Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 22

Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 Gísli Björnsson, fulltrúi: Ekki fjarri að álykta að markaðurinn sé eitt tonn Reynslan hefur sýnt okkur, að við erum nokkrum árum á eftir ná- grannaþjóðum okkar, Svíum og Dönum. Mér dettur ekki i hug annað, en þessi efni fari í auknum mæli að koma við sögu hér á landi. Ekki fjarstæöukennt, að neyslan hafi veriö um eitt tonn á síðasta ári — í viðtali við Mbl. slær Hrafn Pálsson, félagsfræðingur, því fram, að hassneysla Islendinga gæti verið 2,7 tonn á ári og ungur ónafngreindur maður, sem komið hefur við sögu hjá ykkur, segir að í þessum svokallaða hassheimi sé talað um, að eitt tonn hafi verið selt á síðastliðnu ári. Hver er þín skoðun? „Mér finnst lægri talan ekki fjarstæðukennd; að neyslan hafi verið eitthvað um eitt tonn. Auð- vitað er erfitt að áætla fíkniefna- neysluna. í umræðum um fíkni- efnaneyslu hefur kennt öfga á báða bóga. Ýmsir gera meira úr vandamálinu en það raunverulega er, aðrir minna. Þróun fíkniefna- neyslu síðustu 10 ára hér á landi „FYRSrrU sex mánuði ársins komu 175 einstaklingar við sögu fíkniefnalög- reglunnar; 94 höfðu áður verið viðriðnir fikniefnamisferli en 81 hafði ekki komið við sögu hjá okkur. Þetta er sambærilegt við síðastliðið ár. Fyrstu sex mánuði ársins 1981 komu 173 við sögu hjá okkur; þar af höfðu 104 verið viðriðnir fíkniefnamisferli, en 69 í fyrsta sinn,“ sagði Gisli Björnsson, fulltrúi í Fikniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. „Þessa sex fyrstu mánuði hafa margir efa að þessi sending hafi í liðlega 2'k kg af kannabisefnum verið gerð upptæk, en á sama tíma í fyrra höfðu 442 grömm verið gerð upptæk. í þessum tölum tek ég ekki með þau um 200 kg af marijúana, sem komu til landsins og gerð voru upptæk. Alls voru tekin um 8 kg af kannabisefnum á síðastliðnu ári, þar af rúm 2 kg á einu bretti í Keflavík og er það ein skýringin á því hve mikið var tekið seinni hluta ársins. Þetta er árstíða- bundið. Það hefur oft verið lægð frá áramótum og fram á vor og aftur aukist með haustinu." Fólk beðið fyrir tösku erlendis — í henni voru fíkniefni — Hver eru stærstu málin sem upplýst hafa verið á árinu? „Eins og ég tók fram, þá er marijúana-málið langstærsta fíkniefnamálið frá upphafi, en raun átt að koma hingað til lands. I sumar fundust 729 grömm af hassi á Keflavíkurflugvelli í farangri fólks, sem var að koma frá Malaga á Spáni. Fólkið hafði verið beðið fyrir töskuna og hafði ekki hugmynd um tilvist fíkniefn- anna. I vor fundu hasshundar 676 grömm af hassi í pósti. Tvennt hafði farið til Hollands og fest kaup á hassinu og póstlagt til ís- lands. í lok maí voru 225 grömm af hassi tekin af manni, sem var að koma frá Kaupmannahöfn og nú alveg nýverið var ungur maður tekinn með um 210 grömm af hassi. Það ber oft við, að slíkt magn sé tekið.“ Algengt að unglingar flosni upp frá námi og vinnu — Hvaða aldurshópar koma einkum við sögu hjá ykkur? „Fólk á aldrinum sautján ára til þrítugs. Það er sjaldgæft að ungl- ingar yngri en sautján ára komi við sögu mála og einnig fólk yfir þrítugt. Þetta kemur heim og saman við kannanir sem gerðar hafa verið. Það eru einkum nem- endur framhaldsskóla sem neyta fíkniefna og fólk, sem er að stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðin- um. Með öðrum orðum ungt fólk. Ég hef rætt talsvert við nemendur í framhaldsskólum og þeim ber saman að fíkniefnaneysla sé í öll- um skólum og í afmörkuðum hóp- um. Það er algengt að nemendur flosni upp frá námi og unglingar missi vinnu þegar þeir neyta fíkniefna að staðaldri, þegar fíkni- efnaneysla verður að meiru en fikti skapast sinnuleysi. Ég hef oft heyrt lýsingar foreldra á því hvernig bðrn þeirra flosnuðu upp frá námi og vinnu." „Speed“ og kókaín á markaði — Mest ber á kannabisefnum hér á landi, en í vaxandi mæli heyrist af sterkari efnum á mark- aði hér. „Já, það er rétt. Svokallað „speed", sem er afmetamín sem er sniffað og jafnvel kókaín heyrast nefnd. Kókaínneysla hefur mjög færst í vöxt í Kaupmannahöfn. Hrafn Pálsson, félagsráðgjafi: Leiða má líkum að því að neysla hass sé 2,5—3 tonn á ári í VETUR var Hrafn Pálsson, félagsráðgjafi, fenginn til þess af heilbrigðisráðuneytinu að kanna, hvaða áhrif fíkniefna- dómar hefðu