Morgunblaðið - 25.08.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.08.1982, Qupperneq 1
185. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hinn nýkjörni forseti Líbanon, Bashir Gemayel, borinn í gullstól af stuðningsmönnum sínum að kosningunum afstöðnum. AI'-nímimyiHl. Iibanon: Flutningum frest- að landleiðina í dag Mikil ólga í kjölfar forsetakosninga Beirút, Tel Aviv, Washington, 24. ágúst. Al*. ÍNKAKLNKA herráðið tilkynnti í kvöld að frestað hefði verið fyrsta hluta flutninga á liðsmönnum PLO er fyrirhug- aðir voru landleiðina til Damaskus í Nýrlandi á morgun. Talsmaður ísraelska hersins sagði í kvöld er hann var spurður hver hefði frestað brottflutningnum: „Nvo mikið er víst að það voru ekki tsraelar. Eftir því sem ég kemst næst eru það Nýrlendingar." ísraelska útvarpið var siðan í kvöld uppi með getgátur þess eðlis að frestunin stafaöi af ótta við að kristnir falangistar myndu gera árásir á þjóð- veginn milli Beirút og Damaskus. Ráðgert hafði verið að um 2000 liðsmenn PLO yrðu fluttir á brott í 40 flutningabifreiðum á miðviku- dag, en eftir að tilkynnt hafði verið að flutningum landleiðina yrði frestað var því bætt við að haldið yrði áfram að flytja liðsmenn á brott sjóleiðina. Mikil ólga er nú í Libanon í kjöl- far forsetakosninga í landinu og í kvöld bárust fréttir um harða bar- daga í Norður- og Austur-Beirút, og er talið að þar hafi verið um að ræða bardaga milli sýrlenskra herdeilda og kristinna líbanskra hægrimanna, en ekki er getið frek- ar um tildrög. Israelar hafa í dag fagnað kjöri Bashir Gemayel í embætti forseta Líbanon og lýst því sem miklum sigri fyrir stefnu þeirra, en þeir hafi leynilega stutt kristna hægri- menn þar í landi síðan 1976. Einnig kom fram í dag sú ósk frá ísraelum að líbanski forsetinn skilaði til baka þeim 100 milljónum dollara er þeir segjast hafa eytt í vopn til kristinna hægrimanna. Farþegaskip frá Kýpur kom í dag til Port Said í Egyptalandi með þriðja hóp liðsmanna PLO frá Beir- út á leið sinni til Suður-Yemen en fréttamönnum var meinaður að- gangur að höfninni án nokkurra skýringa. Hins vegar er talið að þar hafi farið um borð Gamal Arafat, bróðir Yassers, en talið er að í hópi þessum séu róttækir í meirihluta. F'jórði hópurinn hélt síðan upp frá Beirút í dag áleiðis til Norður- Yemen með farþegaskipi frá Kýpur og í fylgd bandarískra herskipa. Hins vegar setti sprenging á þjóð- veginum milli Damaskus og Beirút að fólki ugg hvað varðar brottflutn- ing sem ráðgerður er landleiðina á morgun. A síðustu þremur dögum hafa verið fluttir á brott 2.192 liðsmenn PLO til Jórdaníu, írak, Túnis og Suður-Yemen samkvæmt heimild- um frá talsmönnum PLO og yfir- völdum í Líbanon, en flestir þeirra er fóru frá Beirút í dag tilheyra A1 Fatah, samtökum Yasser Arafat. 32 handteknir í Londonderry i>ondonderrr, N-frlandi, 24. águst. Al’. LÖGREGLA og breskir hermenn gerðu skyndileit á heimilum í borg- arhluta kaþólskra í Londonderry árla í morgun og handtók 32 manns í tengsl- um við „morð og aðra alvarlega glæpi", segir í upplýsingum frá lög- reglunni. Sinn Fein, hinn löglegi stjórn- málaarmur hins útlæga írska lýð- veldishers, sagði í dag að flestir hinna handteknu væru „lýðveldis- sinnar“, kaþólikkar sem krefðust þess að breskum yfirráðum á N-ír- landi lyki sem fyrst. Meðlimir Sinn Fein kvörtuðu yfir aðgerðunum og líktu þeim við að- gerðirnar 1972 þegar breskir her- menn gerðu skyndiárásir inn í hverfi kaþólskra í Londonderry, og rifu niður varnarmúra. Hægt er að halda þessum 32 mönnum í haldi í sjö daga á grund- velli þess að um hryðjuverkamenn sé að ræða, en handtökurnar koma í kjölfar morða á þremur lögreglu- mönnum, þremur breskum her- mönnum og einum óbreyttum borg- ara sem framin hafa verið síðan í marsmánuði síðastliðnum. Háttsettir bandarískir embætt- ismenn, þ. á. m. George Schultz utanríkisráðherra, funduðu í dag um hvað til bragðs skyldi taka í sí- harðnandi