Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 Mii nw i Ifnminn hoim^ hIvii cr DiKdnnii 1 Kiiifiinn ncim Kampakátir Akurnesingar fagna sigri í bikarkeppni KSÍ • „Þið fenjruð það sem þið báðuð um. Nú er bikarinn kominn heim,“ sagði Sigurður Lárusson, fyrirliði ÍA, er hann ávarpaði baejarbúa á Akratorgi. • Valdimar Indriðason, forseti bæjarstjórnar Akraness, ávarpar mannfjöldann á Akratorgi. „Þetta sérðu hvergi á íslandi nema á Akranesi," sögðu leikmenn ÍA við undirritaðan, er við renndum að Akratorgi þar í bae á sunnudag- inn, eftir að liðið hafði borið sigur úr býtum i bikarkeppni KSÍ. Á torginu beið mikill mannfjöldi liðsins og hyllti leikmenn. Víst er að stuðn- ingsmenn Akurnesinga voru frá- bærlega góðir í úrslitaleiknum í Laugardalnum, og hafði stuðningur þeirra mjög mikið að segja fyrir leikmenn, og voru þeir fyrstir til að samþykkja það. Eftir leikinn héldu áhorfendur síðan heimleiðis með Akraborginni og voru mættir á torg- ið ásamt fjölda annarra bæjarbúa, er rúta leikmanna renndi í hlaðið. Á torginu hafði verið komið fyrir vörubifreið, og príluðu leikmenn og forráðamenn liðsins upp á pall hennar. Þar voru síðan fluttar nokkrar stuttar ræður, og að sjálfsögðu söng svo allur skar- inn „Kátir voru karlar" af mikilli innlifun. Var lagið kyrjað að áeggjan George Kirbys, og lét hann sitt ekki eftir liggja við ! sönginn. Á sunnudagskvöldið snæddu leikmenn og eiginkonur þeirra, ásamt forráðamönnum liðsins, þeirra konum og nokkrum öðrum, kvöldverð í boði bæjarstjórnar Akraness. „You’ve done it again for the fifth tirne," sagði Haraldur Sturlaugsson, formaður knatt- spyrnuráðs Akraness, er hann þakkaði George Kirby fyrir mjög vel unnin störf. Kirby hefur vissu- lega náð frábærum árangri með Skagamenn. Þetta er fimmta sumarið sem hann þjálfar liðið, og öll árin hefur liðið sigrað í deild eða unnið bikar. Síðast var hann með liðið árið 1978 og varð það þá bikarmeistari, en hefur ekki nælt í neinn titil fyrr en nú að Kirby kemur aftur til starfa. Þá þakkaði Haraldur Guðjóni Guðmundssyni, lækni, fyrir mjög vel unnin störf í þágu liðsins, en hann hefur verið með liðinu í leikjum þess í sumar. En myndir segja meira en mörg orð, og skulum við því láta þær tala að þessu sinni. - SH. • „Nú höfum við náð bikarnum aftur, svo er ykkur fyrir að þakka,“ sagði Haraldur Sturlaugsson, formaður KRA, við stuðningsmenn liðsins á Akra- torgi. Ahangendur Skagamanna stóðu sig frábærlega vel á úrslitaleiknum, og höfðu þeir greinilega mjög góð áhrif á liðið. Á myndinni hér til hliðar sjást leikmenn á-samt George Kirby kyrja „Kátir voru karlar" af miklum krafti, og tóku viðstaddir vel undir. Davíð markvörður Kristjánsson stjórnaði söngnum af mikilli röggsemi. • Hluti fólksfjöldans sem safnast hafði saman á Akratorgi til að fagna bikarmeisturunum við heimkomuna. Allt frá smábörnum upp í vel fullorðið fólk var saman komið og hyllti leikmenn. Síðan tóku allir vel undir er sungið var lagið „Kátir voru karlar *. LjÓMnjndir Skapti HallgrítnHKon. • I matarveislunni i sunnudagskvöldið þakkaði Haraldur Sturlaugsson, formaður knattspyrnuráðs Akraness, George Kirby sérstaklega fyrir frábær störf, og þá þakkaði hann Guðjóni Guðmundssyni, lækni, fyrir góð störf og ósérhlífni við störf með liðinu. Kirby og Guðjón takast hér í hendur og þakka hvor öðrum fyrir samstarfið í sumar, og klöppuðu viðstaddir vel og lengi fyrir þeim félögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.