Morgunblaðið - 26.08.1982, Blaðsíða 15
Tilboðin í Ikaras-vagnana:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGtlR 26. ÁGÚST 1982
15
Vísað til stjórnar SVR
TILBOÐIN sem bárust í Ikarus-strætisvagnana voru lögð
fram í borgarráði í gær og var málinu vísað til umsagnar
stjórnar Strætisvagna Reykjavíkur.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri,
að ekki yrði tekin afstaða til til-
boðanna fyrr en umsögn SVR lægi
fyrir. Einnig sagði Davíð að jafn-
framt væri óskað eftir greinargerð
um hvaða orð embættismenn í
nálægum sveitarfélögum hefðu
látið falla um þessa vagna.
„Lostæti“ 1
nýrri útgáfu
Iðunn hefur gefið út í annarri
útgáfu matreiðslubókina Lostæti
með lítilli fyrirhöfn. Fyrsta útgáfa
kom á síðasta hausti og seldist
upp á rúmum mánuði. Nú hafa
verið gerðar á bókinni fáeinar lag;
færingar frá fyrri útgáfu. — í
bókinni eru 336 uppskriftir af alls
konar réttum, sem auðvelt og
fljótlegt er að matbúa. Bókin er
bresk að uppruna og eru höfundar
þrjár konur, Mary Berry, Ann
Body og Audrey Ellis, allar sér-
fræðingar, kennarar og leiðbein-
endur í matreiðslu. Sú fyrsttalda
skrifar formála að bókinni og seg-
ir þar meðal annars: „I bókinni
eru mjög fjölbreyttar uppskriftir.
Þær spanna yfir flest svið matar-
gerðar. Með því að raða þeim sam-
an á ýmsa vegu, má búa til næst-
um óteljandi matseðla fyrir alls
konar tilefni, miðdegiskaffi fyrir
fjölskylduna allt eins og vandað-
asta veislumat."
í bókinni eru litmyndir af hverj-
um einstökum rétti. Er hér um að
IÐUNP'i
LOSTÆTI MEÐ
LÍTILLI FYRIRHÖFN
LITMYNDIR AF
ÖLLUM RÉTTUM
ræða fiskrétti, brauð, kjúklinga,
hrísgrjónarétti, salöt og smárétti,
svínakjöt og lambakjöt, kökur og
margt fleira.
Lostæti með lítilli fyrirhöfn er
gefin út í samvinnu við Hamlyn í
Lundúnum. Jón Gunnarsson
þýddi. Bókin er um 180 blaðsíður.
Setningu annaðist prentsmiðjan
Oddi, en bókin er prentuð á Spáni.
(FrétUtilkynning)
Þórkatla GK 97:
Skipstjórinn játaði að hafa
verið að ólöglegum togveiðum
Réttarhöld fóru fram í fyrra-
dag, hjá bæjarfógetanum í Kefla-
vík, í máli skipstjórans á vélbátn-
um Þórkötlu GK 97 frá Grindavík,
sem sl. mánudag var tekinn að
meintum ólöglegum togveiðum út
af Dyrhólaey. Skipstjórinn játaði
að hafa verið að ólöglegum tog-
veiðum innan leyfilegra marka og
verður dómur í málinu kveðinn
upp í dag.
r ullinnrettað ibúdarhús i bsði japaiuka og ameríska Fólksbílakermr með Ijósum, varadekki, en án knss-
pallbíla. Húsin eru lág á keyrslu, en vel mannhæð í viðs.
notkun.
Gisli Jónsson & Co. HF.
Sundaborg 41. Sími 86644.
Mjög stórt v-þýzkt hjólhýsi á 2 öxlum. Svefnpláss fyrir
6. Allur hugssnlegur búnaður. llpplagt fýrir starfs-
mannafélög. Einnig nothæft sem vetraribúð.
I»essi v-þýsku KNAUS-hús eru til i stærðinni I2Vi fet,
vönduð og vel búin.
Fullinnréttað bílhús. Svefnpláss fyrir 4. Fullkomið
eldhús. KlósetL Koma bæði fyrir ameríska og jap-
anska pallbíla.
Traustir tjaldvagnar á mjög góðum undirvagni með
13“ dekkjum. Eldhús. Svefnpláss fýrir 6—7 manns.
Óinnréttað álhús (ýrir bæði japanska og ameríska
pallbíla.
Amerísk gróðurhús, bæði upp að vegg og frístandandi.
Húsin eru úr bronsuðu áli, plasti og gleri, einfalt gler
eða tvöfalt.
Gerió góó kaup
°9 Wó^^^'dmmoðor
mm‘zr
Arutún Akopian _T
9jörið svo vel!