Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982
Sýning Denise Colomb
Myndlist
Valtýr Pétursson
Að loknu sumarleyfi hefst
starfsemin að nýju í Listasafni
ASI með mjög merkilegri sýningu
á Ijósmyndum og grafík ásamt
listaverkabókum í samstarfi við
franska sendiráðið í Reykjavík.
Þessi sýning er um margt forvitni-
leg og jafnvel mætti segja, ein-
stæð í sinni röð. Hér er á ferð
kona, sem hefur gert sér far um að
ljósmynda listamenn í vinnustof-
um sínum eða í því umhverfi, sem
virðist þeim svo nátengt, að auð-
veldlega verður rakinn skyldleiki
þar á milli og þeirra verka, er gert
hafa þá þekkta myndlistarmenn
um heim allan.
Þarna eru „portrett" af 55 lista-
mönnum, og þeir, sem fylgst hafa
með framvindu mála í myndlist
frá því um miðja öldina, eru ekki
lengi að finna í þessum hópi
marga þá menn, er einna mest
hafa komið við sögu á þessu sviði.
Persónulega hafði ég mikla
ánægju af þessari sýningu, kann-
aðist við flesta, ef ekki alla þá
listamenn, sem þarna eru á ljós-
myndum, sumum þeirra var ég
málkunnugur á árum áður. Það er
því mikið ævintýri að fá að sjá svo
gagnmerkar Ijósmyndir af þessum
mönnum. Nú veit ég ekki, hvað
gerir ljósmynd af fólki frábæra.
En mig grunar að þar spili saman
fjöldi atriða og jafnvel sé ógern-
ingur að ákveða, hvaða þáttur sé
veigamestur í þeirri persónulýs-
ingu sem felst í góðu portretti,
hvort heldur það er málað eða gert
með Ijósmyndavél. Það sem máli
skiptir er eitthvað, sem skilar
þeim áhrifum, sem aðeins geta
komið frá viðkomandi persónu. Að
skynja þetta og grípa er sérstök
gáfa, sem ekki er öllum gefin.
Denise Colomb virðist meistari í
þessu, og svo lifandi eru sum þess-
ara portretta að undrum sætir.
Það er engu líkara en maður sé
kominn þrjátíu ár aftur í tímann
og að þessir listamenn sitji við
næsta borð og útskýri áhugamál
sín yfir glasi af listaukandi drykk.
Fyrir mig er þetta eins og endur-
upplifun fornra stunda. Minning-
in hefur verið fest á pappír og ein-
mitt á þann hátt sem aðeins lista-
maður mundi gera. Það er hinn
innri maður, sem hefur verið
fangaður á filmuna og mun geym-
ast þannig um ókomna tíð. Þökk
sé Denis Colomb.
Þessi sýning hefur einnig
nokkrar grafískar myndir eftir
suma þá, sem sýnd eru portrett af.
Sumt er þarna í þeim gæðaflokki,
að ekkert verður sagt því til hróss,
sem auðga mætti áhrif þess.
Þarna eru verk eftir menn eins og
Miro, Soulages, Bram von Velde,
Lanskoy og Villon, svo að aðeins
örfáir séu nefndir. Þarna er held-
ur ekki mjög hátt verð á grafík, og
er það því ekki ólíklegt að fólk
muni notfæra sér það og eignast
verk eftir þessa meistara.
Franska sendiráðið og Listasafn
ASI eiga miklar þakkir skilið fyrir
að hafa haft forgöngu um þessa
sýningu. Þarna er einnig nokkuð
af listaverkabókum til sölu. Þar
má finna mjög eigulega hluti og til
gamans má geta þess, að ég náði
mér þarna í tvær bækur sem mig
hefur lengi vantað. Ég fer ekki
meira í saumana á þessari sýn-
ingu hér, en þeir sem muna eftir
hinu merkilega Gallerie Pierre í
Rue de Seine, mega gjarnan muna,
AAalstræti 8. — Sími 25260.
að Denise Colomb er systir Pierre
Loeb, sem þar réð ríkjum og varð
heimsfrægur af rekstri þess stað-
ar. Það er mynd af honum á þess-
ari sýningu þar sem hann er að
tala í trúnaði við Braque. Hann
skrifaði einnig ágæta minninga-
bók frá hetjutímabili súrrealism-
ans í Parísarborg, en hann varð
fyrstur manna til að sýna þá
listgrein og einnig varð hann
fyrstur manna til að halda sýn-
ingu á verkum Miros.
