Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982
S-!1
1982 Univrm Pre«» Synðicile
„Húo fór boo hrirvg't og S'toppQ&'
5\jo cL i%."
*
Ast er...
... afi nota sömu
regnhl'ifina.
TM U.S Pat 0t‘ —-alt r»ohts reseTvctí
e1982 Los Angotes Tlmes Synoicate
Su látum vifi reyaa á minnið, frú.
í»ér greiðið fyrirfram og svo sjáum
við til þegar |ht komið nstst hvort
þér hafið gleymt því eða ekki!
HÖGNI HREKKVlSI
Orti Jórunn fleira
til konungshiónanna?
J.V. skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég ætla nú fyrst og fremst að
þakka fyrir góð og greið svör við
spurningu sem ég sendi þér 29.
fyrra mánaðar, um Beltisþuluna.
Eg er mjög þakklát fyrir svarið
og veit að mér er farið að förlast
í ýmsu, enda orðin býsna gömul.
Höfundur þulunnar reyndist
vera Jórunn Guðmundsdóttir,
Arnþórsholti í Lundarreykjadal
í Borgarfirði. Það upplýsir nafna
hennar, Jórur.n Helga Ámunds-
dóttir, í bréfi til þín.
En nú er það eins með mig og
skollann, þegar hann nær í iitla
fingur, að þá vill hann fá alla
höndina. Mig langar nefnilega
að fá að vita meira um Jórunni
þessa Guðmundsdóttur, t.d. það,
hvort hún orti fleira en Beltis-
þuluna til drottningar eða kon-
ungshjónanna beggja í tilefni af
komu þeirra hingað 1923.
Beltisþulan var ort um það
þegar drottningu var gefið belti
til að bera við skautbúning sem
íslenska þjóðin færði henni að
gjöf. Ég var um tvítugt þegar
þetta var og man vel eftir því að
í Morgunblaðinu var heil síða af
lofkvæðum til konungshjón-
anna.“
Beltisþulan
er eftir
Jórunni Guð-
mundsdóttur
Þann 29. júní bað 5241-
3834 um upplýsingar um
Beltisþuluna, sem ort var
árið 1923 við komu Alex-
andríu drottningar. Belt-
isþulan er eftir Jórunni
Guðmundsdóttur, Arn-
þórsholti í Lundarreykja-
dal, Borgarfjarðarsýslu.
Beltisþula
Já, svona lítur ísland út,
sýnast þér ekki falleg fjöllin?
Á fjöllunum uppi byggja tröllin,
þar eru háir huldusteinar
og hamrar, er byggja dverga-sveinar,
þeir árshring hverjan eru þar
alltaf að smíða gersemar.
Nú dvergajöfur sjálfur segir,
hann sitji við á hverjum degi
og ætli' að setja saman band,
semað þér gefi jökulland.
Það kvað nú gert af góðu efni;
þess gæðin helztu er bezt ég nefni;
Af æðstu þrá hins fremsta svanna,
af frelsishugsjón beztu manna,
af sakleysi hins blíöa barns,
af móðurást og móðurtryggð,
því mesta hnossi í alheimsbyggð.
Ef stjörnur skinu skært á kvöldin,
þá skreyttu þeir með því beltisskjöldinn.
Þannig var myndað mittisband,
sem ininna skal þig é gamalt land.
Virðingarfyllst,
Jórunn Helga Átnundadóttir.
Hvar er
lla
G.Á. skrifar á Isafírði ..I). júní.
gulbröndótt;. íaeðu. sem okkur var
jefir. í fyrrasumar. i-Iún cr afar
ur vikum scttúm við haöa út á
iaugardagskvöldi, og síðan höfum'
viku, hálfan mánuð og enn höfum
sem ég þekki hér í bat sagðist hafa
séð hana kvöid nokkurt og ung
stúlka sem býr hér í næsta húsi
sagðist hafa séð einhvern ókunn-
ugan vera með hana og hefði
sennilega farið með hana inn í
fjörð.
Það er hart ef foreldrar hér í bæ
sjá ekkert athugavert við þáð að
l>örn þeirra komi heim með heim-
iliskctti sem einhverjir .og ein-
hverjir eiga, og gera ekkert til að
koma dýrinu í hendur réttum eig-
endum. Það getur svo sem vel ver-
ið að fólk álíti litlu skipta hvað
verður um einn kött, en það er
iúalegt að ‘láta slíkt bitna i sak-
Við erum nybúin að gefa kettl-
eignaðist ; vor, svo að núna er horfin líka.“
Ekki svefnfriöur
fyrir sprengingum
ÁJS. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Svoleiðis er, að ég bý syðst í
Hvassaleitinu, þar sem yfirleitt
er gott að búa. Nú bregður hins
vegar svo við, að ekkert lát er
þar á sprengingum nótt eftir
nótt, svo að alít hristist og skelf-
ur. Síðast hefur verið sprengt
um kl. 4.00 að nóttu, og um kl.
01.00 í nótt sem leið (aðfaranótt
þriðjudags), kom ein svo dúnd^
urmikil, að ég hrökk upp með
andfælum og sofnaði ekki aftur
fyrr en klukkan að ganga fjögur.
Við höfum þrisvar hringt í
lögregluna á sl. tveimur vikum
og spurt hvort þeir geti ekkert
gert í málinu. En svarið er: Við
getum ekkert gert. Sem sagt
lögreglan getur ekki hjálpað
manni til að fá svefnfrið fyrir
iátum og sprengingum Ef það
kemur fyllibytta upp að húsinu
og er eitthvað að skrðlta, þá get-
ur maður látið fjarlægja hana,
<n engin vörn virði$t finnast
lyrir heilt hverfi gegn þessum
næturspjöllum sprenginganna.
Eða hvert á að snúa sér til að fá
þessum ósköpum aflétt?
Við hjónin þurfum að vakna
kl. 7 á hverjum morgni til þess
að komast á réttum tíma í
vinnu, þannig að það er ekkert
spaug fyrir mann, þegar þetta
fer að ganga svona viku eftir
viku."