Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
19:
Pólland:
„Sósíalism-
inn í veði“
— segja stjórnvöld sem búa sig und-
ir mótmælaaðgerðir Samstöðu
VarNjá, 30. ágúst. AP.
STJÓRNVÖLD í Póllandi virðast nú
vera við öllu búin vegna fyrirhug-
aðra mótmælaaðgerða Samstöðu á
morgun, þriðjudag, á tveggja ára af-
maeli samtakanna. Fólk hefur verið
hvatt til að halda sig heima og i dag
var sala áfengis mjög takmörkuð.
Fréttir frá hafnarborgunum við
Eystrasalt, Szczecin og Gdansk,
herma að þar sé allt með kyrrum
kjörum en að óeirðalögreglumenn
séu þó mjög fjölmennir á götum
borganna. Yfirvöldin og kirkjunn-
ar menn í Póllandi hafa margsinn-
is lýst yfir áhyggjum sínum af
ástandinu og fyrirhuguðum mót-
maelum og í gær, sunnudag, sagði
Jaruzelski hershöfðingi, að brot á
herlögunum, sem kvæðu á um
bann við starfsemi Samstöðu og
útifundum, yrðu ekki þoluð.
Málgögn stjórnarinnar og
kommúnistaflokksins hafa verið
mjög harðorð í garð Samstöðu
undanfarið en í gær kvað skyndi-
lega við annan tón og hógværari.
„Ef ekki kemur til mótmælaað-
gerða, þarf það ekki að þýða stuð-
ning við stjórnina," sagði í dag-
blaði, sem hin opinberu æskulýðs-
samtök gefa út, „heldur við heil-
brigða skynsemi." í Trybuna Ludu
sagði, að það, sem nú væri í veði,
væri framtíð Póllands og hinn
„sanni sósíalismi" í landinu.
í dag var ákveðið að takmarka
áfengissölu við leyfðan skammt
sem er hálfur vodkalítri á mánuði,
en að auki hefur til þessa verið
hægt að fá áfengi á mjög upp-
sprengdu verði.
Væringar meðal
grískra sósíalista
Afsögn aðstoðarinnanríkisráðherra
svarað með brottrekstri úr flokknum
Aþenu, 30. áfpíst. AP.
STATHIS Panaghoulis, aðstoóarinn-
anríkisráöherra í grísku stjórninni og
áberandi maður í Sósialistaflokkn-
um, sagði af sér embætti sl. fóstudag
og var umsvifalaust rekinn úr flokkn-
um. Þykir þessi atburður benda til að
miklar væringar séu innan stjórnar-
flokksins.
Stathis Panaghoulis er bróðir
Alecos Panaghoulis, sem nú er lát-
inn en vann það sér til frægðar árið
1968 að reyna að ráða af dögum
forseta herforingjastjórnarinnar,
sem þá fór með völd í Grikklandi.
Á þá bræður báða hefur verið litið
sem nokkurs konar þjóðhetjur
fyrir baráttu þeirra gegn einræð-
inu.
Afsagnarbréf Panaghoulis, sem
er upp á 13 síður, hefur birst í ýms-
um grískum dagblöðum en þar
gagnrýnir hann stjórnina harka-
lega fyrir að hafa svikið kosninga-
loforðin og að sérfræðingar alls
konar ráði nú orðið mestu um
stjórnarstefnuna. Papandreou, for-
sætisráðherra og formaður Sósíal-
istaflokksins, brást mjög ókvæða
við þessum ásökunum og sakaði
Panaghoulis að bragði um „svik“
við flokkinn á örlagastundu.
Frá því gríska stjórnin var
endurskipulögð í júlí sl. hefur verið
orðrómur á kreiki um átök milli
harðlínumanna og hinna, sem vilja
Svíar fækka
elgdýrunum
Stokkhólmi, 30. ágúst.
Landbúnaðarráðuneytið sænska
tilkynnti nú nýlega, að á þessu
hausti yrði leyft að fella um
170.000 elgdýr eða um 20.000 fleiri
dýr en fyrir ári.
Elgdýr eru nú talin vera um
hálf milljón talsins í Svíþjóð og
hefur þeim fjölgað mjög á síð-
ustu árum. Bændur hafa borið
sig illa undan elgnum, sem þeir
segja að gangi jafnt á skógana
sem ræktað land og auk þess
stafar ökumönnum mikil hætta
af dýrunum, sem fara oft í flokk-
um eftir þjóðvegunum. Af þess-
um sökum hefur verið ákveðið að
minnka stofninn nokkuð frá því
sem verið hefur.
fara hægar í sakirnar. Panaghoulis
hafði á sinni könnu að sjá um
heimkomu 30.000 Grikkja, sem
flýðu til Austur-Evrópuríkjanna
eftir að kommúnistar biðu ósigur í
uppreisninni 1949, en í afsagnar-
bréfinu sakar hann Papandreou
um að hafa svikið gefin loforð og
tafið framgang málsins á alla lund.
Veður
víða um heim
Akureyri 10 heiðskirt
Amsterdam 21 heiöskirt
Aþena 34 heiöskirt
Barcelona 28 léttskýjað
Berlin 22 heiöskírt
BrUssel 19 skýjaö
Chicago 22 rigning
Dyflinni 19 skýjaö
Feneyjar 24 heiöskfrt
Frankturt 24 heiöskfrt
Genl 20 heiöskfrt
HeMnkl 17 skýjaö
Hong Kong 32 heiöskirt
Jerúsalem 28 heiöskirt
Jóhannesarborg 24 heiöskirt
Kairó vantar
Kaupmannahöfn 18 heiöskirt
Laa Palmas 24 skýjaö
Líssabon 28 heiöskfrt
London 19 heiöskirt
Los Angeles 27 skýjaö
Madrid 30 heióskirt
Malaga vantar
Mallorca 31 lóttskýjaö
Mexíkóborg 24 heiöskirt
Miami 31 skýjeö
Moskva 28 skýjaö
Nýja Delhí 34 heiöskfrt
New York 22 skýjaö
Osló 16 skýjað
París 25 heióskfrt
Perth vantar
Rio de Janeiro 33 skýjaó
Reykjavik 10 alskýjaö
Rómaborg 30 heióskirt
San Francisco 20 heióskirt
Stokkhólmur 18 heíðskfrt
Sydney 29 heiöskfrt
Tel Aviv 30 heiöskírt
Tókýó 29 rigning
Vancouver 20 skýjaó
Vinarborg 20 skýjaö
Þórshöfn 8 rigning
Má muna
fífil fegurri
Bifreiðin, sem er í rennu-
steininum til vinstri á
myndinni, má vissulega
muna sinn fífíl fegurri en
hún varð fyrir tveimur
mjög alvarlegum áföllum
með nokkurra mínútna
millibili. Fyrir það fyrsta
skemmdist hún töluvert
þegar gámavagninn á
myndinni lagðist utan í
hana og þegar átti að fjar-
lægja hann, vildi ekki bet-
ur til en svo, að hann féll
yfír hana í annað sinn og
lagði hana saman eins og
pjáturdós.
AP.
AUÐVITAÐ UNNU ÞEIR
í LIÓMA-RALLINU1982
CHAMPION
Mest seldu kertin í heiminum
og ekki að ástæðulausu.
Lang flestir koma fyrstir i mark
með CHAMPION!
II Ul JwTJ =l |■l■l■|■l■l■| 3
Ei U í= =i =3E==j
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
^^■”■l■l■l■l■l■l■l■ll
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
SMIÐJUVEGI4, KÓP. Sl'MI 77-200. SÖLUMENN SÍMI 77-720.