Morgunblaðið - 15.09.1982, Síða 1
56 SIÐUR
203. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins
+
Dr. Kristján Eldjárn
fyrrverandi forseti íslands látinn
I)r. Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti íslands, er lát-
inn. Ilann lést um klukkan 18 í gær að íslenskum tíma í
Bandaríkjunum, þar sem hann gekkst undir hjartaaðgerð.
Dr. Kristján, sem var forseti íslands frá 1968 til 1980, var
sextíu og fimm ára er hann lést.
Dr. Kristján Eldjárn
fæddist á Tjörn í Svarfað-
ardal hinn 6. desember ár-
ið 1916, sonur hjónanna
Sigrúnar Sigurhjartar-
dóttur og Þórarins Eldjárn
bónda og kennara á Tjörn.
Kristján varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akur-
eyri 1936. Hann stundaði
nám í Kaupmannahafn-
arháskóla 1936 til 1939, og
mag. art. varð hann frá
Háskóla íslands 1944. Dr.
phil. frá Háskóla íslands
varð hann árið 1957. Dr.
Kristján stundaði kennslu-
störf fram til ársins 1945,
en þá varð hann safnvörð-
ur við Þjóðminjasafn ís-
lands. Þjóðminjavörður
varð hann hinn 1. desem-
ber 1947, og gegndi því
starfi allt til þess er hann
tók við embætti forseta ís-
lands 1. ágúst 1968. Forseti
íslands var dr. Kristján
Eldjárn í þrjú kjörtímabil,
fyrst kjörinn 1968, og síðan
sjálfkjörinn árin 1972 og
1976, en 1980 gaf hann ekki
kost á sér til endurkjörs.
Hann var skipaður pró-
fessor við Háskóla íslands
1. janúar 1981.
Auk forsetastarfa og
annarra starfa er dr.
Kristján Eldjárn hafði á
hendi áður en hann var
kjörinn forseti, gegndi
hann fjöldamörgum trún-
aðar- og virðingarstörfum
um ævina. Hann var um
skeið formaður Stúdenta-
félags Reykjavíkur, í
stjórn Hins íslenska forn-
leifafélags frá 1945 og
formaður þess frá 1979 og
ritstjóri Árbókar þess frá
1947. Hann átti um árabil
sæti í stjórn Hins ísl.
bókmenntafélags, sat í út-
gáfustjórn Acta Archaeo-
logica, í útgáfustjórn Kult-
urhistorisk leksikon for
nordisk middelalder, í
stjórn hugvísindadeildar
Vísindasjóðs, hann sat í
náttúruverndarnefnd
Reykjavíkur 1958 til 1968,
hann var um skeið formað-
ur örnefnanefndar og sat í
orðunefnd 1966 til 1968.
Hann var í Félagi ísl. rit-
höfunda og heiðursfélagi í
Rithöfundasambandi Isl.
1977.
Dr. Kristján var gerður
heiðursdoktor við háskól-
ana í Aberdeen 1969, Lundi
1970, Óðinsvéum 1974,
Björgvin 1975, Leningrad
1975 og Leeds 1978.
Hann stóð fyrir fjölda
fornleifarannsókna á ís-
landi og einnig í Græn-
landi, Gotlandi og Ný-
fundnalandi og hann ritaði
mikið um fornleifafræði,
einkum í Árbók fornleifa-
félagsins. Hann fékkst
nokkuð við þýðingar í
bundnu og óbundnu máli
og eftir hann liggja fjöl-
margar bækur, einkum um
söguleg og fornleifafræði-
leg efni.
Eftirlifandi eiginkona
dr. Kristjáns er frú Hall-
dóra Ingólfsdóttir Eldjárn.
Er Kristján tók við emb-
ætti forseta íslands árið
1968, flutti hann ávarp til
þjóðarinnar, og voru nið-
urlagsorð þess eftirfar-
andi: „Ég tek við embætti
forseta Islands með auð-
mýkt og full vitandi um þá
ábyrgð, sem því fylgir, en
um leið einráðinn í að
standa við hana eftir því
sem mér endist vit og
auðna til. Ég vil, að því
leyti sem í mínu valdi
stendur, leggja mig fram
um að láta gott af mér
leiða í öllu því er varðar
heill og hamingju þjóðar-
innar í veraldlegum og
andlegum efnum og bið
guð að gefa mér styrk til
þess. Ég vona og bið, að
mér auðnist að eiga gott
samstarf við stjórnvöld
landsins og hafa lífrænt
samband við þjóðina, sem
mig hefur kjörið til þessa
embættis. Hjá fólkinu í
landinu mun hugur minn
verða.“
Vér íslendingar, hver og einn,
höfum misst mikinn og mætan vin
Ávarp forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, við andlát dr. Kristjáns Eldjárn fyrrum forseta
Hryggð mín við fráfall dr. Kristjáns
Eldjárn, fyrrverandi forseta Islands,
er dýpri en ég fæ tjáð í orðum.
Vér íslendingar, hver og einn, höf-
um misst mikinn og mætan vin.
Islensk þjóð sameinast í söknuði og
horfist í augu við örlög, sem kallað
hafa „svona vænan vinnumann af velli
heim á bæ um miðjan dag“.
Vigdís Finnbogadóttir