haft á einstaklinga. Hann hefur kannað fikni- efnadóma, sem kveðnir hafa verið upp í Sakadómi í ávana- og fíkniefnum. „Nánast allir sem komu fyrir dómstólinn voru dæmdir fyrir misnotkun á kannabisefnum. Ég slæ því fram, að hass sé reykt í miklum mæli hér á landi, en hve miklum er erfitt að segja til um. Þó má leiða líkur að því, að 2,5 til 3 tonna af hassi sé árlega neytt hér á landi,“ sagöi Hrafn Pálsson í samtali við Mbl. — Hvað liggur til grundvall- ar? „í vetur birti bandaríska stórblaðið The New York Times niðurstöður rannsókna dr. Williams Pollin, forstjóra þeirrar stofnunar í Bandaríkj- unum, sem hefur með fíkni- efnamisferli að gera. Sam- kvæmt niðurstöðum hans reykja um 15 milljónir Banda- ríkjamanna eina marijúana- sígarettu á dag, að minnsta kosti. Neysla á fíkniefnum í Bandaríkjunum er í rénun, en þegar mest var, þá var talið, að 25 milljónir hefðu neytt sem svaraði einni marijúanasígar- ettu á dag. Hér á landi má ætla, að hápunkti í neyslu verði náð innan fárra ára. Ef neytendur eru hlutfalls- lega jafnmargir hér og í Banda- ríkjunum fyrir tveimur árum, þá neyta 23 þúsund manns sennilega 0,75 gramma á dag allt árið um kring, eða tæplega 6,3 tonna. Gefum okkur að hér á landi eigi þetta aðeins við um fólk á aldrinum 16 til 40 ára. Þá nemur neyslan hér á landi rúmlega 2,5 tonnum (9.300 manns x 0,75 x 365 dagar). Eftir að hafa kannað þessi mál nú um nokkurt skeið, þá tel ég þetta ekki fjarri sanni og ætla má, að fíkniefnaneysla minnki ekki á næstu árum. Ætla má, samkvæmt fenginni reynslu erlendis, að fíkniefna- neysla nái hámarki hér á landi eftir 2—3 ár en réni síðan. Neysla fíkniefna er talin spenn- andi í byrjun, en þegar hin hryggilegu dæmi blasa við; fórnarlömbin, þá minnkar neyslan sem betur fer. Blekk- ingarlyfin tapa ljóma sínum." Ilrafn Pálsson, félagsráögjafi. Fíkniefnadómar hafa ekki skilað nógu góðum árangri „Ég tel að dómar vegna neyslu fíkniefna hafi ekki skil- að nógu góðum árangri hér á landi, fremur en annars staðar. Að taka fólk tímabundið úr um- ferð eða sekta vegna neyslu fíkniefna leysir ekki vandann. Fæstir þeirra, sem dæmdir hafa verið, eru það sem við mundum kalla harðsvíraðir glæpamenn. Flestir sem reykja kannabisefni trúa að þeir séu að gera rétt; neysla fíkniefna er allt að því trúarbrögð. Rannsóknir fíniefnabrota taka of langan tíma og mál eru of lengi hjá dómstólnum vegna mannfæðar. Þetta skapar óvissu og hefur spillt fyrir ein- staklingum. Þess eru dæmi, að sögn þolenda, að seinagangur hafi haft í för með sér slíka spennu, að til hjónaskilnaða hefur dregið og atvinnumissir hefur hlotist af. Það verður að koma á öfga- lausum umræðum um fíkni- efnavandann hér á landi. Það verður að upplýsa almenning um skaðsemi fíkniefna sem vímugjafa. Fíkniefnavandinn á sér margar orsakir, þar á meðal held ég hann eigi rætur sínar að rekja til fjölskyldunnar, til uppeldisins. I hraða nútímans hefur fólk ekki tíma fyrir hvort annað. Börnin verða af nauð- synlegri uppörvun, hlýju. Finna ekki bakhjarl í foreldrum sín- um. Þau verða oft vitni að vímugjafaneyslu foreldra sinna og það er oftast óskemmtileg reynsla. Unglingar á leið inn í heim fullorðinna velja þess vegna aðra vímugjafa en for- eldrarnir. Þessar uppreisnir og tilraunir fylgja ungdómsárun- um. Afengisverslanir eru opnar hér á landi. Áfengi er hinn opinberi vímugjafi. Við höfum með öðrum orðum lögleitt vímugjafann áfengi, eins og flestar þjóðir heims. Því mega menn allt eins eiga von á, að talað sé máli annarra vímu- gjafa. Margir hassneytendur hafa komið ótilkvaddir til mín og rætt um heilnæmi og menn- ingargildi kannabisefna. Fólki finnst því misboðið að fá ekki að neyta þessara vímugjafa, eins og áfengis og tóbaks. Spurningin er: Fjölmargir bíða heilsutjón vegna áfengis; er á bætandi með lögleiðingu nýrra vímugjafa til viðbótar þeim sem fyrir eru? Sjaldnar er spurt að hve miklu leyti við þörfnumst vímugjafa. Þá gildir einu hvort um er að ræða áfengi eða önnur fíkniefni. Það er sama hvaða vímugjafi er notaður; afleið- ingarnar kunna að verða dýru verði keyptar. Áhættan heldur áfram að vera spennandi, örv- andi eða róandi og neytendur hlæjandi eða grátandi," sagði Hrafn Pálsson. Á morgun: „HÉR RÍKIR SINNULEYSI UM FÍKNIEFNAMÁL“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.