Morgunblaðið - 29.08.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982
67
Á engan tel ég hallað, þótt ég
leyfi mér að fullyrða, að Jónas
Jónsson sé sennilega hæfastur
þeirra, sem stjórna verksmiðjum,
er vinna mjöl og lýsi hér á landi.
Auk hins umfangsmikla fram-
kvæmdastjórastarfs, hefur Jónas
gegnt fjölmörgum trúnaðarstörf-
um, og skulu aðeins nokkur þeirra
nefnd hér.
Hann átti sæti í bæjarstjórn
Seyðisfjarðar í átta ár, í stjórn
Félags íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda, Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna og Félags ís-
lenzkra fiskimjölsframleiðenda
um margra ára skeið. Hann á sæti
í stjórn Vinnuveitendasambands
Islands, í stjórn Verðlagsráðs
sjávarútvegsins og í stjórn Verð-
jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Jón-
as var sæmdur riddarakrossi
Fálkaorðunnar 17. júní 1976.
Árið 1955 kvæntist Jónas Krist-
ínu, dóttur Ingvars Sigurðssonar,
cand. phil., og konu hans, Mörtu
Einarsdóttur.
Þau Kristín og Jónas eiga tvö
mannvænleg börn, Jón Gunnlaug,
cand. med., en unnusta hans er
Birna Sigurbjörnsdóttir, cand.
jur., og Ingu Mörtu, hjúkrunar-
fræðing, gift Jónasi Teitssyni, vél-
stjóra.
Hið glæsilega heimili þeirra
Kristínar og Jónasar að Laugar-
ásvegi 38, er þau þyggðu fyrir
rúmum áratug, ber glöggt vitni
um smekkvísi og reisn húsráð-
enda.
Á þessum merku tímamótum
árna ég, fyrir mína hönd og fjöl-
skyldu minnar, vini mínum, Jón-
asi, og fjölskyldu hans allra heilla
með ósk um að hann megi eiga
langa og farsæla lífdaga.
Ingvar Vilhjálmsson
Jónas Jónsson, framkvæmda-
stjóri, verður sjötugur á morgun,
hinn 30. ágúst.
Kynni okkar hófust er hann
varð framkvæmdastjóri Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar hf. í
Reykjavík árið 1953. Höfum við
báðir starfað hjá því fyrirtæki síð-
an, og er mér fyrir löngu ljóst hver
gæfa það var mér, þá ungum að
aldri, að fá að kynnast og eiga
samleið með svo heilsteyptum
heiðursmanni, sem Jónas er.
Allir, sem Jónasi hafa kynnzt,
þekkja atorku hans og brennandi
Benidorm
Beint
leiguflug,
góöir
gististaöir
Benidorm
Brottförm 15. september.
Nokkur sæti laus.
áhuga í störfum fyrir Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjuna hf. Það
vita engir betur en þeir, sem vinna
undir daglegri handleiðslu hans
þar. En vegna starfa hans við
þetta fyrirtæki og þess trausts
sem hann hefur áunnið sér á þeim
vettvangi, hefur hann verið kjör-
inn til margra trúnaðar- og
stjórnunarstarfa, bæði á sviði at-
vinnu- og félagsmála.
En hæfileikar Jónasar og per-
sónulegir mannkostir njóta sín þó
e.t.v. hvergi betur en í því fyrir-
tæki, þar sem hann hefur verið
yfirmaður svo lengi. Öll samskipti
hans við starfsfólkið einkennast
af hreinskilni og einurð, en eru um
leið mótuð af því hlýja hjartalagi
og ljúfmennsku, sem eru ríkir
þættir í fari Jónasar. Málin eru
leyst þegar í stað og allt, sem hann
hefur sagt, stendur sem stafur á
bók. Vandaðri og hreinskiptnari
mann er vart hægt að hugsa sér.
Þessir persónulegu eiginleikar
Jónasar sem stjórnanda eru án
alls efa skýringin á því, hversu
margir fastir starfsmenn hafa
unnið árum og jafnvel áratugum
saman hjá Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni hf.
