Morgunblaðið - 25.08.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982
Ilér má sjá lambið í ánni eftir að það hefur stokkið ofan í gilið á flótta
undan velgjöröarmönnum sínum.
Hákon hefur nú fangað lambið ... og ber það af stað eins og Grettir bar
uxann forðum.
99
Ævintýri á gönguför
66
MKDFYLGJANDI myndir tóku
Snorri Snorrason síðastliðinn mið-
vikudag er hann var, ásamt Hákoni
Aðalsteinssyni og Garðari Steinars-
syni, i árlegri fjallgöngu þeirra fé-
laga. Garparnir voru staddir við
Innri-Kmstru, nærri Fjallabaksleið
syðri í Kangárþingi, þegar Hákoni
hugkvæmdist að ganga niður með
ánni til að skoða fossinn. Sá hann
þá hvar lamb eitt sat fast á syllu og
komst hvergi.
Þeir félagar náðu í dráttartóg
og seig Hákon niður eftir lamb-
inu. Þegar það sá hann nálgast,
stakk það sér í ánna og tókst að
klóra sig upp í urð hinum megin.
Seig Hákon þá að nýju þeim meg-
in og tókst þá að komast fyrir
lambið og ná tökum á því. Mbl.
ræddi við Hákon og spurði meðal
annars hvort björgunaraðgerðir
þessar hefðu reynst honum erfið-
„Þú ættir nú frekar að spyrja
þá sem héldu í spottann á meðan
ég seig þessa fimm eða sex metra
eftir lambinu. Það má segja að
þetta hafi verið svona ágætis upp-
bót á fjallgönguna. Lambið var
þarna í sjálfheldu og beið einskis
nema dauðans. Það var því mjög
ánægjulegt að geta bjargað því og
þægileg tilfinning að sjá hve það
var fegið frelsinu þegar við
slepptum því í átt að fjárhópi sem
var þarna nærri. Þetta var sann-
kallað ævintýri á gönguför."
Hákon sagði að enda þótt lamb-
ið hefði ekki verið búið að vera
lengi þarna, hefði það verið orðið
mjög svangt. Hann taldi ólíklegt
annað en að það hefði borist með
árstraumnum og síðan niður með
fossinum í gilið.
„Hvert í ósköpunum eru mennirnir eiginlega að fara með mig.“
„Það er nefnilega það; bitið framan hægra og heilrifað vinstra."
Ameríska kvikmyndavikan heldur áfram
Fyrirlestur
um landnám
í Reykjavlk
FIMMTUDAÍJINN 26. ágúst kl.
20.20 flytur Else Nordahl, fornleifa-
fra-ðingur frá Svíþjóð, erindi i Nor-
ræna húsinu og sýnir skyggnur máli
sínu til skýringar.
F’jallar erindi hennar um niður-
stöðu rannsókna þeirra, sem gerðar
voru í tengslum við uppgröftinn við
Aðalstræti og Suðurgötu, þegar
verið var að leita að hugsanlegu
bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar.
Else Nordahl, sem er Reykvík-
ingum að góðu kunn, er stödd hér-
lendis vegna fundar norrænna
fornleifafræðinga, sem nýlokið er,
en fundur þessi fór fram að
Laugarvatni. Fyrirlesturinn í
Norræna húsinu er öllum opinn.
SÍB um efnahagsráöstaf-
anir ríkisstjórnarinnar:
Einsdæmi og
ámælisveröar
SAMKIGINI.KGI'K fundur stjórnar
og samninganefndar Sambands ís-
lenskra bankamanna, haldinn þann
24. ágúst 1082, mótmælir harðlega
ákvörðunum um kjaraskerðingu í ný-
útgefnum bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar, segir í fréttatilkynn-
ingu frá SÍB.
Fundurinn fordæmir þau vinnu-
brögð að grípa til svo harkalegra
aðgerða án nokkurs samráðs við
launþega og varar við síendurtekn-
um afskiptum stjórnvalda af um-
sömdum verðbótum launþega. Með
slíkum ráðstöfunum er hornsteinn-
inn í frjálsum samningsrétti verka-
lýðsfélaga farinn forgörðum.
Þá lýsir fundurinn furðu sinni á
og skilur ekki þá ráðstöfun, að grip-
ið skuli til þess að setja
hráðabirgðalög til skerðingar á
verðbótum þann 1. september hjá
þeim tiltölulega fámennu hópum,
scm nú standa í samningaviðræð-
um við sína vinnuveitendur og enn
eiga því eftir að semja um kjör sín
til næstu mánaða. Bankamenn til-
heyra þessum hópi. Ráðstöfun sem
þessi hlýtur að vera einsdæmi og
ámælisverð og er ekki líkleg til að
auðvelda samningsgerð.
Tónleikar í
Skruggubúð
FAN lloutens Kókó heldur tónleika
í Nkruggubúð að Nuðurgötu 3A
na-stkomandi fimmtudagskvöld
klukkan 20. í fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu hefur borizt, segir
að tónleikarnir séu haldnir í kveðju-
skyni „við Olaf, sem flýr enn og aft-
ur á vit suðrænna stranda".
Þá segir í tilkynningunni, að nú
séu síðustu forvöð að bregða sér til
Isafjarðar og sjá 3ja kílómetra
háa sýningu Medúsu í bókasafni
og sundlaug staðarins. Sýningunni
lýkur á laugardag.
Bílum stolið
ADFARANÓTT sl. laugardags, 21.
ágúst, var bifreiðinni R-5II25 stolið
frá húsi við Bræðraborgarstíg. Bif-
reiðin er af gerðinni Austin Mini,
árgerð 1974, appelsinugul að lit.
Aðfaranótt sunnudagsins 22.
ágúst var bifreiðinni R-46686 stol-
ið frá húsi í Skipasundi. Bifreiðin
er af gerðinni Vauxhall Viva, ár-
gerð 1968, dökkbrún að lit.
Þeir, sem vita hvar framantald-
ar bifreiðir eru niðurkomnar eða
geta veitt aðrar upplýsingar, eru
beðnir að hafa samband við lög-
regluna í Reykjavík.
HIN ameríska kvikmyndavika, sem
auglýst var að haldin yrði dagana
14.—21. ágúst sl. gat aldrei orðið öll,
þar sem hluti myndanna sem sýna
átti, komu ekki til landsins á réttum
tima, þar sem þær voru í 3 vikur á
leiðinni í pósti.
Nú eru myndirnar hins vegar
komnar til landsins og verður síð-
ari hluti kvikmyndahátíðarinnar
haldinn í Tjarnarbíói dagana
26.-29. ágúst nk. Dagskráin er
sem hér segir:
Fimmtudaginn, 26. ágúst verða
sýndar: Yfir — undir, skáhallt,
niður, Hinir sjö frá Secaucus snúa
aftur og Clarence og Angel. Á
föstudag, Hinir sjö frá Secaucus
snúa aftur, Kaffistofa kjarnork-
unnar, Hjartaland og Tylftirnar.
Laugardag: Hjartaland, Yfir —
undir, skáhallt, niður, Clarence og
Angel, Kaffistofa kjarnorkunnar
og Neðanjarðarknaparnir. Síðasta
daginn verða svo sýndar: Kaffi-
stofa kjarnorkunnar, Hjartaland,
Tylftirnar, Kaffistofa kjarnork-
unnar og Hinir sjö frá Secaucus
snúa aftur.