Morgunblaðið - 25.08.1982, Qupperneq 32
r
Síminná QQnQQ
afgreiöslunni er OOUOO
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982
l.amhi bjargaö viö Innri-Emstruá. Sjá frásögn bls. 18.
Ljósm. Snorri Snorrason.
Verðlagsráð:
Heimilar hækkan-
ir á bilinu 10-18%
VEKI)I.A(>SKÁ{) samþykkti á fundi
sínum, aö heimila 10% hækkun á
fargjöldum flugfélaga á innalands-
leiðum og tekur hækkunin þegar
gildi.
Verðlagsráð samþykkti enn-
fremur, að heimila Landleiðum að
hækka fargjöld sín á leiðinni milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar um
18%, en þau voru 15 krónur fyrir
fullorðna og verða því 17.70 krón-
ur eftir hækkun.
Þá samþykkti Verðlagsráð, að
heimila 12% hækkun á öli og gos-
drykkjum, en hins vegar mun þar
koma til ennfrekari hækkun,
vegna hins nýja vörugjalds á syk-
ur, en ákvörðun þar að lútandi
verður tekin í vikunni.
Kartöflur
lækka um 44%
KARTÖFLUR lækkuðu verulega í
veröi á mánudaginn, vegna mikils
framboðs, sem er árstíðabundið á
þessum tíma. Kartöflur eiga síðar
væntanlega eftir að lækka enn frek-
ar í næsta mánuði.
Sem dæmi um lækkunina nú má
nefna, að 2 '/2 kg pokar af kartöfl-
um í smásölu lækka úr 44,35 krón-
um í 24,70 krónur, eða um liðlega
44%. Þá lækka 5 kg pokar í smá-
sölu úr 87,30 krónum í 48,60 krón-
ur, eða um liðlega 44%.
Gífurlega
mikil hækk-
un á sykri
SYKUR hækkar nú gífurlega í verði
og koma þar þrjár ástæður aðallega
til. I bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar er kveðið svo á um, að lagt
skuli 32% vörugjald á sykur. Þá hefur
gengisfcllingin áhrif og loks hefur
orðið nokkur hækkun erlendis.
Ef bara er tekið tillit til hins
nýja vörugjalds og áhrifa gengis-
fellingarinnar, því ekki er ljóst
hver hækkunin erlendis verður,
þegar næsta sending kemur, þá
hækkar sykur um liðlega 50% í
verði. Það má því telja víst, að syk-
ur hækki a.m.k. um 60% í verði
næst þegar hann kemur á markað
hér á landi.
meirihluta
Kaupfélag Svalbarðseyrar:
Selur kindakjöt
til Danmerkur fyr-
ir 52 krónur kílóið
KAUPFÉLAG Svalbarðseyrar hefur
nú gengið frá sölu á 200 kinda-
kjötsskrokkum til Danmerkur. Hver
skrokkur er pakkaður í sérstakar
umbúðir og fást um 52 íslenzkar
krónur (31 dönsk) fyrir kílóið. Nú
koslar I. flokkur af kindakjöti hér á
landi 37,95 krónur kílóið í heildsölu.
Að sögn Sævars Hallgrímsson-
ar, kjötiðnaðarmanns hjá kaupfé-
lagi Svalbarðseyrar, fá Danirnir
kjötið þannig, að hryggir og læri
eru heil og fersk, frampartar
reyktir í I>ondonlamb og saltaðar
rúllupylsur úr slögunum, einn
skrokkur í kassa.
Sagði Sævar, að Danirnir hefðu
fengið prufusendingu frá sér fyrir
um mánuði og hefðu þeir brugðið
hart við og þegar pantað 200
gæti afgreitt allt, sem Danirnir
vildu fá.
Sævar sagði ennfremur, að
þarna virtist vera að opnast mark-
aður og verðið væri mjög gott.
Þessi markaður hefði náðst í gegn
um heildsala í Reykjavík og virtist
það svo, að einstaklingum gengi
betur að finna leiðir til útflutn-
ings á lambakjöti en stærri aðil-
unum, þó þeir væru allt of mikið
lokaðir af.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra:
Stjórnin hefur
skrokka, sem nú væri verið að
ganga frá til sendingar og vildu
þeir fá meira, en ekki væri ljóst
hvort kaupfélag Svalbarðseyrar
Strokufanginn
handsamaður
FANGINN, sem strauk úr Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg í
vikunni, var handsamaður í
gærkvöldi og situr nú bak við lás
og slá.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
Ekki starfhæftir meirihluti
„FRÉTTATIIKYNNING forsætiæ
ráðhcrra er ynrklór og lýsir ekki
virðingu fyrir Alþingi, heldur valda-
hroka. Fyrir liggur, að ríkisstjórnin
hefur ekki starfhæfan og nauðsyn-
legan meirihluta á Alþingi," sagði
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. f gær gaf Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra út fréttatil-
kynningu vegna yfirlýsingar Eggerts
Haukdals, alþingismanns, í Mbl. í
gær um að hann væri ekki lengur
stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar
Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins:
Hlýt að álykta að forset-
inn hafi verið blekktur
„ÞEGAR BRÁÐABIRGÐALÖG voru í bígerð hjá ríkisstjórninni um áramót-
in 1980-1981, lék mikill vafi á því hvort þau hefðu meirihlutafylgi á þingi.
