Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 35 BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23, sími 812 99. Rúmbesti bíllinn í sínum stærðarflokki! Þrymskviða á japönsku I október nk. kemur út hjá einu stærsta bókaútgáfufyr- irtæki í Japan, HOLP SHUPPAN, myndskreytt út- gáfa af íslenska fornkvæðinu „Þrymskviða" sem fjallar um það er Þrymur þursa drottinn stelur hamri Þórs og hvernig Þór endurheimtir hamarinn, segir í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borizt. Bók þessa teiknar Sigurður Örn Brynjólfsson (SÖB) að beiðni útgáfunnar en textinn er á japönsku. Útgáfa þessi er liður í þeirri starfsemi HOLP SHUPPAN að gefa út þjóð- sögur og ævintýri frá ýmsum þjóðlöndum myndskreytt af listamönnum í viðkomandi landi, og er skemmst að minn- ast að á síðastliðnu ári gáfu þeir út þjóðsöguna um Bú- kollu sem Hringur Jóhannes- son myndskreytti. Þá mun það einnig ætlun útgáfunnar að gefa bókina út hér á landi í samráði við ís- lenskan bókaútgefanda, en óráðið er hver það verður. Bókin er öll hin vandaðasta og hvergi til sparað í frágangi og útliti. Brotið er A-4, 4 litir og 32 síður með litmynd yfir hverja opnu. Teiknarinn Sigurður Örn Brynjólfsson stundaði listnám hér heima og í Hollandi 1964—1970 og hefur síðan unnið við auglýsingateikn- ingu, . myndskreytingar og teiknimyndagerð. Hann rekur nú eigin auglýsingateiknistofu í Hafnarfirði þar sem hann býr. SÖB hefur haldið tvær einkasýningar á teikningum og tekið þátt í fjölda samsýn- inga heima og erlendis og fengið viðurkenningar fyrir verk sín. Mikiö úrval af ítölskum húsgögnum. Komið og skoöiö eitt mesta úrval landsins af húsögnum. Opiö 9—9 husgögn, Langholtsvegi 111. OTRÚLEGT! Framdrifinn 323 fyrir veturinn á aðeins kr. 128.500 Þetta er einn mest seldi framdrifsbíllinn í veröldinni í dag. Mazda 323 er ekki þröngur smábíll, i honum er nóg pláss fyrir fjölskylduna og farangurinn. Eftirtalinn búnadur fylgir öllum gerðum: Metallic litur Öryggisljós að aftan 60 A rafgeymir Litaö gler í rúðum Quarts klukka Rúllubelti Niðurfellanlegt aftursæti í tvennu lagi Stillanlegir höfuópúðar Útispegill Verð: 3 dyra hatchback deluxe 1300 kr. 128.500 4 dyra Saloon deluxe 1300 kr. 135.500 gengisskráning 24/8/82 Tryggið ykkur því bíl strax meðan þetta lága verð helst. Tauáklæði á sætum 3 haröa rúðuþurrkur Halogen framljós Stokkur milli framsæta Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf Barnaöryggislæsingar 3 hraða miðstöð Rúðuþurrka á afturrúðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.