Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982
41
fclk í
fréttum
Foreldrar Michele sýna honum eins mikla hlýju og þau geta
Níu ára gamall drengur
með líkama ungabarns
Þó að Michele Capodanno sé níu
ára gamall er hann fyrst nú að
læra að segja mamma. Og hann
hefur líkama eins ára barns. For-
eldrar hans klæða hann ennþá í
ungbarnaföt og hann er ennþá í
vöggu. Hann nærist aðeins á
barnamat enda tannlaus.
Eldri bræður Michele hjálpa til við að
passa hann
Michele Capodanno fæddist á
Sarno á Ítalíu og í fimm mánuði
þroskaðist hann eðlilega, en svo
hætti hann að stækka og foreldrar
hans fóru með hann til læknis.
Læknirinn taldi ekkert vera að
honum og sagði foreldrum hans að
hafa engar áhyggjur, hann myndi
jafna sig. En tíminn leið og aldrei
stækkaði Michele.
Foreldrar Michele, Grazia og
Carmine Capodanno eru fátækt ít-
alskt alþýðufólk og þegar að lok-
um varð augljóst að Michele þyrfti
læknisaðstoðar með, þá þorðu for-
eldrar hans ekki að senda hann á
spítala. Þau voru hrædd um að ef
hann einu sinni væri kominn inn á
spítala þá kæmi hann aldrei út
aftur.
Michele þjáist af sjaldgæfri
skjaldkirtilsveiki sem hægt er að
halda niðri með lyfjum ef hún er
uppgötvuð nógu snemma, en eftir
níu ár er það orðið of seint. Eina
huggun móður hans er að þó að
Michele fái aldrei lækningu þá
njóti hann þó ástúðar og öryggis í
faðmi fjölskyldunnar.
Hljómleikar
Diönu Ross
í London
Bandaríska söngkonan Diana
Ross hefur verið á söngleikaferð
um Evrópu í síðasta mánuði.
Henni var allsstaðar tekið mjög
vel en ýmislegt varð þó til að
hrella hana á tónleikunum. í
Wembley Arena í London reidd-
ist hún þrisvar sinnum svo mik-
ið að hún gekk út af senunni og
fimm sinnum stoppaði hún í
miðju lagi vegna þess að ískraði
í hljóðnemanum.
Söngkonan var líka mjög
óhress yfir öryggisráðstöfunum,
t.d. tókst einum áheyrandanum
á hljómleikunum að klifra upp á
sviðið algjörlega óhindraður og
faðma hana að sér. Diana fékk
hálfgert áfall og tók það hana
góða stund að ná sér.
„Diana Ross er ekki vön því að
þurfa að hugsa um tæknilegu
hliðina á hljómleikum sínum
sjálf og þegar hún er ekki í lagi
þá reiðist hún. Diana er mjög
nákvæm og hún reiddist mikið
vegna þessa atviks. Hún hugsar
alltaf fyrst og fremst um áheyr-
endurna,” sagði helsti aðstoðar-
maður hennar Richard Grant.
Sjáif sagði Diana Ross að hún
hefði hætt svona oft í miðju lagi
vegna þess að hún hefði ekki
verið ánægð með hljóðnemann
og hljómburðartækin. „Það er
algjört skilyrði hjá mér að öll
tæki séu í lagi þegar ég er á
sviðinu," sagði Diana Ross.
En fjöldi fólks var óánægður
og taldi sig hafa verið hlunnfar-
inn. Margir heimtuðu að fá mið-
ana endurborgaða en þeirri ósk
var ekki sinnt.
Diana Ross vill hafa allt
fullkomið.
27. júlí — 3 vikur — 12 sæti laus
Komdu með til
á
í þægindin og fjörið
ÖRVAL
VID AUSTURVÖLL SIMI26900
Jk
i?'>l
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ FARA ANNAÐ i vivitswoM STt
_ __ Abbu nokhar rui Mn/tlr
íIDSGACNAHOLLIN
BÍLDSHÖFO* 20-110 REYKJAVtK » 1U11M og 01410
okkar pakkar og aandir
hvert á land aam ar
I sima 91-81410 færðu
upplysmgar um verö.
gaaöi og afborgunark)ör.
Ertu sett(ur)
út í horn??
Láttu þér líða
vel útí horni