Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
Lítið ber í milli í viðræðum BSRB og ríkis:
Reynt til þraut-
ar að ná sam-
komulagi í dag
VIÐRÆÐUNEFNDIR Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, BSRB,
og ríkisins voru á samningafundi hjá
sáttasemjara í gærdag og fram á
nótt, en endar náðust ekki saman,
þótt tiltölulega lítið beri í milli, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Fjármálaráðherra lagði fram
tilboð sl. föstudag, sem gerir m.a.
ráð fyrir 4% grunnkaupshækkun
nú þegar og síðan 2,2% hækkun í
byrjun næsta árs. Þessu tilboði
svaraði samninganefnd BSRB með
gagntilboði, sem m.a. gerir ráð
fyrir nánari viðræðum um ýmis
önnur atriði kjarasamningsins.
Á síðustu dögum og vikum hafa
ennfremur staðið yfir viðræður
einstakra félaga og bandalaga
innan BSRB um nýjan sérkjara-
samning við ríki og Reykjavíkur-
"borg og er málum nú svo komið, að
samningar liggja á borðinu í öll-
um tilfellum, nema hjá lögreglu-
mönnum og hjá bréfberum.
Aðilar hafa báðir lýst yfir
áhuga sínum, á að ná endum sam-
an fyrir mánaðamót, þ.e. miðnætti
í nótt og verður fundum því haldið
áfram í dag og reynt til þrautar.
Eins og skýrt hefur verið frá
hafa meinatæknar og röntgen-
tæknar sagt störfum sínum laus-
um frá og með 1. september, þ.e. á
morgun, fáist ekki fram lagfær-
Manville-fyrirtækið gjaldþrota:
Ástæðan tugþúsundir skaða-
bótakrafna vegna heilsutjóns
ingar á þeirra kjörum í samræmi
við þær lagfæringar, sem aðrar
heilbrigðisstéttir hafa fengið á
undanförum mánuðum. Ein höf-
uðkrafan er að fá fjögurra launa-
flokka hækkun, auk ýmiss konar
lagfæringa annarra. Fulltrúar
ríkisins hafa ekki ljáð máls á því,
að semja sérstaklega við meina-
tækna og röntgentækna á sama
tíma og heildarkjarasamningar
standa yfir og hafa lýst þeirri
skoðun sinni, að umræddir hópar
verði að falla undir ákvæði samn-
inga þeirra, sem þeirra heildar-
félög gera, þ.e. Starfsmannafélag
ríkisstofnana og Starfsmannafé-
lag Reykjavíkurborgar. Það bend-
ir þvi fátt til annars, en að meina-
tæknar og röntgentæknar gangi
út af sjúkrastofnunum landins á
miðnætti í nótt
Heimsþekktir vísindamenn á þingi hér
Norrænt þing um lífeðlis- og lyfjafræði, hið 17. í
röðinni, var sett á Hótel Loftleiöum í Reykjavík á
sunnudaginn. Þingið sækja fjölmargir vísinda-
menn, nokkrir heimsþekktir, þeirra á meðal þrír
nóbelsverðlaunahafar. Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, var meðal gesta við þingsetning-
una. Nánar verður greint frá þinginu í Mbl. á
morgun. Myndin var tekin við þingsetninguna.
Stærsta
skíðalyfta
landsins
í notkun
Á SKÍÐASV/EÐI KnalLspvrnufé-
lags Reykjavíkur í Skálafelli
standa yfir tniklar framkvsmdir,
en þar er nú verið að koma upp
skíðalyftu sem verður sú stærsta
sinnar tegundar hér á landi.
Áætlað er að lyftan verði
tekin í notkun áður en skíða-
vertíðin hefst í vetur, en þetta
verður stólalyfta sem kemur til
með að geta flutt 1200 manns á
klukkustund. Hér er um að
ræða framkvæmdir sem koma
til með að kosta á bilinu 4—5
milljónir króna, en þessi lyfta
er eins og þær stólalyftur sem
fyrir eru í landinu, framleidd
af fyrirtækinu Doppel Mayr í
Austurríki.
