Morgunblaðið - 24.10.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 24.10.1982, Síða 1
80 SÍÐUR 237. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Indland: Þurrkar og flóð valda mannfelli Nýju-I)elhí, 23. október Al*. MANNFELLIR hefur orðið í Bihar- fylki og víðar á Indlandi að undan- fórnu af völdum þurrka og síðan gíf- urlegra flóða í kjölfar þeirra. I>urrk- arnir ollu uppskerubresti og hungur- dauða margra manna en þegar loks- ins tók að rigna var eins og allar flóðgáttir himinsins hefðu opnast. Miklir þurrkar hafa verið í mörgum fyikjum á Norðaustur- Indlandi og raunar víðar og er tal- ið, að kornuppskera þjóðarinnar muni verða um 20 milljónum tonna minni af þeim sökum. Ak- urlendi hefur breyst í eyðimörk, vötn þornað upp og er talið, að í Bihar-fylki einu séu 400.000 manna komnar á vergang. Ekki er vitað hve margir hafa látist af hungri. Indverskir bændur eiga allt sitt undir sumarrigningunum en í ár komu þær seint, stóðu stutt og ollu flóðum á svæðum þar sem áður var sviðin jörð af þurrki. Margir halda því fram, að þessar náttúru- hamfarir séu óumflýjanlegar eins og komið er á Indlandi. Landið er þrautpínt og skógarnir hafa verið höggnir að mestum hluta. Alvar- legust er skógeyðingin sögð í hlíðum Himalayafjalla en hún veldur því, að ekkert hindrar vatn- ið í að steypast ofan hlíðarnar með tilheyrandi flóðum á láglend- inu. Hernum att á nemendur Mutarem, Zimbabwe, 23. október. AP. SKÓLASTJÓRI nokkur í borginni Mutare í Zimbabwe greip til þess ráðs að kveða til lögreglu og her til þess aö binda enda á verkfall 700 nemenda, sem vildu láta í Ijósi óánægju sina með matinn í mötu- neyti skólans. Skólastjórinn, Mark Bofu, skýrði frá því að öllum nemendun- um, er tóku þátt í verkfallinu í skólanum, yrði refsað og þeim meinuð skólaganga um tíma. Skól- anum hefur nú verið lokað um óákveðinn tíma á meðan skóla- stjórinn bíður ákvörðunar menntamaálaráðuneytisins í Harara. BOÐAÐ VAR til neyðarfundar í rík- isstjórn Líbanon í morgun, þar sem árangur af ferð Amin Gemayels, for- seta; til Bandaríkjanna, Krakklands og Italíu var ræddur. Á sama tíma bárust fregnir af samkomulagi um takmarkaöan brottflutning hluta her- liðs Israelsmanna og PLO frá Líb- anon. Gemayel sneri heimleiðis í gær eftir vel heppnað sex daga ferðalag til þriggja áðurnefndra landa, sem lagt hafa til 4.000 manna friðar- gæslusveitir í Beirút. Dagblaðið An-Nahar skýrði frá því í dag, að frumdrög að sam- komulagi um brottflutning hluta herliðs ísraelsmanna og PLO hefðu verið lögð á meðan ferð Gemayels stóð. Sagði ennfremur í An-Nahar, að samkomulag um endanlegan brottflutning ísraela og Palestínumanna frá Bekaa- dalnum yrði gert síðar. Blaðið get- ur ekki um heimildarmenn fyrir frétt sinni, en ritstjóri þess var að- stoðarmaður Gemayels á ferðalagi hans. I samkomulaginu er kveðið á um að ísraelsmenn dragi herlið sitt um 15 kílómetra frá þjóðveginum á milli Beirút og Damaskus í skipt- Ix)ndon, 23. október AP. SOVKSKUR sendiráðsstarfsmaður, sem stjórnvöld i Bretlandi segjast hafa veitt hæli þar í landi, er