Morgunblaðið - 25.08.1982, Side 1
185. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hinn nýkjörni forseti Líbanon, Bashir Gemayel, borinn í gullstól af stuðningsmönnum sínum að kosningunum
afstöðnum. AI'-nímimyiHl.
Iibanon:
Flutningum frest-
að landleiðina í dag
Mikil ólga í kjölfar forsetakosninga
Beirút, Tel Aviv, Washington, 24. ágúst. Al*.
ÍNKAKLNKA herráðið tilkynnti í kvöld að frestað hefði
verið fyrsta hluta flutninga á liðsmönnum PLO er fyrirhug-
aðir voru landleiðina til Damaskus í Nýrlandi á morgun.
Talsmaður ísraelska hersins sagði í kvöld er hann var
spurður hver hefði frestað brottflutningnum: „Nvo mikið
er víst að það voru ekki tsraelar. Eftir því sem ég kemst
næst eru það Nýrlendingar." ísraelska útvarpið var siðan í
kvöld uppi með getgátur þess eðlis að frestunin stafaöi af
ótta við að kristnir falangistar myndu gera árásir á þjóð-
veginn milli Beirút og Damaskus.
Ráðgert hafði verið að um 2000
liðsmenn PLO yrðu fluttir á brott í
40 flutningabifreiðum á miðviku-
dag, en eftir að tilkynnt hafði verið
að flutningum landleiðina yrði
frestað var því bætt við að haldið
yrði áfram að flytja liðsmenn á
brott sjóleiðina.
Mikil ólga er nú í Libanon í kjöl-
far forsetakosninga í landinu og í
kvöld bárust fréttir um harða bar-
daga í Norður- og Austur-Beirút, og
er talið að þar hafi verið um að
ræða bardaga milli sýrlenskra
herdeilda og kristinna líbanskra
hægrimanna, en ekki er getið frek-
ar um tildrög.
Israelar hafa í dag fagnað kjöri
Bashir Gemayel í embætti forseta
Líbanon og lýst því sem miklum
sigri fyrir stefnu þeirra, en þeir
hafi leynilega stutt kristna hægri-
menn þar í landi síðan 1976. Einnig
kom fram í dag sú ósk frá ísraelum
að líbanski forsetinn skilaði til
baka þeim 100 milljónum dollara er
þeir segjast hafa eytt í vopn til
kristinna hægrimanna.
Farþegaskip frá Kýpur kom í dag
til Port Said í Egyptalandi með
þriðja hóp liðsmanna PLO frá Beir-
út á leið sinni til Suður-Yemen en
fréttamönnum var meinaður að-
gangur að höfninni án nokkurra
skýringa. Hins vegar er talið að þar
hafi farið um borð Gamal Arafat,
bróðir Yassers, en talið er að í hópi
þessum séu róttækir í meirihluta.
F'jórði hópurinn hélt síðan upp
frá Beirút í dag áleiðis til Norður-
Yemen með farþegaskipi frá Kýpur
og í fylgd bandarískra herskipa.
Hins vegar setti sprenging á þjóð-
veginum milli Damaskus og Beirút
að fólki ugg hvað varðar brottflutn-
ing sem ráðgerður er landleiðina á
morgun.
A síðustu þremur dögum hafa
verið fluttir á brott 2.192 liðsmenn
PLO til Jórdaníu, írak, Túnis og
Suður-Yemen samkvæmt heimild-
um frá talsmönnum PLO og yfir-
völdum í Líbanon, en flestir þeirra
er fóru frá Beirút í dag tilheyra A1
Fatah, samtökum Yasser Arafat.
32 handteknir
í Londonderry
i>ondonderrr, N-frlandi, 24. águst. Al’.
LÖGREGLA og breskir hermenn
gerðu skyndileit á heimilum í borg-
arhluta kaþólskra í Londonderry árla í
morgun og handtók 32 manns í tengsl-
um við „morð og aðra alvarlega
glæpi", segir í upplýsingum frá lög-
reglunni.
Sinn Fein, hinn löglegi stjórn-
málaarmur hins útlæga írska lýð-
veldishers, sagði í dag að flestir
hinna handteknu væru „lýðveldis-
sinnar“, kaþólikkar sem krefðust
þess að breskum yfirráðum á N-ír-
landi lyki sem fyrst.
Meðlimir Sinn Fein kvörtuðu yfir
aðgerðunum og líktu þeim við að-
gerðirnar 1972 þegar breskir her-
menn gerðu skyndiárásir inn í
hverfi kaþólskra í Londonderry, og
rifu niður varnarmúra.
Hægt er að halda þessum 32
mönnum í haldi í sjö daga á grund-
velli þess að um hryðjuverkamenn
sé að ræða, en handtökurnar koma í
kjölfar morða á þremur lögreglu-
mönnum, þremur breskum her-
mönnum og einum óbreyttum borg-
ara sem framin hafa verið síðan í
marsmánuði síðastliðnum.
Háttsettir bandarískir embætt-
ismenn, þ. á. m. George Schultz
utanríkisráðherra, funduðu í dag
um hvað til bragðs skyldi taka í sí-
harðnandi ágreiningi franskra og
bandarískra yfirvalda vegna gas-
leiðslunnar.
