Morgunblaðið - 13.08.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982 1 7
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi er að byggja nýja saltpéturssýniverksmiðju í Gufunesi. Á
myndinni sést þegar verið var að flytja efni í svokallaða ísogsturna sem eru hluti af þessari
nýju verksmiðju inni i Gufunesi. Verið er að byggja verksmiðjuhúsið og er áætlað að verk-
smiðjan komist í gagnið eftir ár.
(Ljósm. Mbl.: Kmilía)
Sléttar göturnar
Malbiksfræsari var að störfum á Miklubrautinni i fyrradag. Fræsarinn jafnar göturnar með
því að taka af kúfunum þannig, að gatan verði jöfn hjólförunum. Verstu kaflarnir á Miklu-
brautinni voru teknir í gær og fyrirhugað er að taka Hringbrautina á sama hátt í næstu viku.
Síðan mun ætlunin að Vegagerð ríkisins taki fræsarann á leigu til að jafna Reykjanesbraut.
(Ljósm. Mbl.: Kristján Kinarsson)
Bók um geðheilbrigdis-
mál og geðheilbrigðiskerfi
Eftir Andrés Ragn-
arsson sálfrœöing og
Wilhelm Norðfjörð
sálfrœðing
Undanfarið hefur verið nokkur
umræða í fjölmiðlum um ástandið í
geðheilbrigðismálum hér á Islandi.
Ekki er ætlunin að rekja þau skrif
hér. Hins vegar lýsum við ánægju
okkar yfir því, að fólk skuli sýna
geðheilbrigðismálum áhuga. Að
okkar mati er það of sjaldan sem
þessi mál ber á góma í fjölmiðlum
og á það bæði við hjá „fagfólki" og
öðrum sem áhuga hafa á þessum
málum. Spurningar koma upp í
hugann í tengslum við þetta: Er
geðheilbrigðiskerfið of einangrað
og miðstýrt? Þyrfti geðheilbrigð-
iskerfið að vera opnara kerfi til að
alþýða manna vissi, hvaða þjónustu
það býður landsmönnum? Leiðir
vanþekking á þessum málum til
fordóma, stimplana og goðsagna
sem bitna bæði á þeim sem kerfið á
að þjóna, og þeirra sem þar starfa?
Margar þjóðir hafa á undanförn-
um árum endurskipulagt geðheil-
brigðiskerfi sín. Flestar þessar
breytingar hafa átt það sameigin-
legt að leitast við að draga úr um-
fangi geðsjúkrahúsa og ýmsum
vanköntum sem fylgja stórum
stofnunum.
Bandaríkjamenn byrja strax upp
úr 1963 að leggja niður mörg hinna
stóru geðsjúkrahúsa og setja í
þeirra stað geðheilsumiðstöðvar.
Þessar stöðvar voru mun minni í
sniðum og áttu að þjóna ákveðnum
landfræðilegum svæðum. Norður-
landaþjóðir hafa farið inn á svipað-
ar brautir. í Danmörku kom reglu-
gerð 1978 þar sem lagt er til m.a. að
stefnt skuli að svæðisbundinni
geðheilbrigðisþjónustu (distrikt-
psykiatri) þ.e.a.s. geðheilbrigðis-
kerfinu er skipt upp í fleiri en
minni einingar, sem hver um sig
þjónar ákveðnu svæði. ítalir hafa
þó gengið lengst í þessum efnum
eins og kemur vel fram í bók Jónas-
ar og Ragnars.
Að öllum iíkindum munu verða
framkvæmdar breytingar á geð-
heilbrigðiskerfinu hér á Islandi á
komandi árum. Nú þegar er starf-
andi ráðherraskipuð nefnd sem
vinnur að þessum málum. Það er
því ástæða til að allir þeir sem
áhuga hafa á þessum málum íhugi
þau. Er það geðheilbrigðiskerfi sem
við höfum í dag það bezta sem hægt
er að bjóða fólki sem býr við geð-
ræn vandamál? Eru einhverjir aðr-
ir valmöguleikar til staðar? Getum
við lært eitthvað af öðrum þjóðum
sem þegar hafa framkvæmt hjá sér
umfangsmiklar breytingar?