Norrænar teikningar
Teikning eftir Aase Gulbrandsen.
Nú stendur yfir í Norræna
húsinu umfangsmikil sýning,
sem spannar stórt svið í sinni
grein. Hér er á ferð samnorræn
sýning, sem sett var saman í
Finnlandi og hefur verið á ferð
um Norðurlönd að undanförnu.
Sú stefna var tekin við samsetn-
ingu þessarar sýningar, að ein-
um listamanni frá hverju Novð-
urlandanna var sérstaklega boð-
ið að sýna sem nokkurs konar
heiðursgesti. Fyrir valinu frá Is-
landi varð Kristján Davíðsson og
að mínu mati megum við vel við
una. Það mun hafa verið mikill
fjöldi listamanna, sem sendi
verk sín til dómnefndar, en af
öllum þeim fjölda voru aðeins
valin verk eftir 51 listamann. Af
þessu má sjá, að mikið hefur
verið vandað til þessarar sýn-
ingar, og í fljótu bragði virðist
mér hún vera nokkuð jöfn að
gæðum.
Heiðursgestir á þessari sýn-
ingu eru: Jargen Remer, frá
Danmörku, Ulla Kantanen, frá
Finnlandi, Kristján Davíðsson,
frá íslandi, Aase Gulbrandsen,
frá Noregi og Lena Cronqvist, frá
Svíþjóð. Allir þessir listamenn
standa sig með ágætum á þess-
ari sýningu og ekki hvað sízt
Kristján okkar Davíðsson. Þrír
aðrir íslendingar eru á þessari
sýningu, og mér finnst Valgerð-
ur Bergsdóttir hafa þar mestan
hlut. Það verður að stikla hér á
stóru. Fjöldi listamanna er það
mikill, að engin leið er að gera
hverjum og einum skil. Það, sem
mér er minnisstæðast frá þess-
ari sýningu, eru verk eftir Erik
Frisendahl, Joren Nilsen, Bertil
Gatu, Sven Svanbach, Arne
Melmedal, Ulrica Hydman-Vallien
og Ib Agger. Allt er þetta fólk,
sem virðist bera af, hvað teiknun
og upplifun línu snertir. Það
mætti eflaust nefna enn fleiri til
sögu í þessum efnum, en látum
þetta nægja. Eins og sést af
þessum línum, hef ég ekki talið
heiðursfólkið upp aftur, en það
eru verk þess, sem halda þessari
sýningu gangandi. Annars kenn-
ir þarna margra grasa, og er
fróðlegt að sjá þetta úrval. Per-
sónulega finnst mér eitthvað
vanta í þessa heild til að gera
hana verulega sterka og áhrifa-
mikla,
en auðvitað ræður enginn við að
gefa slíkri sýningu þann svip,
sem eftirminnilegur verður. Til
þess er boginn bentur of hátt, of
margir aðilar að sama fyrirtæki
og útkoman verður meiri miðl-
ungsmennska en búast hefði
mátt við.
Myndarleg sýningarskrá fylg-
ir þessari sýningu með miklu
lesmáli, og má benda þar á grein
Braga Ásgeirssonar fyrir hönd
íslands. Þar er að finna myndir
af flestum listamönnunum og af
verkum þeirra. Þetta framtak í
heild er ágætt og ætti oftar að
gera slíkar sýningar, sem
spanna vinnubrögð í myndlist
allra Norðurlandanna. Það er
hollt fyrir listamenn að taka
þátt í slíku samstarfi og fá þann-
ig samanburð við félaga sína og
frændur.
Kuala Lumpur:
Reykingar bannaðar
Kuala Lumpur, Malaysíu, 24. ágúst. AP.
ALLAR sígarettureykingar hafa verið bannaðar í opinber-
um skrifstofum og byggingum sem hluti í innlegg í bar-
áttu stjórnvalda að bættu heilsufari í landinu.
Starfsmönnum eru óheimilar ingar eru einnig óheimilar á öll-
reykingar meðan þeir eru að um opinberum fundum.
störfum og einnig meðan þeir Ekki hefur verið minnst á
aka í bifreiðum hins opinbera. neinar refsingar við brotum á
Bann þetta nær til allra skóla, lögum þessum, en í leiðinni voru
sjúkrahúsa, almenningsbifreiða, einnig allar sígarettuauglýs-
og íþróttamannvirkja, en reyk- ingar bannaðar.
f EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
7 MORGUNBLAÐINU