Morgunblaðið - 27.08.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982
3
Embætti yfirsakadómara:
Ráðherra gerir tillögu
um Gunnlaug Briem
LÍKLEGT er Lalið að Gunnlaugur Briem, sakadómari, verði skipaður yfir-
sakadómari, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun dómsmálaráð-
herra gera tillögu um Gunnlaug, og búist er við að hún verði lögð fyrir
forseta íslands í dag, Töstudag.
Þrír sóttu um stöðuna, en þeir Gunnlaugur Briem var skipaður
voru Gunnlaugur Briem sakadóm- sakadómari árið 1%1 og hefur
ari, Sverrir Einarsson sakadómari hann hæstan starfsaldur umsaekj-
og Hrafn Bragason borgardómari. enda.
Flugleiðir:
Tafir vegna mikill-
ar flugumferðar
í Bandaríkjunum
Leidir á stundum til seinkunar á vélum félagsins til
Evrópu, sem bíða eftir farþegum frá Bandaríkjunum
NOKKUÐ HEFUR VERIÐ um, ad Rugvélar Flugleiða hafi
tafizt í New York og Chicago, sem hefur síöan í mörgum
tilfellum leitt til þess, að vélar félagsins, sem fljúga héðan til
Evrópu, hafa beðið eftir farþegum frá Bandaríkjunum, og
töfin því farið í gegnum allt kerfið.
„Það eru nokkrir flugvellir í
Bandaríkjunum og þar með taldir
flugvellirnir í New York og Chic-
ago, þar sem umferð er skömmtuð,
þ.e. aðeins ákveðinn fjöldi véla fær
að fara um á hverjum tíma,“ sagði
Leifur Magnússon, framkvæmda-
stjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða,
í samtali við Mbl.
„Því kemur það iðulega fyrir, að
farþegar eru komnir út í vél á
réttum tíma og þær tilbúnar að
aka út á braut, að þeim er haldið í
töluverðan tíma. Getur verið um
að ræða hálftíma og upp í klukku-
tíma. Ástæðan fyrir þessu er ein-
faldlega sú, að loftrýmið er mett-
að. Flugumferðarstjórarnir koma
vélunum ekki út,“ sagði Leifur
Magnússon ennfremur.
Skúli Steinþórsson, flugstjóri,
sagði í samtali við Mbl., að síðast
þegar hann hafi verið í Bandaríkj-
unum, hafi tvær vélar Flugleiða
lent í því, að bíða um klukkustund
úti á braut. „Þetta getur verið
mjög erfitt fyrir farþega, þegar
mikill hiti er. Það er erfitt að kæla
vélarnar nægilega mikið niður,
þar sem ekki er hægt að vera með
loftræstikerfið á fullu,“ sagði
Skúli Steinþórsson.
„Þessar tafir geta valdið okkur
JNNLENT
erfiðleikum, vegna þess hvernig
flugrekstur okkar er uppbyggður.
Vélarnar koma að vestan á
morgnana og halda áfram til
Luxemborgar, en oft er ákveðinn
hluti farþega, sem ætlar að halda
áfram með vélum félagsins til
Skandinavíu eða Bretlands. Ef t.d.
um klukkustundar töf er að ræða
á vélunum að vestan, þá kemur
það stundum fyrir, að Evrópuvél-
arnar verða að bíða. Töf, sem
verður t.d. í New York, getur því
verkað keðjuverkandi í gegnurr
allt kerfið. Það má reyndar getí
þess, að langalgengasta ástæðai
fyrir töf Evrópuvéla hér á morgn
ana eru einmitt þessar tafir
Bandaríkjunum," sagði Leifu
Magnússon ennfremur.
Rallökumað-
ur kyrrsettui
ÍTALSKUR rallökumaður, Brum
l’enna, var kyrrsettur hér á landi
gær, vegna vangoldinna skulda vii
bílaleigu og vegna þess að hann va
talinn hafa tekið úr sambandi kíló
metramæli bifreiðar sem hann vai
með á leigu. Málið er nú í höndum
ríkissaksóknara.
Hefur maðurinn nú viðurkennt
að hafa átt við kílómetramæli
bílaleigubifreiðar og bilaleigan
krafðist greiðslu bóta. Hafa henni
verið greiddar um 35 þúsund krón-
ur. Ríkissaksóknari hefur nú mál-
ið til meðferðar.
