Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 48

Morgunblaðið - 31.08.1982, Síða 48
28,. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 Meistarar Liverpool hófu titilvörnina vel — Góð afrek Watford ENSKA deildarkeppnin í knalLspyrnu hófst á laugardaginn og var fremur fátt um óvænt úrslit sem heitið gátu því nafni. Ensku meistararnir Liverpool hófu titilvörnina eins og best varð á kosið, eða með sigri, en lengi vei stóð lið WBA i meistaraliðinu þrátt fyrir fjarveru lykilmanna vegna meiðsla. Það lið sem (lestir spá að veiti Liverpool hörðustu keppnina, Manchester Utd., vann einnig góðan sigur í 1. umferðinni, en eins og Liverpool, ekki fyrr en eftir að hafa þurft að hafa verulega fyrir hlutunum. Nýju liðin í 1. deild stóðu sig nokkuð vel, þó svo að Norwich yrði að sætta sig við ósigur á heimavelli gegn Manchester City. Þar var heimaliðið betri aðilinn og verðskuldaði að minnsta kosti annað stigið. En lítum á úrslit leikja í 1. deild áður en lengra er haldið. Aston Villa — Sunderland 1—3 Brighton — Ipswich 1 — 1 Coventry — Southampton 1—0 Liverpool — WBA 2—0 Man. Utd. — Birmingham 3—0 Norwich — Manchester City 1—2 N. County — Swansea 0—0 Stoke — Arsenal 2—1 Tottenham — Luton 2—2 Watford — Everton 2—0 West Ham — Nott. Forest 1—2 WBA sá af öllum stigunum á Anfield Road í Liverpool og að margra dómi er liðið fyrir vikið dæmt til að falla, en síðustu árin hefur það verið nokkurs konar hefð að meðal fallliðanna úr 1. deild hafa verið þau lið sem Liv- erpool hefur mætt í 1. umferð mótsins. Þrátt fyrir að WBA gæti ekki teflt fram sínu sterkasta liði, stóð það í Liverpool drjúga stund. Liverpool sótti án afláts og átti nokkur færi í fyrri hálfleik sem ekki nýttust. Það var ekki fyrr en á 57. mínútu, að Sammy Lee braut loks ísinn með frábæru marki. Hann skoraði þá beint úr auka- spyrnu af 25 metra færi, sendi firnafast bogaskot í netið hjá WBA. Leikmenn WBA fóru að gefa eftir er hingað var komið sögu og Phil Neal innsiglaði sigur- inn með marki úr vítaspyrnu á 72. mínútu, en rétt áður hafði Phil Thompson átt hörkuskot í stöng. Áhorfendur á Anfield voru aðeins 35.652, en það er einhver lægsta tala sem um getur á fyrsta degi hjá Liverpool. Það gekk á ýmsu í fyrri hálf- leiknum í leik Man. Utd. og Birm- ingham og áttu hinir minna frægu gestir síst minna í leiknum á köfl- um. Ekkert var þó skorað í fyrri hálfleik og Ron Atkinson hlýtur að hafa haldið reiðilestur yfir sín- um mönnum í hléinu, því það var sem gerbreytt lið sem mætti til leiks í síðari hálfleik. United bauð þá upp á stórgóða knattspyrnu og þar með var Birmingham úr leik sem samkeppnisaðili. Kevin Mor- an skoraði fyrsta markið á 46. mínútu, skallaði í netið eftir hornspyrnu Arnold Muhrens. Að- eins fimm mínútum síðar hafði Frank Stapleton bætt öðru marki við með þrumuskoti af 20 metra færi. Sóknarloturnar buldu síðan á vörn Birmingham uns hún gaf sig aftur á 74. mínútu, en þá skor- aði Steve Coppell þriðja mark United. Tæplega 50.000 manns mættu á Old Trafford sem er furðu gott miðað við ástandið í viðkomandi málum á Bretlands- eyjum. Sunderland vann heldur betur óvæntan sigur á útivelli gegn Evr- ópumeisturum Aston Villa. Kannski eru betri tímar fram undan hjá Sunderland með blóm i haga, en tvö síðustu