Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 17
Séð yfir hluta súlubyggðarinnar á kolli Eldeyjar, en það er mjög tignarlegt að horfa yfir byggðina þar, tugi þúsunda af súlum með sitt ábúðannikla fas. Ljósnjnd Mhl. Árni Johnsen. meðan verið var að koma fyrir stigafestingunum var sá sem hékk í kengjunum hverju sinni tengdur í öryggisband sem lá niður á syll- una fyrir neðan og þar héldu menn stíft við bjargmanninn. Þetta var tafsamt verk og ekki bætti úr að norðvestan kaldi næddi um bergið og síðasti kaflinn lá í forsælu á þessum tíma dags- ins. Bjargmennirnir voru því orðnir ærið kaldir þegar erfiðasti hjallinn var klár til uppgöngu, en þegar Siggi minkur var fyrstur kominn á brún í stiganum góða var leiðin tiltölulega auðfarin. Að vísu var stiginn ekki eins stöðugur og æskilegt hefði verið, því hann rambaði ekki aðeins fram og til baka þar sem hann reis lóðréttur 15 metra í loft upp, eins og 6 hæða blokk, heldur dansaði hann hrein- lega rúmbu með miklum tilþrifum vegna þess að. hann var aðeins festur efst og neðst auk þess að hliðarstög voru á honum neðar- lega. Um kl. 3 voru allir komnir á brún, 18 manna harðskeytt lið, en í leiðöngrum sem þessum ræður úrslitum að traustir og hæfir bjargmenn séu til staðar. Það voru Valur Andersen, Siggi minkur (Sigurður Sigurbergsson), Harald- ur Geir Hlöðversson, Þorkell Húnbogason, Hörður Hilmisson, Ragnar Jónsson, Hörður Guð- jónsson og Hlöðver Johnsen, auk leiðangursstjóra, sem sinntu störfum bjargmanna. Aðrir leið- angursmenn voru sjónvarpsmenn- irnir Örn Harðarson, Páll Reyn- isson kvikmyndatökumaður og Jón Arason hljóðupptökumaður, Olgeir Sigmarsson jarðfræðingur, Halldóra Filippusdóttir flugfreyja hjá Flugleiðum, en hún er fyrsta konan í sögunni sem klífur Eldey, Hjálmar R. Bárðarson siglinga- málastjóri, en hann á sæti í Nátt- úruverndarráði, Páll Steingríms- son kvikmyndatökumaður, Trausti Tryggvason og Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgun- blaðsins. Á leiðinni upp hafði Olgeir. jarðfræðingur tekið nokkur sýni af bergi Eldeyjar, en það hefur aldrei verið rannsakað af vísinda- mönnum. Þegar allir voru komnir SJÁ NÆSTU SÍÐU Trilhibáturinn Þórarinn dólar nndir Eldey. Súla lendir á bsli í austurslakka Eldeyjar. Eldeyjarfarar á flá að kvöldi dags, en ládautt var við Steðjann þar sem Trani í Görn lagði það til að flytja fólkið um borð í Bryndísi og Þórarin, en báðir bátarnir biðu daginn eftir leiðangursmönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.