Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 34

Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 Úthlutun styrkja skv. umsóknum: Stjórn l'jóðhátíðarsjóðs á fundi. Frá vinstri: Gils Guðmundsson, fvrrum forseti sameinaðs Alþingis, Gísli Jónsson, menntaskólakennari, Björn Bjarnason, blaðamaður, Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, Eysteinn Jónsson, fyrrum ráðherra, og Sveinbjörn Hafliðason, lögfræðingur, ritari sjóðsstjórnar. (Ljósm. KÖE) Úthlutað úr Þjóðhátíðarsjóði í fimmta sinn: Hæsti styrkurinn til kútter Sigurfara á Akranesi Fimmta úthiutun sjóðsins Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1982 ok þar með fimmtu úthlutun úr sjóðnum. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins, nr. 361 frá 30. septem- ber 1977, er tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verk- efni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Fjórð- ungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýs- ingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs, annar fjórðungur skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menning- arverðmæta á vegum Þjóð- minjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintil- gang hans, og komi þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er hér að fram- an. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarfram- lög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. I stjórn sjóðsins eiga sæti: Björn Bjarnason, blaðamaður, formaður, skipaður af forsætis- ráðherra, Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, varaformað- ur, tilnefndur af Seðlabanka ís- ' lands, Eysteinn Jónsson, fyrrv. Aráðherra, Gils Guðmundsson, fyrrv. forseti sameinaðs Alþing- is, og Gísli Jónsson, mennta- kólakennari, kjörnir af Samein- uðu Alþingi. Ritari sjóðsstjórnar er Sveinbjörn Hafliðason, lögfræð- ingur. Stjórn sjóðsins hefur verið óbreytt frá upphafi, en í ár hófst annað kjörtímabil hennar og var hún endurskipuð hinn 9. maí sl. I samræmi við 5. gr. skipu- lagsskrár sjóðsins voru styrkir auglýstir til umsóknar í fjölmiðlum í lok desember 1981 með umsóknarfresti til 19. febrúar sl. Til úthlutunar í ár koma 2.600.000,00, þar af skal fjórð- ungur, 650 þús. kr., renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúru- verndar á vegum Náttúruvernd- arráðs og fjórðungur, 650 þús. kr., skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns, skv. ákvæðum skipulagsskrár. Allt að helmingi úthlutunar- fjár á hverju ári er varið til styrkja skv. umsóknum og voru því allt að 1.300 þús. kr. til ráð- stöfunar í þennan þátt að þessu sinni. Alls bárust 77 umsóknir um styrki að fjárhæð um 4,2 millj. kr. Hér á eftir fer skrá yfir þá aðila og verkefni, sem hlutu styrki að þessu sinni, en fyrst er getið verkefna á vegum Friðlýs- ingarsjóðs og Þjóðminjasafns. F'riölýsingarsjóður: Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhátíðarsjóðs skal Friðlýs- ingarsjóður verja árlegum styrk til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs. Náttúru- verndarráð hefur ákveðið að verja styrknum, eftir því sem hann hrekkur til, í eftirtalin verkefni: 1. Þjónustumiðstöð í Ásbyrgi: a) snyrtihús b) vatnsveita c) skjólbelti 2. Girðing á Hveravöllum 3. Tjaldsvæði í Vatnsfirði Þjóðminjasafn: Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhátíðarsjóðs skal Þjóðminjasafnið verja árlegum styrk til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverðmæta á vegum safnsins. Þjóðminjavörður hefur gert grein fyrir ráðstöfun styrksins í ár og eru þessi verk- efni helst: 1. Framhald fornleifarann- sókna að Stóruborg undir Eyjafjöllum. 2. Framhald endursmíði versl- unarhúsa frá Vopnafirði í Árbæjarsafni. 3. Ljúka viðgerðum á bænum á Galtastöðum. 4. Heimildasöfnun um ísl. þjóð- hætti, þ.e.a.s. líf í þéttbýli. 5. Skráning fastra fornminja. 6. Kopiering gamalla ljós- myndaplatna safnsins. Auk framangreindra verkefna Þjóðminjasafnsins ákvað sjóðs- stjórnin að styrkja safnið sér- staklega með kr. 150 þús. fram- lagi (75 þús. kr. í ár og 75 þús. kr. á næsta ári) vegna kaupa safnsins á myndum úr Islands- ferðum Stanleys og Banks á s.hl. átjándu aldar. Myndir þessar eru taldar hinar merkilegustu og ómetanlegar heimildir fræði- mönnum um náttúru landsins og mannlíf á þessum tíma. Umsækjandi Verkefni Styrkur 1. Húsafriðunarnefnd Viðgerð húsa Isafjarðar í Neðsta-kaupstað 60.000,00 2. Sigurfarasjóður, Framhald viðgerða á Akranesi Kútter Sigurfara. 