Morgunblaðið - 27.08.1982, Qupperneq 12
mmn
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982
SIGL UFJÖRÐUR
Þö nokkur tíð-
indi að farið skuli
að salta hér síld“
„Bregðumst við
loðnubresti með
síldarsöltun“
— segir Geir Þ. Zoéga hjá Síldarverksmiðjum ríkisins
Táknræn mynd fyrir Siglufjtfrd í dag. Tóm þró við loðnubrædslu Síldarverksmiðja rikisins.
Loónan lætur ekki sjá sig, en hún befur haldið uppi atvinnulífinu á Siglufirði nokkur
undanfarin ár.
Gömlu byggingarnar fremst á rayndinni eru hús Hlutafélagsins Ásgeir Pétursson hf. og sú
þeirr'a sem er í miðið er hlutafélagið að gera upp sem síldarsöltunarhús.
- segir Birgir Steindórsson, stjórnarformaður Ásgeir Pétursson hf.
„I>AÐ I’YKJA þó nokkur tíðindi hér á Siglu-
firði að farið skuli að salta hér sild að nýju,
eftir að það hefur legið niðri að mestu síðan
1S65. t>að er raunar furðulegt að ekki skuli
hafa verið byrjað á þessu fyrr, sennilega er
það vegna hræðslu við nýtt síldarævintýri en
slíkt ævintýri þekkja Siglfirðingar vel frá
árum áður,“ sagði Birgir Steindórsson
stjórnarformaður hlutafélagsins Ásgeir Pét-
ursson hf. á Siglufirði, i samtali sem Morg-
unblaðið átti við hann nýlega.
Stjórnin er skipuð 3 mönnum, Birgir er
stjórnarformaður, meðstjórnendur eru
Konráð Baldvinsson og Guðmundur
Skarphéðinsson og Þórður Jónsson er
framkvæmdastjóri.
Birgir sagði einnig: „Við byrjum 15.
september og ætlum að byrja í smáum stíl,
með 12 til 15 stúlkur. Ætlunin er að salta
4 —6.000 tunnur, en það fer auðvitað eftir
því hvar síldin veiðist. Síldin sem hér kem-
ur í land er sú besta sem veiðist og er það
mikið atriði fyrir bátana að fá hana sem
besta því þeir eru bundnir ákveðnum
tonnafjölda.
Hlutafélagið á 3 hús hérna og erum við
byrjaðir að byggja eitt þeirra, gamla sölt-
unarhúsið, upp. Við höfum þegar keypt
færiband, síldarbjóð og öll þau áhöld sem
á þarf að halda og einnig erum við byrjað-
ir að kaupa tunnur. Skortur á iðnaðar-
mönnum hefur tafið uppbyggingu söltun-
arhússins og erum við með trésmiði frá
Akureyri í vinnu við þetta, ekki er at-
vinnuástandið hér á staðnum verra en það.
Við erum bunir að tryggja okkur að að
minnsta kosti 3 bátar leggi upp hjá okkur,
veiðist síidin hér á annað borð og hefur
okkar fyrirtæki og Síldarverksmiðjur
ríkisins, sem einnig eru að hefja söltun í
haust, hugsað sér að hafa samvinnu um
skiptingu afla og þjónustu við bátana.“
„Það er bjart framundan í sölumálun-
um,“ sagði Birgir Steindórsson að lokum,
„búið er að selja fyrirfram um 150.000
tunnur til Rússlands og talsvert magn til
Svíþjóðar.*
„VKKDID er svo hrikalega lágt að aðeins
væri ha'gt að reka verksmiðjurnar á núlli ef
loðnan fengist ókeypis uppúr bátunum. Verðið
var komið í um og yfir 9 dollara á próteinein-
ingu en nú þykir gott að ná 5 dollurum. Verð-
jöfnunarsjóðurinn var kláraður í fyrra þegar
verðið var 7,5 dollarar og tekin lán til að
halda því verði uppi. Dæmið er því ekki glæsi-
legt þó einhver loðna veiddist, sem reyndar er
ekki útlit fyrir," sagði Geir Þ. Zoega, verk-
fra-ðingur hjá Sílarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði, í samtali við Morgunblaðið nýlega.
Hjá fiskmjölsverksmiðju Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði vinna 45 manns
þegar loðnubræðslan er í fullum gangi, en
17 manns nú og vinna þeir að viðhaldi verk-
smiðjunnar og við að vinna úrgang frá
frystihúsunum.
„Þetta er mikil breyting," sagði Geir, „frá
því að vera mjög gjaldeyrisskapandi fyrir
þjóðina. Hér voru brædd 100—130.000 tonn
af loðnu frá því loðnuveiðar hófust fyrir
alvöru fyrir Norðurlandi sem gerir um 90
milljónir í gjaldeyri, eingöngu hjá verk-
smiðjunni hér á Siglufirði."
Geir sagði, þegar hann var spurður til
hvaða aðgerða Síldarverksmiðjur ríkisins
gripu til að mæta vandanum: „Eitt er víst
að við munum ekki gefast upp með tærnar
uppí loft. Við erum með smiðjur og höfum
farið meira inná almennan markað til að
skapa þar vinnu. Okkur hefur tekist að ná
hingað verkefnum og hefur það sýnt sig að
smiöjurnar eru samkeppnishæfar hvað
varðar verð og gæði framleiðslunnar. Við
smiðum mikið fyrir okkur sjálfa, fyrir aðr-
ar fiskmjölsverksmiðjur og á almennum
markaði.
Einnig hefur verið ákveðið að fara út í
síldarsöltun og er hugmyndin með því að fá
verkefni fyrir verksmiðjufólkið og nýta að-
stöðuna sem við höfum hérna. Söltunin
byrjar um miðjan september. Þetta er til-
í byrjun ágústmánaðar var haldinn að-
alfundur hlutafélagsins, sem stofnað var
1928, og var á fundinum ákveðið að endur-
vekja félagið, en starfsemi þess hefur legið
að mestu niðri um margra ára skeið.
Ákveðið var að auka hlutaféð og hefja síld-
arsöltun í haust. 20 aðilar taka þátt í
endurreisn félagsins og eru þeir að leggja
fjármagn í það til að reyna að lyfta staðn-
um eitthvað upp aftur, eins og Birgir orð-
aði það. Birgir sagði að þetta framtak
vekti athygli í bænum, vonandi yrði þetta
aðeins byrjunin og hægt verði að halda
áfram.
Birgir Steindórsson, stjórnarformaður Ás-
geir Pétursson hf., en félagið hyggst hefja
síldarsöltun í haust.
Geir Zoega, verkfræðingur hji Síldar-
verksmiðjum ríkisins i Siglufirði.
raun hjá okkur til að sjá hvað við fáum
mikið hráefni og hvort við getum ekki
framleitt góða vöru. Við gerum þetta með
minnsta mögulega stofnkostnaði og ef þetta
kemur vel út höldum við áfram. Pláss verð-
ur fyrir 30 söltunarstúlkur, hvort það verð-
ur allt notað verður að ráðast af aðstæðum.
Áhugi er fyrir því hjá bátunum að landa
hér því þeir telja sig fá betra uppúr sér með
því að landa hér á Siglufirði.
Við verðum í samvinnu við hitt fyrirtæk-
ið sem er að hefja síldarsöltun hér, Ásgeir
Pétursson hf., um móttöku og skiptingu
hráefnisins. Það er gott uppá nýtingu bát-
anna og aðstöðunnar í landi,“ sagði Geir Þ.
Zoega að lokum.