Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982
Matareitrun í
brúdkaupsveislu
K<‘ggio ('alabria, ftalíu, 25. áuii.sl. \ I’
FIMMTIU gestum brúðkaupsveislu
nokkurrar var ekið í skyndi á
sjúkrahús með matareitrun eftir að
hafa snætt hádegisverð í tilefni gift-
ingarinnar í dag, samkvamt heim-
ildum bæjaryfirvalda.
Læknar segja að augljóst sé að
fórnarlömbin hafi snætt skemmda
sjávarrétti á veitingastað er leigð-
ur hafði verið til gleðinnar í litlu
þorpi að nafni Gioiosa Jonica.
Trimm ekki trygging
fyrir lengra lífi
Kaupmannahöfn, 25. á|(ÚNt. Al*.
I»AI) AÐ vera í „toppformi" likam-
lega er engin trygging fyrir lengra
lífi ... eða styttra, að því er segir i
tveimur nýútkomnum dönskum
skýrslum.
Skýrslur þessar voru birtar í
nýjasta danska læknaritinu „Uge-
skrift for læger" og þar kemur
fram að hjarta „íþróttamannsins",
eða hjarta þess sem er í mikilli
líkamlegri þjálfun, líkist stundum
meira sjúku hjarta en heilbrigðu.
Veður
víöa um heim
Akureyri 11 skýjaó
Amsterdam 17 rigning
Aþena 31 heióskírt
Barcelona 24 léttskýjað
Berlín 22 skýjaó
BrUssel 18 skýjaó
Chicago 30 rigning
Dyflinni 17 skýjað
Frankfurt 19 skýjaó
Genf 22 heióskírt
Helsínki 16 heióskírt
Hong Kong 31 hoiðskirt
Jerúsalem 27 skýjað
Jóhannesarborg 19 heióskfrt
Kaíró 35 heióskírt
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Lissabon 30 heióskirt
London 19 heióskírt
Los Angeles 27 heióskirt
Madrid 30 heiðskírt
Malaga 27 léttskýjaó
Mexíkóborg 23 skýjaó
Miami 32 skýjaö
Moskva 21 skýjaó
Mýja Delhí 30 skýjaó
New York 25 skýjað
Osló 16 skýjaó
París 21 skýjaó
Perth 15 skýjaó
Rio de Janeiro 32 heióskírt
Reykjavík 12 skýjaó
Rómaborg 27 heióskírt
San Francisco 17 heiósklr!
Stokkhólmur 20 skýjaó
Sydney 28 skýjaö
Tel Aviv 29 skýjaó
Tókýó 32 skýjaó
Vancouver 23 skýjaó
Vínarborg 23 skýjaó
Dr. Jens Elers skýrði frá niður-
stöðum rannsókna er hann hafði
framkvæmt á íþróttamönnum sem
eru í mikilli þjálfun, mönnum sem
stunduðu maraþonhlaup, kapp-
róðra og hjólreiðar. Þar kemur
fram að hjörtu þeirra eru að með-
altali 900 til 1200 kúbiksentimetr-
ar í stað 700 til 800 kúbiksenti-
metrar.
Læknirinn sagði að afrakstur
gífurlegrar þjálfunar um árabil
gæti haft þær afleiðingar að
hjartað hætti að starfa eðlilega í
hvíld, en þær aukaverkanir er af
þvi stafi hverfi um leið og líkam-
inn fer á hreyfingu. Þessar auka-
verkanir segir hann að hverfi
einnig ef ströng þjálfun er minnk-
uð.
Lenti undir lest — Fjórtán ára gamall drengur, Aldon Cotton að nafni, varð fyrir
farþegalest í New Orleans nýlega og slasaðist alvarlega. Læknar urðu að taka af
honum annan fótinn, þar sem hann lá undir lestinni og tókst með þeirri aðgerð að
bjarga lífi hans. Á myndinni sést hvar lestarstarfsmaður reynir að lina þjáningar
Aldons áður en læknar koma á vettvang.
Launadeilur starfsfólks sjúkrahúsa:
Sprengingar
á Korsíku
Kastia, Korsíku, 25. ágúxt. Al*.
FIMM sprengjur sprungu fyrir framan
nokkur heimili árla í morgun og varð
eyAilegging talsverA, jafnt á bílum sem
húsum.
