Morgunblaðið - 25.08.1982, Side 18

Morgunblaðið - 25.08.1982, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982 Ilér má sjá lambið í ánni eftir að það hefur stokkið ofan í gilið á flótta undan velgjöröarmönnum sínum. Hákon hefur nú fangað lambið ... og ber það af stað eins og Grettir bar uxann forðum. 99 Ævintýri á gönguför 66 MKDFYLGJANDI myndir tóku Snorri Snorrason síðastliðinn mið- vikudag er hann var, ásamt Hákoni Aðalsteinssyni og Garðari Steinars- syni, i árlegri fjallgöngu þeirra fé- laga. Garparnir voru staddir við Innri-Kmstru, nærri Fjallabaksleið syðri í Kangárþingi, þegar Hákoni hugkvæmdist að ganga niður með ánni til að skoða fossinn. Sá hann þá hvar lamb eitt sat fast á syllu og komst hvergi. Þeir félagar náðu í dráttartóg og seig Hákon niður eftir lamb- inu. Þegar það sá hann nálgast, stakk það sér í ánna og tókst að klóra sig upp í urð hinum megin. Seig Hákon þá að nýju þeim meg- in og tókst þá að komast fyrir lambið og ná tökum á því. Mbl. ræddi við Hákon og spurði meðal annars hvort björgunaraðgerðir þessar hefðu reynst honum erfið- „Þú ættir nú frekar að spyrja þá sem héldu í spottann á meðan ég seig þessa fimm eða sex metra eftir lambinu. Það má segja að þetta hafi verið svona ágætis upp- bót á fjallgönguna. Lambið var þarna í sjálfheldu og beið einskis nema dauðans. Það var því mjög ánægjulegt að geta bjargað því og þægileg tilfinning að sjá hve það var fegið frelsinu þegar við slepptum því í átt að fjárhópi sem var þarna nærri. Þetta var sann- kallað ævintýri á gönguför." Hákon sagði að enda þótt lamb- ið hefði ekki verið búið að vera lengi þarna, hefði það verið orðið mjög svangt. Hann taldi ólíklegt annað en að það hefði borist með árstraumnum og síðan niður með fossinum í gilið. „Hvert í ósköpunum eru mennirnir eiginlega að fara með mig.“ „Það er nefnilega það; bitið framan hægra og heilrifað vinstra." Ameríska kvikmyndavikan heldur áfram Fyrirlestur um landnám í Reykjavlk FIMMTUDAÍJINN 26. ágúst kl. 20.20 flytur Else Nordahl, fornleifa- fra-ðingur frá Svíþjóð, erindi i Nor- ræna húsinu og sýnir skyggnur máli sínu til skýringar. F’jallar erindi hennar um niður- stöðu rannsókna þeirra, sem gerðar voru í tengslum við uppgröftinn við Aðalstræti og Suðurgötu, þegar verið var að leita að hugsanlegu bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar. Else Nordahl, sem er Reykvík- ingum að góðu kunn, er stödd hér- lendis vegna fundar norrænna fornleifafræðinga, sem nýlokið er, en fundur þessi fór fram að Laugarvatni. Fyrirlesturinn í Norræna húsinu er öllum opinn. SÍB um efnahagsráöstaf- anir ríkisstjórnarinnar: Einsdæmi og ámælisveröar SAMKIGINI.KGI'K fundur stjórnar og samninganefndar Sambands ís- lenskra bankamanna, haldinn þann 24. ágúst 1082, mótmælir harðlega ákvörðunum um kjaraskerðingu í ný- útgefnum bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar, segir í fréttatilkynn- ingu frá SÍB. Fundurinn fordæmir þau vinnu- brögð að grípa til svo harkalegra aðgerða án nokkurs samráðs við launþega og varar við síendurtekn- um afskiptum stjórnvalda af um- sömdum verðbótum launþega. Með slíkum ráðstöfunum er hornsteinn- inn í frjálsum samningsrétti verka- lýðsfélaga farinn forgörðum. Þá lýsir fundurinn furðu sinni á og skilur ekki þá ráðstöfun, að grip- ið skuli til þess að setja hráðabirgðalög til skerðingar á verðbótum þann 1. september hjá þeim tiltölulega fámennu hópum, scm nú standa í samningaviðræð- um við sína vinnuveitendur og enn eiga því eftir að semja um kjör sín til næstu mánaða. Bankamenn til- heyra þessum hópi. Ráðstöfun sem þessi hlýtur að vera einsdæmi og ámælisverð og er ekki líkleg til að auðvelda samningsgerð. Tónleikar í Skruggubúð FAN lloutens Kókó heldur tónleika í Nkruggubúð að Nuðurgötu 3A na-stkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20. í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borizt, segir að tónleikarnir séu haldnir í kveðju- skyni „við Olaf, sem flýr enn og aft- ur á vit suðrænna stranda". Þá segir í tilkynningunni, að nú séu síðustu forvöð að bregða sér til Isafjarðar og sjá 3ja kílómetra háa sýningu Medúsu í bókasafni og sundlaug staðarins. Sýningunni lýkur á laugardag. Bílum stolið ADFARANÓTT sl. laugardags, 21. ágúst, var bifreiðinni R-5II25 stolið frá húsi við Bræðraborgarstíg. Bif- reiðin er af gerðinni Austin Mini, árgerð 1974, appelsinugul að lit. Aðfaranótt sunnudagsins 22. ágúst var bifreiðinni R-46686 stol- ið frá húsi í Skipasundi. Bifreiðin er af gerðinni Vauxhall Viva, ár- gerð 1968, dökkbrún að lit. Þeir, sem vita hvar framantald- ar bifreiðir eru niðurkomnar eða geta veitt aðrar upplýsingar, eru beðnir að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. HIN ameríska kvikmyndavika, sem auglýst var að haldin yrði dagana 14.—21. ágúst sl. gat aldrei orðið öll, þar sem hluti myndanna sem sýna átti, komu ekki til landsins á réttum tima, þar sem þær voru í 3 vikur á leiðinni í pósti. Nú eru myndirnar hins vegar komnar til landsins og verður síð- ari hluti kvikmyndahátíðarinnar haldinn í Tjarnarbíói dagana 26.-29. ágúst nk. Dagskráin er sem hér segir: Fimmtudaginn, 26. ágúst verða sýndar: Yfir — undir, skáhallt, niður, Hinir sjö frá Secaucus snúa aftur og Clarence og Angel. Á föstudag, Hinir sjö frá Secaucus snúa aftur, Kaffistofa kjarnork- unnar, Hjartaland og Tylftirnar. Laugardag: Hjartaland, Yfir — undir, skáhallt, niður, Clarence og Angel, Kaffistofa kjarnorkunnar og Neðanjarðarknaparnir. Síðasta daginn verða svo sýndar: Kaffi- stofa kjarnorkunnar, Hjartaland, Tylftirnar, Kaffistofa kjarnork- unnar og Hinir sjö frá Secaucus snúa aftur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.