Hefur ekki áhrif á rekstur Kísilidjunnar á næstunni a.m.k.
STJORN bandaríska stórfyrir-
tækisins Manville Corporation,
sem áður hét Johns Manville,
lýsti á föstudaginn yfir gjald-
þroti fyrirtækisins. Fyrirtækið er
í gegnum dótturfyrirtæki eignar-
aðili og þátttakandi í rekstri Kís-
iliðjunnar við Mývatn. Stjórn
Manville hefur afhent fyrirtækið
til meðferðar skiptaréttar í New
York-ríki í Bandaríkjunum. Er
óskað greiðslustöðvunar, nauð-
arsamninga og fjárhagslegrar
endurskipulagningar fyrir réttin-
um.
Ákvörðun þessi kemur á óvart,
þar eð rekstur fyrirtækisins hefur
gengið fremur vel að undanförnu,
en stjórnin tilgreinir þær ástæður
fyrir ákvörðun sinni, að skaða-
bótakröfur á hendur fyrirtækinu
vegna heilsutjóns af völdum asb-
ests, séu orðnar því óbærilegar.
Alls hafa nú verið höfðuð um
16.500 skaðabótamál vegna þessa,
Gunnlaugur Briem skip-
aður yfirsakadómari
FORSCTI íslands hefur að til-
lögu dómsmálaráðherra skipað
Gunnlaug Briem í embætti yfir-
sakadómara í Reykjavík frá og
með 1. september næstkomandi.
Gunnlaugur Briem
Tekur Gunnlaugur við embætti
yfirsakadómara af Halldóri
Þorbjörnssyni, sem fyrir
skömmu var skipaður dómari
við Hæstarétt.
Gunnlaugur Briem er fæddur
á Sauðárkróki 8. nóvember 1922
og er sonur hjónanna Kristins
Pálssonar kaupmanns og Krist-
ínar Björnsdóttur. Gunnlaugur
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1943 og
lagaprófi frá Háskóla íslands
1949. Sama ár varð hann full-
trúi hjá sakadómaranum í
Reykjavík en stundaði fram-
haldsnám í réttarfari í opinber-
um málum í Svíþjóð og Dan-
mörku 1950 til 1951. Hann varð
héraðsdómslögmaður 1952 og
skipaður sakadóntari í Reykja-
vík 26. maí 1961.
Kona Gunnlaugs er Hjördís
Ágústsdóttir og eiga þau fjögur
börn.
og fjölgar þeim um 500 á mánuði.
Stjórnin reiknar með því að þau
verði orðin um 32.000 innan
skamms. Fyrirtækið hefur lengi
framleitt einangrun og fleiri vörur
úr asbesti, en það á stórar asb-
estnámur í Kanada. Komið hefur í
ljós að asbestþræðir geta valdið
óbætanlegu lungnatjóni, og flestar
kröfurnar á hendur fyrirtækinu
eru frá mönnum sem á stríðsárun-
um unnu við að koma fyrir asbest-
einangrun í skipum. Samkvæmt
bandarískum lögum um ábyrgð á
skaðlegum eiginleikum framleiðs-
luvöru, er fyrirtækið ábyrgt fyrir
heilsutjóni mannanna þótt þeir
hafi verið starfsmenn annarra
fyrirtækja þegar tjónið varð.
Stjórn Manville Corp. hefur lýst
því yfir að hún telji sér skylt að
leita aðstoðar skiptaréttarins til
að verja hagsmuni starfsmanna
sinna og skuldheimtumanna og
jafna þeirra, sem nú krefja fyrir-
tækið bóta fyrir heilsutjón sitt.
Eignir fyrirtækisins eru metnar á
2,2 milljarða Bandaríkjadala, en
skuldir þess eru taldar vera um 1
milljarður dala. Eru þá hugsan-
legar skaðabótagreiðslur ekki
meðtaldar. Starfsmenn fyrirtæk-
isins í Bandaríkjunum eru um 25
þúsund, en aðalstöðvar þess eru í
Denver í Colorado. Ákvörðun
fyrirtækisins mun ekki á næst-
unni hafa áhrif á rekstur dóttur-
fyrirtækja þess utan Bandaríkj-
anna, enda eru þau ekki aðilar að
framangreindum málaferlum.