Islensk ávísun leyst inn 1 Danmörku:
Brýtur í bága við lög
— segir Einar Jónsson hjá Sparisjóði Reykjavíkur
ÁVÍSHN að upphæð þrjú þúsund krónur, sem gefin var útaf Sparisjóði
Reykjavíkur, var leyst inn í Sparisjóði Jótlands fyrir skemmstu, en
samkvæmt íslenskum lögum er það óheimilt. Eftir að ávísunin hafði verið
gefin út var hún um tíma í umferð hér á landi, en síðan skaut hún upp
kollinum í Danmörku eins og áður sagði.
Að sögn Einars Jónssonar frá
Sparisjóði Reykjavíkur hefur
verið sent bréf á vegum stofnun-
arinnar til Danmerkur þar sem
skýrt var frá því að ekki væri
unnt að greiða andvirði ávísun-
arinnar því að það bryti í bága
við íslensk lög. Einar taldi að
hér hefði sennilega verið um
mistök að ræða sökum þess að
Dönum væri kunnugt um að
bannað væri að leysa inn ís-
lenskar ávísanir erlendis.
Loks sagði Einar að Sparisjóð-
ur Reykjavíkur væri í traustu
viðskiptasambandi við Sparisjóð
Jótlands. Af þeim sökum mætti
gera ráð fyrir því að þetta mál
ætti ekki eftir að draga dilk á
eftir sér, enda hefði sú upphæð
sem hér sé um að ræða ekki ver-
ið mjög há.
Yfir 26 þús. gestir í fyrrakvöld
Á SÝNINGUNA Heimilið og fjölskyldan ’82 höfðu komið 26.341 gestur
á miðvikudagskvöldið, að sögn eins starfsmanns sýningarinnar. Má
búast við að sú tala hafi hækkað um nokkur þúsund nú. Nú er frægasti
töframaður Sovétríkjanna kominn á sýninguna og hefur hann sýnt listir
sínar tvisvar á dag. Fyrir voru sovéskt akrobatapar og eldmaðurinn Roy
Frandsen, að ógleymdu tivolíinu, svo á sýningunni er sitthvað að
skemmta sér við.
Myndin er tekin í bás Flugleiða, sem hafa í samvinnu við Ferða-
skrifstofurnar Úrval og Útsýn boðið upp á skíðaferðir og hafa í
tilefni af því komið upp tölvuskermi í sýningarbás sínum, svo menn
geta bókað sig þar í ferðirnar. Stúlkurnar eru að útbúa og afhenda
merkispjöld á töskur og hefur það verið mjög vinsælt af gestum
sýningarinnar. Ljósmynd Mbl. KÖE
Útlit fyrir
góða kartöflu-
uppskeru
— segir Sveinberg Laxdal
á Túnsbergi við Eyjafjörð
„Uppskeran virðist ætla að verða í
meðallagi hér og sums staðar betri,“
sagði Sveinberg Laxdal, bóndi á
Túnsbergi á Svalbarðsströnd við
Eyjafjörð, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær. Sveinberg er
formaður Félags kartöflubænda við
Eyjafjörð. Sagði hann hljóðið nú
betra í mönnum en var í fyrra, en
væri ástandið jafn slæmt nú og var
þá, væri efnahagslegt sjálfstæði
manna búið að vera.
Sveinberg sagði í gærkveldi, að
það væri kalt og ekki að vita nema
frysti um nóttina. Hann sagði að
ef svo færi mætti segja að kart-
öflubændur hefðu sloppið fyrir
horn í ár. Raunar hefði vantað lít-
ið á að frysti fyrir röskri viku . Ef
á hinn bóginn héldist frostlaust
eitthvað enn, gæti uppskeran orð-
ið mjög góð.
Sveinberg sagði metár ekki hafa
þótt sérlega eftirsóknarverð vegna
offramleiðslu og tregrar sölu, en
með tilkomu verksmiðjunnar á
Svalbarðseyri væru komin upp
allt önnur viðhorf. Nú gæti verk-
smiðjan tekið við öllu umfram-
magni og framleitt franskar kart-
öflur. „Þessi verksmiðja er svo af-
kastamikil að hún getur fyllilega
annað landseftirspurninni, en ekki
aðeins því sem við framleiðum hér
á öðru stærsta kartöfluræktar-
svæði landsins, sem er með um
25% framleiðslunnar, 2.500 til
3.000 tonn,“ sagði Sveinberg að
lokum.
VELUX
þakgluggar gefa
meiri birtu-hreinna loft
WÍ
Fáanlegir í átta mismunandi stæröum.
Þéttir og vel einangraðir.
Veltigluggar, sem auðvelda þrif á rúðum.
Loftræsting möguleg þó gluggi sé lokaður.
Sérfræðingur frá VELUX verksmiöjunum verður í
syningarbas Völundar nr. 17 á Heimilissýningunni frá kl.
17.-20 í dag.
imburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTIG 1 S. 18430