Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 22
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982
Bla(5burdaifólk óskast!
Austurbær Skólavörðustígur. Laugavegur neðri Ingólfsstræti U Laugarásvegur Lindargata fra 2-24 Úthverfí 4% Gnoðarvogur Selvogsgrunnur fra 44—88. Teigasel Skipholt frá 1—50 Stigahlíð Vesturbær KÓPavo9ur frl vesiurpær Alfhólsvegur Granaskjol frá 54 135 Garðastræti Tra 04 pplýsingar í síma 5408
Sjötugur á morgun:
Jónas Jónsson
framkvæmdastjóri
Á morgun, mánudag, verður
Jónas Jónsson, framkvæmdastjóri
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unnar hf. í Reykjavík, sjötugur.
Jónas fæddist 30. ágúst 1912 á
Seyðisfirði, sonur hinna merku
sæmdarhjóna Jóns Gunnlaugs
Jónassonar, málarameistara og
síðar kaupmanns á Seyðisfirði, og
konu hans Önnu Sigmundsdóttur.
Jón, faðir Jónasar, hlaut fyrstur
manna á íslandi fullgild réttindi
sem málarameistari. Þá iðn hafði
hann numið í Noregi. Síðat setti
Jón á fót verzlun á Seyðisfirði og
rak hana jafnframt því sem hann
lagði stund á málaraiðnina.
Jónas lauk prófi frá Verzlun-
arskóla Islands árið 1931. Að námi
loknu starfaði hann við verzlun
föður síns, þar til hann, árið 1938,
réðst sem bókhaldari og gjaldkeri
til Síldarbræðslunnar hf. á Seyð-
isfirði.
Það var vorið 1942, að fundum
okkar Jónasar bar fyrst saman
austur á Seyðisfirði. Var ég þar á
ferð ásamt Hafsteini heitnum
Bergþórssyni til að semja um
kaup á Síldarbræðslunni hf. Mér
er enn í fersku minni hversu vel
mér leizt strax á þennan unga
efnilega mann, en hann var þá,
eins og áður segir, bókhaldari og
gjaldkeri verksmiðjunnar.
Árið 1943 var Jónas ráðinn
framkvæmdastjóri Stldarbræðsl-
unnar hf. Síðar gerðist Jónas einn
af hluthöfum í félaginu. Með
okkur Jónasi tókust brátt mjög
náin kynni samfara vináttu, sem
aldrei hefur borið skugga á í þau
40 ár, sem við höfum þekkzt. Ég
tel, að það hafi verið mér mikil
gæfa að kynnast slíkum mann-
kostamanni.
Árið 1953 var Jónas ráðinn
framkvæmdastjóri Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar hf. hér í
Reykjavík. Var hann fram-
kvæmdastjóri beggja félaganna til
ársins 1956, er Síldarbræðslan hf.
á Seyðisfirði var seld.
Er Jónas hafði tekið við fram-
kvæmdastjórn félagsins árið 1953
tók félaginu brátt að vaxa fiskur
GÓÐ ÞJÓNUSTA
TRAUST VIÐSKIPTI
ELDHUSVAL S/F
BRAUTARHOLTI 6 — 105 REYKJAVÍK SÍMI 29280
Ef þig vantar sérsmídaða eldhúsinnrétt-
ingu, smíðaöa á íslandi, þá er Eld-
húsval ávallt í leiðinni.
Eldhúsval sf.
Þórskaffí Brautarholti 6
-S
Brautarholt
Víðishúsið
Laugavegur
Leitið verðtllboða, gerið samanburð, sýningareldhús á staðnum
Sérhæfum okkur í gerð
eldhúsinnréttinga, bjóöum
upp á framúrskarandi fal-
legar eldhúsinnréttingar.
Einnig margar gerðir út-
dreginna skápa auk fjölda
fylgihluta.
Komum á staöinn og
teiknum eldhúsið í sam-
ráöi við óskir kaupanda.
Veljið
íslenzkt
um hrygg. Verksmiðjan, sem fé-
lagið átti að Kletti, var mjög
ófullkomin og vanbúin fiskimjöls-
verksmiðja. Allur vélbúnaður
verksmiðjunnar var endurbættur
og afköstin aukin, og öll
verksmiðjan smám saman færð í
það horf sem bezt gerðist. I öllum
þessum framkvæmdum kom
glöggt í ljós, að Jónas bjó yfir
þeim hæfileikum, sem bezt prýða
góðan stjórnanda. Hann hefir alla
tíð verið vakinn og sofinn í starfi
sínu.
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an hf. keypti fjóra nýsköpunar-
togara og gerði þá út um 10 ára
skeið. Árið 1963 keypti félagið
Faxaverksmiðjuna í Örfirisey, og
var hún endurbyggð og bætt að
verulegu leyti. Tveimur árum síð-
ar var flutningaskipið „Síldin"
keypt til þess að flytja síld af fjar-
lægum miðum og afla þannig
verksmiðjunum hráefni, og kom
skipið í góðar þarfir á meðan síld-
arinnar naut við. Auk þess var
„Síldin" notuð til þess að flytja út
lýsi. Skipið var síðan selt úr landi
þegar síldin hvarf af íslandsmið-
Fyrir alllöngu benti flest til
þess, að erlendir kaupendur vildu í
framtíðinni heldur kaupa fiski-
mjöl ósekkjað, og var raunar útlit
fyrir að reynzt gæti erfiðleikum
bundið að selja sekkjað mjöl á
helztu mörkuðum V-Evrópu. Þetta
hefur síðan komið á daginn og
reynzt rétt. Árið 1977 voru því
reistir tankar fyrir ósekkjað mjöl
við verksmiðjuna í örfirisey með
tilheyrandi útskipunarbúnaði,
sem flytur mjölið beint úr mjöl-
tönkunum í lestar flutningaskips.
Tankar þessir eru af fullkomn-
ustu gerð þannig að blöndun og
kæling á mjölinu er mjög auðveld
og er hægt að fylgjast með hita-
stigi þess af sjálfvirkum hitamæl-
um. Þá er þar búnaður fyrir
sjálfvirka prufutöku, og við út-
skipun fer mjölið í gegnum sjálf-
ritandi vog.
Fyrrgreint ár voru reistir 6
tankar, en á árinu 1980 var fjórum
tönkum bætt við. Heildar tank-
rými er nú u.þ.b. 2200 tonn af
ósekkjuðu mjöli.
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an hf. er eina verksmiðjan hér á
landi sem byggt hefur slíkan bún-
að fyrir geymslu á ósekkjuðu
mjöli.
Af þeim fáu atriðum sem hér
hefur verið drepið á, má ljóst vera
að Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an hf. hefur eflzt mikið og dafnað
vel undir stjórn Jónasar. Af fram-
sýni, atorku og árverkni hefur
honum tekizt að verja félagið
þeim áföllum sem á undanförnum
árum hafa svo mjög sett svip sinn
á rekstur flestra fyrirtækja, er í
sjávarútvegi starfa.
AUGLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF