Morgunblaðið - 26.08.1982, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982
Páll Pétursson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins:
Ríkisstjórnin er
ábyrg fyrir útgáfu
bráðabirgðalaganna
„ÉG SKIL nú ekkert í Olafi að
sejya þetta. Ríkisstjórnin er aó
sjálfsögðu ábyrg fyrir útgáfu
bráðabirgðalaganna og sé ekki
með hvaða hætti hefði átt að
blekkja forsetann," sagði I’áll
l'étursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, í samtali
við Morgunblaðið í gær þegar
borin voru undir hann þau um-
mæli Olafs G. Kinarssonar,
formanns þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins, að forsetinn hlyti að
hafa verið blekktur þegar bráða-
birgðalögin voru gefin út um
helgina.
Páll segir einnig: „Það er
ríkisstjórnarinnar að koma
lögunum í gegn og það hefur
ekkert reynt á það hvort þau
hafa þingmeirihluta eða ekki
og í hvaða veru þau kynnu að
hafa þingmeirihluta. Ég sé
ekki að forseta beri nein
skylda til þess að kynna sér
það, við undirskrift bráða-
birgðalaga, hvort þau hafi
þingmeirihluta eða ekki.“
Sighvatur Björgvinsson, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins:
Veit ekki hvað hefur
farið fram á milli for-
seta og forráðamanna
stjórnarflokkanna
„ÉG GKT sem minnst um það
sagt, því ég hef hvorki eitt né
neitt cftir forseta í því efni og
veit ekki hvað hefur farið á milli
hans og forráðamanna stjórnar-
flokkanna. Mér þykir líklegt að
forseti hafi spurst fyrir um meiri-
hlutastuðning við bráðabirgða-
lögin en veit hinsvegar ekkert
um hvaða svör honum hafa verið
gefin,“ sagði Sighvatur Björg-
vinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins.
Sighvatur sagði einnig: „I
Dagblaðinu í dag er haft eftir
forseta að samkvæmt stjórn-
arskránni sé hann hafinn yfir
stjórnmál, þetta getur ekki
verið rétt eftir haft. Forseti Is-
lands hefur veigamiklum
stjórnmálalegum skyldum að
gegna. Hann veitir, meðal ann-
ars, eins og kunnungt er, um-
boð sitt til stjórnarmyndunar
og það þarf hans atbeina til
þess að lög öðlist gildi. Hins-
vegar ber forseta engin skylda
til þess að skýra obinberlega,
eða með öðrum hætti, frá þeim
viðræðum sem kunna að hafa
farið á milli hans og í þessu
tilfelli forsætisráðherra. Einn-
ig vil ég taka fram að það er
rangt að beina þessari spurn-
ingu til forseta Islands, það er
forsætisráðherra sem á að
svara þessari spurningu
Dagblaðsins."
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins:
Ráðherra, sem
undirritar bráða-
birgðalög ber alla
ábyrgð á
„ÉG HARMA það að Ólafur
skuli vera að blanda forseta ís-
lands í innbyrðis deilur í Sjálf-
stæðisflokknum," sagði Olafur
Ragnar Grímsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins.
Olafur Ragnar sagði einnig:
„Forseti íslands hegðaði sér í
alla staði hárrétt varðandi
bráðabirgðalögin. Forsetinn
hafði samband við mig um
kvöldmatarleytið á laugardag-
inn til að kanna afstöðu þing-
flokksins, eftir að við höfðum
lokið okkar síðasta fundi. Ég
tjáði forseta að allir þingmenn
Alþýðubandalagsins stæðu að
útgáfu bráðabirgðalaganna.
Mér er kunnugt um að forset-
inn aflaði einnig sömu upplýs-
inga frá forystu Framsóknar-
flokksins. Með því að leita eftir
þessu er forsetinn að gera
meira en honum ber, stjórn-
skipulega séð, þar sem sá ráð-
herra sem undirritar bráða-
birgðalögin ber alla ábyrgð á
þeim.
þeim
Ég tel að sá sem ber mesta
sök í þessu máli, ef um sök er
að ræða, sé Eggert Haukdal
sem upplýsir nú að hann hafi
allnokkru áður tekið ákvörðun
um að hætta stuðningi við rík-
isstjórnina, en ekki greint frá
því opinberlega, þrátt fyrir
ítrekaðar fyrirspurnir frétta-
manna og annarra stjórnmála-
manna. Það var því fullkom-
lega eðlilegt að forseti og
forsætisráðherra teldu Eggert
Haukdal enn stuðningsmann
ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir
bréfið. Fréttamenn höfðu á
síðustu vikum oft spurt hann
opinberlega, en hann neitaði
ávallt að svara því hvort hann
væri hættur að styðja ríkis-
stjórnina. Það er að mínu mati
einu augljósu blekkingarnar
sem hafa átt sér stað í þessu
máli. Hafi einhver blekkt, er
það Eggert Haukdal," segir
Ólafur Ragnar Grímsson að
lokum.