einn af æðstu yfirmönnum KGB, rússnesku leyniþjónustunnar, á Vesturlöndum og í Miöausturlöndum að því er um fyrir að skæruliðar yfirgefi norður- og austurhluta Líbanon. Sagði í An-Nahar, að á meðan Gemayel dvaldi í Washington hefði hann verið fullvissaður, af breska blaðið The Daily Mail segir í dag. Blaðið segir, að maðurinn sé Vladimir Kuzichkin, 35 ára gamall starfsmaður við sovéska sendiráðið í Teheran í íran, og að flótti hans ÍYasser Arafat, um að herir PLO í landinu myndu ekki standa í vegi fyrir þeim tilraunum yfirvalda, að koma öllu erlendu herliði úr land- inu. sé mesti hvalreki á fjörur bresku leyniþjónustunnar í langan tíma. í gærkvöldi skýrði breska innanrík- isráðuneytið frá flótta hans og sagði, að hann hefði komið til Bret- lands „á síðustu dögum" og fengið dvalarleyfi í landinu. The Daily Mail segist hafa það eftir breskum leyniþjónustumönn- um, að Kuzichkin sé „æðsti KGB-maðurinn á sínu sviði“ og að ráðamenn í Bretlandi séu í sjöunda himni yfir þessum tnikla feng. „Mikilvægi hans má marka af því, að bandarískir leyniþjónustumenn hafa flykkst til London til að spyrja hann spjörunum úr með breskum starfsbræðrum sínum," segir blaðið, sem kveður Kuzichkin hafa komið með „geysilegar upp- lýsingar um njósnastarfsemi Sov- étmanna í Vestur-Evrópu og í Mið- austurlöndum, nöfn njósnara, milliliða, dulmálslykla og margt fleira". Frá flótta Kuzichkins er sagt i fleiri breskum blöðum og The Tim- es segist hafa það eftir heimildum, að hann hafi flúið í júní sl. einn síns liðs og að kona hans hafi orðið eftir í Teheran. Sérstakt dómsmál í Bandaríkjunum: Sjúklingur lést er meðferð var hætt að hans eigin ósk Mineola, New York, 23. oklóber. AP. MAÐUR, SEM var alvarlega veikur af sykursýki og með ónýt nýru, lést á föstudag, skömmu eftir að hann hafði unnið mál fyrir rétti þar sem hann krafðist þess að læknismeðferð yrði hætt. Úrskurður dómstólsins kom blóðrás hans í ólagi. Skömmu eft- réttri viku eftir að Peter Cinque krafðist þess að læknismeðferð á sér yrði hætt og hann fengi að deyja. Auk þess að vera sykur- sjúklingur var Cinque blindur og hafði misst báða fætur. Þá var ir að Cinque lagði fram skriflega beiðni um að fá að deyja, féll hann í dá. Var læknum Lydia Hall- sjúkrahússins í Freeport skipað að hætta meðferð sinni á Cinque. Hann lést skömmu síðar. For- ráðamenn sjúkrahússins reyndu fyrst að fá Cinque ofan af beiðni sinni, en þegar það tókst ekki sneru þeir sér til dómstóla í von um hjálp, en án árangurs. For- ráðamennirnir lýstu því yfir, áð- ur en úrskurðurinn lá fyrir, að þeir myndu ekki áfrýja niður- stöðu dómstólsins. Að sögn lækna hefði Cinque getað lifað í a.m.k. sex mánuði með áframhaldandi meðferð, en ekki í viku án hennar. Cinque naut fyrst aðstoðar gervinýra fyrir þremur árum og var í stöð- ugri meðferð æ síðan. Hann var með fullri rænu er hann skrifaði undir yfirlýsingu sína í viðurvist sex vitna. Sovéskur njósnari flýr til Bretlands „Einn af æðstu yfirmönnum KGB á Vesturlöndum“ segir The Daily Mail

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.