keppnistíma- bilin hefur liðið rétt sneitt hjá falli. Aston Villa náði reyndar for- ystunni fyrir Villa með skalla á 22. mínútu og var það eina mark fyrri hálfleiksins. En hið unga og að margra áliti bráðefnilega lið Sunderland mætti tvíeflt til leiks í síðari hálfleiknum og skoraði þá þrívegis. I öllum tilvikum voru táningar á ferðinni, Colin West jafnaði fyrst á 60. mínútu, Ally McCoist bætti síðan öðru marki við fjórum mínútum síðar og Nick Pickering innsiglaði sigurinn með marki sínu á 83. mínútu. Ipswich réði lítið um gang leiks- ins gegn Brighton, en skoraði engu að síður fyrsta mark leiksins, Eric Gates var þá á ferðinni eftir snjallan undirbúning Pauls Mariner á 25. mínútu. Brighton jafnaði mjög verðskuldað sjö mín- útum síðar, Andy Ritchie lék þá á George Burley og þeysti eina 20—30 metra áður en hann spyrnti knettinum í netið hjá Ipswich. Brighton var síðan nær sigri, en stig fást ekki út á það. Áhorfendur hér aðeins rúmlega 13.000. Southampton mætti til leiks í Coventry án snillingsins Kevin Keegans, en hins vegar með annan snilling, Peter Shilton, í markinu. Það mæddi mikið á enska lands- liðsmarkverðinum og hann átti frábæran leik með sínu nýja fé- lagi. Það dugði þó ekki til, hann réði ekki við gott skot Steve Whittons seint í leiknum. Með Coventry lék sinn fyrsta leik pilt- ur að nafni Perry Suckling, aðeins 16 ára, og þar af leiðandi einn yngsti leikmaður 1. deildarinnar ensku fyrr og síðar. Stoke vann frekar óvæntan sig- ur gegn Arsenal sem margir hafa spáð veigengni í vetur. Tony Woodcock lék sinn fyrsta deildar- leik með Arsenal, en lítið bar á þessum fyrrum Forest-leikmanni og lið Arsenal í heild afar slakt í leiknum. Stoke komst í 2—0. George Berry, fyrrum miðvörður Brian Stein jafnaði fyrir Luton. Wolverhampton, skoraði fyrra markið strax á 4. mínútu. Brendan O’Callaghan bætti öðru marki við á 52. mínútu eftir undirbúning annars nýliða í liði Stoke, Mark Chamberlains. Sjö mínútum síðar minnkaði Alan Sunderland mun- inn með ágætu marki, en það leit aldrei út fyrir að Arsenal myndi gera meira af viti í leiknum. Manchester City nýtti færi sín í fyrri hálfleik gegn Norwich og flaut á því. Tveir fyrrum Nor- wich-leikmenn unnu saman að fyrra marki City, Kevin Reeves og Dave Cross, en það var sá síðar- nefndi sem skoraði á 3. mínútu. Paul Power skoraði síðara markið á 45. mínútu, eftir undirbúning Reeves. Norwich, sem kom upp úr 2. deild á síðasta keppnistímabili, sótti látlaust allan síðari hálfleik- inn, en aðeins eitt af mörgum fær- um liðsins var nýtt til fullnustu, John Deehan skoraði á 58. mínútu og þar við sat. Luton, einnig nýkomið úr 2. deild, vann umtalsvert afrek á og Luton-nýliöa 1. deildarinnar Sammy Lee t. v. braut ísinn fyrir meistara Liverpool er hann skoraði glæsilega gegn WBA beint úr aukaspyrnu. White Hart Lane gegn Totten- ham. Heimaliðið komst þar í 2—0 í fyrri hálfleik, fyrst skoraði Garry Mabbutt með skalla á 3. mínútu, síðan Mike Hazzard á 17. mínútu. Bæði mörkin komu eftir undirbúning Glenn Hoddles. John Lacy skoraði sjálfsmark og minnkaði muninn þannig fyrir leikhlé, en á 53. mínútu var ekki heppnisstimpill yfir aðgerðum og afrakstri Luton, Brian Stein skor- aði þá laglegt mark og jafnaði Kevin Keegan ... skoraði sigurmark Newcastle. metin. Fleiri