Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 13

Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 13 Leik.stjórinn John Sayles ingarvert að nenna að flytja hingað til lands kvikmyndir til sýninga frá aðilum sem starfa utan ókleifra múra Holly- woodborgar. Það er dálítið þreytandi að berja augum ár og síð og alla tíð sömu andlitin. Og sú hugsun hvarflar stund- um að manni hve lítið maður veit um þessar 200 milljónir vestanhafs sem sýna sig nær eingöngu í mynd fáeinna útval- inna á hvíta tjaldinu. Að vísu ber stundum fyrir á skjánum bandarísk sjónvarpsleikrit þar sem óþekktir leikarar skipa heiðurssess. En slíkt gerist því Ein af myndum amerísku kvik- myndavikunnar Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson Nafn á frummáli: The Return of the Secausus Seven. Sýningarstaður: Tjarnarbíó. Leikstjórn: John Sayles. Ilandrit: John Sayles. Tónlist: Mason Daring. Ungur kvikmyndagerðarmað- ur, Sigurjón Sighvatsson, sem senn lýkur fullnaðarprófi á sínu sviði í Bandaríkjunum hefir í sumarleyfum tekið upp á því að flytja okkur útnesjabúum fréttir af því sem er að gerast í kvik- myndaheiminum vestra. I fyrrasumar flutti Sigurjón okkur fréttir af því sem er að gerast í grafískri kvikmynda- gerð og í ár efnir hann til kvikmyndaviku sem ber yfir- skriftina: Nýir straumar í am- erískri kvikmyndagerð. Sigur- jón lýsir þannig í sýningarskrá myndum vikunnar: „Vikan í ár (þetta er raunar þriðja kvik- myndavikan sem menningarfé- lagið Íslensk-ameríska á hlut að) er tileinkuð svonefndum „sjálfstæðum" kvikmyndum, sem allar eru í fullri lengd og flestar leiknar. Með orðinu „sjálfstæður" er átt við kvik- myndir sem eru fjármagnaðar af kvikmyndagerðarfólkinu sjálfu eða fyrir opinber fram- lög. Þetta fólk hefur því alger- lega frjálsar hendur við gerð mynda sinna og þarf ekki að lúta vilja annarra eins og svo algengt er þegar stór kvik- myndaframleiðslufyrirtæki eiga hlut að máli.“ Ég kann vel við þetta uppá- tæki Sigurjóns. Það er virð- miður allt of sjaldan. Glans- númerin selja framleiðsluna og þar sem menn hugsa eins og útgerðarmenn er ekki lagt í neina áhættu. Árangurinn verður sá að áhorfandanum finnst hann gjarnan vera að upplifa sömu kvikmyndina hvað eftir annað. Ég get nú ekki sagt að fram- lag leikstjórans John Sayles „The Return of the Secaucus Seven" sem telst eitt af glans- númerum amerísku kvik- myndavikunnar að þessu sinni hafi komið mér á óvart. Það var þá helst hljóðupptakan sem minnti á frumbýlingshátt; inn í okkar kvikmyndagerð. í annan stað kom klippingin oft í opna skjöldu. Sérstaklega minnisstætt myndskeið er sýn- ir leikarana í körfubolta. Ann- ars er fátt nýstárlegt í þessari mynd. Við fylgjumst með hópi fólks sem mótaðist á tímum blómabyltingarinnar. Fólk þetta hittist til skrafs og ráða- gerða yfir helgi. Það hefir full- orðnast og veruleikinn tekið það mismjúkum hönskum. Vafalaust er markmið John Sayles að gefa áhorfandanum færi á að setja sig í spor þessa fólks með því að lýsa á sem hversdagslegastan hátt sam- fundum þess. Það getur verið að amerískir áhorfendur eigi auðvelt með að setja sig í spor hinna sjö frá Secaucus, mér var það ómögulegt. Aths.: Þau mistök urðu í blað- inu sl. laugardag, að kvik- myndagagnrýni Sæbjörns Valdimarssonar um myndina „Allt er fertugum fært“ I Stjörnubíói var eignaður Ólafi M. Jóhannessyni og birtist undir fyrirsögninni, er tilheyr- ir þessum dómi. Prentar hún peninga? Nei, en getursparaó stórfé! U-BÍX100 15 Ijósrit á mínútu, á venjulegan pappír, þitt eigið bréfsefni eða glærur. 9 íiimmimiiimiiimm >- SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 Sími 20560 Húsgagnasýning O o hjá okkur frá kl. 9—9 alla virka daga. o o Laugardaga kl. 10—6. Sunnudaga kl. 1—6.0 » <* o Kíktu vió, þú færö örugglega eitthvaó vió þitt hæfi KM-húsgögn Langholtsvegi 111, Kéykjavík, símar 37010—37144.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.