Stórskemmdur eftir árekstur við staur
Ökumaður nýrrar bifreiðar af Datsun-gerð missti stjórn á bíl sínum á Kleppsvegi í gær, með þeim
afleiðingum að bíllinn lenti á staur og kastaðist upp á umferðareyju og er stórskemmdur eins og sjá má
af myndinni.
Ökumaðurinn var á leið með bílinn úr tolli og var að flytja hann á vegum bifreiðaumboðsins, þegar
svona tókst til.
Ákæra gefin út í
Þverholtsmálinu
Magnús Hreggviðsson
RITSTJÓRASKIPTI verða á tíma-
ritinu Frjálsri verzlun innan
skamms.
Markús Örn Antonsson borg-
arfulltrúi lætur af ritstjórn
blaðsins og við tekur Magnús
Hreggviðsson viðskiptafræðing-
ur, hinn nýk eigandi Frjáls
framtaks hf. útgáfufyrirtækis
tímaritsins.
Breytingar verða á ritstjórn-
ÁKÆRA ríkissaksóknara á hend-
ur Hallgrími Inga Hallgrímssyni,
sem réðst á unga stúlku í Þver-
holti sl. vetur, er nú til meðferðar
í Sakadómi. Er Hallgrímur
ákærður fyrir tilraun til mannd-
áps, líkamsárás og tilraun til
nauðgunar, samkvæmt upplýsing-
um fleiri tímarita fyrirtækisins
á næstunni. Eins og fram hefur
komið verður Bryndís Schram
ritstjóri Tízkublaðsins Líf og
nýir menn munu taka við rit-
stjórn Iðnaðarblaðsins og Sjáv-
arfrétta og verða nöfn þeirra til-
kynnt síðar. Hins vegar verður
Steinar J. Lúðvíksson áfram rit-
stjóri íþróttablaðsins, en tals-
verðar breytingar eru áformað-
ar á því.
um sem Mbl. fékk hjá Jóni Abra-
ham Ólafssyni sakadómara.
Hámarksrefsing fyrir
manndráp eða tilraun til
manndráps er 16 ára eða ævi-
löng fangelsisvist, sama
hámarksrefsing er fyrir tilraun
til nauðgunar eða nauðgun, en
fyrir líkamsárás er hámarks-
refsing 16 ára fangelsisvist.
Hallgrímur situr nú í
gæsluvarðhaldi og rennur
gæsluvarðhaldið út 12. október.
Verjandi Hallgríms Inga var á
sínum tíma skipaður Örn
Clausen.
Barn fyrir bíl
DRENGUR á sjötta ári varð fyrir
bíl við húsið Austurbrún 37 í
gærdag, en samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar eru meiðsli hans
ekki talin alvarlegs eðlis.
Atvik voru með þeim hætti að
drengurinn hljóp út á götuna á
bíl sem ók suður Austurbrún.
Barnið var flutt á slysadeild.
Ritstjóraskipti á
Frjálsri verzlun
Launamálaráó BHM mótmælir kjaraskerðingunni:
„Nánast öfugmæli að hér
ríki frjáls samningsréttur“
MORGUNBLAÐINU barst i gær
eftirfarandi ályktun launamálaráðs
Bandalags háskólamanna:
Launamálaráð ríkisstarfs-
manna innan BHM mótmælir
harðlega þeirri skerðingu verð-
bóta sem felst í bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar frá 21. ágúst sl.
Hér er enn einu sinni gengið á
gerða samninga með lagasetningu,
en slíkar lagasetningar eru nú
orðnar svo algengar hérlendis, að
það er nánast öfugmæli að tala
um að hér ríki frjáls samnings-
réttur.
Nú hefur sú vísitöluskerðing,
sem ASÍ samdi um frá 1. septem-
ber, verið lögfest gagnvart öðrum
launþegum og er ASÍ í krafti
stærðar sinnar þar með fenginn í
hendur samningsréttur fyrir alla
aðra launþega í landinu. Ríkis-
starfsmenn hafa þó ekki fengið þá
launahækkun sem ASÍ samdi um,
en hún er talin vera um 9,5%.
Launamálaráð vill lýsa van-
þóknun sinni á því að fjármála-
ráðherra hefur ekki einu sinni lát-
ið svo lítið að gera tilraun til að
semja við ríkisstarfsmenn innan
BHM um endurskoðun aðalkjara-
samnings. Ríkisstarfsmenn innan
BHM fengu enga grunnkaups-
hækkun, þegar síðast var fjallað
um kjör þeirra í Kjaradómi í janú-
ar sl. og sá gífurlegi munur sem er
á launum ríkisstarfsmanna í BHM
og sambærilegra hópa á almenn-
um markaði hefur því enn aukist.
Ríkisstarfsmenn innan BHM
hafa sýnt mikið langlundargeð, en
öllum má þó ofbjóða, og verði ekk-
ert að gert hlýtur að koma til upp-
sagna.
Launamálaráð leggur þunga
áherslu á að .stór hluti ríkis-
starfsmanna innan BHM eru lág-
launamenn. Það eru því augljósar
ástæður fyrir þeirri miklu og vax-
andi óánægju og ólgu, sem nú er
innan aðildarfélaga BHM.