ágreiningi franskra og bandarískra yfirvalda vegna gas- leiðslunnar. Frakkar og gasleiðslan mikla: Skeyta ekki um hótan- ir Bandaríkjamanna Washinjflon, 24. áffú.st. AIV FKANNKT dótturfyrirtæki bandariska fyrirtækisins Dresser Industries Inc. í Dallas í Texas, Dresser France, ákvað i dag að virða að vettugi þær óskir Bandaríkjastjórnar að fyrirtækið af- henti ekki umsamda hluti í gasleiðsl- una miklu frá Níberíu til Evrópu. Talsmenn fyrirtækisins sögðu í dag, að það myndi famfylgja samn- ingum eftir að hafa fengið fyrir- mæli frá ríkisstjórn landsins um að gera svo. Frönsk lög kveða svo á um, aö hægt sé að skipa einkafyrirtækj- um fyrir sé það velferð landsins fyrir bestu. Dresser France-fyrirtækið hefur gert samning um sölu á 21 þjöppu, sem nota á í hina 5500 km löngu gasleiðslu. Þrjár þjappanna eiga að fara um borð í sovéskt skip í höfn- inni í Le Havre á fimmtudagsmorg- un. Skipið siglir síðar um daginn. Eru þetta fyrstu hlutirnir af banda- rískum uppruna, sem afhentir eru í , leiðsluna. Gullið yfir 400 dollara I^indon, 24. áxúot. Al’. GIJLLVEKD fór í dag yfir 400 dollara únsan, í fyrsta sinn í átta mánuði, en dollarinn féll lítilsháttar vegna lækk- andi vaxta í Bandaríkjunum. Þegar gullviðskiptum lauk í dag stóð gullverðið í 411,375 dollurum fyrir únsu en hafði komist hæst um daginn í 411,50. Dollarinn féll hins vegar nokkuð og stafar það af því að í gær lækkuðu helstu bankar í Bandaríkjunum vexti úr 14 í 13V4%. Franska stjórnin seldi mikið af dollurum og vestur-þýskum mörkum í dag til koma í veg fyrir gengisfall frankans. Stjórnvöld í Póllandi: Boða harðari aðgerðir Varsjá. Póllandi, 24. ágúst. AP. YFIHVÖLD í Fóllandi tóku í dag upp nýja og harðari stefnu, sam- kva mt heimildum frá Jaruzelski þar sem hann segir að öll andstaða við stefnu stjórnvalda, er kunni að koma til, „verði brotin á bak aft- ur.“ Aðvörun þessi kemur í kjölfar hótana aðstoðarforsætisráðherr- ans, um að allri andstöðu verði mætt með „stáltaugum" og einnig mun fundur Brezhnev og Jaruz- elski vega þar þungt á metunum. Stjórnmálaspekingar í Póllandi geta sér þess til að tilgangur með þessum aðvörunum sé tvíþættur: aðvörun til almennings um að forðast öll hugsanleg mótmæli Samstöðu, og sýna sovéskum ráða- mönnum að pólsk yfirvöld séu fullfær um að taka föstum tökum alla andstöðu er upp kann að koma. Á sama tíma má segja að pólsk yfirvöld hafi sýnt nokkra undan- látssemi, þar sem einn leiðtogi Samstöðu, Adam Michnik, fékk leyfi til að vera viðstaddur jarð- arför föður síns í dag , og einnig fékk Danuta Walesa að nýju leyfi til að heimsækja eiginmann sinn í prísundina, þangað sem hún fór í morgun. Einnig er talið að þessi yfirlýs- ing Jaruzelskis sýni vaxandi áhyggjur stjórnvalda vegna hugs- anlegra mótmæla sem Samstaða hefur boðað til næstkomandi þriðjudag, en þau eru hugsuð til að minna á tveggja ára afmæli samkomulags þess er leyfði starf- semi hinna óháðu verkalýðsfélaga Samstöðu. Minkum líkar frels- ið illa London, 24. ágúsl. Al’. IUINDKDD minka er dýravernd- unarsamtök nokkur í Bretlandi slepptu lausum á laugardag úr minkabúi í Essex, fengu heimþrá daginn eftir og voru ma’tt í búr sín er komiö var að matartíma þeirra, samkvæmt heimildum frá framkvæmdastjóra búsins. Minkabú þetta er starfrækt með skinnasölu í huga, en dýra- verndunarsamtökin slepptu dýrunum vegna þess að „millj- ónum dýra er haldið í fangels- um og þau pyntuð og drepin í þeim tilgangi einum að full- nægja duttlungum mannanna". Það, að þessum minkum var sleppt, olli miklum erjum í Bretlandi, og bárust gífurleg mótmæli bænda og annarra er láta sig þessi mál varða. Hvað sem því líður, sneru all- ir minkarnir heim á matartíma sínum og segir framkvæmda- stjórinn það merki þess að minkarnir taki reglubundið líf- erni fram yfir veiðimennskuna. Hins vegar hafa dýravernd- unarsamtökin ekkert látið frá sér heyra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.