Morgunblaðið - 29.08.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982
49
Svo lýsir þú oft leikjum þar sem
sonur þinn, Gisli Felix, er í marki.
„Einhver sagði við mig, að þegar
Gísli verði vel, þá segði ég í míkró-
fóninn, Gísli Felix, en ef ekki þá
bara Gísli. Ég man til dæmis í
handboltanum síðasta vetur þegar
KR vann FH í bikarnum, þá held
ég að ég hafi aldrei sagt Felix
oftar á jafn stuttum tíma á
ævinni. Þetta hefur eflaust líka
komið fyrir hjá mér þegar við ís-
lendingar unnum Dani með 11
marka mun síðasta vetur. Þá lék
ég á als oddi.“
„Allt gengur vel hjá Bjarna Fel.,“
kannast þú við þessa setningu,
Bjarni?
„Jú, ætli það ekki. Það var eftir
að Jón Páll sagði: „Þetta er ekkert
mál fyrir Jón Pál,“ um leið og
hann hampaði Evrópumetinu i
réttstöðulyftu. Daginn eftir voru
menn farnir að segja: „Allt gengur
vel hjá Bjarna Fel.,“ niðri á sjón-
varpi.
Og þið eruð ekkert að hugsa um
að flytja úr Vesturbænum?
„Nei, ég held við flytjum aldrei
hann svo
Og nú býður Alfheiður kaffi og
með því. „Jú, vist er ég KR-ingur,“
svarar hún spurningu minni og
segir: „Ég er ein af KR-konunum,
er í bökunarnefndinni. Nei, þeir
koma aldrei á réttum tíma í mat
og þetta er eilífur þvottur, en það
er allt í lagi,“ bætir hún við og
hlær.
En þú Gísli. Færðu oft að heyra
einhverjar glósur um pabba þinn eft-
ir leiki?
„Jú, en ég hef bara lúmskt gam-
an af því“.
Hvað er á döfinni hjá þér í hand-
boltanum?
„Nú er ég að fara út með KR til
Noregs og Danmerkur. Það er 10
daga túr og við leikum 15 leiki, þar
af sjö leiki á einum sólarhring.
Það verður á stóru móti í Noregi,
sem stendur yfir í 24 tíma og er
haldið árlega. Það verður rólegra í
Danmörku. Fimm leikir á átta
dögum.“
austur yfir læk,“ segir Álfheiður
og Bjarni bætir við: „Vesturbæ-
ingar flytja aldrei austur yfir læk
nema nauðugir. Ég veit í það
minnsta ekki um neinn, sem hefur
gert það og ég get ímyndað mér að
flestir komi þeir aftur, sem það
geta.“
Og allt gengur vel hjá Bjarna Fel.
„Já, ég get ekki sagt annað,“
svaraði Bjarni og það var kominn
tími til að þakka fyrir kaffið og
kveðja fjölskylduna á Birkimel 8 í
Vesturbænum. Leikurinn á Skag-
anum endaði með jafntefli, 1—1.
Mig rámaði eitthvað í að Haraldur
hafi sagt í Lesbókinni að Gísli
væri sá, sem réði ríkjum á heimil-
inu. „Það snérist alla vega allt í
kringum hann,“ segir Álfheiður,
„og ég hef ekki fengið neitt af
völdunum til baka,“ segir Bjarni
Fel.
— ai
Sýning helgarinnar
28.—29. ágúst
í sýningarsalnum viö Rauðageröi.
Opið frá kl. 2—5.
6\b<
V'
4*
í dag sýnum viö hina stórglæsilegu
Datsun Nizzan Cherry:
3ja dyra 1000 cc
' 3ja dyra 1500 cc
3ja dyra 1500 cc special
5dyra 1300 cc
Nýgerð — gjörbreyttur bíll
meö frábæra aksturseiginleika
og á frábæru veröi!
Einnig verða sýndir:
0 Datsun King Cab, þessi með konunglega kraft-
inn og snerpuna.
0 Subaru jeppinn, sem er ekki aöeins búinn
kostum allra bestu jeppa, heldur er hann einnig
búinn öllum kostum fólksbílsins.
0 Wartburg, þessi ódýri sem fæst með svo stór-
kostlegum greiðslukjörum að þú verður að fá upp-
lýsingar um þau frá fyrstu hendi.
0 Stúdentakadilakkinn, (Trabant) þessi sem
kostar ekki nema u.þ.b. 47þúsund kr. splunkunýr,
beint úr kassanum.
0 Notaðir, i/el meö farnir bílar.
Ingvar Helgason
Sýningarsalurinn v/ Rauöagerði.
Sími 33560.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
O
Þl AlTiI.VSIR l M AI.I.T
I.AND ÞF.GAR Þl Al'G-
I.ÝSIR I MORGlNBI.AfilNl