Knginn hefur lýst sig ábyrgan
fyrir sprengingunum, en lögreglan
hefur þá trú að þær séu verk hryðju-
verkahóps sem krefjist sjálfstæðis
eyjunnar, sem hefur verið undir
franskri stjórn undanfarnar tvær
aldir.
Það voru þrjár sprengjur sem
sprungu fyrir utan heimili í þessum
bæ á Norður-Korsíku í morgun en
ollu litlum skemmdum, en nokkrir
bílar eyðilögðust.
Breskir hermenn
í viöbragðsstöðu
l/ondon. 25. ámÍNt. Al*.
l/indon, 25. ágÚMt. Al*.
„BKKSKIR hermenn eru i við-
bragðsstöðu og munu verða kallaðir
til starfa „fyrr en síðar“ vegna neyð-
arástands á sjúkrahúsum ef ekki fer
að rofa til í launadeilum starfsfólks
þeirra", sagði Kenneth Clarke, heil-
brigðismálaráðherra, í dag.
„Við munum nota þá ef ekki
verður hægt að halda gangandi
einhverri grundvallarþjónustu
sjúkrahúsanna ... og þá fyrr en
síðar" sagði ráðherrann í viðtal-
inu.
Enn bólar ekkert á samningum í
þessari þriggja mánaða gömlu
launadeilu, þar sem í hlut eiga um
750.000 hjúkrunarfræðingar og
aðrir starfsmenn sjúkrahúsa og
Clarke sagði það skyldu yfirvalda
að halda allri grundvallarstarf-
semi gangandi á sjúkrahúsum „og
við munum ekki hika við að kalla
hermennina til, þegar þess verður
nauðsyn,“ sagði hann að lokum.
Eitt stærsta verkalýðsfélagið
sem í launadeilunni stendur var-
aði í morgun við því, að ef her-
menn yrðu sendir til starfa inn á
sjúkrahúsin myndi það leiða til
aukinna verkfallsaðgerða af hálfu
starfsfólks þeirra.
Ökumenn sjúkrabifreiða í norð-
urhéruðum Cleveland eru í verk-
falli og hafa þráfaldlega neitað að
sinna öllum tilvikum, jafnt neyð-
artilvikum sem öðrum, þrátt fyrir
andlát 24 ára gamallar konu er lét
lífið vegna súrefnisleysis á leið á
sjúkrahús í lögreglubíl. Lögreglan
í þessum héruðum hefur sinnt yfir
300 útköllum frá því að bílstjór-
arnir gengu út síðastliðinn
fimmtudag.
Sæðisbanki nóbelsverðlaunahafa:
Annað barnið komið í heiminn
með aðstoð sæðis úr bankanum
Loh Anjjeles, 25. ágúst. Al*.
ANNAÐ barnið, sem fæðist með að-
stoð sæðis úr sæðisbanka nóbels-
verðlaunahafa og annarra kunnra
vísindamanna, kom í heiminn í Los
Angeles í dag. Kignaðist móðirin,
ógiftur fertugur sálfræðingur, tæp-
lega 16 marka dreng. Barnið, sem
var komið 10 dögum framyfir tim-
ann, var tekið með keisaraskurði.
Sæðisbanki þessi var stofnaður
fyrir fimm árum af Robert K.
Graham, sem vildi stuðla að fæð-
ingu óvenju gáfaðra barna. Er
„bankastjórinn", Sherry Wieder,
frétti af fæðingunni sagðist hann
vera himinlifandi. Vonandi væri
hér á ferðinni vel skapað og gáfað
barn. Móðurinni var tjáð, að sæðið
væri úr þekktum vísindamanni,
sem hefði einnig góðar tónlistar-
hæfileika.
GasleiÖslan mikla frá Síberíu:
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum
láta í ljós áhyggjur sínar
Moskvu, 25. áKÚst. Al*.
SOVÉSK blöð hafa að undanförnu
gefið til kynna, að ekki sé allt með
felldu við lagningu gasleiðslunnar
miklu frá Síberiu til Kvrópu.
Málgagn sovéska kommúnista-
flokksins, Pravda, sagði í dag í
stórri forsíðufrétt, að greinilegt
væri að vandræði steðjuðu að
lagningu leiðslunnar þar sem hlut-
ir í hana kæmu frá mörgum aðil-
um.