Vegna þess vafa gengu formenn stjórnarandstöðuflokkanna á fund forseta
íslands og lýstu þeim skoðunum sínum, að ekki mætti gefa út bráðabirgða-
lög nema þau nytu örugglega stuðnings meirihluta Alþingis," sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Vegna þessa kynnti forseti ís-
lands sér það sérstaklega, hvort
svo væri, og þegar forsetinn hafði
gengið úr skugga um það, til-
kynnti hann það formönnunum og
lögin voru gefin út.
Ég hlýt að álykta, að sami hátt-
ur hafi verið hafður á nú og hef
ástæðu til að ætla að svo hafi ver-
ið gert, en þegar það kemur í ljós,
eftir að lögin voru gefin út, að
Eggert Haukdal styður ekki ríkis-
stjórnina lengur og lýsir því af-
dráttarlaust yfir að hann styður
ekki bráðabirgðalögin, þá hlýt ég
að álykta sem svo, að forsetinn
hafi verið blekktur. Ég veit hins
vegar ekki hver hefur gert það, en
mér finnst ástæða til að spyrja um
það, hvort kannað hafi verið hvort
meirihluti væri fyrir hendi," sagði
Ólafur.
„Mér sýnist það best gert með
því að spyrja forystumenn stjórn-
arliðsins að þessu, hvort þeir hafi
tryggt meirihlutafylgi við lögin,
áður en þeir gáfu þau út, því ríkis-
stjórnin er auðvitað ábyrg fyrir
þessu, en ekki forsetinn. Sam-
kvæmt mínum heimildum hétu
allir þingmenn Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags að standa að
þessum lögum, en þá eru fjórir
menn eftir, þrír ráðherrar úr
Sjálfstæðisflokknum og Eggert
Haukdal. Eggert er nú úr sögunni
og hver er þá fjórði maðurinn? Ég
tel það ekki vera Albert Guð-
mundsson," sagði Ólafur G. Ein-
og segir m.a. í henni, að þrátt fyrir
afstöóu Eggerts njóti stjórnin áfram
stuónings meirihluta alþingismanna.
Geir Hallgrímsson sagði í sam-
talinu við Mbl.: „Staðreynd er, að
frumvarp til staðfestingar bráða-
birgðalaga ríkisstjórnarinnar er í
andstöðu við 20 þingmenn stjórn-
arandstöðunnar í neðri deild sam-
kvæmt skorinorðum yfirlýsingum
þeirra. Samkvæmt þessu fellur
frumvarpið á jöfnum atkvæðum í
neðri deild.
Jafnvel þótt stjórnarstuðn-
ingsmenn hyggi ekki á að segja nú
strax skilið við ríkisstjórnina, eins
og yfirlýsingar formanns þing-
flokks Alþýðubandalagsins bera
vitni um að sé í aðsigi, og stjórn-
arliðið geti varið ríkisstjórnina
vantrausti og samþykkt fjárlög í
Sameinuðu þingi, þá eru mörg
lagafrumvörp, sem fylgja fjár-
lagafrumvarpi og verða að ná
fram fyrir áramót, auk nýrra
frumvarpa, er ríkisstjórnin þarf
að fá samþykkt, en skortir fylgi
til.
Stjórnarherrar lýsa fjálglega
vanda þeim, sem þjóðin á við að
glíma og ekki skal dregið úr því,
en Ijóst er, að núverandi stjórn
hefur lifað sjálfa sig, ræður ekki
við vandann, kemur ekki málum
fram og á að sjá sóma sinn í að
fara frá. Kveðja ber Alþingi sam-
an til að sinna brýnustu úrlausn-
arefnum, svo sem kjördæmamál-
inu og efnahagsmálum, en síðan á
að rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga."
Fréttatilkynningin frá forsæt-
isráðherra er svohljóðandi: „Það
var Eggert Haukdal að þakka,
meðal annarra, að unnt var að
mynda núverandi ríkisstjórn fyrir
tveimur og hálfu ári og leysa
þannig langvarandi og hættulega
stjórnarkreppu. Þótt hann óski
ekki lengur að styðja stjórnina,
heldur hún auðvitað áfram störf-
um, þar sem hún nýtur engu að
síður stuðnings meirihluta alþing-
ismanna. Ég geng út frá því að
Eggert Haukdal muni áfram
styðja góð og gagnleg mál á Al-
þingi."
Lánskjara-
vísitala hækk-
ar um 3,88%
SEDLABANKI ÍSLANDS hefur
reiknað út lánskjaravísitölu fyrir
septembermánuð og reyndist hún
vera 402 stig. Hafði því hækkað um
3.88% frá ágústmánuði, þegar hún
var 387 stig.
Ef þessi 3.88% hækkun láns-
kjaravísitölu milli mánaða er
framreiknuð næstu tólf mánuð-
ina kemur út tæplega 58% hækk-
un.