur á undan- förnum 6 árum enginn nýr aðili bæst í hóp þeirra félaga, sem hafa reglulegan aðgang að þjóðskrá til útskriftar gíróseðla, að undan- teknu Styrktarfélagi vangefinna, sem eins og áður segir hætti um leið að nota bifreiðaskrá í þessum tilgangi. Á síðustu árum hafa ýmsir að- ilar, þar á með vel virt velferðar- samtök, óskað eftir því að fá sams konar aðgang að þjóðskrá og hin fjögur velferðarfélögin hafa, en öllum slíkum tilmælum hefur ver- ið hafnað, með skírskotun til þess, að ekki mætti íþyngja almenningi meira á þessu sviði en orðið væri. Þá er og augljóslega mjög erfitt að gera upp á milli aðila í þessu sambandi, og ef öll velferðar- samtök,sem þess óskuðu, fengju umrædda fyrirgreiðslu, mundi verða glundroði á þessu sviði. Að því er varðar fram komnar ásak- anir um mismunun í þessu sam- bandi, skal á það bent, að þegar umræddum fjórum aðilum var veitt þessi fyrirgreiðsla lágu ekki fyrir óskir frá neinum öðrum aðil- um um að verða hennar aðnjót- andi. Dreifing Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið (SÁÁ) á happdrættismiðum til 70.000 kvenna um allt land í mars sl. hefur orðið til þess að vekja at- hygli á starfsemi þjóðskrárinnar, og sérstaklega á fyrirgreiðslu hennar í þágu velferðarfélaga. Er því tímabært, að nokkur opinber grein sé gerð fyrir þessum mál- um. Hagstofan óskaði eftir því við Rannsóknarlögreglu ríkisins þeg- ar eftir að SÁÁ hóf dreifingu happdrættismiða sinna í mars sl., að hún rannsakaði, með hvaða hætti gíróseðlaskrá SÁÁ hefði orðið til. í bréfi sínu til Rann- sóknarlögreglunnar taldi Hag- stofan það ekki vera vafamál, að nöfn og heimilisföng viðtakenda happdrættismiðanna væru tekin eftir véltækri þjóðskrá í heimild- arleysi. Tekið var fram, að hag- nýting segulbanda og annarra véltækra miðla með þjóðskrárefni gæti ekki átt sér stað með lög- mætum hætti öðru vísi en að fyrir lægi skriflegt leyfi Hagstofunnar, en að slíku væri ekki til að dreifa hér. — Rannsóknarlögregla ríkis- ins hefur nýverið lokið rannsókn þessa máls og sent það ríkissak- sóknara til ákvörðunar. I viðtali, er Morgunblaðið átti við Þóri Oddsson vararannsóknarlög- reglustjóra ríkisins og birtist í því 29. júní sl., sagði hann meðal ann- ars: „Við rannsókn málsins komu fram veigamikil gögn sem telja verður að renni mjög styrkum stoðum undir kæruefni Hagstofu Islands í þessu máli, enda þótt kærðu neiti að hafa átt saknæma aðild að málinu." Hér er átt við mann þann, er með samningi við SÁÁ tók að sér að koma upp gíró- seðlaskránni, og samstarfsmann hans. Því skal hér við bætt, að er menn þessir voru yfirheyrðir, gáfu þeir engar skýringar á að minnsta kosti fimm meginatriðum, sem komu í ljós við rannsóknina og gáfu ein- hlítt til kynna, að þeir hefðu haft til afnota véltæka þjóðskrá. Rétt er að það komi fram, að Hagstofunni barst aldrei formleg beiðni frá SÁÁ um, að samtökin fengju áritaða gíróseðla til dreif- ingar á happdrættismiðum. Hins vegar var að þessu vikið í símtali, sem starfmaður ráðuneytis átti við mig, með mjög sérstæðum hætti. SÁÁ hafði ekkert beint samband við Hagstofuna um þetta. Eg sagði manni þeim, er hringdi til mín, að ekki kæmi til greina að veita SÁÁ umrædda fyrirgreiðslu, og skýrði frá ástæð- um þess. — SÁÁ-menn telja sig órétti beitta, en þeir virðast ekki gera sér grein fyrir því, að ýmsir aðrir aðilar hafa ekki minni sið- ferðislegan rétt en þeir til að fá þessa fyrirgreiðslu. Þeir fjórir aðilar, sem njóta umræddrar fyrirgreiðslu þjóð- skrár, hafa frá upphafi sýnt hóf- semi við ákvörðun á verði happ- drættismiða, sem fylgt hafa gíró- seðlum til viðtakenda. í mars sl. sendi Geðverndarfélag íslands út happdrættismiða til 26 þúsund viðtakenda og var verð þeirra 50 kr. Rétt áður hóf SÁÁ dreifingu sinna happdrættismiða, til um 70 þúsund kvenna, og var hverjum viðtakanda ætlað að greiða 90 kr., eða 80% hærri upphæð en Geð- verndarfélagið lét sér nægja að biðja um. Til viðbótar má geta þess, að meðal þeirra 70 þúsund kvenna, sem SAÁ sneri sér til voru milli 600 og 700 látnar kon- ur. Þess skal getið, að félaga- samtök geta fengið skrifaða út eftir þjóðskrá giróseðla með nöfn- um og heimilisföngum félags- manna sinna, enda afhendi þau Skýrsluvélum nafnnúmer þeirra. Hér verður það að vera tryggt, að Skýrsluvélum séu ekki afhent nafnnúmer einstaklinga utan við- komandi félags. Félagasamtök, sem hafa komið sér upp stuðn- ingsmanna- eða velunnaraskrá geta fengið sams konar þjónustu, ef öruggt má telja, að allt sé með felldu um slíkar skrár. Gíróseðl- ar, sem þannig eru skrifaðir út til félagsmanna, velunnara eða stuðningsmanna, geta t.d. verið fyrir félagsgjöldum, eða fylgt happdrættismiðum, enda geta viðtakendur, ef allt er með felldu, ekki sagt neitt við því að fá slíka gíróseðla frá samtökum, sem þeir eru tengdir. Þjóðskráin lætur félagasam- tökum í té þá þjónustu að halda við félagsmannaskrám þeirra, þ.e. leiðrétta heimilisföng, fella niður dána og brottflutta, o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.