Hins vegar kann hún að hafa áhrif
á eignaraðild að þeim, og rekstur
þeirra síðar.
Kísiliðjan hf. við Mývatn telst
ekki dótturfyrirtæki Manville
Corp., en hins vegar telst fyrir-
tækið Manville hf. á Húsavík vera
dótturfyrirtæki þess, en eignar-
hluti Manville í Kisiliðjunni er um
47%. Hugsanlegt er að skiptarétt-
urinn ákveði að selja þá hluti ein-
hverjum öðrum.
Þrjár frostnætur í röð í Þykkvabæ:
Kartöfluuppskera
í tæpu meðallagi
„Hér hefur verið næturfrost
síðustu þrjár nætur, ekki mik-
ið að vísu, en nóg til þess að
kartöfiugrös eru víðast fallin,“
sagði Magnús Sigurlásson
oddviti og bóndi á Eyrarlandi í
Þykkvabæ í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær,
er spurst var fyrir um horfur í
kartöfiuuppskeru. „Þetta þýðir
það að uppskeran verður í
tæpu meðallagi,“ sagði Magn-
ús ennfremur, „við hefðum
þurft viku til tíu daga í viðbót,
þá hefði þetta orðið gott.
Sumarið hefur annars verið
gott, og engin afföll orðið af
stormi eða öðru. Uppskera hefst
væntanlega nú næstu daga, en þó
grösin séu fallin geta kartöflurnar
eitthvað bætt við sig ennþá, þær
fá súrefni niður um stilkinn."
Þykkvibær er sem kunnugt er
langstærsta kartöfluræktarhérað
landsins, og er áætlað að þar komi
upp úr jörðu um tveir þriðju hlut-
ar allrar uppskeru á landinu.
Magnús Sigurlásson kvaðst ekki
geta spáð hve mörg tonn uppsker-
an yrði í haust, ekki væri hægt að
segja til um það fyrr en uppskera
væri hafin.
Forsetakjör FIDE fer fram í Luzern 1 nóvember:
Campomanes og Kazic bjóða
sig fram gegn Friðrik Ólafssyni
ÞANN 10. nóvember næstkomandi
hefst þing Alþjóðaskáksambands-
ins, FIDE, í Luzern í Sviss. Á
dagskrá þingsins, sem er nokkurs
konar aðaifundur sambandsins,
verður m.a. kjör til forseta FIDE,
en Friðrik Ólafsson núverandi for-
seti býður sig þar fram til endur-
kjörs. Framboðsfrestur er nú liðinn
út og hafa tveir aðilar auk Friðriks
boðið sig fram, þeir Campamanes
frá Filippseyjum og Kazic frá Júg-
óslavíu.
Forsetakjör FIDE fer fram á
fjögurra ára fresti og á síðasta
aðalfundi sambandsins sem hald-
inn var í Buenos Aires í Argent-
ínu var Friðrik einmitt kosinn
forseti eftir tvísýna kosningu.
Friðrik er nú nýkominn úr ferð
til S-Ameríku og Asíu þar sem
hann hefur kynnt sér starfsemi
skáksambanda, menn og málefni,
en hann hefur ekki haft aðstöðu
til að kynna sér skáksambönd þar
áður. Aðspurður sagðist Friðrik
vera nokkuð bjartsýnn á kosn-
ingarnar í Luzern, en þó væri á
það að líta að afstaða manna
byggist þar oft ekki aðeins á
skáklegum sjónarmiðum, heldur
dragast menn í fylkingar eftir öð-
rum þáttum. Mikið hefur verið
um það rætt hvort þáttur Frið-
riks í Korchnoi-málinu svonefnda
kynni að hafa áhrif á niðurstöður
þessara kosninga. Friðrik sagði
að þetta mál hafi leyst eins og
búist var við hitt væri annað mál,
að sumir kynnu að draga nei-
kvæðar ályktanir af því en aðrir
jákvæðar.