Þá sagði á forsíðu Izvestia í gær,
að vandamál væru við túrbínustöð
í Úralfjöllum þar sem skorti nauð-
synlega hæfa menn til að annast
tengingar. Þá lét blaðið ennfremur
í það skína, að þörf væri á fleiri
mönnum með meiri tæknikunn-
áttu á fleiri stöðum.
Pravda skýrði einnig frá því í
síðustu viku, að ekki gengi nægi-
lega fljótt að færa bústaði verka-
mannanna, sem vinna við lagn-
ingu leiðslunnar, eftir því sem hún
lengdist. Ylli þetta töf á verkinu.,
Ennfremur var frá því sagt í vik-
uriti, sem fjallar um efnahagsmál,
að héraðsblöðum þar sem gas-
leiðslan liggur um, hefði verið
fyrirskipað að gefa út fylgirit, sem
fjölluðu einvörðungu um gasleiðsl-
una, tvisvar í viku.
Þrátt fyrir tilmæli Bandaríkja-
stjórnar til þeirra Evrópuríkja,
sem skuldbundið hafa sig til að
leggja fram hluti í leiðsluna, að
standa ekki við skuldbindingar
sínar, hafa þau virt óskir hennar
að vettugi. Síðast í dag hvöttu yf-
irvöld í V-Þýskalandi þau lönd,
sem skuldbindingum eiga að
gegna, til að hlusta ekki á óskir
Bandaríkjamanna.
Sovésk yfirvöld eru mjög ugg-
andi vegna þeirra umræðna sem
verið hafa að undanförnu. Hafa
þau hvatt verkamennina, sem
vinna við lagningu leiðslunnar, til
að leggja helmingi harðar að sér
og skila verkinu á undan áætlun.
Áætlað er að leiðslan verði tekin í
notkun í ársbyrjun 1984.
Alls mun leiðslan vera 4451 kíló-
metri að lengd. Lagningu 500 kíló-
metra er þegar lokið og að sögn
sovéskra aðila verða 300 kílómetr-
ar til viðbótar komnir á sinn stað,
ótengdir þó, í ágúst.
Millisvæðamótið:
Torre held-
ur enn
forystunni
Toluca, Mexíkó. 25. ágúst. Al*.
SKÁK þeirra Eugenio Torre,
efsta mannsins á millisvæöa-
mótinu í Toluca í Mexíkó, og
skæöasta keppinauts hans,
Lajos Portisch, fór í bið í 11.
umferð mótsins, sem tefld
var í gærkvöld. Skák þeirra
getur skipt sköpum í barátt-
unni um sigurinn því aðeins
eru eftir tvær umferðir.
í öðrum skákum í 11. umferð-
inni urðu úrslit þau, að Adorjan
lagði Yusupov að velli í 33 leikjum
og viðureign þeirra Spasskys og
Nunn lauk með jafntefli í 28 leikj-
um. Allar aðrar skákir, viðureign-
ir Rubinetti og Ivanov, Balashov
og Kouatly, Rodriguez og Hulak
og þeirra Polugajevski og Seiraw-
an, fóru í bið.
Polugajevski hafði tveimur peð-
um meira en Seirawan er skák
þeirra fór í bið og Balashov hafði
mun betri stöðu í sinni skák gegn
Seirawan. Þeir Rubinetti og Rodr-
iguez höfðu aðeins betri stöðu í
sínum skákum.
Biðskákir úr 10. umferðinni
voru einnig tefldar í gær. Yusupov
lagði þá Portisch að velli, Rodr-
iguez vann Ivanov og þeir Nunn og
Rubinetti skildu jafnir.
Staöan er þá sú á mótinu, að
Torre er efstur með 7 vinninga og
biðskák, Portisch er með 6'/2 vinn-
ing og biðskák, Seirawan 6 og
biðskák, Spassky og Yusupov 6,
Ivanov 5‘/4 og biðskák, Nunn 5*/fe,
Polugajevski 5 og biðskák, Adorj-
an 5, Hulak og Balashov \'k og
biðskák, Rubinetti og Rodriguez
3 'á og biðskák og Kouatly 1 'h
vinning og biðskák.