í stuttu máli má segja að þær
breytingar sem framkvæmdar hafa
verið á geðheilbrigðiskerfum víðs
vegar um heim felist í eftirfarandi:
1. Að minnka eða leggja niður
hefðbundnar geðheilbrigðisstofnan-
ir og hafa þær opnari.
2. Komið upp svæðisbundinni
geðheilbrigðisþjónustu, sem ber
ábyrgð á geðheilsu fólks á ákveðnu
svæði í formi minni stofnana.
3. Lögð er áherzla á þverfaglega
samvinnu og ábyrgð þeirra sem
starfa að þessari þjónustu.
4. Lögð áherzla á samvinnu við
skóla, félagsmálastofnanir, vinnu-
staði, barnaheimili, stéttarfélög
o.s.frv.
5. Meiri áherzla er lögð á að
vinna með hinn félagslega
raunveruleika sem skjólstæðingar
geðheilbrigðiskerfisins lifa í en
hingað til hefur verið gert.
6. Lögð er áherzla á margskonar
fyrirbyggjandi störf, t.d. upplýs-
ingar og þekking til starfsfólks og
almennings og stuðla að breyttum
viðhorfum.
í framhaldi af þessu fögnum við
tiltölulega nýútkominni bók á
dönsku um þetta efni eftir 2 ísl.
sálfræðinga Jónas Gústafsson og
Ragnar Gunnarsson. Bókinni hefur
verið mjög vel tekið í Danmörku og
þykir það mjög gott framlag til
þessarar umræðu. Bókin fjallar um
breytingar á ítalska og danska
geðheilbrigðiskerfinu. Jafnframt
eru í bókinni viðtöl við nokkra af
þeim geðlæknum, sem staðið hafa i
broddi fylkingar fyrir hinum rót-
tæku breytingum sem átt hafa sér
stað í ítalska geðheilbrigðiskerfinu
síðastliðna 2 áratugi. Auk þess er
viðtal við enska geðlækninn David
Cooper.
Bókin skiptist í tvo hluta. Fyrri
hlutinn fjallar um þær byltingar-
kenndu breytingar sem átt hafa sér
stað í ítalskri geðlæknisfræði og
seinni hlutinn fjallar um þá um-
ræðu sem átt hefur sér stað í
Danmörku undanfarin ár. Fyrir um
það bil 20 árum tók hópur starfs-
fólks geðsjúkrahússins í Gorizia
(N-Italíu) undir forystu Franco
Basaglia, frumkvæðið til þess að
stofna hreyfingu í hringum lýðræð-
islega geðlæknisfræði. Eðlilega var
byrjað á ofannefndu sjúkrahúsi
sem líktist flestum öðrum í Ítalíu
og var hreinn geymslustaður með
mjög takmarkaðri og heftri aðstöðu
sjúklinga. Hugmyndafræðilegan
grunn breytinganna sóttu þau til
hugmynda Maxwell Jones um með-
ferðarsamfélagið (terapeutisk sam-
fund) en seinna til manna eins og
Laing og Coopers. En markmiðið og
endastöðin lá miklu lengra í burtu.
Mikið af vinnunni fór í að brjóta
niður hinar mjög svo miklu tak-
markanir og höft sem mynduðu
ramma um tilvist sjúklinganna.
Um leið var leitast við að brjóta hið
stífa valda- og virðingakerfi með
lækni á toppinum og sjúkling á
botninum. Tengsl við hópa fólks
utan spítalaveggjanna, við heimili,
nágranna og vinnustaði voru aukin.
Mjög snemma kom fram sú hug-
mynd að rétt hlyti að vera að leggja
geðsjúkrahúsin algerlega niður.