100.000,00 3. Safnanefnd Ljúka endurbyggingu ' Neskaupstaðar á „Gauta". ' - 15.000,00 4. Sjóminjasafn Austurlands Lokafrágangur á Gömlu búð, Eskifirði 15.000,00 5. Landsbókasafn Islands Viðg. á gömlum bókum 40.000,00 6. Ljósmyndasafnið hf. Viðg., skráning og varðveisla á ljósmyndum 40.000,00 7. Hörður Ágústsson Ritverk um húsagerðarlega þróun biskupsstóla 50.000,00 8. Þjóðskjalasafn, viðgerðarstofa Kaup á sýrustigsmæli 10.000,00 9. Fuglaverndarfélag Verndun ísl. Islands hafarnarstofnsins 15.000,00 10. Náttúruverndarsamtök Skráning og rannsóknir Vesturlands á náttúruminjum o.fl. 40.000,00 11. Samtök um náttúruvernd Skráning náttúruminja á Norðurlandi á Norðurlandi 40.000,00 12. Náttúruverndarsamtök Náttúruminjaskráning Austurlands við Vopnafj. og Bakkafj. 40.000,00 13. Vestfirsk Náttúruverndar- Skráning náttúruminja samtök í Hornstrandarfriðlandi 40.000,00 14. Reykjanesfólkvangur Utgáfa á niðurstöðum athugana á gróðurfari 25.000,00 15. Náttúruverndarráð Útgáfa fræðsluefnis og merkingar í Skaftafelli 50.000,00 16. Páll Líndal Útgáfa á ritverkinu „Bæirnir byggjast". 40.000,00 17. Sögufélag Útgáfa Landsyfirréttar- og hæstaréttardóma 50.000,00 18. Menningarsjóður Framhald vinnu við útg. ritverksins Isl. sjávar- hættir, II. bindi 50.000,00 19. Menningarsjóður Framhald vinnu við útg. ritverksins Kortasaga íslands, III. bindi 50.000,00 20. Ættfræðifélagið Útgáfa Manntals á íslandi 1845 30.000,00 21. Hið ísl. bókmenntafélag Útgáfa Annála 60.000,00 22. Bókasafn Siglufjarðar „Minningarstofa" um séra Bjarna Þorsteinsson 50.000,00 23. Magnús Þorkelsson Fornleifarannsókn á búðarrústum á Búðasandi 24. Óskar Gíslason í Kjós. 75.000,00 Varðveisla tiltekinna kvikmynda Ó.G. 50.000,00 25. Héraðsskjalasafn A.-Hún. Skráning og söfnun skjala 20.000,00 26. Héraðsskjalasafn Söfnun og skráning Svarfdæla, Dalvík heimilda 20.000,00 27. Byggðasafnið Söfnun og skráning Skógum, Rang. gamalla ljósmynda 20.000,00 28. Kvæðamannafélag Til skipulegrar upptöku og Hafnarfjarðar úrvinnslu á kveðskap félaga í KFH og annarra kvæða- manna, til þess að varðveita stemmur og raddmeðferð, efnismeðferð og kanna sér- einkenni þeirra. 10.000,00 29. Rannsóknarstöð Jarðfræðikönnun við Mývatn (Náttúruv.ráð) í Mývatnssveit 25.000,00 30. Skógræktarfélag íslands Útgáfa handbókar um trjá- og skógrækt 20.000,00 31. Landvernd Til útgáfu fræðsluefnis um landvernd fyrir börn o.fl. 30.000,00 32. Samband ísl. náttúru- Útgáfa á kynningar- verndarfélaga bæklingi 20.000,00 33. Áhugamenn um sögu Uppbygging safns læknisfræðinnar um sögu læknisfræðinnar hér á landi. 32.000,00 Bridge Dóra Friðleifsdóttir — Arnór Ragnarsson Sumarbridge í Hótel Heklu Metþátttaka varð sl. fimmtu- dag en þá mættu 52 pör og var spilað í fjórum riðlum. A-riðiil: stig Jón Andrésson — Þórður Sigurðsson 261 Steinunn Snorradóttir — Vigdís Guðjónsdóttir 244 Nanna Ágústsdóttir — Sigurður Ámundason 240 Magnús Halldórsson — Baldur Ásgeirsson 233 Meðalskor 210 B-riðill: stig Ester Jakobsdóttir — Guðmundur Pétursson 276 Sigtryggur Sigurðsson — Svavar Björnsson 269 Gylfi Baldursson — Sigurður B. Þorsteinsson 253 Guðjón Ottósson 229 Meðalskor 210 C-riðill: stig Georg Sverrisson — Ragnar Magnússon 130 Andrés Þórarinsson — Hjálmar Pálsson 115 Sigurður Sigurjónsson — Júlíus Snorrason 114 Meðalskor 108 D-riðill: stig Magnús Aspelund — Steingrímur Jónasson 127 Hrólfur Hjaltason — Jónas P. Erlingsson 123 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 117 Meðalskor 108 Síðustu tvö kvöld hafa jafn- framt verið firmakeppni BSÍ og er ljóst að Ester Jakobsdóttir og Guðmundur Pétursson hafa tek- ið efstu skorina (276) en þau spiluðu fyrir J. Sveinsson hf. Að Venju verður spilað nk. fimmtudag í Hótel Heklu og hefst keppnin í síðasta lagi kl. 19.30. Bridgefélag Reykjavíkur Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur 1982 var haldinn að Hótel Heklu 30. júní. Formaður félagsins flutti skýrslu og gjald- keri, Steingrímur Jónasson, skýrði reikninga. Stjórn fyrir næsta starfsár, sem kosin var á fundinum, er þannig skipuð: Formaður Sigmundur Stefáns- son, varaformaður Helgi Jó- hannsson, ritari örn Arnþórs- son, gjaldkeri Steingrímur Jón- asson og fjármálaritari Björn Halldórsson. Guðmundur P. Arnarson var endurkjörinn í stjórn Reykjavíkursambandsins. Endurskoðendur voru endur- kjörnir þeir Stefán Guðjohnsen og Þórarinn Sigþórsson. Á þingi Bridgesambands íslands var kjörinn Örn Arnþórsson auk formanns, sem er sjálfkjörinn. Varafulltrúi á þingið var kjörinn Þorgeir Eyjólfsson. Að loknum aðalfundarstörfum fór fram verðlaunaafhending fyrir mót síðasta keppnistímabils. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.