Morgunblaðið - 31.08.1982, Side 47
IÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
27
Fólk og fréttir í máli og myndum
Breitner skrifar bók:
Áfengisdaunninn sterkasta vopnið!
EIN AF jólabókunum í Vestur-
Þýskalandi verður opinská bók úr
ritvél knattspyrnukappans kunna
I’aul Breitners. Agamál ýmiss konar
bera á góma og Breitner gefur það
meóal annars upp að Jupp Derwall
sé besti landsliósþjálfari sem hann
hefur leikió undir og getur þess aó
skýringuna sé' meóal annars aó
finna í því aó Derwall hefur aldrei
skipt sér af þvi þó Breitner sé að
sulla í rauðvíni meó matnum!
Áfengismál íþróttafólks eru í
hópi þeirra mála sem almenning-
ur vill gjarnan smjatta á og
Breitner tryggir sér góðan les-
endahóp með mikilli umræðu þar
um. Hann segir svo frá úrslitaleik
Bayem og Atletico Madrid í
Evrópukeppni meistaraliða árið
1974: — Við unnum leikinn og
duttum rosalega í það. Alla nótt-
ina skemmtum við okkur eins og
kóngar, en daginn eftir áttum við
að leika síðasta Búndeslíguleik
okkar, gegn Mönchengladbach.
Um morguninn fórum við með
rútu til leikvallarins og fólkið sem
sá okkur trúði ekki sínum eigin
augum. Því var fleygt að eina vopn
okkar í leiknum myndi vera áfeng-
isdaunninn af vitum okkar! Nú, en
það gekk bara furðuvel þrátt fyrir
allt, við töpuðum aðeins 0—5!
Um landsliðið segir kappinn:
— Eg hef aldrei fundið mig jafn
vel sem landsliðsmaður og á HM á
Spáni, aldrei verið jafn ánægður
með eigin frammistöðu. Því segi
ég nú: Eg er hættur, best að hætta
á toppnum, þá vil ég gjarnan fara
að kynnast fjölskyldu minni!
• Liam Brady og
ítalska sólin og
ísjakinn íslenski
ÁSGEIR Sigurvinsson hefur eólilega
verið undir smásjá þýskra íþrótta-
fréttamanna og knattspyrnuáhuga-
manna frá því hann gekk til liðs vió
stórliðió VFB Stuttgart, enda á hann
aö leysa af einn af fremstu knatt-
spyrnmönnum þeirra Þjóðverja,
Hansa Miiller, sem seldur var til
Ítalíu síöast liöiö vor.
Þýska blaðið Bild reifaði fyrir
skömmu kosti og galla helstu
„trompleikmanna" Stuttgart og
bar þá meðal annars saman Ás-
geir annars vegar og Hansa Múll-
er hins vegar. Samanburðurinn er
tvíræður, en í blaðinu stendur: Þar
sem Hansi Múller hefur flutt sig
um set til hlýrri slóða, hefur ís-
lendingurinn Ásgeir Sigurvinsson
lagt undir sig svæði Hansa. En
munurinn á Hansa og „Sigi“ er
svipaður og munurinn á íslenskum
ísjaka og ítölsku sólinni...
eftirsjá í
T revor
Francis
í Englarídi
• ítalir eru farnir að sverma fyrir
breskum knattspyrnumönnum í
auknum mæli og 1. deildar nýliðarn-
ir Sampadoria hafa gengið haröast
fram. Félagið byrjaöi á því að kaupa
írann Liam Brady frá Juventus, en
síðan var stigið enn lengra og Trevor
Francis keyptur frá Manchester
City. Sala þess síðarnefnda hefur
valdið miklu umtali, enda deginum
Ijósara, að City gat ekki annað en
selt Francis, því ella hefði gjaldþrot
vofað yfir. Og þar sem Francis var
einn af milljón punda mönnunum í
ensku knattspyrnunni, voru laun
hans talin vera 2000 pund á viku að
minnsta kosti. Francis vildi fyrir
engan mun yfirgefa City og hvorki
stjórn félagsins, framkvæmdastjóri
eða áhangendurnir vildu sjá af hon-
um, enda yfirburðaraaður í liðinu. en
það er nöturlegt hlutskipti að neyð-
ast til þess vegna fjárhagsþreng-
inga...
Bara 2,37 m
• Sovétmaðurinn og körfuknatt-
leiksmaðurinn Alexander Sizonenko
býr við það, að menn líta upp til hans
hvort heldur hann verðskuldar slíkt
eður ei. Hann er nefnilega 2,37
metrar og þess má geta, að rúm
kappans hefur mælst 2,80 metrar.
Alcxander litli leikur með Stroitel,
en þar leika ýmsir frægir kappar, svo
sem dvergurinn Jevgeni Usov, sem
er aðeins 1,97 m.
mmmmmmmmmmmmmmmi
Stenzel Universal kr. 610,-
Handball Sport kr. 723,-
Argentina kr. 417,-
Þetta er bara smásýnishorn af því, sem vió eiqum til
Postsendum.
vöruvorzlun
/ Ú/ktm/onar
Klapparstíg 44, sími 11783