Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 25
Hljömaveit Björgvins HalMórseonar á danaleik ( Logalandi í Reyk-
holtsdal á laugardagskvöldiö var.
Gerska ævintýrið
byrjaöi í Hólminum
Hljómsveit Björgvins Halldórs-
sonar og Úllen Dúllen Doff-revíu-
flokkurinn hafa feröazt um landið
aö undanförnu. i 20. sinniö voru
þeir í Logalandi í Reykholtsdal og
sagöi Björgvin í samtali viö Mbi.,
aö hljómsveitin væri komin í gott
form fyrir Rússlandsferöina.
Reyndar hrjáöi þá mest þessa
stundina tímaleysi til æfinga, þar
sem þeir heföu komiö svo víöa
fram undanfariö, og mikil ferðalög
fylgdu þessu. Sagöi Björgvin, aö
þetta væri einna bezta bandiö, síö-
an hann byrjaöi á þessum popp-
bransaferli sínum. Valinn maöur í
hverju rúmi. Þessi tilvonandi
Rússlandsferö væri sennilega
toppurinn á ferli sínum.
Magnús Kjartansson, annar af
hljómborösleikurum hljómsveitar-
innar, sagöi, aö þau væru um 14,
sem væru í þessari landsreisu,
með róturum og Ijósasýningar-
manni. Byggju þau í bíl, sem væri
eins konar hótel á hjólum og heföi
hópurinn því kynnzt vel á feröalag-
inu. Þeir væru alltaf aö fá fréttir af
Rússlandsferðinni, og hún heföi
eiginlega byrjaö, þegar þeir létu
bólusetja sig, „samkvæmt land-
læknisráöi" gegn mænuveiki í
Stykkishólmi, þegar þau voru þar
um daginn.
Tíu þúsund
manna kór
ÞAÐ gerist ekki á hverjum degi að
fleiri þúsund manns syngi einum
rómi. Þetta átti sér þó stað á
Landsmóti hestamanna norður í
Skagafirði á dögunum. Eftir að
landsmótsgestir höfðu látið gamm-
inn geisa á skeiðvellinum á daginn,
„ísland ögrum skorið". Guðlaugur
Tryggvi Karlsson gefur sig allan á
vaíd sönggyðjunni, enda ekkert
áhlaupaverk að stjórna 10 þúsund
manna fjöldasöng.
LjíovwlKJ.
komu þeir saman á kvöldvökum og
tóku lagið að gömlum og góðum
sið. Ýmsar sögur fuku einnig eins
og títt er, þegar hestamenn hittast,
enda var kvöldvökustjóri hinn góð-
kunni hestamaður Gunnar Eyj-
ólfsson. Á myndinni sjást fjölda-
söngstjórarnir Guðiaugur Tryggvi
Karlsson, hagfræðingur, og Oddur
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri,
stjórna hinum volduga kór. Um tíu
þúsund manns sóttu landsmótið og
megnið af því fólki kom á kvöld-
vökuna, þannig að þetta var meiri-
háttar fjöldasöngur enda mun
hafa tekið undir í fjöllum norðan-
lands kvöldið það.
„Allir krakkar“
Leiktækin við sýninguna Heimilið ’82, sem Kaup-
stefnan stendur fyrir, eru skemmtileg. Svo er
a.m.k. að sjá á svipnum á krökkunum á myndinni.
Sá elzti þeirra er einn forráðamanna Kaupstefn-
unnar, Pétur Sveinbjarnarson í Aski.
„Fannst Anker alþýð-
legur og skemmtileguru
Sagði Sigurður Jóhann Ágústsson
sem fékk ráðherrann í heimsókn sl. mánudag
Þegar Anker Jörgensen, forsæt- ferð á dögunum, lét hann í ljós ósk
isráðherra Danmerkur, var hér á um að fá að skoða verkamannabú-
Pegar Anker fór um Hólahverfið f fylgd Gaðjóna Jónssonar, þyrptist að
hópur yngri kynslóðarinnar. Hér má sjá Anker og ungan mann í óformlegum
en diplómatískum viðræðum um knattspyrnulistina og önnur þýðingarmikil
málefni. Talsmenn viðræðuaðila hafa ekkert látið uppskátt um einstök efnis-
atriði, en hermt er að viðræðurnar hafi verið hinar gagnlegustu.
staði. Stjórn Verkamannabústaða
brást vel við ósk ráðherra og kom
því svo fyrir að hann fengi séð slík-
an bústað í Hólahverfi, þar sem
byggðar hafa verið 60 íbúðir fyrir
stærri fjölskyldur.
Sigurður Jóhann Ágústsson,
blikksmiður, bauð Anker að skoða
vistarverur sínar og fjölskyldu
sinnar að Hólabergi 52. Við rædd-
um við Sigurð til að forvitnast lítil-
lega um heimsókn þessa:
„Já, hann stoppaði hjá okkur í
rúman hálftíma á mánudaginn,"
sagði Sigurður, „og lét mjög vel af
íbúðinni. Sjálfur kvaðst hann vera
verkamaður og búa í verkamanna-
bústað eins bg ég. Hann spurði mig
meðal annars um störf mín og kjör
svona almennt. Mér fannst Anker
óvenju alþýðlegur maður, þægi-
legur og skemmtilegur viðræðu."
Sigurður sagði að síðar um dag-
inn hefði þeim verið boðið að sitja
kvöldverðarboð með forsætisráð-
herranum að Hótel Sögu. Þetta
hefði verið afskaplega skemmtileg
tilbreyting frá hinu daglega amstri,
enda væri það ekki á hverjum degi,
sem erlendir þjóðarleiðtogar litu
inn á Hólabergi 52.
Anker hefur sitthvað til málanna að leggja, enda býr hann sjálfur f verkamannabústöðum og lítur á sig sem
verkamann, þrátt fyrir aðrar mannvirðingar meðal danskra.