Morgunblaðið - 31.08.1982, Page 37

Morgunblaðið - 31.08.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 45 Greiða Gunnar, Friðjón og Pálmi atkvæði á móti lögunum? Guðmundur Gíslason í Kópa- vogi hringdi og hafi eftirfarandi að segja: „Mig langar til að koma á framfæri spurningu til Ólafs G. Einarssonar, þing- flokksformanns Sjálfstæðis- flokksins. Á fimmtudaginn var sagði hann aðspurður í útvarp- inu, að allir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins myndu greiða atkvæði á móti bráðabirgðalög- unum. Því spyr ég: Munu Gunn- ar Thoroddsen, Friðjón Þórðar- son og Pálmi Jónsson greiða at- kvæði á móti þessum lögum, að mati Ólafs G. Einarssonar? Eða hvenær urðu þeir ekki þing- menn Sjálfstæðisflokksins?" Fyrirspurn til forsetaritara Dagur Austan Oddfríður Sæmundsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Ég var að lesa frásögn Auðuns Braga Sveinssonar í Lesbókinni 28. ágúst, um Hafn- arstrætið. Þar ræðir hann tölu- vert um Vernharð Eggertsson, skáld og ævintýramann, sem fórst veturinn 1952 er skip sem hann var á sökk við Orkneyjar, að talið er. Vernharður þessi skifaði undir skáldanafninu Dagur Austan og talar Auðunn um að enginn hafi minnst hans á prenti annar en Jón úr Vör, sem skrifað hafi um hann í Út- varpstíðindi. Mig langar til að það komi fram, að Kristján frá Djúpalæk orti snilldarljóð um þennan mann og það heitir einmitt Dag- ur Austan. Það er ekkert langt síðan Kristján las þetta ljóð sitt í útvarpi. Ég átti ljóðið á blaða- SkrifiÖ eða hringiö til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma þvi ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisrdng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. úrklippu, en gat ekki fundið hana þegar til átti að taka. Gaman væri ef þú gætir nálgast ljóðið og birt í þætti þínum.“ Kvæði þetta birtist í ljóðabók- inni „Þreyja má þorrann" sem út kom 1953. Kristján skáld frá Djúpalæk gaf góðfúslega leyfi sitt til að birta það hér: Dagur Austan Lokió er þælti harmleiks og hetjudáöa, helvegur troöinn, fækkaö um einn í stræli. Tæmdur í botn er bikar hins gullna dreyra, hjá bölvaldi lífains autt er í horni s*ti. Vorkaliö brumiö hrynur æ fyrir aldur. Knginn fær sUöizt tímanna svarUgaldur. Áleitnar huldur heilla manns þrá úr vegi, hlúöin nær skammt frá draumanna bjarU eWL l*yrstum er allt, sem þorsUnum svalar, drykkur, þreyttum er hjarniö riöandi sæng aó kveldi. Og hver getur skilió andann, aem yfirgefur alfaraleió, og snúió til jökla hefur? Skáldió er ríkt. I*ú hyggur þaó snautt, sem heldur aó hamingjan komist fyrir í pyngju þinni. Kænió þaó hverri fjöóur og fyrirlítiö. Flæmió þaó út á gaddinn, lokió þaó inni. Skáldió á sjóó, sem eykst þegar af er tekió, auó til aó brenna skóginn en hiróa sprekió. Borgari, látió þér blóópening yóar skina í betlarans lófa, vegna yóar hann grætur, hann kann aó breyU dumbhljóói málmsins dauóa i dýrlegan fógnuö, algleymi heillar nætur. Yóur hver hringur Draupnis í duftió bindur á dásemdir hinna þér eruó löngu blindur. Hátt risu öldur harms yfir þyrnibrautir, hærra bar ægisdætur, þú jaróargestur. íltsýni stækkar, öflugri vængjatökum andinn skal ná, er lífUuginn granna hrestur. Margt er aó þakka. (ileói og Sorg eru systur, hinn .síóasti veröur stundum aó marki fyrstur. Dagur AusUn er dáinn i kvöldsins rökkur, djúpió eilífa geymir hann sér i fangi. íltsærinn hefur andvörpin hinztu þaggaó. íslendings gröf varö löngum í votu þangi. Væringjans saga syrgir hann ein í drögum. Systir hans nóttin felldi sinn dóm aó lögum. Og svo var það ein spurning til forsetaritara vegna svars frá honum við fyrirspurnum tveggja kvenna um skattamál forsetans: „Eru til nokkur lög, sem banna það, að forseti ís- lands verði skattlagður, ef hann sjálfur óskar þess?“ Glerbrot um allt Sigríður P. Blöndal hafði samband við Velvakanda og hafði eftirfarandi að segja: „Hvenær skyldi fólk hérna hætta að brjóta flöskur á al- mannafæri? Þegar ég leit út um gluggann hjá mér í morgun, sá ég hvar glerbrot lágu úti um allt á bílastæðunum hér fyrir utan. Þegar betur var að gáð, kom í ljós, að þeta voru brot úr einni einustu flösku, en höfðu dreifst út um allt.“ Óska Akurnesing- um til hamingju Haukur Friðriksson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Mig langar til að óska Akurn- esingum til hamingju með bik- armeistaratitilinn. Eg held allt- af með þeim, enda þótt ég búi hér í borginni, og hef gert það allar götur síðan gullaldarlið þeirra jók hróður okkar í knattspyrnunni. Þegar ég átti heima fyrir vestan gerði ég það jafnan að hringja í þá og óska þeim til hamingju eftir góðan leik.“ GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Flokkurinn telur tvö hundruð manns Rétt væri: í flokknum eru tvö hundruð manns. Heyrst hefur: Þeim líst vel á hvort annað. Rétt væri: Þeim líst vel hvoru á annað. Bendum börnum á þetta! Iðnskólinn í Hafnarfirði Nemendur er ætla aö stunda nám viö skólann á haustönninni komi í skólann sem hér segir: Miövikudaginn 1. sept.: Nemendur verkdeildar kl. 13.30. Nemendur í fornámi kl. 14. Nemendur á ööru stigi og 3. áfanga kl. 14. Nemendur í tækniteiknun kl. 15. Mánudaginn 6. sept. Nemendur meistaraskólans Skólastjóri. Fjölbrautir Garðaskóla Skólasetning miövikudaginn 1. september 1982 kl. 9.00, þá fá nemendur afhentar stundaskrár og bóka- lista gegn nemendafélagsgjaldi kr. 400,00. Kennsla hefst fimmtudaginn 2. september sam- kvæmt stundaskrám. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu skólans Lyng- ási 7—9, Garðabæ, sími 52193. Skólastjóri. PELS4R OG LEEURFKTNÆXJR greiðsluskilmálar PELSINN Kirk|uhvoli simi 20160 L Tökum upp Myndsjá S: 11777 á myndbönd: Fræðsluefni, viötalsþættir, kynningar á félags- starfsemi og fyrirtækjum o.m.fl. Klippum og lögum efniö til sýningar. Fjölföldun fyrir öll kerfin. Fullkominn tækjabúnaöur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.