Morgunblaðið - 13.08.1982, Síða 3

Morgunblaðið - 13.08.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST1982 3 Gjaldeyrisdeildir bankanna lokaðar: Taka 18% tryggingarfé á naudsynlegum yfírfærslum Gjaldeyrisdeildum bankanna var lokað í gær og verða þær lok- aðar þar til ríkisstjórnin hefur tek- ið ákvörðun um nýtt gengi ís- lenzku krónunnar. Eins og Mbl. hefur skýrt frá sendi bankastjórn Seðlabankans rikisstjórninni til- lögur sínar um lækkun gengis um 10—15% í fyrradag, en samkvæmt heimildum Mbl. er ekki að vænta ákvörðunar ríkisstjórnarinnar fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Gjald- eyrisviðskiptabankarnir munu þó annast yfirfærslur fyrir þá sem nauðsynlega þurfa á erlendum gjaldeyri að halda, en munu þá taka 18% tryggingarfé. Mbl. barst í gær svohljóðandi fréttatilkynning frá Seðlabanka íslands í tilefni þessa: „Þar sem Seðlabankinn hefur nú gert til- lögu til ríkisstjórnarinnar um breytingu á gengi íslenzku krón- unnar, var talið nauðsynlegt að fella niður skráningu erlends gengis hér á landi frá og með deginum í dag. Til þess að draga ur óþægind- um vegna þessarar ráðstöfunar, munu gjaldeyrisviðskiptabank- arnir annast yfirfærslur fyrir þá, sem nauðsynlega þurfa á er- lendum gjaldeyri að halda, en munu þá taka 18% tryggingarfé. Slíkar yfirfærslur verða síðar gerðar upp á nýju gengi, þegar skráning hefur verið tekin upp að nýju. Ennfremur munu bank- arnir kaupa erlenda seðla og ferðatékka af ferðamönnum miðað við síðast skráð gengi. Ekkert gengi var skráð í gær, eins og sjá má á töflu Útvegsbankans. Morgunbladid KÖE. Ný sjúkrastöð SÁÁ: Forseti íslands tekur fyrstu skóflustunguna Forseti fslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, mun á laugardaginn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri sjúkrastöð Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið, sem rísa mun í Grafarvogi í Reykjavík. Mun forseti íslands þannig formlega hefja bygg- ingaframkvæmdir við sjúkrastöðina, sem áætlað er að taka í notkun á næsta ári. Þá mun' formaður SAÁ, Björgólfur Guðmundsson fram- kvæmdastjóri, flytja ávarp, en at- höfnin hefst klukkan 10 árdegis á lóð samtakanna við Grafarvog. Okkar á milli í hita og þunga dagsins: Sýnd sam- tímis í Reykjavík, á Akureyri og Húsavík Hin nýja kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Okkar á milli — í hita og þunga dagsins, verð- ur frumsýnd á laugardaginn eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu. Edda Andrésdóttir, framkvæmdastjóri kvikmyndar- innar, sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins, að mynd- in yrði frumsýnd klukkan 14.30 í Háskólabíói fyrir boðsgesti. „Síðan hefjast sýningar á myndinni í fjórum kvikmynda- húsum hvorki meira né minna," sagði Edda, „í Reykja- vík á Akureyri og Húsavík. í Reykjavík verður hún sýnd í Háskólabíói og Laugarásbíói um heigina klukkan 5, 7, 9 og 11. Og í Borgarbíói á Akureyri og á Húsavík verður myndin svo frumsýnd klukkan 9 á laug- ardagskvöld. Kvikmyndin verður svo sýnd eftir því sem aðsókn gefur tilefni til á þess- um stöðum og þessi fjögur ein- tök myndarinnar fara um landið frá einum stað til ann- ars,“ sagði Edda að lokum. Pólsk fjöl- skylda aft- ur til Aust- urríkis EIN AF pólsku fjölskyldun- um, sem hingað komu frá Austurríki 28. maí síðastlið- inn, hélt aftur til Austurríkis fyrir skömmu. Að sögn Jóns Asgeirssonar, framkvæmdastjóra Rauða kross íslands, var hér um að ræða hjón með tvö ung börn. Taldi hann ástæðuna til afturhvarfs fjöl- skyldunnar vera þá, að hún hefði átt erfitt með að festa rætur hér. Móðir mannsins hefði til dæmis ekki séð ástæðu til að fara aftur og sagði Jón, að sér væri ekki kunnugt um annað en að hinir Pólverjarnir kynnu vel við sig hér og væru þeir vellátnir í vinnu. IÐUNN I. LOSTÆTI MEÐ LÍTILLI FYRIRHÖFN LITMYNDIR AF ÖLLUM RÉTTUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.