Sjálfur á ég og fjölskylda mín
Jónasi ómældar þakkir að gjalda
fyrir órofa vináttu og margháttað-
an drengskap. En á þessum tíma-
mótum vil ég fyrir hönd starfs-
mannanna allra færa honum og
ástvinum hans hugheilar árnaðar-
óskir, með innlegri þökk fyrir
samstarf og samskipti liðinna ára.
Megi hann enn um langa framtíð
njóta hamingju, heilsu og krafta
til starfa í þágu þeirra verkefna
sem honum sjálfum eru hugleikn-
ust, og sjaldan hafa skipt þjóðina
alla meiru en einmitt nú.
Þorsteinn R. Helgason.
Afmælisbarnið dvelur erlendis.
stál-orkaí:s:
Leigufyrirtæki
Höfðar þjónusta okkar til
þín? Veltu því fyrir þér.
Viö höfum yfir aö ráöa þjónustubifreið m/öllum bún-
aöi, sem við getum sent hvert á land sem er ásamt
starfsmönnum. Er fyrirtækið þitt yfirhlaöiö verkefn-
um? Hefur þú oröiö aö vísa frá þér verkefnum vegna
mannaleysis?
Ef svo er, haföu þá samband viö okkur og viö veitum
þór tímabundna aöstoö. Athugaðu þaöl!
Sérverslun i meira
en hálfa öld
. . Reiðhjólaverslunin ~
ORNINNP*
Spítalastíg 8 og vió Óóinstorg símar: 14661,26888
Allir fylgihlutir sem sjást á myndunum fylgja meó, svo sem, Ijósabunadur, las, standari, pumpa, teinaglit o. fl. o. fl.
Gerið verðsamanburð
lOaraabyrgö
Goðgreiöslukjör
MEST SELDU HJÓLIN
Það er ekki að ástæðulausu að Kalkhoff-hjólin eru lang mest seldu
reiðhjólin á íslandi ár eftir ár. Hjá Kalkhoff fara saman þýsk nák-
væmni og vandvirkni og veitir verksmiðjan því 10 ára ábyrgð á stelli
og gaffli. Vegna mjög hagstæðra samninga við Kalkhoff-Werke
GmbH, stærstu og virtustu reiðhjólaverksmiðju Vestur-Þýskalands,
bjóðum við nú í haust Kalkhoff-reiðhjólin á ótrúlega lágu verði. Hér
eru örfá sýnishorn af úrvalinu.
Gerð nr. 6453 5 gíra, 53 cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Silfur
Verðkr. 3.0W.-
Gerðnr. 2622 Wgíra, 53cmstell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Burgundy-rautt.
Verðkr. 3.515.-
Gerð nr. 6411 10 gíra lúxus útgáfa, 58cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Metal-blátt
Verð kr. 3.
Til vidmióunar um val a stærri reidhjól
Gerð nr. 2167, án gíra, kr. 2.013,-
Gerðnr. 2171, 3 gira, kr. 2.279,-
Gerð nr. 5602, án gira, kr. 1.952.-
58 cm stell. Dekk: 26x1 1/2 nema
á gerð nr. 5605:26x1.75 (Mjög breið)
Litir: Silfur, blátt.
Gerð nr. 6305 5 gíra kr. 2.1,1,5.-
Gerð nr. 6309 10 gíra kr. 2.630.-
48 cm stell fyrír aldur frá 9 ára.
Dekk: 24x1 3/8 (24x1 3/8)
Litir: Silfur, rauð, blá.
Gerðnr. 6408 Wgíra, 58cmstell. Dekk:27x1 1/4
Litur: Silfur
Verðkr. 2.535,-
Sendiim í póstkröíu um allt land
Þekking - Þjónusta - Reynsla
innaníotarmal 70—73, 74-78, 79 oy hærri j
stellhæd í cm 48 cm, 53 cm, 58cm S