Frakkar og gasleiðslan mikla:
Skeyta ekki um hótan-
ir Bandaríkjamanna
Washinjflon, 24. áffú.st. AIV
FKANNKT dótturfyrirtæki bandariska
fyrirtækisins Dresser Industries Inc. í
Dallas í Texas, Dresser France, ákvað
i dag að virða að vettugi þær óskir
Bandaríkjastjórnar að fyrirtækið af-
henti ekki umsamda hluti í gasleiðsl-
una miklu frá Níberíu til Evrópu.
Talsmenn fyrirtækisins sögðu í
dag, að það myndi famfylgja samn-
ingum eftir að hafa fengið fyrir-
mæli frá ríkisstjórn landsins um að
gera svo. Frönsk lög kveða svo á um,
aö hægt sé að skipa einkafyrirtækj-
um fyrir sé það velferð landsins
fyrir bestu.
Dresser France-fyrirtækið hefur
gert samning um sölu á 21 þjöppu,
sem nota á í hina 5500 km löngu
gasleiðslu. Þrjár þjappanna eiga að
fara um borð í sovéskt skip í höfn-
inni í Le Havre á fimmtudagsmorg-
un. Skipið siglir síðar um daginn.
Eru þetta fyrstu hlutirnir af banda-
rískum uppruna, sem afhentir eru í
, leiðsluna.
Gullið yfir
400 dollara
I^indon, 24. áxúot. Al’.
GIJLLVEKD fór í dag yfir 400 dollara
únsan, í fyrsta sinn í átta mánuði, en
dollarinn féll lítilsháttar vegna lækk-
andi vaxta í Bandaríkjunum.
Þegar gullviðskiptum lauk í dag
stóð gullverðið í 411,375 dollurum
fyrir únsu en hafði komist hæst um
daginn í 411,50. Dollarinn féll hins
vegar nokkuð og stafar það af því að
í gær lækkuðu helstu bankar í
Bandaríkjunum vexti úr 14 í 13V4%.
Franska stjórnin seldi mikið af
dollurum og vestur-þýskum mörkum
í dag til koma í veg fyrir gengisfall
frankans.
Stjórnvöld í Póllandi:
Boða harðari aðgerðir
Varsjá. Póllandi, 24. ágúst. AP.
YFIHVÖLD í Fóllandi tóku í dag
upp nýja og harðari stefnu, sam-
kva mt heimildum frá Jaruzelski
þar sem hann segir að öll andstaða
við stefnu stjórnvalda, er kunni að
koma til, „verði brotin á bak aft-
ur.“
Aðvörun þessi kemur í kjölfar
hótana aðstoðarforsætisráðherr-
ans, um að allri andstöðu verði
mætt með „stáltaugum" og einnig
mun fundur Brezhnev og Jaruz-
elski vega þar þungt á metunum.
Stjórnmálaspekingar í Póllandi
geta sér þess til að tilgangur með
þessum aðvörunum sé tvíþættur:
aðvörun til almennings um að
forðast öll hugsanleg mótmæli
Samstöðu, og sýna sovéskum ráða-
mönnum að pólsk yfirvöld séu
fullfær um að taka föstum tökum
alla andstöðu er upp kann að
koma.
Á sama tíma má segja að pólsk
yfirvöld hafi sýnt nokkra undan-
látssemi, þar sem einn leiðtogi
Samstöðu, Adam Michnik, fékk
leyfi til að vera viðstaddur jarð-
arför föður síns í dag , og einnig
fékk Danuta Walesa að nýju leyfi
til að heimsækja eiginmann sinn í
prísundina, þangað sem hún fór í
morgun.
Einnig er talið að þessi yfirlýs-
ing Jaruzelskis sýni vaxandi
áhyggjur stjórnvalda vegna hugs-
anlegra mótmæla sem Samstaða
hefur boðað til næstkomandi
þriðjudag, en þau eru hugsuð til
að minna á tveggja ára afmæli
samkomulags þess er leyfði starf-
semi hinna óháðu verkalýðsfélaga
Samstöðu.
Minkum
líkar frels-
ið illa
London, 24. ágúsl. Al’.
IUINDKDD minka er dýravernd-
unarsamtök nokkur í Bretlandi
slepptu lausum á laugardag úr
minkabúi í Essex, fengu heimþrá
daginn eftir og voru ma’tt í búr
sín er komiö var að matartíma
þeirra, samkvæmt heimildum frá
framkvæmdastjóra búsins.
Minkabú þetta er starfrækt
með skinnasölu í huga, en dýra-
verndunarsamtökin slepptu
dýrunum vegna þess að „millj-
ónum dýra er haldið í fangels-
um og þau pyntuð og drepin í
þeim tilgangi einum að full-
nægja duttlungum mannanna".
Það, að þessum minkum var
sleppt, olli miklum erjum í
Bretlandi, og bárust gífurleg
mótmæli bænda og annarra er
láta sig þessi mál varða.
Hvað sem því líður, sneru all-
ir minkarnir heim á matartíma
sínum og segir framkvæmda-
stjórinn það merki þess að
minkarnir taki reglubundið líf-
erni fram yfir veiðimennskuna.
Hins vegar hafa dýravernd-
unarsamtökin ekkert látið frá
sér heyra.