mörk voru ekki skor- uð. Segja má þó, að Watford hafi unnið langbesta afrek 1. deildar- nýliðanna, en liðið sigraði Everton 2—0 á heimavelli sínum. Norður írski landsliðsmaðurinn Gerry Armstrong skoraði fyrra mark Luton á 22. mínútu, en síðara markið kom á 80. mínútu og vakti mikið umtal. Watford fékk auka- spyrnu 40 metra frá marki Ever- ton og spyrnti Pat Rice að marki. Markvörður Everton, Neville Southall, gómaði knöttinn örugg- lega, en síðan fór allt í háaloft er dómarinn flautaði og dæmdi mark. Sagði dómarinn Southall hafa farið með knöttinn inn fyrir marklínuna. Það þýðir ekkert að deila við dómarann, en Southall hafði greinilega ekki heyrt það og elti dómarann þrasandi fram á miðjan völl. Þagnaði hann ekki fyrr en dómarinn hafði ritað nafn hans í svörtu bókina. Loks í 1. deild leikur West Ham og Nott. Forest. Þessi leikur þótti ekkert sérstakur, hápunktur hans var stórglæsilegt mark Colin Walsh á 10. mínútu fyrir Forest. Lék strákur á fjóra varnarmenn West Ham, síðan á markvörðinn og renndi knettinum síðan í netið. Ray Stewart jafnaði fyrir leikhlé með marki úr umdeildri víta- spyrnu. Hún var einnig umdeild vítaspyrnan sem John Robertson skoraði sigurmark Forest úr á 78. mínútu. 2. deild: í þessari deild gerðist það mark- Erank Stapleton skoraði fyrir Man. Utd. verðast, að tveir stórmerkilegir leikmenn skoruðu sigurmörk fé- laga sinna. Kevin Keegan skoraði í sínum fyrsta leik með Newcastle og gamli potarinn Pop Robson skoraði sigurmark Chelsea gegn Cambridge. Fyrsta mark hans fyrir félagið, enda fyrsti leikurinn. En lítum á úrslit og fleira sem varðar 2. deild: Burnley 0 — Bolton 0 Cambridge 0 — Chelsea 1 (Rob- son) Cr. Palace 1 (Hilaire) — Barnsley 1 (Airey) Derby 0 — Carlisle 3 (Shoulder 2, Poskett) Fulham 1 (Davies) — Rotherham 1 (McBride) Grimsby 1 (Kilmore) — Leeds 1 (Connor) Leicester 1 (Smith) — Charlton 2 (Walker, Mehmet) Newcastle 1 (Keegan) — QPR 0 Oldham 1 (McLaren sjm.) — Shrewsbury 0 Sheffield W. 3 (Bannister, Pearson 2) — Middlesbr. 1 (Shearer) Wolves 2 (Eaves 2) — Blackburn 1 Knatt- spyrnu- úrslit SKOTLAND deildarbikar: Albion R. — Montrose 1:2 Alloa — Arbroath 0:1 Ayr Utd. — St. Mirren 2:1 Berwick — Kilmarnock 2:1 Brechin — East Fife 4:0 Clyde — Forfar 0:1 Clydebank — Airdrie 1:2 Cowdenb. — Stenhousem. 1:1 Dundee — Aberdeen 1:5 Dunfirmline — Celtic 1:7 Falkirk — Raith R. 2:0 Hamilton — Queens P. 1:2 Hearts— Motherwell 1:0 Morton — Dumbarton 4:1 Patrick — East Stirling 4:2 Queen OTS — Stirling Alb. 0:2 Rangers — Hibernian 0:0 St. Johnst. — Dundee Utd. 0:3 Stranrare — Meadowbank 0:2 ENGLAND 3.deild: Bournemouth — Walsall 3:0 Bradford — Reading 3:2 Brentford — Bristol R. 5:1 Cardiff — Wrexham 1:2 Chesterfield — Orient 1:2 Doncaster — Newport 0:0 Gillingham — Oxford 0:1 Huddersfield — Exeter 1:1 Lincoln — Wigan 2:1 Plymouth — Southend 1:0 Portsm. — Sheffield Utd. 4:1 Preston — Millwall 3:2 ENGLAND 4. deild: Aldershot — Tranmere 1:0 Bristol C. — Hull 2:1 Bury — Hereford 3:2 Chester — Crewe 4:0 Colchester — Halifax 1:0 Darlington — Rochdale 3:0 Hartlepool — Scunthorpe 0:0 Mansfield — Blackpool 2:1 Stockport — Peterbrough 1:1 Swindon — Port Vale 1:0 Wimbledon — Northampt. 1:1 York C. — Torquay 1:1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.