Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 17 „Ég á von á því aö harðar hefði verið brugðizt við, ef sálmur sr, Matthíasar Jochumssonar, sem er texti þjóðsöngsins, hefði verið „ortur upp“ með svipuðum hætti og hér er gert við lagið. En á þessu er enginn eðlismunur. Ef þessi meðferð lagsins er látin óátalin, hlýtur með sama hætti að vera leyfi- legt að gera við Ijóðið næstum hvað sem er.“ ráðuneytisins varð sú, sem fyrr greinir, að það taldi ekki ástæðu til aðgerða, og er hún rökstudd með því „að fara verður varlega í að hindra menn í að tjá sig, einnig þá sem hentar þetta tjáningar- form“. Því hefur verið haldið fram, að efni kvikmyndarinnar réttlæti með nokkrum hætti með- ferðina á þjóðsöngnum, hún sé jafnvel nokkurs konar „listræn nauðsyn". Svo virðist sem ráðu- neytið hallist að þessari skoðun, eða vilji a.m.k. ekki ganga gegn henni. Þessu er ég að vísu ósammála. Ég tel að sú aðferð, sem hér er höfð, að taka þekkt verk, sem um- fram listgildi sitt hefur djúpa táknræna merkingu, a.m.k. fyrir mikinn hluta þjóðarinnar, og setja það fram í því samhengi að merking þess umhverfist, sé óvið- eigandi og ámælisverð. Þetta get- ur verið „áhrifaríkt" á þann hátt, að það ýti hastarlega við fólki, valdi jafnvel einskonar „sjokki", en ég tel að það eigi ákaflega lítið skylt við listræna sköpun. Efnivið- ur hennar er annar. Og ég tel það vera háskalega rangtúlkun á tján- ingarfrelsinu að telja það fela í sér heimild til rangfærslu á því, sem aðrir höfundar hafa látið frá sér fara, jafnvel þótt látið sé heita, að það sé gert í „listrænum" tilgangi. Nú hefur komið í Ijós, að uppi eru aðrar skoðanir um þetta, og ég hef sýnt þeim þá virðingu að láta þetta mál kyrrt liggja að því er kvikmyndina varðar. Ég hef engar kröfur sett fram eða tillögur gert um hindrun á sýningum hennar. En engar „listrænar" röksemdir styðja útgáfu á afskræmdum „út- setningum" þjóðsöngsins á hljómplötu, þar sem þær eru með öllu slitnar úr samhengi myndar- innar. Þó þykir mér smekkleysið (eða óskammfeilnin) keyra um þverbak, þegar önnur þessi „út- setning" er notuð í sjónvarpsaug- lýsingu um myndina. Afskipta- leysi menntamálaráðherra um þetta tvennt, hljómplötuna og sjónvarpsauglýsinguna, verður ekki skilið öðruvísi en sem yfirlýs- ing hans um það, að hann telji sæmdarréttarákvæði höfundalag- anna markleysu eina og að engu hafandi. Ég á von á því, að harðar hefði verið brugðizt við, ef sálmur sr. Matthíasar Jochumssonar, sem er texti þjóðsöngsins, hefði verið „ortur upp“ með svipuðum hætti og hér er gert við lagið. En á þessu er enginn eðlismunur. Ef þessi meðferð lagsins er látin óátalin, hlýtur með sama hætti að vera leyfilegt að gera við ljóðið næstum hvað sem er. Um þjóðsöng íslendinga eru engin lagaákvæði í gildi, gagn- stætt því sem er t.d. um þjóðfán- ann. Um gerð hans og notkun eru skýr lagafyrirmæli, og geta legið við þung viðurlög, ef út af er brugðið eða fánanum sýnd óvirð- ing. Lofsöngurinn „Ó, guð vors lands" hefur orðið þjóðsöngur smám saman með þegjandi sam- þykki flestra eða allra lands- manna og unnið sér vaxandi helgi sem þjóðartákn, hliðstætt fánan- um, eftir því sem hann hefur oftar hljómað og lyft hugum manna á hátíðastundum. Lag og ljóð er órjúfanlega tengt í hugum manna, og hvorttveggja er fjölmörgum Is- lendingum helgur dómur, bæði af þjóðernis- og trúarástæðum. Þessi stóri hópur á rétt á því, hvað sem öðru líður, að viðhorf hans séu virt. Og skáldin bæði, sem gáfu okkur þennan þjóðardýrgrip, eiga ekki minna skilið — og gildir það raunar einnig um aðra höfunda lífs og liðna — en að verkum þeirra sé hlíft við afskræmingu og misnotkun, hvort sem er í mis- skildum „listrænum" tilgangi, í ábataskyni eða af stráksskap. Jón Þórarinsson Ola Ullsten og hreinna umhverfi. En barátt- an gegn kjarnorku, sem hefur valdið bæði uppgangi og falli Miðflokksins, er hvergi nefnd. Þjóðarflokkurinn lofar að vinna gegn atvinnuleysinu og Hægri flokkurinn að Iækka skattana. Formenn stjórnmálaflokk- anna halda nú hverja kosninga- ræðuna á fætur annarri og kynna stefnuskrár sínar og hnýta í andstæðingana. „Olov Palme og jafnaðarmenn eru ábyrgðarlausir," sagði Thorbjörn Fálldin í ræðu í gær. „Þeir lofa gulli og grænum skóg- um, en neita að svara með hverju á að borga og hvar á að spara." „Þá tólf milljarða, sem núver- andi ríkisstjórn ætlar að spara 1983, er hægt að fá með því að vinna bug á atvinnuleysinu, en það kostar í dag 12 milljarða," sagði Olov Palme. „Ef jafnaðarmenn ná völdum verða 60 þúsund atvinnulausir í iðnaðinum á næstu þremur ár- um og skuldir ríkisins munu aukast um 100 milljarða," sagði Ulv Adelsson, formaður Hægri flokksins, í ræðu í gær, og gagn- rýndi skattauppgjör ríkisstjórn- arinnar og jafnaðarmanna. Hann lofaði lægri sköttum ef hægri flokkurinn kæmist til valda. „Ulf Adelsson ætti að passa sig þegar hann lofar lækkuðum sköttum," sagði Ulla Ullsten, formaður Þjóðarflokksins. „Þá gæti farið fyrir honum eins og Ronald Reagan." Hver svo sem úrslit kosn- inganna verða, er eitt víst, að hinnar nýju stjórnar bíða miklir erfiðleikar. Hundrað þrjátíu og þrjú þúsund manns, eða 3% vinnufærra manna, eru atvinnu- lausir í Svíþjóð í dag. Ríkishall- inn er 46 milljarðar og skuldirn- ar 300 milljarðar sænskra króna. Þar af eru erlendar skuldir 80 milljarðar, en það svarar til 13—14% af þjóðarframleiðslu. Síríus - þótt annaó bregóist mm s Mm Hreint súkkulaói fyrirsælkera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.