Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 5 Gamli pylsuvagninn, sem kvedur nú Tiyggvagötuna eftir 40 ára þjónustu, og sá nýi, sem kemur í staðinn. Ekki eru breytingarnar miklar eins og sjá má. Ljósm. Mbl./Emilía. „Bæjarins beztuu: Skipt um pylsuvagn PYLSUVAGN sá sem selt hefur bæjarbúum „bæjarins beztu“ pylsur í Tryggvagötunni um árabil er nú kominn til ára sinna og hefur því verift endurnýjaður. í nótt var nýjum pylsuvagni komið fyrir við Tryggvagötu og er sá stærri og mun rúmbetri en hinn fyrri. Eigandi pylsuvagnsins, Kristmundur Jónsson, sagði í viðtali við Mbl. að hann ætlaði þó ekki að skilja alveg við gamla vagninn, sem hann hefur unnið r síðastliðin 40 ár, heldur fara með hann heim í garðinn sinn.________________________________________ Stjórn VR mótmæl- ir bráðabirgða- lögunum harðlega Morgunblaftinu hefur borizt eftirfarandi ályktun stjórnar Verzlunarmannafélags Reykja- víkur vegna nýsettra bráfta- birgftalaga ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðger fti r: „Stjórnvöld hafa enn einu sinni mætt efnahagsvandanum með ógildingu frjálsra kjara- samninga. Með síendurteknum aðgerðum af þessu tagi hefir ríkisvaldið í reynd svipt stétt- arfélögin frjálsum samnings- rétti sinum, sem er grundvall- arréttur þeirra. Stjórn VR mótmælir þessum aðgerðum harðlega. Launataxtar, sem fjöldi fólks býr við og eru um 8.000 kr. á mánuði, eru ekki orsök efna- hagsvandans. Þessi laun verða nú skert um nær 10%, sam- kvæmt lögunum. Félagið mót- mælir því harðlega að laun þessa fólks skuli enn á ný vera skert með lagaboði, þar sem þeim aðalrökum er beitt, að slíkt sé nauðsynlegt til að ráða niðurlögum verðbólgunnar." Ályktun þessi var samþykkt samhljóða í stjórn VR, mið- vikudaginn 25. ágúst. Yfir 20 þús. séð „Okkar á milli...“ YFIK 20 þúsund manns hafa séft myndina „Okkar á milli...“ nú þegar. Aft sögn Eddu Andrésdótt- ur, þá væri þetta drjúg aftsókn á ekki lengri tíma en þetta t.d. heffti aðsóknin á Laugum í Keykjadal verift það góft, aft menn hefftu setzt á gólfift til þess aft gcta séft myndina og gert sér þaft aft góðu. Sýningum verður nú hætt í Háskólabíói, en áfram verða sýningar í Laugarásbíói. Enn er myndin sýnd á Akureyri. Þá var eitt eintakið á Egilsstöðum og fer þaðan til Seyðisfjarðar nú í vikunni. Sagði Edda, að það þyrftu sennilega um 50 þúsund manns að sjá myndina til þess að kostnaðurinn kæmi út á sléttu. Blómadrottning kosin í Hveragerði Hveragerdi, 24. áfpíst. BLÖMABALLIÐ í Hveragerði var haldið í Hótel Hveragerði síðastliðinn laugardag. Knattspyrnudeild Ungmennafé- lags Hveragerðis og Ölfus hélt dansleikinn sem um 400 manns sóttu. Hótelið var fagurlega skreytt blómum og kepptu fimm stúlkur um titilinn „Blómadrottning ’82“. Hlutskörpust varð Aðalheiður Gunnarsdóttir, 16 ára, dóttir hjón- anna Hugrúnar Valdimarsdóttur og Gunnars Baldurssonar. Aðalheiður hefur unnið við af- greiðslu í Allabúð í sumar en mun stunda nám við Fjölbrautaskólann á Selfossi í vetur. — Sigrún Æskulýðsráð Reykjavíkurborgar: Stuðmenn á úti- skemmtun bæjarskóla ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur borgar stendur fyrir útiskemmtun i porti Austurbæjarskólans í kvöld og hefst skemmtunin klukkan 20.00. Útiskemmtunin er öllum ætluð. Á skemmtuninni kemur fram hljómsveitin Stuðmenn og einnig verða ýmsar uppákomur á skemmtuninni, Tóti Trúður verð- ur á staðnum og skotið verður upp flugeldum. Þetta verður eina við Austur- í kvöld skiptið sem hljómsveitin Stuð- menn kemur fram í Reykjavík, en hún mun leika gömul og ný lög sín, m.a. lög sem leikin eru í kvikmynd sem Stuðmenn hafa unnið að í sumar, en myndin ber nafnið „Allt á hreinu". Aðgangur inn á svæðið verður 30 krónur fyrir börn, en 50 fyrir fullorðna, en fólk yngra en 7 ára og eldra en 70 ára fær ókeypis inn á svæðið. bjóöum viö landsmönnum aö eignast íslensku DBS reiöhjólin á einstökum vildarkjörum. Veittur veröur 20% staögreiösluafsláttur eöa 15% afsláttur meö 1000 kr. útborgun og eftirstöövar á allt aö 4 mánuðum. Efpm ufaMkt FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 DBS—TOURING 10 glra/kven- eða karlmanns bogió eóa beint stýri/lokaóar skálabremsur innbyggóur lás/standari ljósatæki/3 stæróir lltir: sllfurgrátt/ljósblátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.