Einn liður þessarar baráttu var að
koma á viðhorfsbreytingu gagnvart
sjúkdómshugtakinu. í stað þess að
líta þannig á, að hér sé um að ræða
galla (jafnvel formgalla) inni í
höfði hins furðulega einstaklings,
líta þau þannig á, að geðsjúkdómar
séu afsprengi félagslegrar útskúf-
unar og kúgunar. Þannig eru geð-
sjúkdómar eins konar algert valda-
leysi. Eina leiðin er því að þeir sem
eru stimplaðir geðsjúkir fái aukin
völd. Völd til þess sjálf að sjá um —
og stjórna — eigin lífi.
Allar þessar hugmyndir hafa síð-
an litið dagsins ljós á ýmsum stöð-
um á Ítalíu og frægast er trúlega
Arezzo-héraðið. Þar hefur geð-
sjúkrahúsið verið lagt niður í eig-
inlegri mynd og í stað þess komið
geðhverfastöðvar. Með stuðningi og
Vangaveltur út frá
bók sálfræóinganna
Ragnars Gunnarssonar
og Jónasar Gústafsson-
ar „Frigörelse — ikke
helbredelse“. Tidene
Skifter, bls. 275 (fæst í
bókabúð Máls og menn-
ingar og Bóksölu stúd-
enta).
samvinnu við heimamenn, verka-
lýðsfélög og hverfasamtök hefur
langlegusjúklingum verið ýtt hægt
út í virkt samfélag aftur og því
hjálpað til að fá húsnæði og vernd-
aða vinnustaði. í geðhverfamið-
stöðvunum hefur svo verið rekin
opin geðheilbrigðisþjónusta sem að
miklu leyti byggir á heimsóknum á
heimili og öðru fyrirbyggjandi
starfi.
Staða geðheilbrigðismála á Ítalíu
er þó ákaflega misjöfn frá héraði til
héraðs og ræður þar mestu um vilji
hinna pólitísku yfirvalda á hverjum
stað til breytinga. Árangur þessar-
ar baráttu fyrir lýðræðislegri geð-
vernd, eru lög samþykkt 1978 sem
kveða á um að öll ríkisrekin geð-
sjúkrahús skuli lögð niður. I þeirra
stað komi geðheilbrigðisþjónusta
sem fullnægi betur þörfum þeirra,
sem eiga við geðræn vandamál að
stríða.
Seinni hluti bókarinnar fjallar
síðan um þessi sömu mál í Dan-
mörku. Þó hér sé um að ræða tvö
mjög ólík samfélög og heilbrigðis-
þjónustu, þá er aðdáunarvert,
hversu höfundunum tekst vel að
halda í broddana úr ítölsku tilraun-
inni í þeirri tillögu sem þeir koma
með til breytinga á dönsku geð-
heilbrigðisskipulagi og innihaldi.
Þar eru þeir fyrst og fremst að
hugsa um hverfastöðvar sem vinni
mest að fyrirbyggjandi geðheilsu-
gæslu, sem ekki eru í tengslum við
hin hefðbundnu geðsjúkrahús og
sjúkdómslíkan. Höfundarnir benda
þó á, að þörf getur orðið á innlögn í
einstaka tilvikum og ættu því að
vera staðir þar sem veitt er bráða-
þjónusta.
Að lokum viljum við hvetja alla
sem áhuga hafa á þessum málum,
að kynna sér þessa bók, þar sem
einn stærsti kostur hennar er að
hún vekur upp spurningar, vanga-
veltur og umræðu um þessi mál.
ÞAÐ BYGGIST Á
ÞESSU
Traust og ending
hvers mannvirkis
byggist á góöu hrá-
efni og vandaöri
smíði.
Þiðfáið
járnbindivír
gluggagiröi
þakjárn
SINDRA
steypustál
mótavír
þakbita
pípur í hitalögn og vatnslögn
í birgöastöð okkar
Borgartúni 31 sími27222
Allt úrvals efni á hagkvæmu verði.
fÆk
STALHF